Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 24

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 ✝ Liselotte El-isabeth Gunn- arsson (fædd Schwinn) fæddist í Flensburg í Norður- Þýskalandi 23. nóv- ember 1912. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 3. janúar 2011. Foreldrar Liselotte voru hjónin Johann Wilhelm Schwinn, yf- irkennari í Flensburg, f. 16. febrúar 1886, d. 1916, í fyrri heims- styrjöldinni og Olga Elisabeth Jónsson (fædd Petersen), húsmóðir, f. 8. mars 1890, d. 17. ágúst 1974. Liselotte átti einn bróð- ur, Heinz Gerhard Schwinn, f. 13. ágúst 1914, d. 9. júlí 1970, kvæntur Hannelore Schwinn (látin). Árið 1924 fluttist Liselotte til Ís- lands frá Þýskalandi ásamt móður sinni og seinni manni hennar, Guð- brandi Jónssyni prófessor, f. 30. september 1888, d. 5. júlí 1953. Hinn 20. október 1945 giftist Liselotte Guðmundi Gunnarssyni, verslunarmanni frá Botnastöðum í Svartárdal, A-Hún., f. 28. febrúar 1919, d. 24. janúar 1992. Liselotte og Guðmundur skildu árið 1951. Dóttir þeirra er Olga Ingibjörg, f. 14. ágúst 1947, gift Pétri Björnssyni, f. 1943, börn þeirra eru: 1) Björn Óli, f. 1970, í sambúð með Birnu Sigurðardóttur. Börn þeirra eru Pétur og Linda. Dætur Birnu frá fyrra sambandi, uppeldisdætur Björns, eru Bára Jónsdóttir, í sambúð með Ómari Eyþórs- syni og Anna Jóns- dóttir í sambúð með Hauki B. Sigmars- syni, þau eiga tvö börn, Helgu Birnu og óskírðan dreng. 2) Liselotta El- ísabet, f. 1976, gift Einari Kristjáni Jónssyni, þau eiga eina dóttur, Olgu Ingibjörgu. Pétur á einn son frá fyrra sambandi, Arthur, f. 1966, giftan Hertu Maríönnu Magn- úsdóttur. Börn þeirra eru Ragnhild- ur Lára, Halldóra Kristín og Magn- ús Grétar. Allan sinn starfsaldur eða til 75 ára vann Liselotte sem einkaritari, fyrst í Laugavegsapóteki, síðan hjá Garðari Gíslasyni og að lokum hjá tengdasyni sínum. Útför Liselotte fer fram frá Sel- tjarnarneskirkju í dag, 27. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Nú er komið að kveðjustund okk- ar ömmu, sem ég kveð með miklum söknuði en um leið óendanlegu þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa hana svona lengi hjá mér. Við amma Lottí vorum mjög nánar. Amma var einstök kona, hlý, skemmtileg, orð- heppin og með eindæmum skapgóð. Ég man aldrei eftir því að hún hafi hækkað röddina eða skammað okk- ur systkinin. Það var alltaf gott að koma til hennar, hún hafði einstaka frásagnarhæfileika og var óspör á að segja ævintýri og sögur frá sjálfri sér. Hún las líka ógrynni af bókum fyrir okkur systkinin. Allar helgar þegar ég var yngri trítlaði ég niður stigann til ömmu með fangið fullt af bókum sem amma las svo tímunum saman. Stundum var tekið hlé á lestrinum og búnar til ýmsar furðuverur úr sængurhorninu eða vasaklút og spunnið upp heilt æv- intýri. Margar sögur koma upp í hugann þegar hugsað er til ömmu eins og hvernig var að alast upp í Þýskalandi, sorgin við að missa föð- ur í fyrri heimstyrjöldinni, hvernig var að koma til Íslands 12 ára göm- ul, hvernig var að dansa við danska prinsinn á Borginni, hvernig það var að vera einstæð móðir, hvernig var að vita af bróður sínum í seinni heimstyrjöldinni og svona mætti lengi telja. Það er óhætt að segja að amma hafi lifað viðburðaríka ævi sem spannaði næstum heila öld. Hún var sannkallaður heimsborgari og mikil málamanneskja, altalandi á fjölda tungumála. Til útlanda ferð- aðist hún á hverju ári og hugurinn leitaði sífellt út. Hún átti erfitt með að sætta sig við að geta ekki ferðast utan síðustu árin. Amma var mikill sólardýrkandi og var komin út á svalir þegar fyrsti sólargeislinn lét sjá sig á vorin, enda kaffibrún allan ársins hring. Á svöl- unum gat hún setið í sundbol með sólhatt svo tímunum skipti. Hún hafði einstaka heilsu og varð nánast aldrei misdægurt. Hún stundaði