Morgunblaðið - 27.01.2011, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
✝ Jóhanna Björns-dóttir fæddist á
Norðfirði 2. mars
1923. Hún lést á
Landspítalanum 16.
janúar 2011. For-
eldrar hennar voru
hjónin Björn Björns-
son, kaupmaður í
Neskaupstað og ljós-
myndari, f. 8. maí
1889, d. 24. desember
1977, og Katrín Mál-
fríður Arngríms-
dóttir, f. 22. desember
1884, d. 1. september
1964. Albræður Jóhönnu voru
Björn, f. 1912, d. 1994, Ari f.
1916, d. 1986, og Steinarr, f.
1926, d. 1967. Hálfsystkini Jó-
hönnu samfeðra voru Stein-
gerður, f. 1912, d. 1927, Þor-
steinn Erlingur, f. 1915, d. 1983,
og Ágúst Theódór Blöndal, f.
1942, d. 2006.
Eiginmaður Jóhönnu var Jónas
Jónasson, f. 26. janúar 1921 á
Völlum á Kjalarnesi, d. 5. desem-
ber 2002 í Reykjavík. Jónas
3) Björn, jarðfræðingur og fram-
kvæmdastjóri hjá Varahlutaversl-
uninni Kistufelli, f. 30. mars
1948, kvæntist Þórunni Ingu Jón-
atansdóttur sérkennara, þau
skildu. Börn þeirra: Björn, f. 2.
mars 1976, d. 6. júlí 1999, og Jó-
hanna Kristín, sambýlismaður
Þórir Ingþórsson og eiga þau
dæturnar Þórunni Jóhönnu og El-
ísabetu Hildi. Áður átti Þórunn
soninn Jón Þór, sambýliskona
Imelda og eiga þau soninn Jósep.
4) Arnfríður bókasafnsfræðingur,
f. 18. nóvember 1953, giftist Ein-
ari Hrafnkeli Haraldssyni raf-
magnsverkfræðingi, þau skildu.
Sonur þeirra er Arngrímur.
Jóhanna ólst upp á Norðfirði.
Eftir verslunarskólapróf frá
Verslunarskóla Íslands vorið
1942 settist hún að í Reykjavík.
Jóhanna starfaði hjá Landssíman-
um 1942-1943. Næstu árin var
hún heimavinnandi húsmóðir. Á
því tímabili tók hún að sér ýmis
vélritunarverkefni og aðstoðaði
eiginmann sinn við erlend sam-
skipti fyrirtækisins. Eftir það
starfaði Jóhanna á skrifstofu
Hæstaréttar Íslands um tíma og
síðar sem fulltrúi á skrifstofu Há-
skóla Íslands 1967-1984.
Útför Jóhönnu verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag, 27. janúar
2011, og hefst athöfnin kl. 13.
ásamt bróður sín-
um stofnsetti fyr-
irtækið Kistufell,
vélaverkstæði og
varahlutaverslun,
árið 1952. Jóhanna
og Jónas gengu í
hjónaband 7. ágúst
1943 og héldu
heimili sitt alla tíð
í Reykjavík. Þeim
varð fjögurra
barna auðið: 1)
Jónas, hús-
gagnasmiður og
starfsmaður fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar,
f. 26. janúar 1944, kvæntur Báru
Sigfúsdóttur, starfsmanni í leik-
skóla. Börn þeirra eru Katrín,
sambýlismaður Guðmundur Ó.
Guðmundsson og eiga þau börnin
Guðmund, Arnór og Karen og
Jónas, kvæntan Kristrúnu Sig-
urdísardóttur, og eiga þau Júlíu
Kristine og Aron Kristian. Áður
eignaðist Jónas dótturina Báru
Steinunni. 2) Málfríður, f. 11.
nóvember 1946, d. 28. apríl 1947.
Móðir mín á annars vegar ættir
að rekja til Stranda- og Dalasýslu í
karllegg og hins vegar til Múla- og
Þingeyjarsýslu í kvenlegg. For-
eldrar móður minnar hófu búskap
á Seyðisfirði og settust síðar að á
Norðfirði, þar sem móðir mín ólst
upp þar til hún flutti ung að árum
til Reykjavíkur og stundaði þar
nám við Verslunarskóla Íslands.
