Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
eftir þér, kæri vinur og þar sást
hvert þú ætlaðir þér.
Svo lágu leiðir okkar saman á ný
þegar þú kynntist henni Þórunni
þinni, æskuvinkonu konu minnar –
svona er landið lítið. Í brúðkaupinu
ykkar minntir þú mig á það sem við
ætluðum alltaf að gera þegar við vor-
um guttar en það var að eignast hús-
bíl og búa í honum. Það var ekki flók-
ið.
Elsku Þórunn, Róbert, Haukur
Örn, Kristín María, Aron, foreldrar
og aðrir aðstandendur, ég votta ykk-
ur samúð mína. Guð gefi ykkur styrk
á þessum erfiðu tímum.
Elsku Sigurjón, vertu sæll að
sinni, við hittumst síðar.
Þinn vinur,
Bjarni Már Bjarnason.
Ég man eins og gerst hafi í gær
hvernig við kynntumst kæri vinur. Í
byrjun árs 2000 hafði ég, ásamt öðr-
um, fest kaup á Hverfisbarnum, en
með í kaupunum fylgdi dúettinn
„Bítlarnir“. Ég ákvað að hringja í
forsprakkann Sjonna Brink, sem ég
kunni engin deili á og athuga hvort
við ættum ekki að hittast og fara yfir
málin. Við hittumst daginn eftir og
fannst mér frá fyrstu mínútu eins og
ég hefði þekkt þig alla tíð.
Hvorki fyrr né síðar hef ég hitt
mann sem var jafn jákvæður,
skemmtilegur og brosmildur. Ótrú-
lega brosmildur. Næstu tvö árin spil-
uðuð þið Jói nánast alla fimmtudaga
á Hverfisbarnum við miklar vinsæld-
ir og óx vinátta okkar með.
Einn af þínum fjölmörgu mann-
kostum var hversu bóngóður þú
varst. Þú varst ætíð boðinn og búinn
að spila og syngja, í veislum, stórum
sem smáum. Þú spilaðir undir þegar
ég söng í brúðkaupi mínu, spilaðir í
veislunni sjálfri og við höfðum ný-
verið handsalað að þú myndir spila í
fertugsafmæli mínu í júní. Fyrir
þetta og margt annað verð ég þér
ævinlega þakklátur. Í síðasta samtali
okkar ítrekaðir þú, eins og í flestum
samtölum sem við höfum átt síðustu
ár, að nú yrðum við – ég, þú, Doddi
og Jói að fara að hittast og rifja upp
gamla og góða tíma. Það hafði staðið
til lengi hjá okkur að hittast fjórir
saman en einhvern veginn gafst
aldrei rétti tíminn til þess. Við Doddi
höfum nú þegar ákveðið að láta
verða af þessu og er ég þess fullviss
að þú verður með okkur í anda.
Elsku Sjonni, ég kveð þig með mikl-
um söknuði en jafnframt þakklæti
fyrir vináttu sem aldrei bar skugga
á. Elsku Þórunn, börn, foreldrar og
systkini, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð. Missir ykkar er mikill, en í
brjósti mér býr vissa að minningar
um einstakan mann með bjartasta
brosið muni lina sorgina.
Rósant Birgisson.
Ég kveð góðan dreng sem fallinn
er nú frá í blóma lífsins langt um ald-
ur fram. Ég var svo heppinn að
kynnast Sjonna á unglingsárunum
og höfum við brallað ýmislegt saman
í gegnum tíðina. Við höfðum sameig-
inlegt áhugamál sem var tónlistin og
í gegnum hana hefur líf okkar sam-
tvinnast.
Ég minnist tónleikanna með In
Bloom, myndbandagerðar í Los
Angeles, Noregsreisa með Le sing,
upptaka á Flavors-plötunni, og frá-
bærra stunda þegar Bítl tónleikur-
inn var settur upp í Loftkastalanum.
Þú varst alltaf jákvæður og bros-
andi, og gaman þótti mér að fylgjast
með hversu vel þér var farið að
ganga í tónlistinni.
Ég trúi því að þú sért á góðum
stað umvafinn ást og hlýju. Ég bið
guð að blessa Þórunni, börnin þín,
foreldra og systkini og er hugur
minn hjá þeim á þessum sorgartím-
um.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Hvíl í friði, kæri vinur.
