Morgunblaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 19
20. janúar 2011 19 bílar
TOYOTA YARIS 1,0 TERRA 06/2004,
ek. 102 þús. 5 dyra, 5 gíra, abs, cd og
fl. Verð 990 þús.
Tilboð 750 þús. stgr.
SUBARU LEGACY OUTBACK
01/2004, ek,174 þús. 5 dyra, ssk. álf.
cd, cruise og fl. Verð 1.560 þús.
Tilboð 890 þús. stgr.
CHEVROLET AVEO 1,4 LS 07/2008,
ek. 35 þús. 4 dyra, 5 gíra, abs,
fjarstýrðar samlæsingar, cd,
þjónustubók og fl. Verð 1.850 þús.
Tilboð 1.490 þús. stgr.
FORD FOCUS 1,6 TREND 11/2004,
ek. 96 þús. 5 dyra, ssk. Abs,
dráttarbeisli, fjarstýrðar samlæsingar,
cd. Verð 1.330 þús.
Tilboð 990 þús. stgr.
PORSCHE CAYENNE 4,5 TURBO
03/2003, ek. 115 þús. 5 dyra, ssk, álf.
18” leður, topplúga, loftpúðafjöðrun,
hleðslujafnari og fl. og fl. Verð 4.990
þús.
Tilboð 3.890 þús. stgr.
Bílabúð Benna Bíldshöfða 10, 587 1000,
Bílabúð Benna Njarðarbraut 9,
Reykjanesbæ 420 3300.
benni.is
Bílabúð Benna í 35 ár!!
Tökum bíla í
umboðssölu
Vanta bíla á skrá
og á staðinn
Sanngjörn söluþóknun
Góð þjónusta
PEUGEOT 206 1,4 S-LINE 06/2006
ek. 92 þús. 5 dyra, 5 gíra, abs, cd,
fjarst. samlæsingar og fl. Nýleg
tímareim. Verð 1.250 þús.
Tilboð 890 þús. stgr.
Lexus; Sparaðu 300 þúsund
Spurt: Ég er með Lexus RX 300,
árgerð 2000, sjálfskiptan og ekinn
170 þúsund km. Bíllinn hefur feng-
ið reglulegt viðhaldseftirlit. Í bíln-
um er einhvers konar aukahljóð
(urg eða suð) sem Toyota-
verkstæðið á Akureyri segir mér
að komi frá sjálfskiptingunni. Nú
hafa bæst við hnökrar í skipt-
inguna þegar hann skiptir sér í
efsta gír hvort sem yfirgírinn er
virkur eða ekki. Nýlega var skipt
um vökva og síu og ekki gerð nein
athugasemd við ástand þeirra.
Umboðið hér telur að taka þurfi
skiptinguna úr og endurbyggja
hana fyrir 500 til 800 þús. kr. Hef-
ur þú einhverja hugmynd um hvað
þetta gæti verið og er þá eina ráð-
ið að fara þessa kostnaðarsömu
leið?
Svar: Lýsingin bendir til þess að
aflskiptir (convector) sé bilaður og
plánetugír slitinn. Fáðu þá hjá Bíl-
virkja á Akureyri til að taka skipt-
inguna úr. Sendu Jeppasmiðjunni
á Ljónsstöðum við Selfoss afl-
skiptinn til viðgerðar og fáðu nýj-
an plánetugír hjá umboðinu,
Jeppasmiðjunni eða Bifreiðastill-
ingu í Kópavogi og láttu þá hjá
Bílvirkja setja skiptinguna saman.
Mér kæmi ekki á óvart þótt þú
slyppir með 400 þús. kr. og skipt-
ingin yrði sem ný.
Hvar fæ ég millikassa í Starex?
Spurt: Er með Hyundai Starex af
árgerð 2000, sjálfskiptan. Skipt-
ingin og millikassi brotnuðu og
eru ónýt. Hef verið að leita að
þeim hlutum en fáir kannast við
þessa bíla sjálfskipta. Gætir þú
gefið mér upplýsingar um hvort
nota mætti þessa hluti úr ein-
hverri annarri bílategund?
Svar: Drifbúnaðurinn í Hyundai
Starex er sá sami og í Mitsubishi
L300 fram til 1995. Sjálfskiptingin
er sú sama og notuð var í Mitsub-
ishi fram að 2000 og gæti passað
úr Pajero eða Galoper. Prófaðu að
tala við þá hjá Japönskum vélum í
Hafnarfirði.
Hummer H1 er vondur „bisness“
Spurt: Ég er að spá í kaup á
jeppa og hef verið að skoða stóra
Hummer af árgerð 1998 með 6,5
lítra GM Dieselvél. Bíllinn er ek-
inn innan við 50 þús. km. Og sett-
ar á hann 4,5 mkr. Las á síðunni
þinn eitthvað slæmt um Hummer.
Mundir þú ráða mér frá því að
kaupa svona jeppa?
Svar: Já, það myndi ég gera. Lík-
legasta ástæða þess hve lítið þessi
Hummer er ekinn er að hann hafi
verið ónothæfur vegna bilana
stærsta hluta skráningartímans.
Þrátt fyrir tröllslegt útlitið er
Hummer H1, eins og þessi gerð
nefnist, frægur fyrir að hafa
hæstu bilanatíðni sem skráð er á
listum bandarísku neytenda-
samtakanna (Consumer Union).
Deila má um gæði hönnunarinnar
en smíði og samsetning þessa
eyðsluháks er einstakt klúður. Sá
brandari gekk á sínum tíma að
eina ástæðan fyrir því að banda-
ríski herinn gat notað þessa galla-
gripi var að herinn fékk fimm bíla
til að hafa einn í nothæfu standi.
Sá sem kaupir svona bíl fyrir 4,5
milljónir kr. kallar yfir sig vanda-
mál og botnlaus útgjöld.
Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál
Hvaðan kemur drif-
búnaðurinn í Starex?
Leó M. Jónsson véltæknifræðingur
leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ít-
arlegri svör eru birt á www.leoemm.com)
Lexus RX 300. Í sjálfskiptingunni heyrist urg og surg en viðgerð er kostn-
aðarsöm að mati umboðsins. Hins vegar er hægt að fara mun ódýrari leið með
því að skipta við verkstæði út í bæ.
Framundan er frost og um-
hleypingar. Á bens-
ínstöðvum fást túpur með
sílikon-smurefni og áföstum
svampi til að bera á þétt-
ingar í körmum og á hurð-
um bíla. Efnið kemur í veg
fyrir að hurðir frjósi fastar í
dyrum bíla. Á bens-
ínstöðvum fæst einnig síli-
kon á úðabrúsa til að úða í
rúðuföls þannig að raf-
knúnar rúður frjósi ekki fast-
ar og renni auk þess léttar
upp og niður. Sá sem tekur
með sér tveggja lítra gos-
flösku með volgu vatni (ekki
heitu) og hellir á ísaða fram-
rúðuna er fyrstur af stað.
Ábending
Sílikon og
volgt vatn