Morgunblaðið - 27.01.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Hugmyndir um afsögn stjórnar-
manna landskjörstjórnar báru á
góma á fundi landskjörstjórnar í
gær. Á fundinum var hins vegar
ekki tekin ákvörðun um hvort
stjórnarmenn myndu segja upp
stöðu sinni í kjörstjórninni.
Landskjörstjórn sá um fram-
kvæmd kosninganna til stjórnlaga-
þings í nóvember á síðasta ári sem
hafa nú verið dæmdar ógildar af
Hæstarétti. Landskjörstjórn hefur
verið gagnrýnd í kjölfar dómsins
og í opinberri umræðu hefur verið
lagt til að stjórnarmenn landskjör-
stjórnar segi af sér.
„Við ræddum auðvitað um þær
hugmyndir sem einhverjir menn
hafa sett fram um það en það voru
ekki teknar neinar ákvarðanir af
því tilefni,“ segir Ástráður Har-
aldsson, formaður landskjörstjórn-
ar.
Ástráður kveðst ekki vilja tjá sig
um gagnrýni á störf landskjör-
stjórnar við kosningarnar til stjórn-
lagaþings.
Landskjörstjórn kom saman í
húsnæði nefndarsviðs Alþingis
klukkan fimm síðdegis í gær. Fund-
inum lauk um tveimur tímum síðar.
Allir aðalmenn í landskjörstjórn
voru viðstaddir, nema Bryndís
Hlöðversdóttir. Sigurjón
Sveinsson kom í hennar stað.
„Það var rætt um niður-
stöðu Hæstaréttar í kærun-
um út af stjórnlagaþings-
kosningunum og um
afgreiðslumál sem
nefndin þarf að
ákveða,“ segir Ástráð-
ur.
„Það var um
spurninguna um
ógildingu kjörbréfa sem nefndin
gaf út í desember og frágang vegna
kosninganna.“
Ástráður segir að afskiptum
landskjörstjórnar af kosningunum
sé nú lokið.
Í ræðu sinni á Alþingi á þriðju-
dag sagði Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra: „Mikilvægt er að
forsætisnefnd Alþingis fundi svo
fljótt sem auðið er með landskjör-
stjórn og innanríkisráðuneytinu, en
þessir aðilar fóru með framkvæmd
kosninganna.“
Ástráður Haraldsson segir enga
fundi vera á dagskrá landskjör-
stjórnar á næstunni með ráðherr-
um eða þingmönnum. „Ekki svo
mér sé kunnugt,“ segir Ástráður.
„Landskjörstjórn er þannig
apparat að hún annast bara fram-
kvæmd kosninga eftir því sem lög
mæla fyrir um - og það er allt og
sumt.“
Morgunblaðið/Ernir
Landskjörstjórn F.v. Þórður Bogason, Sigurjón Sveinsson, Ástráður, Þórhallur Vilhjálmsson, ritari, Hervör Lilja Þorvaldsdóttir og Þuríður Jónsdóttir.
Fram kom í máli Ástu Ragnheið-
ar Jóhannesdóttur, forseta Al-
þingis, við upphaf þingfundar í
gær að Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra myndi gefa
þinginu skýrslu um stöðu
málsins í dag, fimmtudag.
„Hér hafa mikil tíðindi orð-
ið og það er skylda okkar að
nálgast málið af virðingu við
kjósendur, læra af því og
bæta um betur ef okkur
hefur orðið á,“ sagði
hún og lýsti yfir þeirri
skoðun sinni að eyða
þyrfti óvissu um fram-
haldið.
Skýrsla í dag
RÆTT Á ALÞINGI
Þrátt fyrir erfitt umhverfi á fast-
eignamarkaði eru 52 af 57 íbúðum
Samtaka aldraðra við Sléttuveg
seldar. Ákvörðun um framkvæmdina
var tekin í október 2008 og var lagt
að samtökunum að hætta við sökum
hrunsins. Ákveðið var að halda
áfram og segir formaður samtak-
anna rétta ákvörðun hafa verið
tekna. Í október 2008 var undirbún-
ingi lokið.
Tvær samstæður til viðbótar
standa við Sléttuveg og eru íbúðir
þar alls um 180 talsins. Samtökin
hafa byggt á fimmta hundrað íbúðir
á undanförnum 30 árum.
