Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is N ánast ekkert er veitt af sel í dag, aðeins örfáir tugir yfir landið á ári hverju að sögn Pét- urs Guðmundssonar formanns samtaka selabænda. Hann er þá helst borðaður í hinni vinsælu Selaveislu selabænda og hjá ein- stökum sérvitringum að sögn Pét- urs. Á fræðslufundinum mun hann aðallega ræða um hvernig Íslend- ingar nýttu seli til matar áður fyrr. „Selurinn var étinn nánast all- ur, hausinn, eða gónan eins og haus- inn á selnum er kallaður, var sviðinn og súrsaður. Kjötið var svo étið nýtt og saltað. Í gamla daga datt engum í hug að steikja sel, það var ekki fyrr en fór að veiðast útselur, þá var farið að taka valda bita úr vetrungs- útselum og búa til úr þeim gúllas eða sniðsel eins og einhverjir kölluðu snitsel úr selskjöti. Bragðið af útsel er öðruvísi en af landsel. Kjötið af landselnum er svo fitusprengt að það er erfitt að geyma það, en útselurinn er allt öðruvísi, fitan og vöðvinn aðskildari og mikið meira hægt að gera úr hon- um. Mér finnst landselurinn betri á bragðið en ætli það sé ekki vegna þess að ég er vanari að borða hann,“ segir Pétur. Étur ekki allt af selnum Pétur segir að fram yfir 1950 hafi hver einasti selur sem veiddist í Ófeigsfirði verið étinn. „Við höfum ekki veitt neitt að gagni undanfarið. Það er vorkóp- urinn sem við tökum, hann er veidd- ur í enda júní. Þá er hann orðinn um það bil mánaðargamall. Kópurinn er 36 til 40 kíló og af honum er a.m.k. 10 kíló spikkápan. Kjötið er um 6 til 8 kíló en þetta er afskaplega ljúf- fengt og gott kjöt. Ég ét tölvert af þessu en segi ekki að ég éti allt af selnum. Ég hef t.d aldrei étið lifrina og nýrun en þetta átu menn.“ Spurður hvenær vinsældir sels- ins hafi farið að minnka til matar Nytjar á sel til matar fyrr og nú Í kvöld fer fram fræðslufundur á vegum félagsins Matur-saga-menning þar sem fjallað verður um hvernig Íslendingar nytjuðu seli til matar og hvernig hægt er að nýta selaafurðir á nýstárlegan hátt. Pétur Guðmundsson frá Ófeigsfirði, formaður samtaka selabænda, og Guðmundur Ragnarsson veitingamaður munu flytja er- indi en þeim þykir báðum selur vera mikið lostæti. Morgunblaðið/Árni Torfason Selabændur Guðmundur og Pétur að smakka grillaðan sel í selaveislu sam- taka selabænda fyrir nokkrum árum. Það getur verið gott að nálgast upp- lýsingar um alla veitingastaði á Ís- landi á einum stað en slík er einmitt raunin með vefsíðuna veitingastad- ir.is (einnig sama síða: restaur- ants.is). Þar eru þeir allir í stafrófs- röð (og ótrúlegur fjöldi!) og hægt að fá um þá hinar ýmsu upplýsingar, ekki aðeins hvar þeir eru staðsettir heldur einnig meðalverð á réttum, hverskonar matur er í boði, álitsgjöf og stjörnugjöf. Margir veitingastaðanna eru einn- ig með matseðil sinn á netinu, bæði á íslensku og ensku, og að sjálf- sögðu eru hægt að fara beint inn á heimasíður hvers og eins af þessari síðu. Einnig er hægt að leita að veit- ingastað eftir ákveðinni tegund, hvort sem það er kaffihús, hótel, veisluþjónusta, árshátíðir o.s.frv. Líka er hægt að leita eftir ákveðinni matargerð, t.d. austurlenskum, brúðkaupum, brunch eða fjöl- skyldustöðum. Auk þess eru á síðu þessari ótal spennandi uppskriftir frá veitingastöðunum, t.d var þar efst á lista í gær svartfugl og bakað fyllt epli frá veitingastaðnum Indian mango. Á síðunni eru líka allskonar tilboð og má þar nefna að Hótel Rangá býður öllum sem eiga stórafmæli á árinu einstakt afmælistilboð. Vefsíðan www.veitingastadir.is Morgunblaðið/Ómar Allskonar Ísland er mjög ríkt af fjölbreyttum veitingastöðum. Veitingastaðir á einum stað Rithöfundurinn Kristín Marja Baldursdóttir ræðir um bók sína Karitas án titils í fyrirlestraröð- inni Hvernig verður bók til? á Háskólatorgi Háskóla Íslands í dag frá kl. 12 til 13 í stofu HT-105. Kristín Marja hefur sent frá sér efni af ýmsu tagi, skáldsög- ur, smásögur og ævisögu auk hundraða blaðagreina. Bækur hennar hafa verið þýddar á mörg tungumál og hafa vakið svo mikla athygli erlendis að ferðaskrifstofur eru farnar að bjóða upp á ferðir í fótspor Kar- itasar. Karitas án titils var til- nefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006. Endilega … … fræðist um fæðingu Karitasar Morgunblaðið/Einar Falur Vinsæl Kristín Marja Baldursdóttir. Bónus Gildir 27.-30. janúar verð nú áður mælie. verð K.f. beikonkurl .............................. 798 998 798 kr. kg K.f. frosið vínarsnitsel .................... 798 998 798 kr. kg K.f. frosið nautahakk, 620 g .......... 698 798 1.125 kr. kg Egils orka, 500 ml ........................ 