Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í stefnuræðu sinni í fyrrinótt að brýnt væri að repúblikanar og demókratar tækju höndum saman til að minnka fjárlagahallann og takast á við ögrandi viðfangsefni sem landið stæði frammi fyrir, m.a. vegna aukinnar samkeppni landa á borð Kína. „Reglurnar hafa breyst,“ sagði Obama og bætti við að samkeppnisstaða Bandaríkjanna hefði breyst vegna alþjóðavæðingar, mikilla tækniframfara og efnahagsuppgangs í löndum eins og Kína og Indlandi. Forsetinn sagði að Bandaríkjamenn hefðu misst mörg störf til annarra landa og þyrftu að stöðva þá þróun með því að standa sig betur en aðrar þjóðir í nýsköpun, fjárfestingum í tækni, menntun og uppbyggingu á innviðum. „Spútnik-stund okkar“ „Fyrir hálfri öld, þegar Sovétmenn skákuðu okkur í geimnum með því að skjóta á loft gervi- tungli sem nefndist Spútnik, vissum við ekki að við yrðum á undan þeim til tunglsins,“ sagði Obama. „En eftir að við fjárfestum í betri rann- sóknum og menntun skákuðum við ekki aðeins Sovétmönnum – við hleyptum af stað öldu ný- sköpunar sem skapaði nýjar atvinnugreinar og milljónir nýrra starfa. Þetta er Spútnik-stund okkar kynslóðar.“ Fylgi Obama hefur aukist á síðustu vikum og í ræðunni biðlaði hann einkum til óflokks- bundinna miðjumanna sem geta ráðið úrslitum í kosningunum á næsta ári. Forsetinn vék að fjár- lagahalla Bandaríkjanna og lagði til að útgjöld yrðu fryst í fimm ár að undanskildum fjárfest- ingum í tækni, menntun og innviðum landsins. Stjórnmálaskýrandi The New York Times segir að í ræðunni hafi Obama lagt línurnar í hugmyndafræðilegri baráttu demókrata og repúblikana fyrir kosningarnar. Þótt flokkarnir séu sammála um að minnka þurfi ríkisútgjöld hafi þeir gerólík viðhorf til hlutverks ríkisvalds- ins. Repúblikanar líti svo á að til að bæta sam- keppnisstöðu Bandaríkjanna þurfi að lækka skatta og draga úr afskiptum ríkisins af efna- hagslífinu. Obama líti hins vegar svo á að ríkið þurfi að gegna lykilhlutverki í því að bæta sam- keppnisstöðuna, m.a. með fjárfestingum í tækni og bættum samgöngum. Stjórnmálaskýrandi The Washington Post segir að hvorki forsetinn né leiðtogar repúblik- ana á þinginu hafi lagt fram skýra áætlun um hvernig fjölga eigi störfum á næstu misserum, sem sé mikilvægasta verkefnið í augum kjós- enda fyrir kosningarnar á næsta ári. Áhersla lögð á nýsköpun og samstarf  Barack Obama segir í stefnuræðu að Bandaríkjamenn þurfi að styrkja samkeppnisstöðu sína gagnvart Kína og fleiri ríkjum með auknum fjárfestingum í tækni, menntun og innviðum landsins Reuters Stefnuræða Barack Obama Bandaríkjaforseti tíundar stefnu sína í þinghúsinu í Washington. Fjárfest í tækni » Obama sagði í stefnuræð- unni að Bandaríkjamenn þyrftu meðal annars að fjárfesta í líf- tæknifræðilegum rannsóknum, upplýsingatækni og hreinni orku. » Stjórn Obama stefnir meðal annars að því að um milljón rafbíla komi á göturnar í Bandaríkjunum á næstu fjór- um árum. » Stefnt er að því að hlutur hreinna orkugjafa í almennri orkunotkun í landinu verði aukinn í 80% fyrir árið 2035. » Forsetinn sagði að stjórn- in hygðist fjárfesta í bættum samgöngum, m.a. nýjum járn- brautum fyrir hraðlestir. » Stjórnin stefnir að því að tryggja að 98% Bandaríkja- manna hafi aðgang að há- hraðanettengingu innan fimm ára. BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Sprengjutilræðið á Domodedovo- flugvelli í Moskvu á mánudag sýnir að miklu meira þarf að gera til að koma í veg fyrir hryðjuverk á flug- völlum heimsins, að mati sérfræð- inga í öryggismálum í flugsamgöng- um. Þeir telja að yfirvöld hafi lagt ofurkapp á að tryggja öryggi flugvéla en vanmetið þörfina á því að vernda farþega og aðra gesti á flugvöllunum. Minnst 35 manns biðu bana og yfir 100 særðust í sprengingu nálægt far- angursfæribandi á komusvæði flug- vallarins í Moskvu eftir að hryðju- verkamaður komst þangað með um sjö kíló af TNT-sprengiefni. Talið er að hryðjuverkasamtök frá Norður-- Kákasushéruðum hafi staðið fyrir til- ræðinu. Aðgangurinn