Morgunblaðið - 27.01.2011, Síða 11
Tækniþróunarsjóður
Úthlutun og áhrif
Dagskrá
l Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra flytur ávarp
l Nýtt merki Tækniþróunarsjóðs kynnt
l Úthlutun 2010
l Áhrifamat Tækniþróunarsjóðs
l Kynning á fjórum nýjum verkefnum sem hafa aðstöðu í Kím:
• Heima heilasíriti. Garðar Þorvarðsson, Medical Algorithms
• Hagkvæmt svefnskráningartæki. Kolbrún E. Ottósdóttir, Nox Medical
• Markaðssókn í Kanada. Perla Björk Egilsdóttir, SagaMedica
• Krabbameinslyfjanæmispróf. Finnbogi Þormóðsson, ValaMed
Fundarstjóri er Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Boðið upp á kaffiveitingar og tækifæri gefst til að líta inn hjá sprotafyrirtækjum í setrinu.
Allir núverandi, fyrrverandi og tilvonandi styrkþegar hvattir til að mæta!
Skráning á rannis@rannis.is
Tækniþróunarsjóður kynnir úthlutun og nýtt áhrifamat
föstudaginn 28. janúar kl 15-17
í Kím frumkvöðlasetri, Vatnagörðum 18
www.rannis.is
Morgunblaðið/RAX
Selir Voru mikið borðaðir áður fyrr en hafa ekki verið vinsælir til matar undanfarna áratugi.
segir Pétur það hafa verið með
breyttu mataræði Íslendinga.
Mjúkt mjólkurkópakjöt
Guðmundur Ragnarsson veit-
ingamaður ætlar að tala um hvernig
má nýta selaafurðir á nýstárlegan
hátt en hann hefur meðal annars
boðið upp á selasteikur á veit-
ingastað sínum Lauga-ási.
„Ég veiði útselskópana. Það er
aðeins einn tími á ári sem útsels-
kópar eru veiddir, í byrjun október,
þá er kópurinn að verða mán-
aðargamall og kom-
inn í kjörstærð.
En ég veiði
aðeins
örfáa kópa,
ekki meira
en ég þarf í
Selaveisluna og
smá til að bjóða
hér upp á á
Lauga-
ási,“ seg-
ir Guðmundur.
Hann segist nýta hverja
örðu af selnum.
„Skinnin fara á markað, sel-
spikið saltað og kjötið er notað í
selaveislu og smá hluti er í boði hér á
Laua-ási. Ég læt svíða hreifana, sýð
þá og bý til sviðasultu. Það er enginn
munur á þeirri sultu og úr kindakjöti
nema það kemur aðeins sjáv-
arkeimur í lokin þegar búið er að
borða hana. Ég reyki svo hluta á
gamla mátann í reykkofa, það er
svolítið eins og að borða hangikjöt.
Ég er líka með soðinn saltaðan sel
eins og gert var í gamla daga. Svo
steiki ég kjötið eins og nautalundir,“
segir Guðmundur. „Ég nota bara út-
selskópa og þetta er mjólk-
urkópakjöt, hann hefur aldrei borð-
að fisk. Fitan á þessum eina mánuði
verður 5cm og bara af móðurmjólk-
inni. Þetta er eins og fræga kálfa-
kjötið í Frakklandi, mýksta kjöt sem
ég hef komið við.“
Guðmundur sér ekki fyrir sér
að það verði borðað meira af selnum
í framtíðinni. „Við veiðum eins lítið
og við komumst upp með, bara rétt
til að halda í gamlar hefðir. Ég sé
ekki að það aukist að fullorðinn selur
verði borðaður, það er svo sterkt
villibráðarbragð af honum.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Íslenskt hráefni og ítalskar aðferðir
eiga oft einstaklega vel saman. Hér
eldum við íslenskan þorskhnakka,
sem er eitthvert magnaðasta hráefni
íslenskrar náttúru, með íslensku
byggi, eldað á sama hátt og ítalskt
risotto.
Bygottó
3 dl íslenskt bygg
1 laukur, saxaður
1 gulrót söxuð í litla teninga
2-3 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
1,5 dl kjúklingasoð (sjóðandi vatn
og 1 tsk. Oscar-kjúklingakraftur)
½ steinseljubúnt, fínsaxað
2 dl nýrifinn Parmesan-ostur
ólívuolía
Hitið olíuna á stórri pönnu. Mýkið
lauk, gulrót og hvítlauk í olíunni.
Bætið bygginu við og veltið um í olíu-
nni í 2-3 mínútur. Haldið soðinu við
suðustig í potti og bætið smám sam-
an við, ausu og ausu í einu. Látið
byggið malla í 45-50 mínútur eða þar
til það er orðið mjúkt en enn með
smábiti. Bætið steinseljunni og Par-
mesan-ostinum saman við og látið
standa í nokkrar mínútur.