Hún bjó á námstímanum á Leifs-
götunni hjá kunningjafólki og
kynntist föður mínum á þeim slóð-
um. Mamma og pabbi gengu í ást-
ríkt og farsælt hjónaband árið
1943. Móðir mín sinnti fjölskyldu
sinni af einstakri natni og áhuga.
Hún saumaði sjálf falleg föt á kríl-
in sín, hvatti þau til dáða og leið-
beindi þeim til verka. Stórfjöl-
skyldan átti heima í húsi foreldra
móður minnar á Sjafnargötunni –
„á besta stað í Reykjavík“. Þar var
stutt í allt, s.s. í skólann, í bæinn,
niður á Tjörn og höfn svo eitthvað
sé nefnt. Foreldrar móður minnar
bjuggu í húsinu og bræður hennar
ásamt fjölskyldum sínum. Faðir
móður minnar, Björn Björnsson
ljósmyndari, var iðinn við að taka
myndir af náttúru Íslands og fólk-
inu sínu. Þannig varð til einstök
fjölskyldusaga í myndum og máli.
Áhugi á náttúru Íslands var mjög
mikill. Ferðalög á hestum, gang-
andi og síðar í bílum, var ómiss-
andi hluti tilverunnar. Skoðun og
skilningur á líf- og steinaríki nátt-
úrunnar var sjálfsagður hluti dag-
legs lífs. Þessum þáttum var sinnt
af áhuga og öllum til mikillar
ánægju og þó nokkurs þroska.
Þetta var einstakt og oft við sér-
stakar kringumstæður. Einstak-
lingur sem naut þessara forrétt-
inda, hlaut að verða betri og
hamingjusamari en ella. Sumarbú-
staður í landi Valla undir rótum
Kistufells í Esjunni var sá staður,
sem oftast var heimsóttur á meðan
heilsan leyfði. Þar voru gróðursett
tré, plöntur og matjurtir innan um
villta flóru, sem var afar fjölskrúð-
ug. Móðir mín hafði mikla ánægju
af þessum griðastað. Hljómlist og
söngur, sérstaklega einsöngur og
karlakórar, voru hennar yndi. Hún
lék af fingrum fram á píanó og
mandólín meðan fingurnir leyfðu.
Móðir mín var afar sjálfstæð og
hélt heimili fram á síðasta dag.
Elsku mamma, ástkærar þakkir
fyrir samfylgdina. Hvíl í friði.
Þinn sonur,
Björn (Bjössi).
Elsku Dídí amma mín, mér þyk-
ir svo óraunverulegt að sitja hér
og skrifa minningargrein um þig.
Mér verður hugsað til þess hvað
þú hefur ætíð verið hress og alltaf
litið vel út. Heimsóknirnar í Stóra-
gerði voru aldrei aðgerðarlausar
þegar ég var lítil, við spiluðum
margoft svarta Pétur sem var þá
uppáhaldsspilið mitt, mér fannst
svo gaman að koma til þín og geta
spilað við þig því þú varst alltaf til
í að spila. Ég man líka þegar þú
settist niður með mér og fórst að
kenna mér að búa til báta og hatta
úr dagblöðum, það fannst mér
gaman og hóf ég þá fjöldafram-
leiðslu á því. Hver man ekki eftir
Gústa apanum í gulu fötunum,
hann var ávallt vinsæll hjá börn-
unum sem komu til þín. Sumarið
2009 um verslunarmannahelgina
þegar þið tókuð bíltúr til okkar í
útileguna og borðuðuð með okkur
grillmat í fellihýsinu man ég hvað
þú barst aldurinn vel. Síðasta sum-
ar var gaman að sjá hvað þú naust
þín vel þegar við fórum upp að
Völlum í bústaðinn, þú röltir um
svæðið og skoðaðir öll trén sem þú
hefur gróðursett í gegnum tíðina.
Það var svo gaman að heyra allar
sögurnar sem þú sagðir mér þeim
mun ég seint gleyma. Síðustu orð-
in sem þú sagðir við mig, „elsku
Karen mín gangi þér vel í öllu sem
þú gerir“. Þessi orð verða ætíð lif-
andi í minningu minni um þig.
