Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 27

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 að gera sig. Ég er ekki að fíla þennan gaur. Og hann er bróðir Nínu minn- ar. Ég þarf hugsanlega að endur- skoða þetta allt saman.“ Sjonni faðmaði mig, brosti og varð um leið bróðir minn. Einn af mínum bestu vinum. Á einu augnabliki voru það örlög mín að hafa hitt dreng sem mér þótti í alla staði fullkominn. Óend- anlega skemmtilegur. En svo er því nú farið með nánast alla vini hans. Þeir eru allir bestu vinir Sjonna. Hann átti hjörtu okkar allra. Við stofnuðum Vesturport saman og vor- um samstiga í listinni. Hann í tónlist- inni. Það hefur verið unaður að fylgj- ast með því hvað hann óx í þeirri listgrein. Hann var frábær þegar hann var tuttugu ára. Hann var orðinn stór- kostlegur þrjátíu og sex ára. Enda hef ég oft fullyrt að Sjonni hafi án efa verið einn af bestu söngvurum sem Ísland hefur alið af sér. Á jólunum sýndi hann mér stúdíóið heima hjá sér. Þar ætlaði hann að ráðast í að vinna tónlistina sína á nýju ári. Ég hitti hann svo af tilviljun í Eyjum á þrettándanum og hugsaði að ég yrði að drífa í að hitta hann almennilega. Bara við tveir. Fara yfir stöðuna. Svo er honum kippt fyrirvaralaust frá okkur. Hvernig á mannlegur skilningur að ná utan um spurning- arnar sem berjast um innra með manni? Hvers vegna er lífi hans lok- ið? Vonandi veit Sjonni það. Vonandi skilur hann það. Ég vona það svo innilega. Söknuðurinn verður mikill. Það sem ég læt verða huggun mína og lærdóm er að láta æðruleysi hans, léttleika, réttlæti og auðmýkt verða fyrirmynd þess einstaklings sem ég vil bera innra með sjálfum mér. Þannig mun minninga hans og áhrifa gæta um ókomna tíð. Með þann eld í brjósti mun ljós bróður míns skína áfram. Gísli Örn Garðarsson. Elsku Sjonni minn, engillinn minn. Ég veit ekki hvar ég á byrja að minnast þín í þessum örfáu orðum sem ég sit hér niður á blað. Þetta er svo erfitt og sárt að það er ekki hægt að lýsa því nema með tárum. Ég hef verið í kringum þig alveg frá því þú fæddist og þú varst sólargeislinn okkar Eyju systur og maður naut þess að fylgjast með þér hvernig þú þroskaðist og dafnaðir og varðst að þessum glæsilega manni. Á hverju sumri fórum við systur með ykkur krakkana í bústað og þar var mikið hlegið, leikið og sungið og þar kom greinilega fram hvert þú myndir stefna í þínu lífi. Og það rættist, Sjonni minn. Þú varst orðinn ein aðalstjarnan á Ís- landi í söng og leik ásamt henni Þór- unni þinni. Þið voruð svo flott saman. Ekki má heldur gleyma þeim stund- um sem við áttum öll saman hjá Dísu systur ásamt mörgum af þínum vin- um. Þessar stundir eru minningar sem ekki gleymast. Þú gafst svo mikið frá þér af hlýju og umhyggju. Það geislaði alltaf af þér hvar sem þú fórst. Ég er svo stolt af þér, engillinn minn, og mun sakna þín sárt um ókomna tíð. Ég kveð þig með þessum línum: Engill á jörðu hefur verið kallaður heim, en minningin lifir hjá öllum þeim, sem voru svo lánsöm að kynnast dreng góðum, hans sárt er nú saknað á öllum slóðum. Elsku Eyja systir, Gunni, Árni, Nína, Þórunn og börn og aðrir að- standendur. Guð veri hjá ykkur á þessum erf- iðu stundum. Minningin þin lifir, elsku Sjonni minn. Þín, Sigurrós frænka. Minningarnar um Sjonna frænda okkar eru óteljandi. Við mæðgurnar sitjum nú hér og rifjum upp þessar ljúfu, fallegu minningar sem eru okkur svo ótrúlega mikils virði. Sjonni var alltaf hrókur alls fagn- aðar, hann var gæddur svo mörgum góðum hæfileikum og hafði alltaf svo