Þorskhnakki
600-700 g af þykku þorsk-
hnakkastykki
salvía
olía
smjör
salt og pipar
Hitið ofninn í 200 gráður. Skerið
hnakkastykkið í fjórar „steikur“. Hit-
ið smjör og ólívuolíu saman á pönnu.
Bætið salvíu (ferskri fínsaxaðri eða
þurrkaðri) saman við. Steikið þorsk-
sneiðarnar um eina mínútu á hverri
hlið. Saltið og piprið. Látið pönnuna í
ofninn í um 10 mínútur. Þorskhnakki
er hráefni sem ber að meðhöndla
eins og góðar steikur og það ber að
varast að ofelda þær.
Setjið byggotó á disk, þá skammt
af klettasalati og loks þorsksneiðina
ofan á salatið. Hellið smá af hágæða
ólívuolíu yfir þorskinn og berið strax
fram.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Þorskhnakki með byggottó
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á www.vinotek.is
Fræðslufundurinn í kvöld er sá
þriðji í röð fræðslufunda á veg-
um félagsins Matur-saga-
menning. Fjalla þeir allir um
nytjar á villtum dýrum úr ís-
lenskri náttúru, bæði fyrr og nú.
Í kvöld verður fjallað um
hvernig Íslendingar nytjuðu seli
til matar. Pétur Guðmundsson
frá Ófeigsfirði, formaður Sam-
taka selabænda, og Guðmundur
Ragnarsson veitingamaður
munu flytja erindi.
Fundurinn verður
haldinn í sal
Reykjavík-
urakademíunnar,
Hringbraut 121, 4.
hæð, kl. 20 til 22.
Aðgangur er
ókeypis.
Nytjar á sel
til matar
MATUR-SAGA-MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Íslendingasögunámskeiðin eru sí-
vinsæl og við höfum bætt við morg-
untímum. Við erum með þrjá hópa á
Njálunámskeiði núna og það eru um
90 manns í hverjum hópi,“ segir
Thelma Jónsdóttir, markaðs- og
kynningarstjóri hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands. Nú á vorönn eru fjöl-
mörg afar áhugaverð námskeið í boði
hjá Endurmenntun, t.d. um tónlistar-
heim Gana, djass, súkkulaði, Jesú,
Sikiley, búddisma, jólabækurnar,
þjóðgildin, Sade markgreifa, tungu-
mál, eflingu sjálfstrausts og um sam-
skipti foreldra og barna. Fjögur nám-
skeið eru tengd garðyrkju; ræktun
matjurta, kryddjurta, trjárækt og
hagnýt jarðgerð, molta og aðrir líf-
rænir áburðargjafar. „Um þau nám-
skeið sjá nokkrir sérfræðingar í
græna geiranum, í Horticum mennta-
félagi,“ segir Thelma og bætir við að
námskeið sem séu vel sótt séu gjarn-
an endurtekin en stundum hvíli þau
líka námskeið og taki þau svo upp
aftur. „Það á til dæmis við um nám-
skeiðið um Jakobsveginn, pílagríms-
ferðina til Santiago de Compostela,
sem Jón Björnsson, sálfræðingur og
rithöfundur, stýrir, en það er alltaf
fullt á það námskeið. Jón hefur verið
með fjölmörg önnur námskeið hjá
okkur, t.d. um engla, en núna á vor-
önn er nýlega farið af stað námskeið
hans um illskuna, víti og fjandann.“
Leikhúsnámskeiðin segir Thelma
einnig afar vinsæl, en þá fær fólk
fyrst fræðslu um leikritið og höfund-
inn, síðan er farið á æfingu þar sem
spjallað er við leikstjórann og leik-
arana, og loks farið á sýninguna og
eftir hana spjallað um hana. Eitt af
námskeiðunum kallast Yndislestur
með Einari Kárasyni en þá verða
nokkrar bækur sem komu út á síð-
asta ári lesnar og höfundarnir koma í
heimsókn.
Thelma segir aldrei hægt að segja
fyrirfram hvaða námskeið ganga vel,
til dæmis hefur nýja námskeiðið um
Guðrúnu frá Lundi, Mátti kerlingin
ekki skrifa í friði, fengið mjög góða
skráningu. Námskeið Jóhanns Inga
Gunnarssonar um eflingu sjálfs-
trausts hafa líka notið mikilla vin-
sælda. „Úr neista í nýja bók, þar sem
farið er yfir ýmis atriði við ritun
skáldsagna, hefur slegið í gegn, við
virðumst eiga mikið af skúffu-
skáldum.“ Thelma tekur fram að
námskeið Endurmenntunar séu opin
öllum. www.endurmenntun.is.
Námskeið
Djass, súkkulaði, Jesús og
Sikiley hjá Endurmenntun HÍ
Namm Súkkulaði … matur guðanna er
eitt af námskeiðum Endurmenntunar.
www.matarsetur.is