Úlfar Jacobsen.
Það er sárt að horfa upp á það
þegar fólk er tekið frá okkur í blóma
lífsins. Sá kaldi og óbreytanlegi
veruleiki blasir þó við okkur með vin
okkar, Sjonna Brink. Ungur maður í
blóma lífsins, elskaður af fjölskyldu
og vinum með lífið allt framundan,
numinn á brott og það dapurlega er
að því fær ekkert breytt. Það er
margs að minnast um yndislegan
mann og það er enginn undir það bú-
inn að setja saman minningarorð um
36 ára gamlan mann sem átti að eiga
öll sín bestu æviár eftir. Við kynnt-
umst Sjonna þegar hann og Þórunn
Erna vinkona okkar fóru að rugla
saman reytum. Þórunn hafði fundið
einstaklega hjartahlýjan og góðan
mann sem hún elskaði svo heitt. Það
var alltaf notanleg nærvera við hann
og hann virtist alltaf glaður og í góðu
skapi. Það eru skapgerðareiginleik-
ar sem ekki eru öllum í blóð bornir,
en jafnframt skapgerðareiginleikar
sem smita út frá sér. Hann snerti
strengi í hjörtum allra sem hann um-
gekkst.
Við áttum margar notalegar
stundir saman þar sem við borðuð-
um góðan mat, hlógum og nutum
lífsins. Sjonni var mikill listakokkur
og hafði gaman af því að stússast í
eldhúsinu við að útbúa góðan mat.
Skemmtilegar ferðir í sumarbústað
og í veiði eru okkur minnisstæðar.
Hann var stoltur veiðifélaginn okk-
ar, Sjonni sem fékk Maríulaxinn sinn
í veiðiferð með þeim hjónum í Langá.
Ekki skemmdi fyrir að hann var
tilbúinn að slá á létta strengi í orðs-
ins fyllstu merkingu þegar bregða
tók birtu og við vorum hætt að veiða.
Gítarinn og gleðin var aldrei langt
undan hjá honum. Hlutverk þeirra
Sjonna og Þórunnar, þegar þau
sungu í brúðkaupi okkar hjóna er
okkur líka hugleikið. Þau áttu svo
sannarlega þátt í því að gera okkur
þennan dag ógleymanlegan með
yndislegum söng sínum. Síðasta
minningin um Sjonna er frá kvöldi
einu í lok nóvember þar sem Sjonni
og Þórunn voru að undirbúa matar-
boð. Sjonni, brosandi, að sýsla í eld-
húsinu, nýbúinn að taka lambalæri
út úr ofninum og matarilmurinn
ómótstæðilegur. Ljúfir tónar tónlist-
ar í bakgrunni og fótboltaleikur með
liðinu hans, Liverpool, í sjónvarpinu.
Þórunn og strákarnir búin að
kveikja á kertum úti um allt hús og
„gera kósý“, eins og Haukur sagði –
húsið iðaði af ást og notalegheitum
og minning um fallega og samrýnda
fjölskyldu lifir.
Elsku Þórunn, það er engan veg-
inn hægt að gera sér í hugarlund
hvað þú og börnin eruð að ganga í
gegnum. Sorgin er mikil og virðist á
þessari stundu óyfirstíganleg. Megi
tíminn og minningin um ástkæran
eiginmann þinn hjálpa þér að sefa
sorgina. Hugur okkar er hjá þér og
þínum og við biðjum Guð að styðja
ykkur á þessum erfiðu tímum. Það
munum við jafnframt leitast við að
gera.
Hanna Lilja Jóhannsdóttir
og Lúðvík Örn Steinarsson.
Sjonni bróðir, eins og við vinirnir
vorum vanir að kalla hann, hefur
verið hluti af lífi okkar síðastliðin 15
ár eða allt frá því að við fórum að
venja komu okkar í Stúdíó-Brauð til
þeirra feðga. Sjonna bróður fylgdi
ávallt mikil gleði, hlátur og söngur
þar sem gítarinn var aldrei langt
undan og skipti engu hvort það væri
í heimahúsi, sumarbústað eða í úti-
legu.
