Morgunblaðið - 27.01.2011, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 22. tölublað 99. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
BOÐ Í VEISLU
FAXAÐ FRÁ
HÖLLINNI
ÓVISSA UM
ÁLVER Í
HELGUVÍK
HÚNI RÆÐIR
UM STÖÐU
HVÍTABJARNA
VIÐSKIPTABLAÐ OG
FINNUR.IS VILL VIÐBRAGÐSÁÆTLUN 12VANGAVELTUR UM BRÚÐKAUP 37
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ómar Friðriksson
Baldur Arnarson
Skólastjórnendur grunnskóla í
Reykjavík leita nú allra leiða til að
mæta kröfum borgaryfirvalda um
niðurskurð í skólunum. „Þetta er
mikill niðurskurður og skerðing á
þeirri þjónustu sem við veitum
nemendum okkar,“ segir Ingibjörg
Jósefsdóttir, formaður Félags
skólastjórnenda í Reykjavík og
skólastjóri Hagaskóla.
Dregið verður úr kennslu
Hún segir ljóst að þær forsendur
sem skólastjórnendum er gert að
byggja rekstraráætlanir sínar á
geri ráð fyrir skerðingu á kennslu-
magni um 6%, „sem hefur til dæm-
is þau áhrif að nemendahópar
verða stærri, skerða þarf list- og
verkgreinakennslu, val í 8.-10.
bekk og stuðning við nemendur.
Þessi niðurskurður mun birtast í
skólum borgarinnar á ólíkan hátt
og mun hafa áhrif,“ segir hún.
Fram kemur í samantekt Sam-
taka foreldra grunnskólabarna í
Reykjavík, vegna fundar með
fulltrúum foreldra í síðustu viku,
að „nú þegar [sé] talsverð ring-
ulreið í skólunum vegna fækkunar
í gangavörslu og frímínútna-
gæslu“.
Aukið álag á kennara
Margrét Gylfadóttir, formaður
foreldrafélags Vesturbæjarskóla,
segir niðurskurðinn áhyggjuefni.
„Það hlýtur alltaf að koma niður
á gæðum skólastarfs ef börnum á
hvern kennara fjölgar með stærri
bekkjum,“ segir Margrét.
Ekki náðist í Oddnýju Sturlu-
dóttur, formann menntaráðs borg-
arinnar, í gær. » 14
„Talsverð ringulreið í skólunum“
Nemendahópar verða stærri, skerða þarf list- og verk-
greinakennslu, val í 8.-10. bekk og stuðning við nemendur
Tónmennt Frá Vesturbæjarskóla.
Áfram er
óvissa um fram-
tíð stjórnlaga-
þings eftir ógild-
ingu Hæsta-
réttar. Kemur
málið til kasta
Alþingis í dag
þar sem Ög-
mundur Jónas-
son innanríkis-
ráðherra mun
gefa skýrslu. Landskjörstjórn kom
saman til fundar síðdegis í gær þar
sem niðurstaða réttarins var rædd.
Ástráður Haraldsson, formaður
landskjörstjórnar, var fámáll að
fundi loknum en sagði að m.a.
hefðu „hugmyndir“ verið ræddar
um að stjórnarmenn segðu af sér en
ekkert verið ákveðið. »2 og 15
Enn óvissa um
stjórnlagaþingið
Ástráður
Haraldsson
Til greina kemur að selja höfuð-
stöðvar Orkuveitu Reykjavíkur til
að hagræða í rekstri fyrirtækisins.
Þetta segir Haraldur Flosi
Tryggvason, stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur, í samtali
við Viðskiptablað Morgunblaðsins.
„Mér er kunnugt um að slíkir
möguleikar hafi verið viðraðir við
stjórnendur OR,“ segir Haraldur
Flosi. Bókfært virði höfuðstöðva
OR er um það bil fjórir milljarðar
króna. Óljóst er hver seljanleiki
slíkra fasteigna er. »Viðskipti
Sala höfuðstöðva
OR inni í myndinni
OR Höfuðstöðvarnar við Bæjarháls.
Voðalega er hann sætur, gæti unga konan verið að segja við vinkonu sína
um krakkann í kerrunni. Já, og svo er hann svo áhyggjulaus, gæti sú síð-
arnefnda hafa svarað að bragði og endurspeglað þannig viðhorf
kvennanna til umhverfisins í góða veðrinu í miðbæ Reykjavíkur í gær.
Morgunblaðið/Kristinn
Á röltinu í góða veðrinu
Tilmæli menntasviðs Reykja-
víkurborgar um niðurskurð í
grunnskólum borgarinnar
kveða meðal annars á um að
dregið skuli úr ræstingu í skól-
unum, að sögn Ingibjargar Jós-
efsdóttur, skólastjóra Haga-
skóla.
„Þetta þýðir að ég mun nú
ganga til samninga við það
fyrirtæki sem sinnir ræstingu í
Hagaskóla því við þurfum að
draga verulega úr ræstingu í
skólanum. Það verður ekki
lengur hvert einasta rými ræst
á hverjum degi.“
Ekki er ljóst hvernig þetta
samræmist heilbrigðiskröfum.
Minni þrif
SKÚRAÐ SJALDNAR
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Íbúðalánasjóður (ÍLS) og stóru við-
skiptabankarnir þrír leystu til sín
alls 1.641 fasteign á síðasta ári. Sam-
tals eiga þessar stofnanir nú 1.951
fasteign en þar af teljast 1.518 vera
íbúðarhúsnæði sem allt er ýmist til
sölu eða í útleigu. Eiga þessir aðilar
234 eignir sem teljast til atvinnuhús-
næðis. Fasteignasafn bankanna og
Íbúðalánasjóðs hefur því vaxið mjög
síðustu misserin en í lok árs 2009
áttu þeir 585 íbúðarhús.
Allar fasteignir sem bankarnir
eignast fara beint í söluferli og öll
fasteignaviðskipti fara fram í gegn-
um fasteignasölur, samkvæmt upp-
lýsingum frá bönkunum. Fólki sem
missir heimili sín er þó gefinn aðlög-
unartími til þess að gera ráðstafanir
og leigja húsnæðið þar til það hefur
verið tæmt. Fólki sem er með börn í
skóla er þannig t.a.m. gefið tækifæri
til að leyfa börnunum að klára skóla-
önnina áður en það flytur út.
Íbúðalánasjóður á flestar eignir
Íbúðalánasjóður leysti til sín 846
eignir árið 2010 en 321 eign árið á
undan, og á í dag langflestar fast-
eignanna sem um ræðir, eða alls
1.075. Þar af standa 412 eignir auðar
og 214 eru fokheldar eða óíbúðar-
hæfar. Í útleigu eru 359 eignir og í
dag liggja fyrir 52 kauptilboð í eignir
sjóðsins. Félag fasteignasala mun
hér eftir verða milligönguaðili um
eignasölu sjóðsins samkvæmt sér-
stökum samstarfssamningi þar um.
Miðlar félagið upplýsingum til fé-
lagsmanna um eignirnar.
MLeystu til sín 1.641 fasteign »6
Bankar og
ÍLS eiga um
2.000 eignir
Leystu til sín 1.641 fasteign í fyrra
193
fasteignir í eigu Arion banka
299
fasteignir í eigu Íslandsbanka
384
fasteignir í eigu Landsbankans
1.075
fasteignir í eigu Íbúðalánasjóðs
‹ BANKAÍBÚÐIR ›
»