Morgunblaðið - 27.01.2011, Síða 4

Morgunblaðið - 27.01.2011, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Borið hefur á streptókokkasýkingum í hálsi barna og fullorðinna að und- anförnu. Læknar segja að slíkar sýk- ingar komi í bylgjun og ekki sé meira um þær nú en oft áður. „Nei, við höfum ekki orðið varir við sérstaka aukningu á því. Þetta kem- ur alltaf í bylgjun, sérstaklega á vet- urna þegar meira er um smitsjúk- dóma,“ segir Michael Clausen, barnalæknir á Barnalæknaþjónust- unni í Domus Medica. Sama segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Hann vekur athygli á því að þúsundir manna fái streptókokkasýkingu á hverju ári og ennþá fleiri hafi þær án þess að verða varir við einkenni. „Þetta er hluti af okkar flóru,“ segir Haraldur. Streptókokkasýkingar valda háls- bólgu og geta valdið heilahimnu- bólgu og fleiri sýkingum. Michael segir að fullorðnir fái kvef og börnin kvef og hósta. Þriðjungur lítilla barna fái svokallaða hvæsiöndun sem er astmaeinkenni. Hann segir að RS- veiran valdi því oftast. Haraldur segir að það gerist ein- stöku sinnum að streptókokkar valdi ífarandi sýkingu, fari í blóð og berist á milli líffæra. Hún valdi sjaldan hast- arlegum ígerðum. Nefnir hann að eitt barn hafi dáið á þrjátíu ára tímabili. Haraldur og Michael hafa báðir orðið varir við ótta hjá foreldrum við afleiðingar streptókokkasýkingar vegna tveggja ára barns sem nýlega lést. „Foreldrar verða áhyggjufullir, eðlilega, og leita fyrr til lækna. En þetta gerist sem betur fer sjaldan,“ segir Michael. Pensilín upprætir sýkingu Haraldur segir að hægt sé að nota pensilín til að meðhöndla börn og full- orðna sem fá einkenni. Þá þurfi lækn- irinn að vita fyrir víst að um streptó- kokkasýkingu sé að ræða. „Sem betur fer gengur þetta yfir í flestum tilvikum,“ segir Haraldur. Besta ráðið til að forðast sýkingu er, eins og við inflúensufaraldra, að þvo sér vel um hendur og gæta hrein- lætis að öðru leyti og hósta ekki hvert framan í annað. Sýkingar koma í bylgjum  Foreldrar hræddir við streptókokkasýkingar í hálsi barna  Læknar segja ekki meira um slíkt en oft áður  Veikindin ganga í flestum tilvikum yfir án erfiðleika Morgunblaðið/Sverrir Veikindi Borið hefur á streptókokkasýkingum í hálsi fólks að undanförnu. Góð stemning var á frumsýningu hnefaleika- myndarinnar „Fighter“ í Háskólabíói í gær en Mjölnir og Hnefaleikafélag Reykjavíkur buðu fé- lagsmönnum sínum á sýninguna. Hitað var upp með sýningarbardaga á milli félaganna Arnars Más Kristjánssonar og Gísla Rúnars Gunnars- sonar, en þeir eru báðir í Hnefaleikafélagi Reykjavíkur. Dómari var Ólafur Gunnlaugsson. Í sýningarbardaga er enginn sigurvegari. Hitað upp fyrir bardagamynd með bardaga Morgunblaðið/Ernir Þráinn Freyr Vigfússon, aðstoðaryfirmatreiðslumaður á Grillinu á Radisson Blu Hótel Sögu, hafnaði í 7. sæti í matreiðslukeppninni Bocuse d’Or sem fram fór Lyon í Frakklandi en úrslit voru kunngerð í gærkvöldi. „Ég stefndi að sjálfsögðu hærra og yfirleitt hefðu 910 stigin, sem ég fékk, nægt í efstu sætin en mótið var með sterkara móti,“ segir Þráinn Freyr, en Bjarni Siguróli Jakobsson var honum til aðstoðar. Alls tóku 24 þjóðir þátt í keppninni. Í 1. sæti varð danski matreiðslumaðurinn Rasmus Kofoed, í öðru sæti Svíinn Tommy Myllymaki og í því þriðja Norðmaðurinn Gunnar Hvarnes. Á vefsvæði Bocuse d’Or segir að um sé að ræða allra virtustu matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum. Keppnin hefur verið haldin síðan árið 1987 og komast færri þjóðir að en vilja. Þráinn Freyr sjöundi á Bocuse d’Or í Frakklandi Ljósmynd/Guðjón Þór Steinsson Góður Þráinn Freyr Vigfússon reiðir hér fram réttina á Bocuse D’Or í Lyon, en hann hafnaði í sjöunda sæti.  Fékk 910 stig sem hefðu yfirleitt nægt í efstu sætin Hegðunarvandi sem talinn er byggður á geðröskun er algeng ástæða tilvís- unar til barna- og unglingageðdeildar Landspítalans (BUGL) að sögn Ólafs Ó. Guðmundssonar yfirlæknis. Mál sem talin eru krefjast bráðra við- bragða eru ekki látin bíða heldur fá strax þjónustu. „Við metum það út frá því hvers eðl- is vandinn er hvort barnið fer á venju- legan biðlista, er tekið með forgangi eða er skoðað strax. Við erum sífellt að skoða mál og meta og veita bráða- meðferð í málum sem geta ekki beð- ið,“ sagði Ólafur. Staða biðlista hjá BUGL er svipuð nú og hún hefur verið lengi, að sögn Ólafs. Hann sagði að allan síðastliðinn áratug hefði verið mislöng bið, að öllu jöfnu sex til níu mánuðir varðandi ný mál. „En við erum með bráðaþjónustu og við forgangsröðum málum. Ef er hættuástand, t.d. sjálfsvígshætta eða slíkt, þá bíður málið ekki heldur fær þjónustu strax,“ sagði Ólafur. Hann sagði að stuðst væri við ákveðið vinnu- lag og reglur þegar hvert mál væri metið. Ólafur sagði að hvaða fagaðili sem er gæti vísað málum til BUGL. Þang- að berast m.a. tilvísanir frá þjónustu- miðstöðvum, barnaverndum, skólasál- fræðingum og heilsugæslustöðvum. Þetta fyrirkomulag er frábrugðið því sem gerist hjá barna- og unglingageð- deildum í nágrannalöndum þar sem einungis læknar geta vísað málum til deildanna. Málið er í eðlilegum farvegi Mál sjö ára nemanda í Rimaskóla sem veist hefur að skólafélögum sín- um, eins og Morgunblaðið sagði frá í gær, er í eðlilegum farvegi, að sögn Helga Árnasonar skólastjóra. „Við vinnum að málinu í samráði við foreldra drengsins og sérfræðinga í þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar í hverfinu,“ sagði Helgi. Hann sagði að foreldrum barna í bekkjardeild drengsins, sem í hlut á, hefði verið sent bréf um málið. gudni@mbl.is Bráð tilvik fá strax þjónustu BUGL Viðvarandi biðlisti er á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. BUGL segist meta hvert nýtt mál

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.