Erling Garðar Jónsson, formaður
Samtaka aldraðra, segir að samtökin
hefðu þurft að greiða um 40 milljónir
króna á ári í vaxtakostnað hefðu þau
hætt við framkvæmdina. Þegar
ákvörðun var tekin um að ráðast í
framkvæmdir voru aðeins fáar íbúð-
ir óseldar en síðan var mörgum íbúð-
um skilað, sem þurfti að endur-
greiða.
„Það voru stanslausir erfiðleikar í
um 21 mánuð sem þetta stóð yfir,“
segir Erling, en síðan hafi farið að
rætast úr. Aðeins sé núna eftir að
selja fimm íbúðir. Hann segist full-
viss um að samtökin hafi tekið rétta
ákvörðun, eftir vel á annan tug funda
með bönkum, lífeyrissjóðum og fé-
lagsmálaráðherra. andrikarl@mbl.is
52 af 57 íbúðum við
Sléttuveg seldar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sléttuvegur Sala á íbúðum aldr-
aðra hefur tekið kipp undanfarið.
Samtök aldr-
aðra héldu fram-
kvæmdum áfram
Starfsmenn í fiskimjölsverksmiðjum
í verkalýðsfélögunum Afli á Austur-
landi og Drífanda í Vestmannaeyjum
hafa samþykkt boðun verkfalls 7.
febrúar nk. Já við verkfallsboðun
sagði 61, eða 83,% félagsmanna, en
nei sögðu fimm, eða 6,8%. Sjö seðlar
voru auðir og ógildir. Á kjörskrá
voru 73 starfsmenn í loðnubræðslum
á Vopnafirði, Seyðisfirði, Norðfirði,
Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Hornafirði
og í Vestmannaeyjum. Á verkfallið í
fyrstu að standa í þrjá daga og verða
svo endurtekið 14. febrúar hafi
samningar ekki tekist. Og hafi ekki
samist 21. febrúar er boðað verkfall í
ótilgreindan tíma. Samtök atvinnu-
lífsins hyggjast láta reyna á verk-
fallsboðunina fyrir félagsdómi. Telja
SA að kröfur félagsmanna séu úr
takti við raunveruleikann.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verkfall
í félagsdóm
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hafa fjórir starfsmenn unnið að
undirbúningi stjórnlagaþings, að við-
bættum starfsmanni á vegum stjórn-
laganefndar. Við erum öll með ráðn-
ingarsamning þannig að við bíðum
róleg og sjáum hvað setur. Það er
mismunandi hversu lengi ráðning-
arsamningarnir gilda en það er að
minnsta kosti út febrúar,“ segir Þor-
steinn Fr. Sigurðsson, rekstrarhag-
fræðingur og framkvæmdastjóri und-
irbúningsnefndar stjórnlagaþings.
Aðspurður um launagreiðslur til
handa þeim 25 einstaklingum sem
hlutu kosningu til stjórnlagaþings
segir Þorsteinn að launagreiðslur
hafi átt að hefjast við þingsetningu
15. febrúar.
Möguleiki á framlengingu
Þingið átti að starfa í tvo mánuði
með fyrirvara um að hægt væri að
framlengja þingtímann í allt að fjóra
mánuði. Þorsteinn segir ráðning-
arsamninga hafa tekið mið af þessu.
„Samningar við þrjá af starfs-
mönnunum eru háðir samþykki for-
sætisnefndar stjórnlagaþings, sem
nú liggur fyrir að mun ekki taka til
starfa. Þá kemur til fyrirvari ef þingið
starfar í fjóra mánuði. Það er engin
óvissa um ráðningarsamninga. Þeir
liggja ljósir fyrir en verkefnið er í
óvissu. Ef þingið verður blásið af
verður verkefni okkar að ganga frá,“
segir Þorsteinn og bætir því við að
starfsmenn á skrifstofu stjórnlaga-
þings muni halda störfum sínum
áfram að óbreyttu.
Morgunblaðið/Ernir
Umdeilt Frá undirbúningi kosning-
anna í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Laun skyldu
greidd frá
þingsetningu
Óvissa um laun
á stjórnlagaþingi
Landskjörstjórn ræddi
hugmyndir um afsögn