Morgunblaðið - 27.01.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Vikudagur á Akureyri ræddi ádögunum við Guðmund Hann-
esson, sölu- og markaðsstjóra hjá
Kælismiðjunni Frosti, sem er að setja
nýtt frystikerfi í norskan togara.
Guðmundur segir verkefnastöðu
Frosts góða vegna þessa verkefnis,
en ekki séu allir svo heppnir:
Það er alveg ljóst að á meðan rík-isstjórnin ætlar að halda ís-
lenskum sjávarútvegi í gíslingu, þá
skapast fá verkefni hér innanlands.
Við köllum eftir því að þeir sem hér
stjórna, axli sína ábyrgð og fari að
gera eitthvað. Þótt verkefnastaðan
hjá okkur sé góð um þessar mundir
er staðan almennt í landinu mjög lé-
leg og það eru mörg fyrirtæki sem
þjást vegna ástandsins. Það vantar
ekki peninga í sjávarútveginn hér
heima en á meðan þessi óvissa ríkir,
halda menn að sér höndum.“
Ríkisstjórnin hefur skapað óvissuí sjávarútveginum með því að
hanga á eigin fordómum en hafna
öllum sátta- og samningaleiðum sem
henni eru boðnar.
Nú síðast lýsti velferðarráðherr-ann svokallaði því meira að
segja yfir að hann sæi ekki teng-
inguna á milli sjávarútvegsins og
annarra þátta í atvinnulífi landsins.
Aðrir ráðherrar hafa reynst jafn
blindir.
Allir aðrir sjá tenginguna á millisjávarútvegsins og annarra
greina í íslensku atvinnulífi. Sjávar-
útvegurinn er helsta undirstöðugrein
atvinnulífsins og æskilegt væri ef
ráðherrar, ekki síst velferð-
arráðherrar, áttuðu sig á því að ef
þeir sauma áfram að sjávarútveg-
inum og halda afganginum af at-
vinnulífinu áfram í frosti, þá fer vel-
ferðin minnkandi.
Allt í frosti
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.1., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 8 súld
Akureyri 8 skýjað
Egilsstaðir 4 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 5 léttskýjað
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló -15 heiðskírt
Kaupmannahöfn -2 léttskýjað
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -12 heiðskírt
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 3 léttskýjað
Dublin 5 skýjað
Glasgow 5 léttskýjað
London 5 skýjað
París 3 skúrir
Amsterdam 2 skýjað
Hamborg 1 skýjað
Berlín 0 slydda
Vín 1 snjókoma
Moskva -12 heiðskírt
Algarve 13 skýjað
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 8 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 7 skýjað
Aþena 6 léttskýjað
Winnipeg -12 skýjað
Montreal -12 snjókoma
New York -1 snjókoma
Chicago -3 alskýjað
Orlando 16 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:24 16:58
ÍSAFJÖRÐUR 10:48 16:44
SIGLUFJÖRÐUR 10:32 16:26
DJÚPIVOGUR 9:58 16:23
Í dag, fimmtudag, verða haldnir
tveir fyrirlestrar við Háskóla Ís-
lands. Annars vegar mun Ástríður
Stefánsdóttir flytja fyrirlestur und-
ir heitinu „Frelsi eða höft? Stað-
göngumæðrun og staða kvenna.“
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 132 í
Öskju og stendur kl. 12-13.
Þá mun Debbie Epstein flytja fyr-
irlestur kl. 15.00 í Bratta, fyr-
irlestrarsal í húsnæði mennta-
vísindasviðs undir heitinu „Gagn-,
sam- eða hinsegin? Kynferði og
kynvitund í breskum háskólum
1990-2010“.
Fyrirlestrar í HÍ
Fuglavernd hvet-
ur fólk til að telja
fugla í garðinum
hjá sér, eða ein-
hverjum garði, í
einn klukkutíma
um næstu helgi.
Það eina sem
þátttakandi þarf að gera er að
fylgjast með garði í klukkutíma á
föstudag, laugardag og sunnudag
nk., eða á mánudag nk. og skrá hjá
sér hvaða fuglar sjást og mesta
fjölda af hverri tegund á meðan at-
hugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla
sem eru í garðinum en ekki þá sem
fljúga yfir.
Að lokinni athugun skal skrá nið-
urstöðurnar á Garðfuglavefnum,
www.fuglavernd.is.
Fuglatalning um
næstu helgi
Rúmlega 100 ökumenn voru stöðv-
aðir í umferðareftirliti lögregl-
unnar í miðborginni í fyrrakvöld.
Tveimur þeirra var gert að hætta
akstri sökum þess að þeir höfðu
neytt áfengis en voru þó undir leyfi-
legum mörkum. Sérstaka athygli
vakti að ljósabúnaði margra öku-
tækja var áfátt. Ýmist vantaði ljós
að framan eða aftan en ökumönn-
unum var góðfúslega bent á að
skipta um perur, öryggi eða annað
það sem bilað var. Lögreglan telur
öruggt að ástandið sé svipað annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu og
eru ökumenn því hvattir til að huga
sérstaklega að ljósabúnaðinum.
Yfir 100 ökumenn
stöðvaðir í eftirliti