Morgunblaðið - 20.01.2011, Qupperneq 8
Einar Páll Kjærnested,
löggiltur fasteignasali.
Stórikriki 2, Mos. - 3 og 4ra herbergja íbúðir
Kjarna, Þverholti 2,
Mosfellsbæ
Sími 586 8080,
fax 586 8081
www.fastmos.is
Nýjar og glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í
3ja hæða lyftuhúsi með bílakjallara við Stórakrika
2 í Mosfellsbæ. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhend-
ingar með fallegum eikarinnréttingum. Flísar og
parket eru á gólfum. Verð frá 25,7 m. 4887
Kvíslartunga 39 - Parhús 250,6
m2 parhús á tveimur hæðum með bílskúr við
Kvíslartungu í Mosfellsbæ. Húsið er skráð sam-
kvæmt Fasteignamati ríkisins 217,7 m2 og bíl-
skúrinn 32,9 m2. Húsið sem er timbureiningahús
er tæplega fokhelt í dag og afhendist í núverandi
ástandi. Byggingarefni og einangrun sem eru í
húsinu fylgja með í kaupunum. V. 23,9 m. 5009
Laxatunga 120 og 122 Falleg rað-
hús á einni hæð. Húsin skiptast samkvæmt
teikningu í forstofu, 2 svefnherb., baðherb., eld-
hús, þvottahús, geymslu, stofu og borðstofu. Hiti
í gólfum. Falleg hús á mjög góðu verði. Áhv. eru
ca 17,8 millj. kr. ÍLS lán. Húsin eru fullbúin að ut-
an og einangruð. Hús tilbúið til innveggja. V. 20,6
m. Hús tæplega tilbúið til innréttinga, innveggir
komnir, tilbúnir undir sandsparstl. V. 22,9 m
Lækkað verð! 4696
Leirvogstunga - Einbýlishús
Fallegt 199,2 m2 einbýlishús með innbyggðum
bílskúr við Leirvogstungu 2 í Mosfellsbæ. Bjart
og rúmgott hús með fallegum innréttingum og
gólfefni. Mikil lofthæð með fallegri lýsingu er í
húsinu. Eignin er laus til afhendingar strax. V.
Skeljatangi 32 - 270 Mosfellsbær
Falleg 94,2 m2 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Skeljatanga í Mosfellsbæ. Íbúðin
skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, stofu og eldhús. Við hlið inngangs er köld
útigeymsla. V. 22,9 m. 5099
Opið hús í dag fimmtudag frá kl. 17:00 til 18:00
Smábýli - 5,8 Hektarar
Um er að ræða ca 5,8 hekt-
ara landspildu við Smábýli 5
úr landi Skrauthóla á Kjala-
nesi, undir einbýlishús og t.d.
hesthús á fallegum stað und-
ir hlíðum Esjunnar. Landið
hallar lítið eitt til vesturs og er
mikið og fallegt útsýni frá
landinu út á sundin og að-
Reykjavík. V. 10,0 m. 5091
Rúgakur 3 - 210 Garðabær
Rúmgóð og glæsileg 115,7 m2, 2ja herbergja íbúð
á 1. hæð í 2ja hæða lyftuhúsi ásamt stæði í bíl-
akjallara við Rúgakur 3 í Garðabæ. Íbúðin skiptist
í forstofu, rúmgott svefnherbergi með fataher-
bergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og
borðstofu. Íbúðinni fylgir bílastæði og sérgeymsla
í bílakjallara. Rúmgóð og glæsileg íbúð með fal-
legum innréttingar. Íbúðin er nýmáluð og tilbúin
til afhendingar strax. Áhvílandi er ca 22,3 millj-
ón kr. lán frá Íbúðalánasjóði. Verð 25,7 millj.
Völuteigur – Atvinnuhúsnæði
Gott iðnaðarhúsnæði við
Völuteig 1 í Mosfellsbæ sem
er búið að skipta í tvær ein-
ingar og eru inngangar í það
vestan og austan megin
hússins. Samtals er húsnæð-
ið skráð samkvæmt Fast-
eignaskrá Íslands 160,8 m2.