leikfimi, sund og göngur af kappi sem var henni mikilvægt, allt fram á það síðasta lét hún sig ekki vanta í leikfimina á Eir. Amma var einstak- ur húmoristi og voru brandarar í miklu uppáhaldi hjá henni. Það voru ófáar skemmtanirnar þar sem amma tróð upp með bröndurum, heimatilbúnum brögum, vísum eða öðru skemmtilegu. Hún var vel liðin og þekkt fyrir hnyttin tilsvör. Dag- inn fyrir Þorláksmessu fékk amma væga lungnabólgu, sem hún náði sér ekki af. Þrátt fyrir að vera ekki lengur hress, þá tapaði hún ekki húmornum og glettninni. Daginn fyrir gamlársdag hafði hún ekkert tjáð sig, en þrátt fyrir það ávarpaði læknirinn hana með nafni mjög kurteislega og sagðist ætla að fá að hlusta hana. Hún svaraði því engu, en þegar læknirinn lyfti upp bolnum opnaði mín augun rétti út hendurn- ar og sagði með miklum leikara- brag, „what is going on“ læknirinn hrökk í kút og sagði afsakandi „ég ætlaði bara að hlusta þig“ Liselotte „oh, that is okey“ svaraði amma með sama látbragði, en sagði svo ekki meira. Þannig kvaddi hún með sömu skemmtilegu tilsvörunum eins og hún hafði alltaf gert. Það er við hæfi að ljúka þessu með orðum litlu dóttur minnar sem saknar lang- ömmu sinnar mikið: „Stjarna mín á himninum, litla amma Lottí, er dá- in.“ Liselotta E. Pétursdóttir. Elsku amma okkar, það er erfitt að venjast þeirri tilhugsun að þú sért farin og við munum aldrei aftur fá að sitja hjá þér hlustandi á sögur og hlæja þar til tárin byrja að renna. Þú varst svo ægilega fyndin og lífsglöð, það var alltaf svo gaman að vera í félagsskap þínum og fá að heyra sögur frá Þýskalandi og æsku þinni, kóngafólkinu í Danmörku sem þú hélst svo mikið upp á og alla brandarna sem þú þýddir úr þýsku blöðunum. Það er svo ótal margt sem kemur upp í hugann. Við minnumst þess með hlýju þegar við fengum að fara heim til þín eftir skóla og þú tókst okkur opnum örmum með félagsskap og mat. Þá varstu alltaf tilbúin að hjálpa með heimalærdóminn, sér- staklega tungumálin, og það voru ófáir stílar og ritgerðir sem þú hjálpaðir okkur með. Við kveðjum ömmu með söknuð í hjarta og þökkum fyrir allar góðu minningarnar og stundirnar sem standa eftir. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þínar, Bára og Anna. Elsku amma mín. Það er skrítin tilfinning að þú skulir vera farin, þú sem hefur alltaf verið til staðar. Þú hugsaðir alltaf vel um mig, al- veg frá því ég var lítill. Þú varst sú sem hafðir alltaf tíma til gera allt með mér. Alltaf gat ég komið niður til þín og skriðið upp í til þín með bók sem þú last fyrir mig eða þú sagðir mér sögu. Þú hugsaðir svo sannarlega vel um mig á allan hátt og betri ömmu er ekki hægt að hugsa sér, því verð ég ævinlega þakklátur. Þær eru svo margar góðu stund- irnar sem við áttum saman enda hafðir þú alltaf mikinn húmor fyrir öllu sem mér datt í hug. Strætóferð- irnar okkar saman út á Nes þegar þú sóttir mig í leikskólann, með við- komu í öllum búðunum á Laugaveg- inum, eru ógleymanlegar. Alltaf hafðir þú nógan tíma til þess að segja mér hvað allir staðir, hús og kirkjur á leiðinni hétu að ógleymd- um öllum þeim stöðum sem við rölt- um á. Við áttum líka góðar stundir sam- an sumarið sem við vorum tvö sam- an í Þýskalandi hjá fjölskyldu þinni þar sem þú kenndir mér þýsku og sagðir mér ógleymanlegar sögur frá þínum uppvaxtarárum í Þýskalandi með bróður þínum og fjölskyldu. Þegar ég varð eldri og þú líka, þá breyttist ekki neitt. Við áttum alltaf góðar stundir saman, þótt færri væru, enda hafðir þú þinn mikla húmor fram á síðasta dag. Þú varst einstök og studdir mig í öllu sem ég gerði, líka þegar ég stofnaði litlu fjölskylduna mína. Birnu og litlu stelpunum hennar varst þú alltaf góð, sýndir þeim ást, hlýju og virðingu. Það var okkur dýrmætt. Þú sagðir okkur að ham- ingjan yxi ekki á trjánum og að ást- in væri vandfundin. Allar