Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 28

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 hluti sem eru einskis virði. Þessa litlu ómerkilegu hluti sem við leyfum of oft að taka stjórn í lífi okkar. Hið neikvæða afl er of fyrirferðarmikið í samfélaginu okkar og þá auðvitað sérstaklega í því árferði sem nú er ríkjandi. Í ljósi þessa spjalls, já- kvæðni hans og væntinga til framtíð- arinnar er óskaplega sárt til þess að hugsa að hálfum mánuði síðar er honum kippt frá okkur. Við skulum heiðra minningu vinar okkar með því að halda utan um hugarfarið. Leyfa ekki efanum og svartsýninni að ná tökum á okkur og láta það verða ofan á sem virkilega skiptir okkur máli í lífinu. Sjonni var einn af stofnendum Vesturports fyrir réttum áratug. Við áttum drauma sem margir hafa ræst. Sumir eru enn í vinnslu. Sjonni lét sinn draum rætast, fylgdi sann- færingu sinni og hóf farsælan tón- listarferil eins og við öll vitum. Fyrst og fremst viljum við félagar hans þakka fyrir tímann sem við fengum með honum þó að hann hefði átt að verða svo miklu, miklu lengri. Við sendum aðstandendum og vin- um Sjonna styrkan og hlýjan hug á þessum sáru og erfiðu tímum. Minn- ingin um vin okkar mun lifa í hjört- um okkar að eilífu. F.h. Vesturports, Björn Hlynur Haraldsson. Elsku besti Sjonni minn. Þegar ég fékk fréttirnar um að þú værir farinn að eilífu þá hreinlega hrundi heimurinn. Ég reyndar trúði ekki og geri varla enn. Ég hlaut þann heiður að fá að vera mikið með þér áður en þú kvaddir þennan heim og fyrir það er ég þakklátur. Við hitt- umst þennan örlagaríka dag og tók- um hvor um annan eins og við gerð- um alltaf og smelltum kossi á kinn. Þú kvaddir einnig með faðmlagi með því að við ætluðum að hittast kvöldið eftir út af Evróvisjólaginu þínu, sem flutt verður 29. jan. Ég hafði sjaldan séð þig eins spenntan og þú varst fyrir þessu lagi. 5 tímum síðar varstu allur. Við ákváðum fyrir mörgum árum að við yrðum bestu vinir að eilífu. Okkur tókst það en þitt skarð verður aldrei fyllt. Ég get ekki lýst sökn- uðinum og tómleikanum sem mynd- ast þegar þú ert ekki á svæðinu og ég get ekki trúað því að við sjáumst aldrei aftur í þessum heimi. Mér finnst þetta svo ósanngjarnt, en ég trúi því að þú hafir verið tekinn frá okkur af góðri ástæðu þó að það sé mér óskiljanlegt. Við kynntumst snemma á ung- lingsárunum og myndaðist strax mikill vinskapur. Mikið brallað og margar góðar minningar. Við byrj- uðum að spila á gítar á svipuðum tíma og var það augljóst strax hvert stefndi með hann Sjonna minn í tón- listinni. Hann var bara með þetta. Hann þróaðist í músíkinni með hverju árinu og varð stöðugt betri. Hann var farinn að vinna með öllum þeim bestu í tónlistinni en aldrei steig það Sjonna til höfuðs hversu hátt hann var kominn í þeim bransa. Sjonni, elsku karlinn minn, ég á eftir að sakna þín óendanlega og mun viðhalda minningu þinni það sem eftir er. Ég bið fyrir Þórunni og börnunum Aroni, Kristínu, Hauki og Róbert og allri hans fjölskyldu. Megi guð og styrkur vera með okkur á þessum erfiðu tímum. Þinn besti vinur, Sigurpáll. Elsku vinur. Svakalega er lífið skrýtið. Það er svo óviðunandi þegar fólk er bara tekið frá manni og ekkert er hægt að gera. Fullkomlega óskiljan- legt. Oft á dag er eins og maður