takmarkaður Rússnesk yfirvöld fyrirskipuðu þegar í stað hert eftirlit með öllum sem koma inn í flugstöðvarbyggingar og farangri þeirra. Leitað verður á öllum sem koma inn í byggingarnar, ekki aðeins farþegum eftir að þeir hafa verið innritaðir. Aðgangur að flugstöðvarbygging- um hefur verið takmarkaður á nokkrum flugvöllum á síðustu árum. Á sumum þeirra er aðeins farþegum með farmiða leyft að fara inn í flug- stöðvarbyggingarnar, í öðrum hefur verið látið nægja að kanna skilríki þeirra sem koma þangað inn. Öryggisgæslan er ströngust á Ben Gurion-flugvelli í Ísrael þar sem ör- yggisverðir kanna skilríki við stein- steyptan múr um níu metra frá inn- gangi flugvallarins. Í Banda- ríkjunum hafa yfirvöld stundum reynt að takmarka aðganginn að flugvöllum. Lögreglumenn hafa þá stöðvað bíla til að skoða skilríki þeirra sem fara á flugvallarsvæðið. Slíkt eftirlit hefur valdið umferðar- teppum og þessari aðferð hefur aðal- lega verið beitt þegar öryggisviðbún- aðurinn hefur verið aukinn vegna upplýsinga um að hryðjuverk kunni að vera yfirvofandi. Blóðsúthellingarnar í Moskvu gætu orðið til þess yfirvöld í fleiri löndum gerðu ráðstafanir til þess að takmarka aðgang að flughöfnum. Hafa þarf í huga að tugir þúsunda manna starfa á stærstu flugvöllun- um, sem taka á móti allt að 50 millj- ónum farþega á ári, og ljóst er því að mjög erfitt yrði að tryggja öryggi þeirra allra. „Margir flugvellir galopnir“ Sérfræðingarnir segja að eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001 hafi yfirvöld í flest- um löndum fjárfest í dýrum hátækni- búnaði til að hindra að hryðjuverka- menn komist inn í flugvélar til að ræna þeim eða sprengja þær í loft upp. Öryggi flugvalla sé hins vegar enn ábótavant þótt þeir séu á meðal dæmigerðra skotmarka hryðju- verkamanna eins og opinberar stjórnsýslubyggingar. „Þetta er risastór gloppa í öryggis- viðbúnaðinum,“ segir Philip Baum, ritstjóri tímaritsins Aviation Secu- rity International og bendir á að hryðjuverkasamtök séu alltaf að breyta aðferðum sínum til að koma yfirvöldum í opna skjöldu. „Við höf- um misst sjónar á stóru myndinni og erum alltaf að takast á við hættuna sem kom upp síðast, ekki hættuna sem kemur næst. Við erum alltaf að bregðast við vandanum eftir á.“ Chris Yates, breskur ráðgjafi í ör- yggismálum, kveðst árum saman hafa varað við því að öryggi flugvalla hafi setið á hakanum. „Margir flug- vellir eru galopnir þannig að hver sem er getur gengið þangað inn og sprengt sig í loft upp. Svo einfalt er það,“ segir Yates. Líklegt þykir að hryðjuverkasam- tök notfæri sér þessa vankanta til að valda sem mestu manntjóni. Baum segir að fyrir blóðsúthell- ingarnar í Moskvu á mánudag hafi 25 ár verið liðin frá síðustu mannskæðu hryðjuverkunum á flugvöllum, eða frá árásum palestínskra hryðju- verkamanna á afgreiðsluborð ísr- aelska flugfélagsins El Al á flugvöll- um í Róm og Vín 27. desember 1985. Nítján manns biðu bana og nær 140 særðust í árásunum. Baum telur það ekki spurningu um hvort heldur hvenær hryðjuverka- menn hefji hrinu slíkra hryðjuverka á flugvöllum að nýju. Öryggi flugvalla sat á hakanum Reuters Sorg Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, minnist fórnarlamba hryðjuverksins við athöfn í kirkju í Moskvu. Þjóðarsorg ríkti í landinu í gær.  Sérfræðingar segja að yfirvöld hafi lagt ofurkapp á að hindra að hryðjuverkamenn kæmust inn í flugvélar en vanrækt öryggi farþega á flugvöllum  „Þetta er risastór gloppa í öryggisviðbúnaðinum“ Rússnesk blöð gagnrýndu í gær frammistöðu yfirvalda í barátt- unni gegn hryðjuverkum og sögðu að lítið hefði áunnist. Bent var á að hryðjuverk kost- uðu 1.200 manns lífið í Rúss- landi þegar Níkolaj Patrúshev var yfirmaður öryggislögregl- unnar FSB á árunum 1999- 2008. Nær 200 manns hafa lát- ið lífið í hryðjuverkum frá því að Alexander Bortníkov tók við af Patrúshev sem er nú formaður öryggisráðs stjórnvalda í Kreml. Lítið áunnist YFIRVÖLD GAGNRÝND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.