Morgunblaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 15
bílar
Bílablaðamenn velja bíla ársins 2010
Sjö sæta jeppi og
rafknúinn fólksbíll
Nýr Chervolet Volt og endurhannaður Ford
Explorer urðu fyrir valinu þegar 49 bíla-
blaðamenn í Bandaríkjunum völdu bíla árs-
ins 2010. Valið fer fram ár hvert og eru
valdir bílar ársins í tveimur flokkum; fólks-
bíll ársins og jeppi/pallbíll ársins.
Hinn nýi Chervolet Volt var fyrst kynntur
til sögunnar á bílasýningu fyrir þremur ár-
um en var fyrst fáanlegur á almennum
markaði í desember síðastliðnum. Bílinn er
rafknúinn að hluta og getur ekið í allt að
80 kílómetra á raforkunni einni saman áð-
ur en vélin fer að nota bensín sem orku-
gjafa. Sérfróðir segja að þessi bíll ársins
eigi eftir að auka hróður rafknúinna bíla
svo um munar.
Ford Explorer-jeppinn hefur pláss fyrir
sjö farþega og er búinn 290 hestafla vél.
Hann er ýmsum tækjum búinn, meðal
annars nýrri tækni sem gerir ökumann-
inum kleift að stilla inn hvers kyns jarðvegi
verið er að keyra á svo vélin geti aðlagað
sig öllum aðstæðum sem best.
birta@mbl.is
Hagur Skoda vænkaðist á sl. ári, en alls voru 11,5% fleiri Skoda-bifreiðar
seldar árið 2010 en árið áður. Skv. samantekt frá fyrirtækinu voru
nær 762 þúsund Skoda-bifreiðar seldar á árinu, en rúmlega 680 þús-
und bílar árið 2009. Skoda Octavia var bæði árin langmest seldi bíll-
inn í Skoda-fjölskyldunni, en á hæla hans komu Yeti og Superb
Combi. Mest hefur salan aukist í Kína, Rússlandi og á Indlandi.
Salan eykst hjá Skoda
Octavia er enn vinsælastur
„Við væntum að með nákvæmari kortlagningu
sprungusvæða megi auka öryggi þeirra sem
ferðast um jökla landsins. Á næstu vikum verða
þessar upplýsingar gerðar aðgengilegar eða í
þann mund sem jeppaferðir
vetrarins um hálendið fara
af stað,“ segir Jónas Guð-
mundsson hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg. Að
frumkvæði manna sem eru
vanir jöklaferðum hefur
verið hrundið af stað verk-
efni þar sem sprungusvæði
á jöklum landsins eru kort-
lögð með það að markmið að
auka öryggi.
Snævarr Guðmundsson, fjallaleiðsögumaður
og nemi í landfræði í Háskóla Íslands, hefur
kortlagt sprungusvæði á jöklum. Kortlagningin
er unnin eftir nýlegum loft- og gervitungla-
myndum af jöklunum auk nákvæms hæðarlínu-
grunns og ljósmynda af jöklum sem teknar
voru úr flugvél síðsumars í fyrra. Einnig var
leitað til reyndra jöklamanna úr hópum vél-
sleða-, jeppa- og göngugarpa.
Rautt er lífshættulegt
Skv. kortunum eru á bláum svæðum
sprungulaus svæði. Á grænum svæðum eru
mjóar sprungur, ýmist lokaðar eða yfir þær er
fært allan ársins hring. Gul svæði eru með við-
sjárverðum sprungum en fær árstíðabundið.
Rauð svæði eru með jökulföllum, skriðjökuls-
fossum, sprunguhæðum og íshömrum. Eru
með öðrum orðum sagt lífshættuleg.
Kortin sem nú eru í vinnslu eru af Snæfells-
jökli, Langjökli og Vatnajökli. Þau verður hægt
að prenta út af vefsetrinu www.savetravel.is.
Þekktir framhlaupsjöklar verða einnig auð-
kenndir og ferðalangar minntir á í texta að
grennslast fyrir um ástand þeirra áður en hald-
ið er á jökul. Auk korta til útprentunar verða
fáanlegar sprungusvæðaþekjur sem leggjast
yfir kort í GPS-tækjum.
Ekki falskt öryggi
Samhliða gerð sprungukorta verða lagðir út
GPS-leiðarferlar sem ætlað er að sýna örugg-
ustu leið hverju sinni. „Þekking, reynsla og góð
ferðahegðan ráða öllu um hve áhættusamar
ferðir á jöklum eru. Tilgangurinn með kort-
lagningu sprungusvæða og útgáfu leiðaferla er
ekki að skilgreina hvar ferðast megi á jöklum
né banna fólki að fara inn á sprungusvæði. Ekki
heldur að vekja falskt öryggi. En þekking er
alltaf til bóta,“ segir Jónas Guðmundsson sem
bætir við að næsta sumar verði kort uppfærð
enda séu jöklar landsins á stöðugri hreyfingu;
skríði fram og springi og séu viðsjárverðir.
sbs@mbl.is
Slysavarnafélagið Landsbjörg með forvarnir fyrir jeppaferðir vetrarins
Ferðir upp á úthallandi vetri eru ævintýri. Mikilvægt er samt að hafa öll öryggisatriði í lagi og þekkja til dæm-
is sprungur á jöklum enda getur illa farið þekki fólk ekki til þeirra, eins og dæmi um hörmuleg slys sanna.
Sprungur jökla kortlagðar
Jónas
Guðmundsson
Ferðir um hálendið og jökla lands hafa aukist mikið síðustu
ár enda eru bílar og vélsleðar orðnir betri. Á sama tíma hafa
jöklar breyst mikið, ekki síst í grennd við jafnvægislínur.
Safnsvæði jöklanna hefur minnkað að flatarmáli eftir því
sem jafnvægislína hefur hækkað og hjarnbrýr sem áður
brúuðu gamlar sprungur hafa horfið. Afleiðingin er sú að æ
víðfeðmari svæði á jöklum eru sprungin, segir Snævar Guð-
mundsson í nýjasta tölublaði Björgunar.
Eftir hörmulegt slys á Langjökli hinn 30. janúar 2010, þegar kona beið bana eftir að hún
og ungur sonur hennar féllu í sprungu, var settur saman vinnuhópur til þess að kanna
hvernig kortleggja mætti sprungusvæðin og forðast slys. Á sl. síðustu tíu árum hafa orðið
sex banaslys á jöklum. Í fjórum tilfellum hefur fólk fallið í sprungur eða svelg. Um afdrif
tveggja Þjóðverja sem gengu á Öræfajökul er ekki vitað. sbs@mbl.is
Mörg slys hafa orðið á jöklum landsins síðustu ár
Víðfeðm svæði eru sprungin
Björgunarsveitarjeppi á ferð.
Stefan Jacoby, forstjóri Volvo, sagði í viðtali
við austurrískt dagblað að ekkert væri hæft í
þeim sögusögnum að fyrirtækið hygðist
leggjast í framleiðslu á ódýrari útgáfum á
Volvo-bifreiðum fyrir kínverskan markað.
Sem kunnugt er er Volvo nú í eigu hins kín-
verska Geely Automobile.
„Við höldum áfram að framleiða sömu vör-
urnar fyrir alþjóðamarkaðinn,“ sagði Jacoby.
Kunnugir spá því að sala á Volvo-bílum
komi til með að aukast á árinu.
Forstjóri Volvo í viðtali
Engar ódýrari út-
gáfur af Volvo