Ég vona að þér líði vel þar sem
þú ert núna, elsku amma mín.
Guð blessi minningu þína. Ég
mun sakna þín og ég elska þig.
Karen.
Elsku amma mín. Nú ertu kom-
in til afa, en eftir stendur minn-
ingin um góða ömmu er skipaði
stóran sess í lífi mínu allt frá því
að ég fyrst man eftir mér. Með
þessum fátæklegu orðum vil ég
minnast ömmu minnar, sem oft var
nefnd Dídí, sem var allt í senn,
glæsileg kona og afar vel gefin.
Amma mín var mikið ljúfmenni,
brosmild, hlý og hógvær. Það and-
aði ávallt hlýju frá henni. Fjöl-
skyldan skipaði hvað stærstan sess
í lífi hennar. Hún lagði sig alla
fram við að halda utan um fjöl-
skylduna og koma henni til vegs
og virðingar. Það skipti engu máli
hvað amma tók sér fyrir hendur,
alltaf kom hún því vel frá sér og
var öllum til sóma.
Er amma og afi komust á miðjan
aldur hófust þau handa við að reisa
sumarbústað í landi Valla á Kjal-
arnesi undir hlíðum Kistufells. Þar
undu þau hag sínum vel og þangað
kom oft á tíðum nánasta fjölskylda
þeirra hjóna, ættingjar og vinir.
Amma hafði jafnan gaman að því
að hitta fólkið sitt. Hún naut þess
að upplýsa smáfólkið um heiti
fuglanna, sem sveimuðu yfir fjalls-
hlíðinni svo og heiti villtra jurta,
sem spruttu upp á mildum vordegi.
Oft var farið í leiðangur að
Hrafnagili og steinaríki náttúrunn-
ar og móinn skoðaður. Amma var
mjög stolt af trjáræktinni í kring-
um sumarbústaðinn og hlakkaði
alltaf til að sjá hvernig henni hafði
farnast á nýju ári. Ættfræðin og
sagan, sem er á bak við hverja
kynslóð, var mjög sterkur þáttur í
lífi hennar. Skilur hún eftir sig
ættfræðigögn, sem hún hefur unn-
ið við, sér til skemmtunar og fróð-
leiks. Hún hafði mikla ánægju af
því að miðla þessum upplýsingum
til sinna nánustu.
Ömmu þótti gaman að fara í
leikhús og minnist ég vel þeirra
sýninga, sem við fórum saman á.
Amma var með næmt tóneyra og
spilaði af fingrum fram á píanó,
mandólín og munnhörpu. Á mínum
yngri árum höfðum við ánægju af
því að spila saman, hvort sem það
var á spil eða hljóðfæri. Oftar en
ekki sat hún við spilarann og
hlustaði á klassíska tónlist eða
dægurlagatónlist sér til yndisauka.
Tenórar voru í hávegum hafðir.
Sof, ástríka auga,
sof, yndisrödd þýð,
hvíl, hlýjasta hjarta,
hvíl, höndin svo blíð!
Það hverfur ei héðan,
sem helgast oss var:
vor brjóst eiga bústað,
– þú býrð alltaf þar.
Hið mjúka milda vor
sín blóm á þig breiði
og blessi þín spor.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Ástarþakkir fyrir allt, amma
mín. Hvíl þú í friði og guð sé með
þér.
Þín
Jóhanna.
Amma mín, Jóhanna Björnsdótt-
ir, lést nú nýlega á Landspítalan-
um eftir tiltölulega skammvinn
veikindi sem bar brátt að. Hún
hefur alltaf verið manni til staðar
og það hefur verið erfitt að þurfa
nú allt í einu að kveðja hana.
Amma eða Dídí eins og hún var
líka kölluð fæddist austur í Nes-
kaupstað eða á Norðfirði eins og
hún nefndi staðinn nær alltaf. Þar
ólst hún upp á heimili foreldrar
sinna, í húsinu Bakka, þar sem þau
ráku verslun sem oft var nefnd
Bakkabúð. Amma sagði oft
skemmtilegar sögur frá uppvaxt-
arárum sínum fyrir austan. Oft
voru það sögur frá fjölskyldunni
en ekki síður þótti mér áhugavert
að heyra hana segja frá því þegar
ýmsir hlutir sem þykja hversdags-
legir í dag komu nýir inn á heim-
ilið svo sem sími og útvarp.
