Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Til átaka kom milli lögreglumanna og mótmælenda í Kaíró og hafnar- borginni Súez í Egyptalandi í gær, annan daginn í röð. Efnt var til götumótmælanna þótt innanríkisráðuneyti landsins hefði bannað öll mótmæli. Embættismenn í Kaíró sögðu að a.m.k. 500 manns hefðu verið handtekin vegna mót- mælanna. Lögreglan beitti táragasi og kylf- um gegn hundruðum mótmælenda sem söfnuðust saman í miðborg Kaíró til að krefjast þess að Hosni Mubarak léti af embætti forseta. Daginn áður biðu þrír mótmælendur og einn lögreglumaður bana í átök- um. Embættismaður í Kaíró sagði þetta mestu mótmæli í landinu frá „brauðóeirðunum“ svonefndu á árinu 1977 þegar hundruð þúsunda manna mótmæltu afnámi niður- greiðslna ríkisins á matvælum að fyrirmælum Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins og Alþjóðabankans. Um 800 manns biðu bana í óeirðunum sem lauk ekki fyrr en hernum var beitt gegn mótmælendunum. Nýleg uppreisn í Túnis er kveikj- an að mótmælunum nú og skipu- leggjendur þeirra segja að þeim verði ekki hætt fyrr en Mubarak láti af völdum. Skipuleggjendurnir hafa notað samskiptasíður á netinu, m.a. Facebook og Twitter, til að hvetja til mótmælanna, en fregnir hermdu að síðurnar hefðu verið lokaðar í Egyptalandi í gær. Hundruð mótmælenda handtekin í Egyptalandi Reuters Átök Lögreglumenn í Kaíró beittu kylfum gegn mótmælendum sem krefj- ast afsagnar Hosnis Mubaraks forseta sem hefur verið við völd frá 1981. Danmörk er það land sem tapar hlutfallslega mestu á aðild að Evrópusambandinu ef litið er á mis- muninn á því hversu mikið aðildar- löndin greiða í sjóði sambandsins og því sem þau fá í staðinn. Þetta er í fyrsta skipti sem Dan- mörk tapar mestu á aðildinni miðað við stærð ESB-landanna, að því er fram kemur á fréttavef danska dag- blaðsins Politiken. Danmörk greiðir 7 milljörðum danskra króna meira í sjóði ESB en landið fær úr þeim, eða jafnvirði tæpra 150 milljarða króna. Danska ríkisstjórnin hefur lofað að beita sér fyrir því að þessi mis- munur minnki. Peter Nedergaard, prófessor í stjórnmálafræði við Kaupmannahafnarháskóla, telur lík- legt að það takist vegna þess að það sé „nánast óskiljanlegt“ hversu lítið Danmörk beri úr býtum. „Það er eins og við höldum að þetta snúist aðeins um að vera í hlutverki dúxins og höfum alveg gleymt að þetta snýst líka um að hvert land gæti hagsmuna sinna,“ hefur Politiken eftir Nedergaard. Prófessorinn telur eina af helstu skýringunum á þessu vera þá að Danmörk fái sífellt minna af land- búnaðarstyrkjum frá ESB. Rann- sókn hafi leitt í ljós að Danmörk fái tíu sinnum minna en Bretland í land- búnaðarstyrki á hvern bónda. Styrkja auðugar þjóðir Hagsmunasamtök danskra bænda og matvöruframleiðenda telja að Danmörk eigi að geta fengið 1,5 milljarða danskra króna (32 millj- arða íslenskra) meira í landbún- aðarstyrki en landið fær nú. Politiken bendir ennfremur á að Danmörk tapar einnig á afsláttum sem auðug lönd á borð við Bretland og Svíþjóð hafa fengið af árlegum gjöldum sem aðildarlöndin greiða í sjóði ESB. Afslættir Breta og Svía kosti Dani eina um milljarð danskra króna (rúman 21 milljarð íslenskra). Nedergaard segir það fáránlegt að Danir skuli þannig styrkja aðrar auðugar þjóðir í Evrópusambandinu. Danir tapa mestu fé á ESB-aðild  Tapa m.a. á af- sláttum Breta og Svía Reuters Fé Danir eru sagðir geta fengið meiri landbúnaðarstyrki frá ESB. K O R T E R . I S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.