hrökkvi við … æ já … Sjonni er far- inn. Og alltaf grípur um sig þessi sama sára tilfinning, eins og skáta- hnútur í maganum. Ég man svo vel hvað við Robbi lit- um upp til þín á unglingsárunum. Það var alltaf sérstök tilhlökkun að fá að vera með þér. Þú varst algjör rokkstjarna í okkar augum. Og það breyttist aldrei. Þú varst reyndar al- veg sérstök tegund af rokkstjörnu. Algjör töffari en samt svo hlýr og einlægur. Og með tímanum tókst með okkur sönn vinátta og samstarf sem gaf af sér margar af eftirminni- legustu stundunum í mínu lífi. Myndbandið sem við gerðum fyrir Robba þegar hann varð tvítugur, Bítlakvöldin í Vesturporti, árin á Hverfisbarnum og Bítlið okkar magnaða. Yndislegar sprelllifandi minningar. Öll Brink-hersingin mætt á svæðið í stuði. Eyja og Flippi pabbi og allir þeim megin líka. Allir saman, allir vinir. Þannig er fólkið þitt. Og eitt máttu vita, kæri vinur, að þetta fólk, þessi stóra, samrýnda fjölskylda, og vinir þínir, þessir mörgu, góðu vinir, þeir munu aldrei gleyma þér. Af því að þú áttir sér- stakan stað í hjörtum allra sem kynntust þér. Við munum halda minningu þinni á lofti og hugsa vel um þá sem þú skildir eftir. Elsku Þórunn, Haukur Örn, Ró- bert Hrafn, Kristín María og Aron. Guð gefi ykkur styrk í sorginni og blessi ykkur ávallt. Bið að heilsa John. Jóhannes Ásbjörnsson. Engin orð fá lýst þeim söknuði sem fylgir fráfalli Sjonna. Ekki óraði mig fyrir því þegar Sjonni kom til mín fáeinum dögum áður en hann kvaddi þennan heim og fékk hjá mér hljóðfærið sem ég færði honum að gjöf að okkar síðasti fund- ur væri að eiga sér stað. Þennan morgun höfðum við spilað skvass eins og við gerðum reglulega og okk- ur þótti svo gaman. Hann var bros- mildur og hress og kvaddi mig með faðmlagi eins og hann gerði alltaf. Lífsgleðin var aðalsmerki Sjonna, hann var alltaf að plana eitthvað skemmtilegt. Húmorinn var aldrei langt undan og gleðin tók völdin þeg- ar Sjonni mætti á svæðið. Sjonni elskaði að skemmta sér og sínum, hann var gleðigjafi. Sjonni kom fram við fólk af þeirri virðingu og hlýju sem einkennir allt hans fólk. Sjonni var líka gjarn á að tala mikið og fal- lega um fjölskyldu sína sem var hon- um svo kær. Minningarbrotin eru mörg, söng- ur Sjonna í brúðkaupi okkar Guð- rúnar, veiðiferðin í Andakílsá þar sem Aron veiddi maríulaxinn, golf- ferðir, sumarbústaðaferðir og hesta- túrar þar sem við sungum og skemmtum okkur saman í frábærum félagsskap. Þessar minningar ásamt svo mörgum öðrum munum við varð- veita. Sjonni var stórkostlegur tónlistar- maður en honum var margt annað til lista lagt. Hann var listakokkur sem þreyttist seint á að fræða mig um eldamennsku og kenndi mér að búa til sósurnar sínar góðu. Hann hafði mikinn áhuga á golfi og við unnum saman í því að bæta sveifluna. Ég gleymi ekki gleðinni í sumar þegar slæsið hvarf um stund. Að njóta þeirrar gæfu að vera vin- ur Sjonna voru forréttindi. Vinátta okkar var traust og á hana bar aldrei skugga. Ég er stoltur og þakklátur því að hafa fengið að taka þátt í sum- um af þeim verkefnum sem hann tók sér fyrir hendur og mun hljómsveitin Rokk ávallt eiga sérstakan stað í mínu hjarta. Ég mun sakna þess að eiga ekki von á því að Sjonni hringi í mig og segist verða að leyfa mér að heyra nýjustu upptökuna sína, en hann