Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
FRÉTTASKÝRING
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Íbúðalánasjóður og stóru viðskipta-
bankarnir þrír leystu til sín alls 1.641
fasteign á árinu 2010. Samtals eiga
þessar stofnanir nú 1.951 fasteign, en
þar af teljast 1.518 vera íbúðarhús-
næði sem allt er ýmist til sölu eða í út-
leigu. Fasteignasafn bankanna og
Íbúðalánasjóðs hefur því vaxið mjög
síðustu tvö ár því í lok árs 2009 áttu
þeir 575 íbúðarhús.
Allar fasteignir sem bankarnir
eignast fara beint í söluferli og öll
fasteignaviðskipti fara fram í gegnum
fasteignasölur, samkvæmt upplýsing-
um frá bönkunum. Fólki sem missir
heimili sín er þó gefinn aðlögunartími
til þess að gera ráðstafanir og leigja
húsnæðið þar til það hefur verið
tæmt. Fólki sem er með börn í skóla
er þannig t.a.m. gefið tækifæri til að
leyfa börnunum að klára skólaönnina
áður en það flytur út.
Mest í eigu Íbúðalánasjóðs
Íbúðalánasjóður leysti til sín 846
eignir árið 2010, samanborið við 321
eign árið á undan, og á í dag lang-
flestar fasteignanna sem um ræðir,
alls 1.075. Þar af standa 412 eignir
auðar og 214 eignir eru fokheldar eða
óíbúðarhæfar. Í útleigu eru 359 eignir
og þessa stundina liggja fyrir 22
kauptilboð í eignir sjóðsins. Hér eftir
mun Félag fasteignasala (FF) verða
milligönguaðili um eignasölu sjóðsins
skv. samstarfssamningi.
Að sögn Ingibjargar Þórðardóttur,
formanns félagsins, felst það ein-
göngu í því að FF miðli upplýsingum
um eignir sjóðsins til félagsmanna og
hver sem vilji geti þá tekið að sér
sölu þeirra. Með samningnum er
ætlunin að skapa gagnsætt söluferli.
Landsbankinn leysti til sín 326
eignir í fyrra og á nú næstflestar
eignir eða alls 384, að lóðum og jörð-
um meðtöldum. Áætlað verðmæti
þessara eigna er um 10 milljarðar
króna. Að undanskildum 50 íbúðum
sem eru í útleigu er allt íbúðarhús-
næði Landsbankans til sölu, en með-
alsala árið 2010 var 12 eignir á mán-
uði. 61% fasteigna Landsbankans
eru á höfuðborgarsvæðinu.
Arion banki með fæstar eignir
Íslandsbanki leysti til sín 288 fast-
eignir í fyrra, samanborið við 86 árið
2009, og um áramót voru alls 299
fullnustueignir í eigu bankans, þar af
168 íbúðarhúsnæði, en 51 atvinnu-
húsnæði, 67 lönd og lóðir, 3 hesthús,
1 bújörð og 9 sumarbústaðir. Allar
eignir bankans eru í söluferli nema
76 sem eru í útleigu. Íslandsbanki er
ekki með eignir sem hann hefur leyst
til sín í uppboðsferli.
181 fasteign bættist í eignasafn
Arion banka á síðasta ári og á bank-
inn nú alls 193 fasteignir, sem er
talsvert minna en hinir bankarnir.
Að sögn bankans var 101 eign keypt
vegna skuldaskila en 80 eignir
keyptar á nauðungarsölum. Bankinn
hefur þó sjálfur ekki verið uppboðs-
beiðandi síðan í október 2009. Tæp-
lega helmingur eignanna er á höf-
uðborgarsvæðinu.
Leystu til sín 1.641
fasteign í fyrra
Um 2.000 eignir eru nú í eigu bankanna og Íbúðalánasjóðs
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við höfum ekki getað hækkað taxt-
ana því að það er rólegt að gera og
fólk hefur lítið fé á milli handanna.