Hún hefur líka upplifað margt á
þessum árum ólíkt því sem gerist í
dag. Þarna voru til að mynda
franskir sjómenn tíðir gestir, með-
al annars keyptu þeir marhnúta af
börnunum til að nota í beitu og
greiddu fyrir með kexi. Þetta var
víst ekki sérlega vel séð af for-
eldrum þess tíma.
Þegar grunskólanum lauk tók
við frekara nám í Verslunarskól-
anum í Reykjavík. Þar tók við nýtt
umhverfi hjá ömmu er hún kom í
nýjan skóla og kynntist nýju fólki.
Þar kynntist hún afa mínum Jón-
asi Jónasyni frá Völlum á Kjal-
arnesi. Þau giftust, eignuðust sitt
fyrsta barn og byrjuðu að búa til-
tölulega ung að minnsta kosti mið-
að við það sem gengur og gerist í
dag. Fljótlega komu þau sér fyrir
á Sjafnargötu í Reykjavík. Í hús-
inu bjuggu einnig foreldrar ömmu
ásamt bróðir hennar. Það hefur
víst verið mikil líf í húsinu eins og
við er að búast þegar margir ætt-
ingjar bjuggu undir sama þaki auk
tíðra heimsókna skyldmenna að
austan.
Með árunum tóku við breytingar
á högum ömmu og afa eins og
gengur. Afi fór út í sjálfstæðan
rekstur og eftir að börnunum
fjölgaði og þau uxu úr grasi varð
plássið á Sjafnargötu of lítið. Þau
réðust í að byggja hús við Stóra-
gerði sem þau bjuggu í til æviloka.
Amma fór líka út á vinnumark-
aðinn fljótlega eftir að börnin kom-
ust á legg. Lengst starfaði hún á
nemendaskrá Háskóla Íslands. Á
þessum árum áttu þau stundum
erindi til útlanda bæði í tengslum
við varahlutaverslunina sem þau
ráku en einnig fóru þau í skemmti-
ferðir. Ég veit að amma hafði
mikla ánægja af þessum utan-
landsferðum.
Á þessum árum byggðu þau sér
líka sumarbústað á Völlum þar
sem að þau undu sér, oftast í faðmi
fjölskyldunnar sem stækkaði með
árunum. Þar eyddi ég ófáum
stundum með ömmu og afa þegar
ég var yngri og einnig heima hjá
þeim í Stóragerði en ég ólst upp
þar skammt frá og átti oft heima-
gengt. Hjá þeim var alltaf gott að
dveljast, maður var ávallt velkom-
inn og aldrei brást það að vel var
hugsað um mann. Aldrei varð ég
annars áskynja en að amma kæmi
ávallt fram af alúð við alla, henni
var mjög umhugað um fjölskyldu
sína og vini og hún er sannarlega
ein af mínum fyrirmyndum í lífinu.
Arngrímur Einarsson.
Jóhanna
Björnsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Jóhanna var yndisleg kona.
Hún var gift frænda mínum
Jónasi Jónassyni og voru þau
sérstaklega hamingjusöm hjón.
Með þessum fáu orðum vil ég
þakka fyrir afar góð kynni og
kveðja hana með virðingu og
þökk.
Blessuð sé minning Jóhönnu.
Rannveig Magnúsdóttir
frá Völlum á Kjalarnesi.
Sveit Sparisjóðs
Siglufjarðar
Reykjavíkurmeistari
Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni er lokið
og Reykjavíkurmeistarar í sveitakeppni 2011
er sveit Sparisjóðs Siglufjarðar. Í sveitinni
spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson,
Sverrir Ármannsson, Steinar Jónsson, Aðal-
steinn Jörgensen og Bjarni H. Einarsson.