98 119 196 kr. ltr Kók zero, 33 cl ............................. 59 65 179 kr. ltr Tilda hrísgrjón, 5x100 g................. 298 339 596 kr. kg Barilla spaghetti ........................... 259 279 259 kr. kg Neutral þvottaefni, 1,9 kg .............. 679 698 357 kr. kg Euroshopper bleiur ....................... 1.398 1.498 1.398 kr. pk. Eurosh. barnaþurrkur, 72 stk.......... 179 195 179 kr. pk. Fjarðarkaup Gildir 27.-29. janúar verð nú áður mælie. verð Svínahnakki, úrb., úr kjötborði ....... 998 1.498 9.98 kr. kg Nauta Entrecote, úr kjötborði ......... 2.998 3.598 2.998 kr. kg Hamb. 2x115 g m/brauði.............. 378 458 378 kr. pk. Fjallalambs frosin svið................... 359 449 359 kr. kg KF íslenskt heiðarlamb .................. 1.398 1.568 1.398 kr. kg KF blandaður súrmatur, 1,3 kg....... 2.059 2.660 2.059 kr. stk. Hagkaup Gildir 27.-30. janúar verð nú áður mælie. verð Íslandslamb hryggur, ferskur .......... 1.494 2.298 1.494 kr. kg Íslandsnaut mínútusteik ................ 2.659 3.798 2.659 kr. kg Íslandsn. hamb., 4 stk. m/br. ........ 594 849 594 kr. kg H&G 16" pitsa, 2 teg. ................... 898 998 898 kr. stk. Holta kjúklingavængir, 2 teg........... 399 679 399 kr. pk. Myllu fimmkornabrauð .................. 259 499 259 kr. stk. Myllu vínarbrauðslengja................. 399 649 399 kr. stk. Myllu amerískir kleinuhringir .......... 129 179 129 kr. stk. Myllu snúðar ................................ 129 219 129 kr. stk. Trópí sjöan, 1 l.............................. 229 349 229 kr. ltr Kostur Gildir 27.-30. janúar verð nú áður mælie. verð Hunt pastasósur, 751 g................. 189 199 189 kr. stk. Aro Pasta Fusilli, 500 g ................. 135 179 135 kr. stk. Aro Pasta Penne, 500 g................. 135 179 135 kr. stk. Healthy kartöflumús ...................... 159 189 159 kr. stk. Dr Oetker pitsa Mozzarella/basil .... 569 629 569 kr. stk. Dr Oetker pitsa pepperoni.............. 569 629 569 kr. stk. Ms skyr.is, 170 g .......................... 89 105 89 kr. stk. Kotasæla, 500 g........................... 289 313 289 kr. stk. Kletta vatn, 0,5 l ........................... 99 119 99 kr. stk. Kletta vatn, 2 l .............................. 149 179 149 kr. stk. Krónan Gildir 27.-30. janúar verð nú áður mælie. verð Goða þorrabakki ........................... 1.358 1.598 1.358 kr. kg Ýsa í raspi .................................... 1.189 1.698 1.189 kr. kg Folaldalundir ................................ 2.498 3.389 2.498 kr. kg Folaldafille ................................... 1.855 2.959 1.855 kr. kg Folalda innralæri .......................... 1.855 2.898 1.855 kr. kg Folalda piparsteik ......................... 1.855 2.898 1.855 kr. kg Folaldasnitsel............................... 1.499 1.998 1.499 kr. kg Folaldagúllas................................ 1.499 1.998 1.499 kr. kg Grísasteik m/lime og rósmarín ....... 849 1.698 849 kr. kg Big bistro pitsa pepp/skink/sv....... 349 449 349 kr. stk. Nóatún Gildir 27.-30. janúar verð nú áður mælie. verð Lambainnralæri ............................ 2.698 3.398 2.698 kr. kg Kindasnitsel ................................. 1.399 1.998 1.399 kr. kg Kindagúllas .................................. 1.399 1.998 1.399 kr. kg Grísalundir m/sælkerafyllingu ........ 2.398 2.998 2.398 kr. kg Lambaprime................................. 2.398 2.998 2.398 kr. kg Húsavíkur sauða hangiframp. ......... 1.278 1.598 1.278 kr. kg Ísl. m. kjúklingalæri, úrb. ............... 1.599 2.298 1.599 kr. kg Fiskréttur að hætti Börsunga .......... 1.259 1.798 1.259 kr. kg Kuchen meister kökur.................... 229 329 229 kr. stk. Myllu pólar extreme....................... 399 495 399 kr. stk. Þín verslun Gildir 27.-30. janúar verð nú áður mælie. verð Ísfugls kjúklingur, heill ................... 749 1072 749 kr. kg Ísfugls kjúklingalæri og -leggir ........ 698 998 698 kr. kg Weetabix morgunkorn, 430 g ......... 498 569 1.159 kr. kg Havre Fras morgunkorn, 375 g ....... 498 565 1.328 kr. kg Merrild Senseo kaffipúðar .............. 439 529 3.512 kr. kg Findus Oxpytt, 550 g..................... 579 698 1.053 kr. kg Hatting hvítlauksbrauð, 2 stk. ........ 435 549 218 kr. stk. Almondy Marabou-terta, 400 g ...... 1.089 1.398 1.089 kr. pk. Billy’s Pan flatbaka, 170 g............. 298 398 1.753 kr. kg Helgartilboðin Ármúli 38 S: 551 6751 og 691 6980 Nám á vorönn. Allir velkomnir. Byrjendur sem og lengra komnir. Munið frístundakortið! pianoskolinn.is pianoskolinn@pianoskolinn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.