Morgunblaðið - 20.01.2011, Page 16
bílar16 20. janúar 2011
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is A
udi A1 er minnsti bíllinn í
Audi-fjölskyldunni, svo
lítill að hans helsti keppi-
nautur er Mini Cooper.
Þeir eiga það reyndar einnig sameig-
inlegt að vera litlir lúxusbílar og eru
nánast einu bílarnir í þeim flokki. Þó
má segja að Citroën DS3 eigi þar
heima líka. Audi A1 er sannarlega
lúxusbíll því hann fær ansi margt
lánað frá stærri bræðrum sínum, t.d.
talsvert af innréttingunni úr flagg-
skipinu Audi A8 og er þar ekki leið-
um að líkjast. A1 er líka sportbíll og
stíf fjöðrun hans sæmir bara hörð-
ustu sportbílum og hentar þess
vegna kannski ekki best hús-
mæðrum sem mjólkurbúðarbíll.
Bíllinn er eins og reyndar allir
bílar Audi gullfallegur og kippir í
kynið. Hann er stuttur og snagg-
aralegur með mjög sportlegar línur
og eiginlega sama framenda og
stærri bræður hans. Að innan er
hann hrein listasmíð með mjög ríku-
lega innréttingu og fer þar langt
fram úr keppinautunum og setur ný
viðmið í flokki lítilla bíla.
Audi A1 fæst eingöngu þriggja
dyra, en þó stendur til eftir ár eða
Reynsluakstur Audi A1
Eyðslugrannur en
fágaður sportbíll
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Audi A1 er gullfallegur og kippir kynið. Snaggaralegur með sportlegar línur og sama framenda og stærri bræður hans.
Audi A1 er gullfallegur og kippir í kynið. Stuttur og snaggaralegur með mjög sportlegar
línur. Vel fer um farþegajafnt sem ökumann í þessum fjörlega en þó eyðslugranna bíl.
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - is-band@isband.is - www.isband.is
Nýr Dodge Ram 1500 Sport Hemi
Eigum nokkra bíla sem eru tollafgreiddir
fyrir hækkun vörugjalda.
Nýtt útlit - meira rými afturí - leður - lúga - hiti í stýri
og sætum - kæling í sætum - bakkmyndavél
- fjarstart - Alpine hljómkerfi með útvarp með
snertiskjá og hörðum disk til að vista tónlist og
myndir - gormafjörðun að aftan - 390 hestöfl
- skriðvörn - spólvörn - dráttarbeisli – eigum fullt af
aukahlutum til á þessa bíla
Verð aðeins 7.490 þús. kr. stgr.
Metan
- Nú geturu fengið þennan lúxusjeppa í metan útfærslu,
metan/bensín.
- Rekstrarkostnaður samsvarar eyðslu uppá 9-9 lítra
innanbæjar
- Við bjóðum metan bílinn á sama frábæra verði og án
Metans þannig að Metan búnaðurinn og ísetningin er
þér að kostnaðarlausu.
- Ef þú hefur ekki aðgang að metani eða metanið
tæmist þá skipti bíllinn sjálfkrafa yfir á bensín
- Á metan bílnum geturu lagt frítt í stæði í miðborginni
og bifreiðagjöldin eru aðeins 5.000 krónur á ári.
Sérpöntum alla varahluti frá USA