mikið að gefa, hann hafði einstaklega góða nærveru og átti hjarta okkar allra. Elsku Sjonni, þú varst alltaf svo hjartahlýr og einlægur. Þú gafst þér alltaf tíma í að faðma alla og þú gafst svo mikið af þér. Mér er það svo minnisstætt þegar þú varst á tán- ingsaldri, þá var ósjaldan sem að ættingjar og vinir komu saman hér á Laugaveginum til að spila, syngja og skemmta sér. Þá var hlegið og sung- ið. – Vigdís móðursystir. Elsku Sjonni, þú varst minn besti vinur þegar við vorum að alast upp og ávallt mín fyrirmynd. Minning- arnar um öll ævintýrin sem við upp- lifðum og uppátækin og prakkara- strikin sem við gerðum þegar við vorum að alast upp verða ávallt órjúfanlegur hluti af æsku minni. Á unglingsárunum varst þú svo oft að vernda mig og studdir mig ævinlega, ég var alltaf svo stolt af því að vera frænka þín. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur. Komdu aftur og segðu að þetta sé enn eitt prakkarastrikið. – Vigdís frænka. Elsku Sjonni, ég er svo þakklát fyrir síðustu stundirnar sem við átt- um saman í Tjaldanesinu hjá þér og Þórunni. Ég mun alltaf varðveita stundirnar sem við áttum í giljunum á Laugarvatni. Ég elskaði að fá að syngja við hlið þér á öllum ættarhitt- ingunum. Ég man svo vel eftir öllum hrekkj- unum sem þú og Dísa systir gerðuð mér, eins og að binda mig í reipi og láta mig út um gluggann í Sigluvog- inum og mamma og Eyja komu heim þegar ég var stödd milli hæða. Það er ótrúlegt en ég treysti ykkur alltaf, þið gátuð alltaf sannfært mig um hvað sem var. Þú varst alltaf svo hæfileikaríkur og góður í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Ég vildi að ég hefði sagt oftar hvað ég var stolt af þér. „You’ll never walk alone.“ – Að- alheiður frænka. Ég trúi því ekki að þú sért farinn, sakna þín og elska þig. – Lára frænka. Það er svo margt sem okkur lang- ar að segja en það þyrfti miklu lengri tíma en þessa stund til þess, en minningin um þig og þakklætið fyrir að hafa fengið að eiga þig sem frænda og vin mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Með hjálp góðra vina og hlýrra til- finninga þá kveðjum við þig með þessu ljóði. Við sitjum hér og hugsum og orðin ei finnum, um hvað við elskum þig mikið Sjonni minn. Þú varst alltaf til staðar bæði bróðir og frændi, og á örskammri stundu dauðinn þér rændi. En aldrei hann tekur þinn mikla mátt, því það muna þig allir á sinn hátt. Þú ert okkar Prestley þú ert okkar Dean, þú varst dásemdin okkar, já stjarna sem skín Stelpurnar á Laugaveginum, Vigdís Ósk Sigurjónsdóttir, Vigdís Guðmundsdóttir, Aðalheiður Ósk Guðmunds- dóttir og Lára Guðmundsdóttir. Í febrúar 1974 fengum við afi okk- ar fyrsta barnabarn, stúlkubarn. Í ágúst sama ár fæddist drengur í annarri fjölskyldu sem við þekktum ekki þá. En þremur árum seinna kom hann með brosið sitt einlæga og hefur verið okkar barnabarn síðan. Ég hef oft sagt öðrum svo glöð og stolt hversu fallegt systkinasamband er á milli þeirra og litla bróðurins sem fæddist átta árum seinna. Sig- urjón átti annan systkinahóp sem hann var einnig tengdur sterkum systkinaböndum og núna eru þau ásamt foreldrum beggja megin eins og ein manneskja og í kjarnanum eru börnin hans fjögur, eiginkona hans, móðir hennar og systir. Það sem skeði núna þann sautjánda er ekki eins og það á að vera. Við förum ekki í réttri röð. Hann átti lífið fram- undan með fjölskyldunni sinni en við gömlu hjónin erum tilbúin. En eng- inn ræður för og hér sitjum við, afi og amma, og grátum góðan dreng. Við heyrum glaða, kitlandi