var vanur að koma til mín og við spáðum í hvað væri gott og hvað mætti betur fara þegar hann var að taka upp lögin sín. Sjonni vissi hvað ég hafði gaman af því að spá í þetta með honum og ég þakka honum fyrir að hafa leyft mér það. Börnin okkar, Ragnhildur Edda og Gísli Gotti litu upp til Sjonna og eiga eftir að sakna hans mikið, enda gaf hann sér ávallt tíma fyrir þau og gladdi þau með nærveru sinni. Jafn traustan og vandaðan vin var ekki hægt að hugsa sér, því fengum við fjölskyldan svo sannarlega að kynn- ast í gegnum tíðina. Sjálfur leit ég upp til Sjonna og úr huga mínum mun hann aldrei hverfa. Sjonni var einstakur. Minningin um uppáhaldssöngvar- ann okkar og traustan vin lifir. Elsku Þórunn, Aron, Kristín María, Haukur Örn og Róbert Hrafn, missir ykkar er mikill. Við vottum ykkur og öðrum ástvinum Sjonna okkar dýpstu samúð. Þórður Ágústsson (Doddi) og fjölskylda. Elsku Sjonni okkar, með hlýju í hjarta verður okkur hugsað til þín. Orð fá því ekki lýst hversu erfitt er að missa þig svona fljótt. En minn- ingarnar um þig varðveitast og þú munt lifa áfram í börnunum þínum. Hanna María var svo heppin að hafa þig í lífi sínu þar sem hún var alltaf velkomin á heimili þitt og umvafin hlýju frá þér og Þórunni. Þú varst svo góður við hana og duglegur að grípa hana með í leikhús og bíóferð- ir. Aldrei hefði mér dottið í hug þeg- ar ég var að hlaupa með Hönnu Mar- íu út í bíl til þín í lok desember, en þá lá leiðin að fara að sjá Þórunni leika í Leitin að jólunum enn einu sinni, að þetta væri síðasta ferðin. Ferðin sem endaði með að þú skelltir þér í ísbúð með börnin þín og Hönnu Maríu í farteskinu. Við vorum einstaklega lánsamar að hafa haft þig sem part af okkar lífi og erum þakklátar fyrir það. Elsku Sjonni, við munum hlúa að og hugsa vel um Þórunni og börn- in þín, það máttu vera viss um. Elsku Þórunn og börn og fjöl- skylda, megi guð vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Auður Lind og Hanna María. Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að Sjonni sé dáinn, allt of ungur. Hann sem var hvað mest lifandi manneskja sem ég þekkti, alltaf brosandi og alltaf hlýlegur. Ég kynntist Sjonna þegar hann og Þórunn, besta vinkona mín, fóru að vera saman. Þau voru frábært par. Hann tók mér strax með opnum örmum eins og við hefðum alltaf þekkst, hann átti greinilega auðvelt með að kynnast fólki og átti marga góða vini sem hann var duglegur að kynna hverja fyrir öðrum og skapa þannig afslappaða stemningu. Hann var líka í nánu sambandi við fjöl- skyldu sína og duglegur að rækta sambandið við systkini og foreldra sem lýsti sér best í því að ég þekkti alla nánustu ættingja hans með nafni þó að suma hefði ég aldrei hitt. Miss- ir þeirra er mikill. Við hittumst síðast fyrir tæpum mánuði, heima hjá þeim hjónum, og ég man sérstaklega eftir því hvað Sjonni lagði sig fram við að láta okk- ur Kjartani líða vel. Við áttum frá- bært kvöld. Hann var svo góður gestgjafi, klár að búa til mat og pass- aði upp á að mann vantaði ekki neitt. Þegar svona grein er skrifuð er venjan að mæra fólk og tala um það besta í fari þess. Í tilfelli Sjonna er ekkert annað hægt, hann var bara góður, vildi öllum vel og talaði aldrei nema vel um fólk. Menn eins og hann eru vandfundnir. Elsku Þórunn. Harmur þinn er hrikalegur og orð mega sín lítils. Ég bið þess að þú og börnin fái styrk í þessari erfiðu raun. Guð blessi minn- ingu Sigurjóns Brink. Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir. Okkur langar að minnast Sjonna gamla vinar okkar í örfáum orðum. Sjonna kynntumst við fljótlega eftir að hann flutti í Seljahverfið 13 ára gamall og með okkur tókst góður vinskapur sem hélst út unglingsárin og kunningsskapur sem hélst alla tíð. Þrátt fyrir að Seljahverfið hafi verið eitt fjölmennasta hverfi borg- arinnar þess tíma og mikið um að vera fór ekki framhjá neinum þegar Sjonni flutti í hverfið enda var þar á ferðinni ekki bara heillandi, skemmtilegur, glettinn og fyndinn drengur heldur var hann líka uppá- tækjasamur og einstaklega hæfi- leikaríkur og hafði mikið aðdrátt- arafl. Sjonni var líka einn af þeim sem virtust ekki þurfa að hafa mikið fyrir því að ná góðum tökum á því sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það var hjólabretti, skíði, fót- bolti, körfubolti, teikningar, tónlist eða hvað sem er. Á svona stundu hellast yfir mann skemmtilegar minningar um það sem brallað var, hvort sem það voru skemmtanir í hverfinu og bænum, útihátíðir hér og þar, hjólabretti, skíði í Bláfjöllum eða partíin í Flúðaseli þar sem Cree- dence Clearwater og Eagles hljóm- uðu gjarnan. Það er erfitt, sárt og ósanngjarnt að þurfa að kveðja góðan vin og fé- laga sem hefur verið hrifsaður burt úr blóma lífsins frá fjölskyldu sinni og ástvinum. En það voru forréttindi að fá að kynnast og eiga Sjonna sem vin og félaga. Sjonni var vinmargur og þess vegna eiga líka margir um sárt að binda en að sama skapi lifir minningin um góðan dreng í hugum svo margra. Eiginkonu hans og börnum, foreldrum, systkinum og ástvinum öllum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Atli Viðar Thorstensen og Gunnar Valdimarsson. Jæja Sjonni minn, kæri vinur og félagi. Þá er komið að kveðjustund. Sú stund kom allt, allt of snemma en náttúrunni halda engin bönd. Eina leiðin til að brynja sig fyrir missi er að eiga aldrei neitt sem skiptir máli. Þeir sem voru þess láns aðnjótandi að hafa fengið að fylgja þér í lífinu upplifa nú stórkostlegan missi. Það var svo margt sem þú hafðir fram að færa. Eftir að hafa jafnað mig á því áfalli sem fylgir því að fá svona óraunveru- legar fréttir sem fregnirnar af and- láti þínu vissulega eru, þá hef ég hugsað mikið um tíma okkar saman. Minningarnar sækja stöðugt að mér og ég áttaði mig á því að okkur hafði verið gefinn heilmikill tími saman og fyrir það er ég þakklátur. Mín fyrsta minning um þig er af þér hangandi úr strætóskýli í Flúða- selinu með Magga vini þínum, en þangað hafðir þú flutt skömmu áður. Við höfum verið um þrettán ára. Það er einkennilegt en ég man þetta eins og það hafi gerst í gær. Það var sprell í þér þann daginn eins og þín var von og vísa. Skömmu síðar snér- ist lukkan mér á sveif og þú byrjaðir í sama bekk og ég í Seljaskóla á fyrsta ári í gagnfræðaskóla. Þó svo að við höfum kannski ekki verið trúnaðarvinir fyrstu árin þá fór ávallt vel á með okkur og sameig- inlegur áhugi okkar á tónlist (og sprelli) dró okkur saman. Við vorum í kjölfarið í hljómsveit saman í fleiri ár og mynduðum þar með okkur bönd sem aldrei munu rofna. Þessi ár voru frábær og í