sumarbústaðarferðirnar sem þú komst í með okkur eru ógleymanlegar. Þú hafðir allaf tíma til þess að leika við Lindu og Pétur og endalaust gátuð þið Linda leikið frúin í Hamborg og búðarleik í heita pottinum. Þú reyndar elskaðir heita potta og gast verið tímunum saman ofan í þeim og alltaf jafn gaman hjá þér. Ekki spillti fyrir ef það var smá partístemmning á kvöldin, þá varst þú í essinu þínu. Enginn sem ég þekki kunni eins mikið af bröndurum og með þeim gastu komið öllum í gott skap hvar og hvenær sem var. Skrítið, að þó að þú hafir verið 98 ára, grunaði mig ekki að þú værir að deyja innan fárra daga þegar ég kom til þín í síðasta skiptið, milli jóla og nýárs áður en ég fór utan. Ég sagði mömmu að þú værir í fullu fjöri enda lastu fyrir mig slúðrið úr þýsku blöðunum, grínaðist við mig og varst svo hress eins og alltaf. Guð geymi þig, elsku amma mín. Ég vona svo sannarlega að ég fái að hitta þig aftur. Takk fyrir að vera æðislegasta amma í heimi. Þinn, Björn Óli. Í dag, við kveðjustund Lottíar, leitar hugurinn til baka yfir árin sem ég fékk að vera samferðamaður hennar hér. Ég kom inn í fjölskyldu hennar þegar við nafna hennar og barnabarn drógum okkur saman fyrir um 10 árum. Lottí var hvalreki fyrir svona for- vitinn mann eins og mig. Hún var hafsjór af sögum frá öllum tímum og hafði gaman af því að segja frá stórum sem smáum atburðum. Það var fróðlegt að hlusta á hana segja söguna um það þegar hún kom hér fyrst til lands 12 ára gömul 1924, hvernig það var fyrir borgarstelpu frá Þýskalandi að sjá og setjast að í sjávarþorpinu Reykjavík. Ýmsar sögur fylgdu í kjölfarið, má þar nefna ferðir með Gullfossi, dansleiki með dönskum prinsum, sögur af fjölskyldu hennar hér og í Þýska- landi og fleira. Lottí var stór hluti af fjölskyld- unni og áttum við ótal stundir sam- an. Sumarið 2007 fór ég með Lottí, Olgu dóttur hennar, Lísu dóttur- dóttur og Olgu langömmubarni hennar til útlanda, þar naut hún sín í sól og hita og lék á als oddi þá orð- in 95 ára. Einnig var farið í margar styttri ferðir um landið og í all- nokkrar sumarhúsaferðir þar sem hún kunni best við sig í heita pott- inum með guðaveigar í hendi. Lottí var afar heppin hversu góða og ein- staka dóttur hún átti. Olga dóttir hennar heimsótti hana og varði með henni flestum sínum frístundum eða þá að Lottí var hjá henni og Pétri. Það var ein helsta ástæða þess að Lottí gat haldið heimili þar til hún varð 97 ára að aldri, en þá fluttist hún á hjúkrunarheimilið Eir og dvaldist þar síðasta árið. Það er að sjálfsögðu Guðs gjöf að fá að vera heilsuhraust í heil 98 ár án þess að verða misdægurt. Það hefur reynst mér gott veganesti að eiga þessa öðlingskonu að vini. Konu sem hafði í fyrirrúmi velferð og líðan samferðamannsins. Einar Kristján Jónsson. Hún er nýkomin heim úr sinni ár- legu sólarlandaferð, kaffibrún og brosir hringinn. Hefur gætt þess að fá ekki „men“ um hálsinn, þ.e. hún hefur ekki verið í fatnaði með v- hálsmáli, og tíundar matseðilinn á hótelinu, hversu marga ísa og egg hún hefur borðað í ferðinni. Hefur haldið skrá í huganum yfir mat- aræðið og kryddar frásögnina með líflegri líkamstjáningu. Hitt og þetta er „peninga virði“ og mörg skondin atvik hafa hent hana. Hún tiplar dömulega á pallinum fyrir ofan hús- ið á Látraströndinni, elskar að deila reynslu sinni með öðrum, hlær, skreytir sögur sínar hæfilega með skemmtilegu orðavali og sýnir mikla leiktilburði. Áhorfandinn veit að ekki er allt satt, það skiptir heldur ekki öllu máli, mergurinn málsins er sá að það er gaman að hlusta á hana Lottí. Hún á sviðið, nýtur þess, og viðstaddir skemmta sér. Undir býr djúp skynsemi og alvara ef eftir er leitað en Lottí taldi sig áreiðanlega hamingjumanneskju þegar öllu var á botninn hvolft. Í 16 ár bjó ég í sama húsi og Lottí. Börnin okkar kölluðu hana ömmu