Morgunblaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 1
Tveir miðlar, ein auglýsing, tvöföld áhrif. Auglýsingin birtist líka á mbl.is20. janúar 2011
Á SKÍÐI FYRIR AUSTAN - Flug, skíðapassi og gisting á Icelandair Hótel Héraði Egilsstöðum
>> Flogið til Egilsstaða á fimmtudegi.
>> Skíðapassi á skíðasvæðið Stafdal, Seyðisfirði.
>> Tilboðsverð á flugi og gistingu janúar – apríl 2011.25.700 kr.
Bókaðu hjá hópadeild í síma 570 3075 eða hopadeild@flugfelag.is
Verð frá
á mann í tveggja manna herbergi.
Reglulegt viðhald á hurðum og glugg-
um, póstum, fögum og læsingum er
mikilvægt til að þau endist vel og
gegni hlutverki sínu, segir Þórður
Árnason húsasmíðameistari. 4
Gluggar og fög
fasteignir
Audi A1 er gullfallegur og kippir í
kynið. Stuttur og snagg-
aralegur með mjög sportlegar
línur. Vel fer um farþega jafnt
sem ökumann í þessum fjör-
lega en þó eyðslugranna bíl. 16
bílar
Audi A1 er eðalbíll
Nær 13% félaga í Eflingu eru án vinnu
og kjör margra hafa verið skert. Margir
þora ekki að sækja rétt sinn af ótta við
uppsögn, segir Harpa Ólafsdóttir, hag-
fræðingur stéttarfélagsins. 10
Ótti í Eflingu
Á vegum Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar er nú unnið að því að kortlegga
sprungna jökla landsins með tilliti til slysahættu. Jöklarnir
eru fjölfarnir en ferðir geta endað illa sé óvarlega farið. 15
Kortleggja
jöklana
Húsið var byggt árið 1765 sem
íbúðarhús fyrir danska einok-
urnarkaupmenn sem höndluðu á
Eyrarbakkanum. Húsið telst til
elstu bygginga landsins og var lengi vel merkt menning-
arsetur þar sem erlendra áhrifa gætti. 4
Húsið á Eyrarbakka
Íkvikmyndinni Roklandi leikurElma Lísa Gunnarsdóttir Döggu,ástkonu Bödda, sem leikinn er afÓlafi Darra Ólafssyni. Elma
orðar það sjálf sem svo að Döggu mætti
kalla bæjarglyðruna.
Og nei, ástaratriðin voru ekkert sér-
staklega erfið. „Það eru þarna nokkur
nektaratriði í myndinni, en líka til-
finningalegar senur sem voru töluvert
krefjandi. Raunar má segja að þetta sé
stærsta og mest krefjandi hlutverk sem
ég hef leikið og veruleg áskorun að ljá
henni Döggu ákveðna dýpt og marg-
brotinn persónuleika,“ segir Elma.
„Hún er stelpan sem allir í plássinu hafa
sofið hjá, og meira að segja starfandi
sérstakt Dögguvinafélag í bænum, en
umfram allt er hún saklaus sál í leit að
ástinni, og telur sig hafa fundið í Bödda
það sem hún er að leita að.“
Ádeila á græðgisvæðingu
Handrit kvikmyndarinnar byggist á
samnefndri skáldsögu Hallgríms Helga-
sonar. Böddi er kominn aftur í sinn litla
heimabæ eftir langa námsdvöl í evr-
ópskri heimsborg. Hann hefur allt á
hornum sér og miklar skoðanir á hvert
samfélagið stefnir. Áhorfendur fylgjast
með hvernig smám saman strekkist
meira á taugum Bödda uns ekki er leng-
ur með öllu ljóst hvort hefur gengið af
göflunum: Böddi eða íslenskt samfélag.
Elma segir efni kvikmyndarinnar
eiga erindi við landsmenn nú sem aldrei
fyrr. „Óhætt er að segja að myndin
komi út á hárréttum tíma. Sagan gerist
árið 2005 og upplifir Böddi allt í kring-
um sig að græðgistímabil er runnið upp.
Fólkið í sjávarþorpinu, sem hann hefur
þekkt allt sitt líf, hefur allt í einu eign-
ast helling af peningum, ekur um á
flottum bílum og græðir bara og græðir
án þess að hafa nokkuð fyrir því.“ Elma
hefur fjarri því setið auðum höndum
síðan tökum lauk. Hjá Borgarleikhúsinu
lék hún t.d. í 50 sýningum á Fólkinu í
kjallaranum og útlit er fyrir áframhald-
andi sýningar næsta haust. Núna
standa yfir æfingar fyrir farsaverkið
Nei ráðherra sem frumsýnt verður um
miðjan febrúar. „Fyrir jólin vorum við
svo að ljúka tökum á bíómynd Rúnars
Rúnarssonar, Eldfjalli. Er um að ræða
mikið drama um uppgjör innan fjöl-
skyldu og ég held að útkoman veki
örugglega athygli, en frumsýning er í
haust.“
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Óhætt er að segja að myndin komi út á hárréttum tíma, segir Elma Lísa um Rokland.
Krefjandi að leika
bæjarglyðruna
Elma Lísa fer með eitt af aðalhlutverkunum í Roklandi
atvinna
finnur.is