Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
Útsala
40-70% afsláttur
Geggjuð
útsala
Str. 38-56
40-70% afsláttur
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl. 11-18 | lau. 10-16 | sun. 10-16
Laugavegi 63 • S: 551 4422
MÖGNUÐ ÚTSALA ALLT AÐ 60% AFSLATTUR!
Á klassískum og vönduðum kvennfatnaði frá
þekktum framleiðendum.
Síung í 70 ár
laxdal.is
Gréta Boða kynnir
nýju vorlitina í CHANEL,
fimmtudag, föstudag og laugardag.
Verið velkomin.
Glæsibæ, s. 568 5170
Útsala
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Hæðasmára 4
– Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan
Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355
30-60%
afsláttur
af völdum
vörum
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2870 | www.friendtex.is
Opið í dag frá kl. 11:00 -19:00
2 fyrir 1
2 fyrir 1
2 fyrir 1
2 fyrir 1
Útsölulok
í dag
Kíktu inn - það
borgar sig
Peysur
Buxur
Jakkar
KjólarNotkun fjölfosfata er á dagskrá vís-
indaráðs stjórnarnefndar Evrópu-
sambandsins (ESB) um heilbrigðis-
og neytendamál (DG SANCO) á
fundi hennar 17. og 18. febrúar
næstkomandi.
„Við munum að sjálfsögðu senda
vísindamenn þangað og reyna að ná
í gegn með okkar rök,“ sagði Guð-
bergur Rúnarsson, verkfræðingur
og starfsmaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva (SF) og stjórnarmaður
Íslenskra saltfiskframleiðenda.
Hann var í sex manna sendinefnd Ís-
lenskra saltfiskframleiðenda og
stjórnvalda, ásamt Atla Gíslasyni,
formanni sjávarútvegsnefndar Al-
þingis, sem hitti fulltrúa ESA og
ESB í síðustu viku vegna banns ESB
við notkun fjölfosfata í saltfiskfram-
leiðslu.
„Saltfiskur er svo sérstakur,“
sagði Guðbergur. Hann sagði að
málið strandaði á reglugerð ESB um
aukaefni í matvælum. Hún miðast
við aukaefni sem eru í matvælunum
þegar þeirra er neytt.
Íslenskir saltfiskframleiðendur
benda hins vegar á að fjölfosfötin
séu einungis tæknileg hjálparefni
við framleiðsluna og skolist úr við
útvötnun. Guðbergur sagði að Ís-
lendingar leituðu nú leiða til að
koma sínum sjónarmiðum að hjá
ESA og ESB.
„Fjölfosföt, salt og fleira fer úr
fiskinum við útvötnun, áður en hans
er neytt. Í því felst munurinn,“ sagði
Guðbergur. Saltfiskframleiðendur
berjast fyrir því að fá fjölfosfötin
viðurkennd sem tæknilegt hjálp-
arefni.
„Viðræður sem við áttum við Eft-
irlitsstofnun EFTA og stjórnarnefnd
ESB um heilbrigðis- og neytendamál
voru mjög góðar. Menn hlustuðu vel
á okkur og okkar sjónarmið mættu
skilningi. En á meðan þetta er skil-
greint sem aukaefni erum við í
slæmum málum,“ sagði Guðbergur.
Ný reglugerð ESB um aukaefni í
matvælum er að mestu tilbúin. Guð-
bergur reiknar með að hún taki gildi
í kringum næstu áramót. Ekki er
ljóst hvort fjölfosföt í saltfiski verða
skilgreind sem aukaefni eða tækni-
legt hjálparefni. Hann sagði að
áfram yrði unnið að málinu af hálfu
Íslendinga bæði hér innanlands og
innan ESB. gudni@mbl.is
Fjölfosföt í salt-
fiski rædd í vís-
indaráði ESB
Það sjónarmið kynnt fyrir ESB að
efnin séu tæknileg hjálparefni í saltfiski
Morgunblaðið/RAX
Saltfiskur Búið er að banna notkun
fjölfosfata við saltfiskverkun.
Vísitala neysluverðs miðuð við verð-
lag í janúar lækkaði um 0,9% frá
fyrra mánuði. Þetta er umfram það
sem greiningardeildir bankanna
höfðu gert ráð fyrir, en þær höfðu
flestar spáð um 0,6%-0,8% hjöðnun.
Tólf mánaða verðbólga mælist nú
1,8%, en var 2,5% í desember.
Greiningardeild Arion banka segir
þó að búast megi við talsverðri verð-
bólgu í febrúar og mars.
Arion banki spáir því nú til bráða-
birgða, að vísitala neysluverðs hækki
um 0,7% í febrúar og 0,5% í mars.
Gangi sú spá eftir verður ársverð-
bólgan komin í 1,4% í apríl 2011 en ef
horft er framhjá skattahækkunum
ríkisstjórnarinnar þá verður verð-
bólgan 1,2%.
Ákveðnir áhættuþættir eru fyrir
hendi hvað verðlagsþróun varðar,
þar á meðal árstíðabundnar hækk-
anir í kjölfar útsalna og gengisveik-
ing krónunnar, sem getur skilað sér
út í verðlagið.
Útvarpsgjaldið skattur
Hagstofan segir, að síðastliðna
tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs
hækkað um 1,8% en vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis um 2,4%. Und-
anfarna þrjá mánuði hafi vísitala
neysluverðs lækkað um 0,5% sem
jafngildi 2,1% verðhjöðnun á ári
(1,8% verðhjöðnun fyrir vísitöluna
án húsnæðis).
Þetta er í fyrsta skipti frá því í
mars 2004 sem 12 mánaða verðbólga
er undir 2% en þá var verðbólgan
einnig 1,8%. Þar áður gerðist það í
júní 2003 þegar árshækkun vísitöl-
unnar var 1,6% en verðbólga var
mjög lítil það ár.
Kostnaður vegna eigin húsnæðis
minnkaði um 1,8% í janúar, aðallega
vegna lægra markaðsverðs. Far-
gjöld í utanlandsflugi lækkuðu um
15%. Verð á mat og drykkjarvörum
hækkaði um 1,4% og verð á bensíni
og olíum hækkaði um 3,1%. Áhrif
hækkunar áfengis-, tóbaks-, olíu- og
kolefnisgjalda á vísitölu neysluverðs
voru 0,21%.
Nú er litið á útvarpsgjald sem
beinan skatt í stað þjónustugjalds.
Breytingin hafði 0,41% áhrif til
lækkunar á vísitölunni. Verð á ann-
arri opinberri þjónustu hækkaði um
3,4%.
Búist við verðbólgu
í febrúar og mars
Verðlag lækkaði
um 0,9% í janúar,
meira en spáð var
Verðbólga
frá janúar 2010
9%
8%
7%
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
Jan. 2010 Jan. 2011
6,6%
8,5%
1,8%
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111