þau fáu skipti sem ekki var fjör og samskipti með- lima gengu ekki vel, þá varst það þú sem sást um að lægja eldana. Til þess beittir þú ýmist gríni en ef það þraut, þá diplómatískum aðferðum. Þú hafðir ekki tíma í leiðindi, forð- aðist þau eins og heitan eldinn. Það er ekki laust við að maður hafi bros- að gegnum tárin síðastliðna viku þegar minningum af hrekkjum og gríni skaut upp í kollinn á mér. Það gleður mig að þú hafir verið trúr þeirri sannfæringu þinni að þér væri ætlað að vera tónlistarmaður og skemmtikraftur. Þú hafðir unnið að því af krafti að koma þér áfram í þeim harða heimi og þér hafði tekist svo vel upp að öll þjóðin syrgir fráfall þitt. Mönnum verður tíðrætt um þá góðu nálægð og útgeislun sem staf- aði af þér og ég get vottað að það eru engar ýkjur. Öllum leið vel í kringum þig Sjonni. Þú varst örlátur, bæði á eigur þínar, en einnig á sjálfan þig. Enda starfaðir þú við það að gefa í sí- fellu af þér, og gerðir þú það vel. Ég er þakklátur fyrir það að við náðum að tengja aftur í sumar. Ég fékk að verja tíma með þér, Þórunni, Hauki og Róberti. Við unnum í tón- list, spiluðum golf og nutum lífsins með fjölskyldum okkar. Ómetanlegt. Sú staðreynd að ég bý erlendis gerði okkur erfiðara um vik að rækta vin- skapinn en þrátt fyrir það voru okk- ar samskipti ávallt óþvinguð og skemmtileg. Allar góðu stundirnar gera missinn að sjálfsögðu óbæri- legri, en ég veit að þegar fram líða stundir þá verður þakklæti mér ofar í huga þó svo að söknuðurinn fari aldrei að fullu meðan ég lifi. Sjonni, þú varst einstakur maður og einstakur vinur. Albert Steinn Guðjónsson. Minningin er ljóslifandi og sterk frá því þegar Sjonni kom í hljóðverið til mín fyrir nokkrum mánuðum, glaður og hress og söng með mér dú- ettinn Okkar ástarvor. Hann var bú- inn að undirbúa sig vel og flutning- urinn var vandaður og einbeittur. Eftir fáeinar tökur var þetta full- komið hjá honum. Þakka þér, vinur. Blessuð sé minning Sjonna. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er. Eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. Við sendum fjölskyldu og vinum Sjonna innilegar samúðarkveðjur. Megi góður guð gefa ykkur styrk og blessa ykkur á þessum erfiðu tím- um. Björgvin Halldórsson og fjölskylda. Kæri vinur. Þegar ég heyrði þær hörmulegu fréttir að þú hefðir orðið bráðkvaddur fékk ég sting í magann og vildi ekki trúa að þetta væri satt. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að ég myndi þurfa að skrifa minning- argrein um þig á þessum tímapunkti. Þú varst á besta aldri, flottur, síbros- andi og allt gekk vel í tónlistinni. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyr- ir rúmum 30 árum síðan þegar við vorum guttar í leikskóla og fórum svo saman í grunnskóla. Við vorum saman á okkar yngri árum nánast á hverjum degi og var ýmislegt brall- að. Við hittumst sjaldnar eftir að ég flutti úr Þórufellinu eins og gengur en þegar við hittumst varstu alltaf brosandi og hlæjandi. Ég á margar góðar minningar um okkur en það er alltaf ein sem kemur fyrst í huga mér. Við vorum ekki eldri en 6-7 ára og við spiluðum plöt- ur með Elvis Presley heima hjá þér í Þórufellinu og þú söngst og dansaðir á stofuborðinu. Þannig man ég vel Sigurjón Brink Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.