hláturinn hans, sem við þekkjum svo vel, á jólagjöfinni frá þeim þar sem litlu stubbarnir hans syngja fyrir okkur, nánustu ættingja þeirra. Núna er það ótrúleg reynsla að vera nálægt og sjá einlægni og samstöðu þeirra sem næstir eru Sigurjóni og hvernig þau alltaf eru með í huga á hvern hátt hann hefði leyst málin. Í sátt og einlægni. Í huga mér hrærast orð Kahlil Gibran þar sem hann segir „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín“. Þetta verða okkar afa kveðjuorð í von um huggun fyrir þá sem sakna drengsins okkar. Sólveig og Árni. Fallinn er nú frá Sjonni Brink, fyrsta barnabarnið hennar mömmu, langt fyrir aldur fram, einungis 36 ára gamall. Frá upphafi var hann mjög náinn okkur öllum, mikill heimalningur hjá ömmu sinni Rannveigu og um leið meira litli bróðir minn en frændi. Ekki var ég þó alltaf til í að hafa litla gaurinn með mér hvert sem var. Sjonni rifjaði oft upp, á sinn einstaka myndræna hátt sem honum var ein- um lagið, sögur frá því hvernig ég stakk hann af í gamla daga. En ald- ursbilið minnkar með árunum eins og oft er sagt og eftir að við kom- umst á fullorðinsaldur urðum við góðir vinir og félagar. Ég dáðist að Sjonna þegar hann hafði hughrekki til að láta hjartað ráða för og leyfa tónlistinni að verða sitt lifibrauð. Það var ekki sjálfsagt mál fyrir ungan mann með skyldur gagnvart fjölskyldu að fara þá leið. Hann valdi rétt og blómstraði eftir það bæði sem tónlistarmaður og per- sóna. Í minningunni eru svo mörg augnablik með Sjonna til að ylja sér við, þrítugsafmæli Sjonna, bílskúrs- samkomur, brúðkaup þeirra Þór- unnar og síðan nýlegar veiðiferðir bræðra og frænda í Svartá. Í lok sumars var ég síðan svo lánsamur að vera með honum á skemmtun á Húsavík þar sem ég upplifði Sjonna sem einstakan skemmtikraft og hugsaði með mér hversu þroskuð og frábær röddin hans var orðin. Ég kveð þig nú, frændi minn og bróðir með ljónshjartað. Við munum standa vörð um fjölskylduna þína og minninguna um þig. Örn V. Kjartansson. Það er með trega í hjarta sem ég skrifa þessar línur. Sigurjón Brink frændi minn er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Við andlát konu minnar, Sigríðar Sigurðardóttur, reyndust Sigurjón og Þórunn Erna Clausen okkur einstaklega vel. Ég hafði sam- band við frænda og spurði hann hvort hann gæti sungið við jarðar- förina. Það var ekkert mál. Hann mætti með kassagítarinn ásamt Þór- unni sinni og þau sungu eins og engl- ar í jarðarförinni. Mig langar að þakka Sigurjóni og Þórunni fyrir það vinarþel sem þau sýndu okkar fjölskyldu á þeim erfiðu tímum sem við þá gengum í gegnum. Við verðum ævinlega þakklát þeim fyrir það ljós sem þau lýstu í lífi okk- ar á þeim degi. Ég og mín fjölskylda viljum votta Þórunni Ernu og börnum og Eyju, Gunna og börnum okkar dýpstu samúð. Minning um góðan dreng lifir. Jónas Vignir Grétarsson og fjölskylda. Elsku fjölskylda. Hjarta okkar er fullt af sorg en í sorginni sér maður gleðina, brosið, væntumþykju og kærleikann sem einkenndi Sjonna. Hann var ljósberi sem lýsti upp tilveruna með nærveru sinni. Birta minningar hans lýsir upp þessa daga og verður hans vegvísir á leið áfram í annan heim. Guð blessi ykkur öll. Þórdís frænka, Sólveig og Bjartur Logi. Elsku besti Sjonni minn. Þegar ég frétti að þú værir farinn þá varð ég svo reiður út í lífið. Ég vildi ekki trúa þessu. Hvernig getur hann verið far- inn? hugsaði ég. Núna þegar ég skrifa þetta niður hugsa ég um allar frábæru stund- irnar sem við áttum saman. Ég brosi því ég er svo þakklátur