Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 28

Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Hausthefti Sögu 2010 er komið út. Meginefni heftisins eru miðaldasaga og staða sagn- fræðinnar í samfélaginu. Meðal efnis er umfjöllun Helga Þorlákssonar um valda- kerfi Ásbirninga, Steinunn Kristjánsdóttir og Gísli Krist- jánsson hafa komist að tengslum Skriðuklausturs við Suðursveit og Loftur Gutt- ormsson fjallar um ólíkar túlk- anir á endalokum Ögmmundar Pálssonar Skál- holtsbiskups. Ítardómur er um doktorsritgerð Halldórs Bjarnasonar og Eggert Þór Bernharðs- son fjallar um nýja fastasýningu í Safnahúsinu á Húsavík. Þá fjallar Spurning Sögu um bækur. Tímarit Miðaldasaga og staða sagnfræði Það vex eitt blóm fyrir vestan er heiti myndlistarsýningar Svövu Sigríðar Gestsdóttur sem stendur yfir í Gerðubergi, í Boganum. Eins og titill sýningarinnar vísar til, eru ljóð uppspretta nokkura verka listakonunnar á sýningunni. Um tilurð verk- anna segir hún m.a.: „Ég bý á stað, þar sem er mikið útsýni yfir himin og haf, Snæfells- jökul, Esjuna og Akrafjall og þar sem litaspil him- ins er mikið, síkvikt og breytilegt.“ Hugmyndir safnast þar í undirmeðvitundina, til úrvinnslu. Sýning Svövu Sigríðar stendur til 16. janúar og er opin virka daga kl. 11-16 og um helgar kl. 13-16. Myndlist Svava Sigríður sýnir í Gerðubergi Hluti verks eftir Svövu Sigríði Núna í byrjun janúar eru þrjú ár síðan hinn verðlaunaði ein- leikur Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur var frum- sýndur. Af því tilefni verður efnt til nokkurra sýninga í Landnámssetri Íslands í Borg- arnesi í janúar. Þær fyrstu verða á laugardaginn kemur, 8. janúar kl. 20, og sunnudaginn 9. janúar kl. 16. Brák var tilnefnd til þriggja Grímuverðlauna árið 2008, sem besta sýningin, besta leikari og besta handrit. Brynhildur hlaut tvær Grímur, sem besta leikkonan og besti hand- ritshöfundurinn. Í Brák segir Brynhildur sögu Þorgerðar brákar, fóstru Egils Skallagrímssonar Leiklist Brák á fjalir Land- námsseturs að nýju Brynhildur í hlutverki Brákar Guðjón Sveinsson rithöf- undur á Breiðdalsvík hefur sent frá sér bókina Litir & ljóð III. Eins og felst í titl- inum er þetta þriðja bókin í röð þar sem hann fléttar saman ljóðum og ljós- myndum. Þessi nýja bók, sem er í stóru broti eins og hinar fyrri, ber undirtit- ilinn Fegursti fjalla- hringur og vinnur höfundur þar með ljós- myndir sem sýna sérstæð og tignarleg fjöllin í Breiðdal. Þegar Guðjón er spurður út í þá hugmynd að setja saman bók um fjallahringinn í Breið- dal, vísar hann í tileinkunina fremst í henni, en þar er vitnað í mann sem stöðvaði bíl við hlið höfundar á þjóðvegi eitt fyrir margt löngu og sagði út um opinn bílgluggann: „Þetta er fegursti fjallahringur landsins.“ „Þessar myndir eru í stórum dráttum tekn- ar á síðastliðnum fjórum, fimm árum,“ segir Guðjón um myndirnar sem birtast lesendum af hinum ýmsu fjöllum svæðisins. Hann segir það kalla á sig að flétta ljós- myndum og ljóðum saman á þennan hátt. „Það eru mjög sterk tengsl milli ljóða og að minnsta kosti landslags. Enda heita síkar bækur ljóðmyndabækur,“ segir Guðjón. Í bókinni kemur fram að Guðjón birtir meðal annars í henni bernskuljóð eftir sig, en þegar hann rakst á stílabók með þeim, fóru „fortíðarfrumur á stjá“ og hann valdi að láta úrval þeirra prýða síður þessarar „fag- urfjallabókar“. Um fjallahringinn yrkir hann: „Fagur sá fjallahringur / sem fegrar dalinn minn. / Aldreigi annars staðar / unað tærastan finn.“ efi@mbl.is „Fegursti fjallahringur landsins“  Guðjón Sveinsson hefur sent frá sér bók með ljóðum og ljósmyndum af fjöllum Breiðdals Ljósmynd/Guðjón Sveinsson Sátur yfir Stuttadal Ein myndanna úr bók Guðjóns, en þær sýna fjöll sem ramma in Breiðdal. Guðjón Sveinsson Átak er hafið í Írak við að bjarga fornminjum í hinni fornu Bab- ýlonsborg og gera þær jafnframt að- gengilegar gest- um. Á síðustu ára- tugum hafa umtalsverðar skemmdir verið unnar á leifum hinnar fornu borgar Nebúkadnesars; Saddam Hussein reisti gríðarstóra höll á hluta rústanna og eftir innrás Bandaríkjamanna árið 2003 komu þeir þar upp herstöð sem Pólverjar tóku síðar yfir. Ráðamenn í Írak vonast til að bætt aðgengi að fornum sögufrægum minj- um, frá borginni Úr í suðri til Nimrud í norðri, muni í framtíðinni laða vís- inda-, fræði- og ferðamenn til landsins og skapa gjaldeyri ekki