Áhrifin eru þau að við nánast skiljum
bílinn eftir þar sem við losnum, til að
spara olíu. Við setjum bílana ekki í
gang nema meðan á verkefnum
stendur. Það er allt skorið niður við
nögl. Það er munur að geta sest upp í
heitan bíl ef það er kalt í veðri en
slíkur munaður heyrir nú sögunni
til,“ segir Kristján Árni Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri flutningafyr-
irtækisins Flutningur.is, um erfiðan
rekstur á tímum hás olíuverðs.
Tugir þúsunda í skatta á dag
Kristján Árni segir að á jafnvel
góðum dögum fari stærstur hluti
teknanna í eldsneyti og önnur gjöld.
„Ég var svo heppinn að fá verkefni
í vikunni. Það var í Þjórsárdal en alls
fóru 90 lítrar í aksturinn. Það fóru
rúmar 20.000 krónur í eldsneyti en
að auki þarf að taka þungaskatt og
veggjald með í reikninginn. Ég fékk
85.000 krónur fyrir ferðina, sem fel-
ur í sér leigu á flutningabíl í heilan
dag. Að viðbættum olíukostnaði fóru
um 17.000 krónur í virðisaukaskatt
og þá standa um 48.000 krónur eftir.
Þá bætist við tekjuskattur og önnur
gjöld. Það þarf því ansi marga slíka
daga í mánuði til að hafa fyrir af-
borgunum af bílnum, en þær eru
200.000 krónur á mánuði. Við þetta
bætast afskriftir, viðhald og bifreiða-
gjöld, en þau hafa hækkað.“
Afborganirnar eru erfiðar
Kristján Árni segir að lítið sé því
að hafa upp úr akstrinum.
„Síðustu tvö árin hef ég nánast
verið launalaus. Stór hluti veltunnar
fer í afborganir af flotanum.“
Hann segir fá tækifæri fyrir ungt
fólk til að hasla sér völl í greininni.
„Við erum tveir bræðurnir með
reksturinn. Við vorum með nokkra
stráka í vinnu en þeir eru löngu farn-
ir. Það nennir enginn að standa í
þessu. Inn á milli koma hins vegar
góðir dagar, t.d. vegna búslóðaflutn-
inga. Ég sé hins vegar ekki fram á
annað en að taxtar muni hækka.“
Nær launalaus
við stýrið í tvö ár
Olíuverð íþyngir flutningabílstjórum
Morgunblaðið/Kristinn
Bílstjóri Kristján Árni segir tímana erfiða fyrir flutningabílstjóra.
Allar fasteignir sem Arion banki
eignast eru strax verðmetnar
og upplýsingar um þær sendar
á þær fasteignasölur sem bank-
inn hefur samið við, en á síð-
asta ári voru þær 23 talsins, að
sögn Guðmundar G. Arthúrs-
sonar hjá Arion banka.
Félag fasteignasala gagn-
rýndi í vikunni hvernig staðið
væri að sölu og verðmati eigna
bankans þar sem örfáum fast-
eignasölum væri hleypt að
borðinu. Guðmundur segir eðli-
legt að bankinn velji sér þá fast-
eignasala sem hann treysti best
og vilji vinna með. Áður hafi fyr-
irkomulagið verið slíkt að hvaða
sala sem var mátti selja eignir
bankans en 2008 var ákveðið
að gera samning við valda aðila.
Reyndist það mikið hagræði og
leiddi til þess að fleiri eignir
seldust. Aðspurður hvort til
greina komi að Arion banki taki
upp samstarfssamning við Fé-
lag fasteignasala, líkt og Íbúða-
lánasjóður hefur gert, segist
Guðmundur
ekki sjá
fyrir
sér að
svo
verði.