fyrir að hafa þekkt eins góða og hlýja manneskju og þig. Brink Open-golfmótin eru mér ofarlega í huga þar sem við frændurnir komum saman á hverju sumri, fórum í bústað, borðuðum góðan mat, drukkum vín og spiluð- um golf. Auðvitað tókst þú gítarinn með og hélst uppi fjörinu. Bítlarnir voru mikið spilaðir enda í miklu uppáhaldi hjá okkur og sérstaklega þér. Það var svo mikil stemning sem myndaðist alltaf í kringum þig. Þeg- ar við vorum að plana þessi árlegu golfmót hjá okkur var það mikilvæg- ast að þú kæmist með. Ef þú varst að spila úti á landi eða í bænum eins og þú varst oft að gera, þá var reynt að finna aðra helgi sem hentaði þér bet- ur. Það var bara allt mun skemmti- legra þegar þú varst með. Og það vissum við allir. Þú varst með einstakan húmor og gast látið okkur strákana liggja í gólfinu af hlátri þegar þú varst að segja sögur eða brandara. Margir frasar sem þú hefur látið út úr þér í gegnum árin eiga eftir að lifa lengi. Ég man þegar ég kíkti til þín í kaffi síðasta sumar þegar ég varð þrítugur. Ég var ekki viss hvernig ég ætti að hafa afmælið mitt og var með nokkrar áhyggjur. Þú sagðir mér bara að slaka á og bjóða fólki bara heim til mín og kaupa nóg áfengi. Ég skal sjá um svona netta veislustjórn- un sagðirðu. Þetta kvöld var full- komið í alla staði. Þú komst, hélst ræðu, söngst fyrir fólkið og sagðir brandara. Pabbi þinn Róbert, þú og pabbi minn, Mark, tókuð nokkur lög saman og þakið ætlaði af kofanum. Svo söng ég með þér eitt eða tvo lög þetta kvöld líka. Kvöldið var frábært í alla staði og ég man eftir á hvað ég var ánægður með þetta kvöld. Gest- irnir voru líka í skýjunum og tala enn um það í dag hvað þetta var skemmtilegt afmæli. Þú áttir mjög stóran þátt í því. Ég mun eflaust sakna kaffitíma okkar mest. Við hittumst nú yfirleitt heima hjá þér, fengum okkur að borða eitthvað frábært sem þú hafð- ir kokkað og svo duttum við í kaffi og spjall. Ræddum svo saman um allt mögulegt en þó aðallega tónlist og fótbolta. Þú ert auðvitað mikill Liv- erpool-maður og ég Man. Utd. Fullt af frábærum samræðum sem ég gleymi aldrei. Ég hef alltaf litið mikið upp til þín, alveg frá því að við vorum smástrák- ar í Sandgerði að alast upp. Þegar árin liðu og við stækkuðum þá breyttist það ekki neitt. Enda varstu einstakur. Ávallt glaður og brosandi, frábær faðir, fjölskyldumaður og æðislegur söngvari. Það var ekki hægt að hugsa sér betri vin og frænda. Ég mun sakna þín mikið, elsku Sjonni, og ég veit að þú ert á góðum stað núna. Jafnvel að taka lagið með Lennon. Ég get alveg ímyndað mér það. Brosið þitt mun lýsa okkur öllum leið. Viðar Brink, Guðbjörg Helgadóttir, Erika Brink Viðarsdóttir, Emelía Brink Viðarsdóttir. Mér varð orðs vant þegar Jón Sig- fús frændi minn hringdi í mig að morgni 18. janúar og tjáði mér að Sigurjón Brink, Sjonni frændi okk- ar, hefði fallið frá kvöldinu áður. Ég var nýbúinn að hitta Sjonna og átt- um við gott spjall um það sem á daga okkar hafði drifið yfir jól og áramót. Hann leit svo vel út, bjartsýnin skein úr andliti hans enda ekki ástæða til annars, allt gekk svo vel í lífinu og hann hlakkaði til að takast á við þau verkefni sem framundan voru. Þrátt fyrir skyldleika okkar Sjonna þekkt- umst við ekki þegar við vorum litlir en það var ekki fyrr en í seinni tíð sem ég fékk tækifæri til að kynnast honum þegar ég fékk hann til að taka að sér þáttastjórnun á Létt- Bylgjunni og Bylgjunni fyrir nokkr- um árum. Sjonni var fljótur að ná tökum á þessu og innti hann þessi störf ávallt mjög vel af