Lokastaða efstu sveita:
Sparisjóður Siglufjarðar 318
Aron N. Þorfinnsson 297
Grant Thornton 270
Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins
Þegar lokið er tveim spilakvöldum í fjögra
kvölda tvímenningskeppni hjá okkur Breið-
firðingum eru þeir Árni og Oddur Hannessynir
með örugga forustu. Staða efstu para er þessi.
Oddur Hannesson – Árni Hannesson 520
Kristín Andrews – Jóhann Ólafsson 499
Magnús Sverriss. – Halldór Þorvaldss. 487
Örn Einarsson – Björn Árnason 477
Sunnudaginn 23.1. var spilað á 11 borðum.
Hæsta skor kvöldsins í N/S:
Halldór Þorvaldss. – Magnús Sverriss. 279
Oddur Hannesson – Árni Hanness. 271
Jórunn Kristinsd. – Stefán Óskarss. 236
Austur/Vestur
Kristín Andrews – Jóhann Ólafsson 260
Örn Einarsson – Björn Árnason 252
Sigurjóna Björgvins. – Karólína Sveins. 248
Spilað er í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14 á
sunnudögum kl. 19.
Keppnin um
Súgfirðingaskálina
Þriðja lota í keppni um Súgfirðingaskálina,
tvímenningsmóti Súgfirðingafélagsins, er ný-
lokið. Lítil breyting varð á röð efstu para en
þrjár spennandi lotur eru eftir af mótinu og allt
getur gerst.
Heildarstaðan á þorra er svohljóðandi en
alls hafa 16 pör spilað í keppninni.
Guðbj. Björnss. - Steinþór Benediktss. 358
Ólafur K. Pálsson - Kristján Pálsson 357
Finnbogi Finnbogas. - Pétur Carlsson 345
Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd. 339
Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss. 338
Meðalskor 330 stig.
Úrslit í þriðju lotu en 14 pör mættu til leiks,
meðalskor fært niður í 110 stig en töluverð
verðbólga er í stigum þegar vel er mætt.
Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss. 131
Eðvarð Sturlus. - Guðm. J. Gissurars. 126
Jón Óskar Carlss. - Karl Jónsson 121
Sigurður Kristjánss. - Karl Sigurðss. 120
Finnbogi Finnbogas. - Pétur Carlsson 119
Skor Þorsteins og Rafns er 59,5%.
Fjórða lota verður spiluð í byrjun góu,
mánudaginn 21. febrúar.
Dræmt í Gullsmára
vegna handbolta
Handboltadaginn mikla mánudaginn 24. jan-
úar var spilað á 12 borðum í Gullsmára. Úrslit í
N/S:
Heiður Gestsd. – Stefán Friðbjarnars. 202
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 195
Þórður Jörundss. – Ari Þórðarson 191
A/V
Sigurður Njálsson – Óskar Karlsson 207
Þorleifur Þórarinss. – Björn Brynjólfsson 196
Ármann J. Láruss. – Sævar Magnúss. 190
Mánudaginn 7. febrúar verður spilað við
Hafnfirðinga í Gullsmára.
Bridsdeild Félags eldri borgara
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stang-
arhyl 4, mánudaginn 24. janúar. Spilað var á 10
borðum. Meðalskor: 216 stig. Árangur N-S:
Björn Péturss. – Valdmar Ásmundss. 286
Ragnar Björnss. – Ægir Ferdinandss. 272
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 243
Gunnar Jónsson – Óli Gíslason 234
Árangur A-V:
Guðjón Eyjólfss. – Sigurður Tómass. 262
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 261
Albert Þorsteinss. – Siguróli Jóhannss. 256
Guðm. Sigurjónss. – Eyjólfur Bergþórss. 237
Frá eldri borgurum í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 25. janúar var spilað á 19 borð-
um. Úrslit urðu þessi í N/S
Þórður Jörundss. – Örn Einarsson 391
Júlíus Guðmundss. – Óskar Karlss. 376
Friðrik Hermannss. – Sigurður Emilss. 362
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 360
A/V
Nanna Eiríksd. – Bergljót Gunnarsd. 376
Bragi V. Björnss. – Guðrún Gestsd. 375
Ásgeir Sölvason – Helgi Sigurðss. 353
Ágúst Stefánsson – Helgi Einarss. 340
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is