Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 19

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Vor í Reykjavík Þrátt fyrir ólgu á mörgum stöðum vegna stöðnunar, atvinnuleysis og fleiri þátta lengist dagurinn stöðugt og blíðan er slík að halda mætti að komið væri vor þótt enn sé janúar. Kristinn Lífskjör á Íslandi og víðar hafa verið fengin að láni og þeg- ar kemur að skulda- dögum beita menn ýmsum leiðum. Sumir telja skynsamlegt að hækka skatta sem leiðir af sér minni neyslu. Aðrir taka enn meira lán. Svo eru þeir til sem skera niður þjónustu sem veikja stoðir hvers samfélags og draga úr hæfni þeirra til að skapa verðmæti. Um leið hefur fjár- festum bæði innlendum sem er- lendum verið gert illmögulegt að ávaxta sitt fé. Til að draga úr skuldum þarf að skapa verðmæti. Íslendingar búa að miklum auðlindum, fæðu, vatni og orku. Landið er gjöfult og auð- lindir þarf að nýta skynsamlega með heildarhagsmuni í huga. Víða um land eru kjöraðstæður fyrir hvers konar fjárfestingu. Slíkt skapar störf, það verður til fram- leiðni og svo tekjur. Öll erum við sammála um að velmegun framtíð- arinnar liggur í því að nýta þessar auðlindir. En einhvern veginn virðist þessi framtíðarsýn ekki ná til tækifæra utan suðvesturhorns- ins og er umhugsunarefni, hvað veldur? Rannsóknir hafa sýnt að viðhorf manna eru eitt af því erfiðasta sem hægt er að breyta. Sér- staklega þegar kemur að hlutum sem skipa mikilvægan sess í lífi fólks. Þá skipta rök og staðreyndir jafnvel engu máli. Staðreyndir sem stangast á við viðhorf eru dregnar í efa, viðhorf og skoðanir verða þess í stað staðreyndir í hugum okkar. Fólk hefur þörf fyr- ir 0að hafa málstað og myndar sér gjarnan einhverja skoðun byggða á óskhyggju, þ.e. fólk trúir ein- hverju svo mikið að það fer að búa til rök sem leiða að fyrirfram gef- inni niðurstöðu og viðhorfum ásamt staðreyndum sem passa við þau. Í Þingeyjarsýslum eru mikil tækifæri til að nýta auðlindir skynsamlega, skapa störf, framleiða og vinna þjóðina út úr kreppu og stöðnun. Því miður virðist þessi uppbygging ekki þeim þóknanleg sem fara með valdið. Hvað veldur? Búa ekki nógu margir í Þingeyjarsýslum og því minni hagsmuna að gæta? Stjórnvöld hafa með aðgerðum sínum í krepp- unni dregið verulega úr mögu- leikum samfélaga til að vaxa og dafna. Er þetta æskileg þróun á Íslandi? Setjum þetta í samhengi við það að 8-11 einstaklingar fara af landi brott daglega. Þannig tap- ast þekking, reynsla, menntun, hæfni o.fl. Er þetta æskileg þróun á Íslandi? Til að snúa þessari þróun við þurfum við Íslendingar að líta í eigin barm, breyta viðhorfi okkar og átta okkur á því að öll skiptum við jafn miklu máli. Þau tækifæri sem felast í uppbyggingu á einu samfélagi veikir ekki önnur sam- félög. Því miður hefur þetta við- horf einkennt stjórnun landsins í of langan tíma. Leyfum sam- félögum að nýta sín tækifæri til uppbyggingar. Fólk á höfuðborg- arsvæðinu tapar ekki á uppbygg- ingu í Þingeyjarsýslu, þvert á móti. Eftir Hjálmar Boga Hafliðason » Staðreyndir sem stangast á við við- horf eru dregnar í efa, viðhorf og skoðanir verða þess í stað stað- reyndir í hugum okkar. Hjálmar Bogi Hafliðason Höfundur er kennari og bæjarfulltrúi í Norðurþingi, Húsavík. Að eiga við viðhorf Réttur borgaranna til að greiða atkvæði í leynilegum kosningum er tryggður í stjórn- arskrá lýðveldisins. Samkvæmt henni skal kosning vera leynileg við forsetakjör og í al- þingiskosninum. Þá skal halda leynilegar kosningar vegna synj- unar forseta á laga- frumvarpi eða vegna breytinga á kirkjuskipan ríkisins. Til samræmis við þetta er í lögum um stjórnlaga- þing kveðið á um að kosning skuli vera leynileg. Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu að ágallar á kosn- ingu til stjórnlagaþings hefðu verið nógu alvarlegir til að ógilda yrði kosninguna. Ágallarnir lutu meðal annars að leynd kosningarinnar. Ögmundur Jón- asson, innanrík- isráðherra, hefur sagt bæði í umræðum á Al- þingi og í fjölmiðlum að á engum hafi verið brotið í kosningunni, þar sem hann telur að ekki sé ástæða til að vefengja niðurstöðu kosningarinnar og litl- ar líkur á að atkvæði hafi verið rakin til kjósenda. „Ég er að vekja athygli þjóðarinnar á því að á engum manni var brotið“ sagði ráðherrann á Alþingi. Hann hefur af þessum ástæðum gert lítið úr ógildingu kosningarinnar. Innanríkisráðherra kemur ekki auga á að í kosningunni nutu borg- ararnir ekki þess réttar síns að kosningin færi fram með nægj- anlega leynilegum hætti. Sá réttur er óháður því hvort ágallar kosn- ingarinnar voru misnotaðir eða ekki. Ágallarnir sjálfir eru alvar- legir og brjóta gegn meginreglu stjórnarskrár um leynilegar kosn- ingar. Í ljósi þess er eðlilegt að spyrja hvort Ögmundur Jónasson sé hæfur til að gegna embætti inn- anríkisráðherra, sem bæði hefur yf- irumsjón með framkvæmd kosninga og er yfirmaður dómsmála hér á landi. Eftir Sævar Guðmundsson » Ágallarnir sjálfir eru alvarlegir og brjóta gegn meginreglu stjórn- arskrár um leynilegar kosningar. Sævar Guðmundsson Höfundur er laganemi. „Á engum manni var brotið“ Ákvörðun Hæsta- réttar Íslands frá því á þriðjudag um að kosn- ing til stjórnlagaþings sé ógild ber að fagna. Hún sýnir að eftir tæp- lega tveggja ára valda- tíð „norrænu velferð- arstjórnarinnar“ finnst enn valdastofnun á landinu sem telur mik- ilvægt að landslög séu haldin. Til stjórnlagaþings var stofnað af úrræðalausri ríkisstjórn, sem með því vildi beina athyglinni frá eigin vanmætti og hugsanlega einnig knýja á um breytingar á stjórnarskránni, sem alls engin samstaða er um. Áður en ákvörðun Hæstaréttar var tekin var ljóst að stjórnlagaþingið væri umboðslaust. Það hefur ekki heimild til að breyta stjórnarskránni, alþingi eitt er til þess bært. Kjósendur af- neituðu þessari dillu ríkisstjórn- arinnar með því að sitja heima þegar kosið var til þingsins. Dómsmálaráðherra, sá sem á að sjá til þess að kosningar í landinu fari löglega fram, reyn- ir nú að klóra í bakk- ann: Í fyrsta lagi hafi ekki verið brotið á rétti nokkurs manns og hins vegar hafi ágallar ekki haft áhrif á úrslit kosn- inganna. Það fyrra er fljótafgreitt, auðvitað var brotið á rétti kjósenda og fram- bjóðenda: Leynileg kosning var ekki tryggð og eftirliti með framkvæmd kosninga og talningu var áfátt, þess vegna ógildir Hæstiréttur kosning- arnar. Að „norræna velferð- arstjórnin“ bjóði upp á dóms- málaráðherra sem ekki ber næmara skynbragð á kosningar er í takt við annað. Því hvort ágallar hafi haft áhrif á úrslit kosninga er öllu erfiðara að svara. Það er hins vegar út í bláinn að útiloka þann möguleika. Um talningu í kosningunum sáu vélar, vafa- atkvæði túlkaði kjörstjórn fyrir lukt- um tjöldum. Vafaatkvæði hafa senni- lega aldrei verið fleiri í kosningum á Íslandi. Nær óhugsandi er að öll vafaatkvæði hefðu verið túlkuð með sama hætti hefðu óháðir aðilar eða fulltrúar frambjóðenda fengið að fylgjast með talningu. Hefðu fleiri at- kvæði verið dæmd ógild? Hefðu fleiri atkvæði verið dæmd gild? Hefðu at- kvæði flust á milli frambjóðenda? Þetta veit enginn, einmitt vegna þess að landskjörstjórn fór ekki að lögum. Réðu ágallar úrslitum? Eftir Þorstein Arnalds »… auðvitað var brot-ið á rétti kjósenda og frambjóðenda: Leynileg kosning var ekki tryggð og eftirliti með fram- kvæmd kosninga og talningu var áfátt … Þorsteinn Arnalds Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.