hendi. Fyrir það var ég þakklátur og stoltur. Sjonni var mikill mannvinur, hafði góða nærveru og var hvers manns hugljúfi. Hann var orðgóður til allra manna og vinsæll. Hann var eftir- sóttur tónlistarmaður, frábær söngvari og hugverkasmiður. Hvar sem hann kom með gítar sinn og söng gerði hann stormandi lukku, vakti gleði og hreif með sér áheyr- endur alla. Sjonna verður sárt sakn- að. Ég bið þess að trúin á eilífa lífið og allar góðu og fallegu minningarnar sem við eigum um þennan góða dreng munu koma sem ljós inn í dimma daga sorgarinnar. Ég bið Guð um að gefa Þórunni Ernu eig- inkonu hans, börnum hans, foreldr- um, systkinum og öðru nákomnu fólki styrk og von í sorg þeirra. Bjarni Arason. Elsku Sjonni frændi minn. Ég get varla trúað því enn að þú sért farinn til Öllu ömmu og Sigur- jóns afa svona alltof snemma og ég bíð bara eftir að vakna af þessari dimmu martröð okkar allra. Það er erfitt að skilja að þú skulir ekki leng- ur vera hérna hjá okkur. Sjonni stóri frændi minn með heillandi brosið og smitandi hláturinn og góða skapið, alltaf svo hjálpsamur og fús til að gleðja aðra. Þú varst ætíð hrókur alls fagnaðar og alltaf miðpunktur- inn hvar sem þú fórst, sannkallaður hugljúfi allra. Ég er óendanlega þakklát, elsku Sjonni minn, fyrir allar dásamlegu samverustundirnar og þessa stuttu samferð hérna megin. Þótt himna- ríki verði örugglega skemmtilegra með þig þarna uppi, þá er og verður þín sárt saknað hérna niðri. Við höf- um misst mikið með þér og við sökn- um þín mjög og munum ylja okkur við allar fallegur minningarnar um einstaklega fallega og góða mann- eskju. Við biðjum Guð að blessa börnin þín og Þórunni og styðja í lífinu. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hrafnhildur. Veruleikinn er undarlegt fyrir- bæri. Þá helst á þeim stundum þegar raunveruleikinn snýst í andhverfu sína. Þegar raunveruleikinn er orð- inn óraunverulegur. Þannig hafa þessir síðustu dagar verið. Þegar við þurfum að reyna að ná utan um þá staðreynd að vinur okkar er ekki lengur með okkur. Ungur maður sem átti allt það sem hver maður óskar sér. Stóra elskandi fjölskyldu, marga góða vini og ástríðufullt starf. Það er enn varla hægt að trúa því að hann Sjonni verði ekki hjá okkur lengur en það er blákaldur veruleik- inn sem við þurfum að lifa með. Tím- inn er víst það eina sem getur hjálp- að okkur í því að lifa með sorginni. Og minningin. Minningin um mann- eskjuna sem við þekktum. Þennan einstaka mann. En það er sárt. Tím- inn getur verið svo lengi að líða. Við getum þó huggað okkur við það að hann stendur ekki í stað, hann líður, eins og Sjonni söng í laginu sínu og Þórunnar. Hann Sjonni var fallegur drengur að innan sem utan. Alveg hreint heillandi persónuleiki. Það er þessi nærvera sem sumir hafa yfir að ráða sem gerir manni kleift að líða vel í eigin skinni. Að láta öðrum líða vel í kringum sig er náðargáfa sem okkur er ekki endilega öllum gefin þótt við glöð vildum. Sjonni bjó yfir þessum eiginleika. Þetta er einhvers konar blanda af hreinskilni, jákvæðni og nokkurs konar andlegri og líkam- legri opnun sem gerði hann að mann- eskju sem gott var að vera í kring- um. Við sátum saman á nýársfagnaði Vesturports fyrir svo stuttu. Það var rætt um framtíðina. Hvað nýja árið bæri í skauti sér. Það var hugur í okkar manni. Það voru nýjar áskor- anir sem hann hugðist takast á við. Talað var um að nýta þyrfti tímann í lífinu. Eyða honum ekki til einskis í SJÁ SÍÐU 28

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.