Allar eignir
beint á sölu
SKIPTA VIÐ 23 SÖLUR
Fasteignir í eigu bankanna
Íbúðalánasjóður
Alls:
299 eignir
Alls:
193 eignir
Alls:
384 eignir
Alls:
1.075 eignir
Íbúðarhúsnæði
Alls: 1.518 eignir
Atvinnuhúsnæði
Alls: 234 eignir
Annað
Alls: 199 eignir
Samtals:
1.951 eign
168
51
80
98
40
55
177
143
64
1.075
Skipting eigna eftir
staðsetningu
Höfuðborgarsvæðið
og Suðurnes
Landsbyggðin
161 138 93 100 78* 99* 467 608
*Tölur frá Landsbankanum
um skiptingu eigna eftir
staðsetningu eiga aðeins
við um íbúðarhúsnæði
Fram til nýliðanna áramóta tók að
meðaltali tíu mánuði að afgreiða
beiðni um greiðsluaðlögun, sam-
kvæmt upplýsingum frá umboðs-
manni skuldara. Nú er meðalaf-
greiðslutími átta mánuðir og stefnt
er að því að hann verði þrír mánuði í
júlí. Um 1.500 manns bíða nú eftir að
komast í greiðsluaðlögun hjá emb-
ættinu.
Svanborg Sigmarsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi umboðsmanns skuldara,
segir einkum þrjár ástæður fyrir
styttri afgreiðslutíma; vinnureglum
embættisins hafi verið breytt,
starfsfólki hafi fjölgað og með auk-
inni reynslu verði starfsmönnum
auðveldara að vinna úr umsóknum.
„Við erum að afgreiða um það bil
jafn mörg mál á viku og við gerðum
áður á einum mánuði,“ segir Svan-
borg.
Leiðrétt um greiðsluskjól
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að svonefnt greiðsluskjól væri til
þriggja mánaða en það er ekki rétt.
Fólk kemst í greiðsluskjól með um-
sókn um greiðsluaðlögun. Því lýkur
ef aðlögun er synjað en heldur áfram
þangað til búið er að semja um
greiðsluaðlögun.
Afgreiðslutími fari í þrjá mánuði
Um 1.500 manns bíða eftir greiðslu-
aðlögun hjá umboðsmanni skuldara
Morgunblaðið/Ernir
Umboðsmaður Ásta S. Helgadóttir í nýjum húsakynnum embættisins.
„Sólin var á
sveimi á sól-
ardaginn hérna í
Sólgötunni,“ seg-
ir Ísfirðingurinn
og sjómaðurinn
Kristján Valdi-
mar Arnórsson,
en hinn eiginlegi
sólardagur á Ísa-
firði er 25. jan-
úar.
Sólardagurinn miðast við þann
dag er sól sleikir Sólgötu við Eyr-
artún, ef veður leyfir, eftir langa
vetursetu handan fjalla. Ísfirðinga-
félagið í Reykjavík hefur löngum
samfagnað íbúum Ísafjarðar með
árlegu Sólarkaffi til að fagna rís-
andi sól og heldur það á Hilton Nor-
dica Reykjavík annað kvöld.
Sólin á sveimi á
tíma í Sólgötunni
Ísafjörður sjá til
sólar á ný.
Kristján Árni fer hörðum orðum
um Landsbankann og fullyrðir að
bankinn niðurgreiði flutninga hjá
Flytjanda, flutningaarmi Eimskips,
í krafti eignarhalds á félaginu.
Máli sínu til stuðnings bendir
Kristján Árni á að Flytjandi bjóði
upp á vörusendingu með stórum
bíl fyrir 1.500 kr. Slíkar ferðir kalli
á einn til einn og hálfan tíma í út-
seldri vinnu bílstjóra og telur
Kristján Árni því einsýnt að ekki
fáist upp í kostnað. „Þeir eru að
vaða inn á okkar markað. Eimskip
fær peninga í æð frá Landsbank-
anum, af því að ríkið á Landsbank-
ann og Landsbankinn á Eimskip.
Ég fæ ekki betur séð en að
bankinn sé að reyna að bola keppi-
nautum út af markaðnum með
undirboðum. Það er svona sem
elítan í bönkunum hagar sér.
Einkaaðilar eins og ég geta ekki
keppt við slíkar niðurgreiðslur.“
Banki niðurgreiðir keppinaut
REYNT AÐ BOLA SMÆRRI AÐILUM AF MARKAÐNUM