síður en olían. Möguleikar íbúanna Í The New York Times kemur fram að bandarísk stjórnvöld hafa styrkt fornleifafræðinga og forn- leifavernd Íraks um tvær milljónir dala, til að hægt sé að hefjast handa við að vernda og lagfæra áhrifamestu fornminjarnar sem enn eru á svæð- inu. Í gegnum árin hafa ræningjar hirt marga góða gripi og þá má nefnda að hið forna Ishtar-hlið í Pergamon-safninu í Berlín. Bandarískur hópur sem vinnur nú við endurbætur á svæðinu innan fornu borgarveggjanna hefur undir- búið opnun safns þar. Áætlað er að safnið verði opnað síðar í þessum mánuði en það hefur verið lokað frá árinu 2003. Rætt er um að babýlón- ískar fornminjar sem eru í Þjóðminja- safninu í Bagdad verði fluttar aftur þangað. „Við erum ekki bara að skoða forn- minjar,“ er haft eftir Jeff Allen sem vinnur að endurbótum í Babýlon. „Við erum að horfa á efnahagslega mögu- leika fyrir íbúana, þeir þurfa að fá eitthvað út úr þessum minjum. Það er vel mögulegt og að vernda á sama tíma þessar sögulegu fornminjar.“ Bjarga minjum í Babýlon  Safn opnað á ný í hinni fornu borg Eftirmynd Ishtar- hliðsins í Babýlon. Casper er vægast sagt ósáttur við þetta uppátæki trúðsins því ferðin átti að vera ,,píku- ferð“ 32 » Ég er búin að undirbúa mig vel en þetta er vissulega nokkuð ströng dagskrá, fjögur kvöld í röð,“ segir Hanna Dóra Sturludóttir sópr- ansöngkona þegar hún er spurð að því hvort ekki sé erfitt að syngja fjóra daga í röð einsöng á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún kemur fram á fernum Vín- artónleikum næsta daga með hljóm- sveitinni. „Þetta verða eflaust skemmtilegir tónleikar, enda efnisskráin fín, og þá verður maður eflaust í stuði,“ bætir hún við. Þetta er í fyrsta skipti sem Hanna Dóra kemur fram á Vínartónleikum hljómsveitarinnar. Hún flytur fjórar aríur úr óperettum á tónleikunum og á milli leikur Sinfóníuhljóm- sveitin hljómsveitarverk. „Létt og góð blanda“ „Þetta eru ólík verk sem ég syng,“ segir Hanna Dóra sem þekkir verkin vel. „Vínartónlist hefur verið stór hluti af mínum verkefnum. Þegar ég hef verið ráðin að óperuhúsum í Þýskalandi þá hafa alltaf verið ein eða tvær óperettur á efnisskránni á hverjum vetri. Sumar hef ég sungið oft, aðrar sjaldnar, og stundum á tónleikum. Þá er oft beðið um þessi klassísku Vínarlög á skemmtunum og tónleikum.“ Þegar Hanna Dóra er spurð að því hvers vegna Vínartónlistin sé svona vinsæl, segir hún að þetta sé oftast nær létt tónlist með grípandi takti og ríkri danstilfinningu. „Fólk dillar sér með og laglín- urnar eru yfirleitt grípandi. Þá er umfjöllunarefnið gjarnan á léttari nótunum og létt grín gert að hinum og þessum þáttum samfélagsins. Þetta er létt og góð blanda sem fellur fólki vel í geð. Mér finnst af- skaplega gaman að fá að taka þátt í þessum flutningi.“ Hanna Dóra hefur um ára- bil verið búsett í Berlín ásamt fjölskyldu sinni og segist hafa mjög mikið að gera í söngn- um. „Í haust vann ég á vegum Rík- isóperunnar í Berlín og strax eftir tónleikana hér fer ég til Gelsenkirchen þar sem ég er með verkefni í janúar og febrúar og svo aftur í apríl og maí. Það er því heilmikið að gera,“ segir Hanna Dóra. efi@mbl.is Sinfóníuhljómsveitin með Vínartónlistarveislu í vikunni  Hanna Dóra Sturludóttir ein- söngvari með hljómsveitinni Morgunblaðið/Eggert Söngkonan Hanna Dóra Sturludóttir í hlutverki sínu í Ariadne auf Naxos í Íslensku óperunni árið 2007. Hún syngur Vínartónlist næstu dagana. Á hverju ári eru Vínartónleik- arnir í upphafi ársins vinsæl- ustu tónleikar Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Þarf nú ferna tónleika til að allir komist að sem vilja og verða þeir fyrstu annað kvöld, miðvikudagskvöld. Hanna Dóra Sturludóttir er einsöngvari að þessu sinni. Hún hefur átt glæsilegan feril við þýsk óperuhús, meðal annars Ríkisóperurnar í Berlín og Ham- borg. Hún hefur sungið í mörg- um uppfærslum Íslensku óp- erunnar og er á heimavelli í flutningi Vínartónlistar. Stjórnandi á tónleik- unum er Graeme Jenk- ins sem hefur stjórnað 106 ólíkum óperum víðsvegar um heiminn. Hann er aðalstjórnandi Dallas-óperunnar í Bandaríkjunum. Á tónleik- unum hljómar sígild Vín- artónlist úr ýmsum átt- um, þar á meðal Dónárvalsinn og hljómsveitarsvíta úr Rósariddaranum eftir Richard Strauss. Vinsælustu tónleikarnir SÍGILD VÍNARTÓNLIST Richard Strauss

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.