Stórar innkeyrsludyr og góð
birta. Samkvæmt mælingu
eiganda þá skiptist húsnæðið
vestan megin í ca 65 fm
vinnslusal og ca 18 fm milli-
loft. En austan megin í 45 fm
vinnslusal og 36 fm milliloft.
Ath. að þessar stærðir eru
gólfflatarmál að innan, en
ekki birt flatarmál. V. 19,9 m.
OP
IÐ
HÚ
S
kaupi bara iPhone þegar ég finn
fjársjóðinn minn.“
Hvað er best heima? „Uppáhalds-
staðirnir mínir í íbúðinni eru eldhús
og stofugluggarnir þar sem er mjög
huggulegt að sitja með tebolla og
fylgjast með mannlífinu. Stofu-
gluggann er hægt að opna alveg upp
á gátt og á sumrin er yndi að sitja
þar í sólinni að lesa eða hlusta á tón-
list og fylgjast með fólki við og
við.“
ai@mbl.is
Þessa dagana eyðir ÍsgerðurElfa Gunnarsdóttir öllumstundum í leikhúsinuNorðurpólnum á
Seltjarnarnesi. Þar er undirbún-
ingur fyrir barnaleikritið Fjársjóðs-
leit með Ísgerði í fullum gangi en
frumsýning verður 29. janúar.
Blaðamaður náði í Ís-
gerði og fékk að heyra
að hana langar í
iPhone og fjölhæf-
an Batman-bíl.
Draumastarfið? „Ég
er í draumastarfinu
mínu. Að starfa sem
listamaður felur í sér
mikla fjölbreytni og
breytilegan vinnu-
tíma sem hentar mér
mjög vel.“
Versta vinnan? „Af
þeim fjölmörgu störf-
um sem ég hef unnið
myndi ég segja að
versta væri þegar ég
bjó úti í London og
var að kynna ilmvötn í
Harrods. Að klæðast dragt
og vera stífmáluð alla daga er ekki
fyrir mig. Auk þess angaði ég af tíu
mismunandi ilmvatnstegundum á
leiðinni heim í lestinni og dauðlang-
aði að afsaka fnykinn fyrir öllum
sem komu nálægt mér. Ég var líka
skítblönk og fannst blóðugt að horfa
upp á fólk eyða andvirði tveggja
mánaða leigu (fyrir mér) í snyrtivör-
ur eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Þetta var líka ekki mjög vinalegt
umhverfi, enda skipti ég fljótlega og
fór að vinna á bar í hverfinu mínu.“
Draumabíllinn? „Ég var voðalega
snobbuð fyrir jeppum þegar ég var
lítil en í dag er mér nokk sama svo
lengi sem ég kemst á milli
staða. En það er frekar
óspennandi svar þannig
að ég segi bara að
draumabíllinn væri
Batmobile sem getur
flogið og gert alls konar
kúnstir. Má það ekki?
Eða kannski bara
ókeypis strætó í frá-
bæru leiðarkerfi.“
Hvað vantar á heimilið?
„Vantar og vantar ekki.
Ég á ekki sjónvarp, sem
mörgum finnst nánast
dauðasynd. Svo væri
fínt að fá stærra rúm
við tækifæri. Í augna-
blikinu vantar ljósaperu
í stofuna (vonandi verð
ég búin að bæta úr því þegar
þetta birtist!) Annars vantar mig
ekkert þannig séð … hef held ég
nokkurn veginn allt sem ég þarf.“
Hvað langar þig í? „Mig dauðlangar í
iPhone! Mig langar líka í nýja tölvu
þar sem mín er komin til ára sinna.
Svo vantar mig fjársjóð í leitina
mína góðu – þannig að ég kannski
Óskalistinn Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir
Seljandi ilmvötn
í Harrods stíf-
máluð og í dragt
Morgunblaðið/Árni Sæberg