Lottí, alveg eins og hennar raunverulegu barnabörn. Þó að ár- unum fjölgaði og vík yrði á milli vina, átti Lottí sinn sess í huga þeirra og þegar fundum bar saman elskuðu þau að njóta frásagnargleði hennar og leikhæfileika. Mannleg hlýja skein í gegnum allt hennar hjal og góðlátleg kímni fyrir öllu því sem hægt var að hafa nokkurt gam- an af. Ósjaldan sagði hún frá dótt- ursyni sínum og syni mínum sem færðu henni nokkra hárlausa mús- arunga í jógúrtdós og hún gaf þeim óðalsost handa ungunum. Sjálf var Lottí hins vegar dálítið hrædd við mýs, eins og fleiri. Ein fyrsta minn- ing mannsins míns um hana er ein- mitt frá því að Gollý, Pétur og hún voru nýflutt í kjallarann á Látra- strönd. Haukur leit inn og þá sat Lottí uppi á eldhúsborði með fæt- urna í vaskinum og höfuðið inni í skápnum fyrir ofan og hrópaði að það væri mús í íbúðinni. Gollý, Pétur og Lottí, að ógleymdum börnunum. Þau þrjú fyrst nefndu voru oftast nefnd í sömu andrá, bjuggu saman í áratugi eða allt þar til Lottí flutti á Skóla- brautina og svo á Eir. Fjölskyldan var ekki stór. Lottí átti einn bróður í Þýskalandi sem hafði dáið barn- laus. Sjálf hafði hún á unglingsárum fylgt móður sinni hingað til lands er amma Olga giftist Guðbrandi Jóns- syni. Lottí eignaðist svo augastein- inn sinn, hana Gollý, með manni sín- um, og aðeins hana. Tengslin voru sterk og ábyrgðartilfinningin rík. Ég fullyrði að vart munu aðrar dæt- ur hafa sinnt móður sinni betur þeg- ar halla tók undan fæti en Gollý. Að leiðarlokum þakka ég Lottí fyrir langa samfylgd sem aldrei bar skugga á, fyrir allar sögurnar og brandarana, sem flestir voru „pen- inga virði“, fyrir tryggð og ljúfa samfylgd. Ég geymi í hjarta mínu mynd af henni léttri á fæti, jafnvel skríðandi inn og út um gluggann, ef þurfti, þótt hún væri orðin sjötug. Það verður ekki leiðinlegt nálægt henni í himnaríki ef hún heldur upp- teknum hætti og ég trúi því að henni verði fagnað. Friður Guðs umvefji hana og ljóssins englar leiði hana á nýjar lendur. Kristín Jónsdóttir. Amma Lottí var, þrátt fyrir smæð sína, stór kona og alltaf í lit. Eins og svo oft vill verða við fráfall horfir maður til baka. Minningarnar mínar tengdar Lottí eru margar og skemmtilegar. Það var svo gaman að hlusta og horfa á Lottí segja frá. Hvernig hún lyftist öll upp í stólnum sínum á Skólabrautinni eða seig niður í hann eftir því hvað átti við í frásögnum og lýsingum af fína fólkinu sem hún las um í dönsku og þýsku blöðunum. Það eru margir kílómetrarnir sem við sátum saman í bíl, út á Nes eða af Nesinu. Oftast var sami áfanga- staðurinn en stundum var þó brugð- ið út af vananum, farið í leikhús, út að borða eða hún keyrð í boð og sótt svo aftur að því loknu. Lottí var un- aðsleg manneskja með hennar áherslu á U-ið. Stórt skarð hefur myndast í fjöl- skylduna en ég veit að það verður fyllt upp af minningum um góða, glaðværa og litríka mömmu, ömmu og tengdamömmu með skemmtileg- an húmor. Blessuð sé minning Liselotte Gunnarsson. Takk fyrir allt og allt. Anna (vinkona) Jónsdóttir. Liselotte Gunnarsson HINSTA KVEÐJA Elsku Amma Lotty. Vonandi líður þér vel hjá guði og engl- unum og vonandi getur þú farið í frúin í Hamborg hjá Guði. Við söknum þín, amma, og vonum að þú sért alltaf hjá okk- ur. Þín barnabarnabörn, Pétur og Linda. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er auð- sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður, UNNAR GUÐRÚNAR DAVÍÐSDÓTTUR, Akurgerði 16, Vogum. Sveinlaugur Hannesson, Hannes Sveinlaugsson, Guðni Steinn Sveinlaugsson, Anna Sveinlaugsdóttir, Kristberg Jónsson. ✝ Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur okkar, ÁSLAUGAR STEFÁNSDÓTTUR frá Minniborg, Kringlunni 61, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Systkinin frá Minniborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.