Segja má að Sjonni bróðir hafi átt
stóran þátt í að móta þann húmor
sem einkennir okkar vinahóp. Hann
hafði einstakt lag á að sjá það
skondna og spaugilega við menn og
aðstæður. Ósjaldan lágum við í gólf-
inu af hlátri yfir hnyttnum athuga-
semdum sem oftar en ekki hittu í
mark enda var hann orðheppinn
drengur með eindæmum. Oft samdi
hann jafnvel lagstúf ásamt texta við
ákveðin tilefni enda var hann ótrú-
lega fljótur að töfra fram hvort
tveggja. Lagið „Kjúklingabarði“ er
eitt þessara laga sem við munum á
góðum dögum raula með bros á vör,
líta upp til himins og minnast Sjonna
bróður.
Í raun eru allar minningar okkar
um Sjonna bróður góðar og munu fá
okkur til að brosa og jafnvel skella
upp úr um ókomna tíð. Fimmtudags-
kvöldin eru ógleymanleg þar sem
Sjonni bróðir fór ávallt á kostum
enda skemmtikraftur af guðs náð.
Hann var ákaflega góður drengur,
með gott hjartalag og sannur vinur
vina sinna. Hann gaf ætíð mikið af
sér og kom ávallt til dyranna eins og
hann var klæddur með bros á vör og
geislandi af gleði.
Það er ákaflega sárt að þurfa að
kveðja góðan dreng og vin svona
ungan að aldri og erfitt að hugsa þá
hugsun til enda að við munum ekki
njóta fleiri samverustunda með hon-
um.
Minning hans mun lifa í hjörtum
okkar, fjórum yndislegum börnum
hans sem og hugverkum.
Að lokum viljum við votta fjöl-
skyldu Sjonna okkar dýpstu samúð
og megi guð og góðir vættir gefa
henni styrk á þessum erfiðu tímum.
Benedikt, Brynjar, Elmar,
Hjalti, Óttar og Styrmir.
Tíminn hefur stöðvast. Maður
starir út í loftið og spyr hvers vegna
– hvers vegna er ungur maður hrifs-
aður í burtu frá börnunum sínum
fjórum og ástkærri eiginkonu sinni?
Er honum ætlað annað og æðra hlut-
verk eða var ástæðan falin mein-
semd? Tíminn hefur stöðvast vegna
þess að við leitum öll að svarinu. En
engin svör koma.
Hver svo sem ástæðan er, þá sker
það í hjartastað þegar ungt fólk
hverfur fyrirvaralaust frá ástvinum
sínum og þá sérstaklega þegar um er
að ræða lífsglaðan einstakling eins
og Sigurjón Brink. Sigurjón var einn
þeirra einstaklinga sem kunna að
gefa. Hann gaf af sjálfum sér, ekki
aðeins fallega brosið og fallegu aug-
un, heldur einnig faðm sinn í óeig-
inlegri merkingu þess orðs. Hann
kunni að umvefja hvern og einn eins
og hann væri honum einstakur. Við
sem sitjum eftir eigum að vera þakk-
lát fyrir að hafa fengið að kynnast
Sigurjóni því hann var gleðigjafi sem
auðgaði líf okkar allra – ekki aðeins
vinanna – því með hæfileikum sínum
og listfengi náði hann til hjarta allra
landsmanna.
Það hefur verið einstaklega gam-
an að fylgjast með þroska og upp-
vexti Sigurjóns og sjá hvernig hann
fikraði sig áfram á tónlistarsviðinu
og að endingu orðinn einn af virtustu
og ástsælustu listamönnum þjóðar-
innar. Þegar Sigurjón kom fram í af-
mæli systur minnar á síðasta ári, þá
naut ég þess að sjá hvernig hann
hagaði undirbúningnum. Á bak við
létta lund og galsann þá kom ná-
kvæmnin fram og mikill metnaður
enda bera öll hans verk með sér að
þar fór mikill fagmaður.
Fósturfaðir Sigurjóns og æsku-
vinur minn, Filippus Gunnar, settist
ósjaldan niður með mér til að leyfa
mér að hlusta á upptökur með Sig-
urjóni áður en þær voru gerðar op-
inberar. Það var allt frá trommuspili
með hljómsveitinni In Bloom, sem
hann stofnaði, og til samsöngsins
með Björgvini Halldórssyni – sem
verður mér ógleymanleg minning
um þennan frábæra listamann og
vin. Það var ósvikin ánægja og stolt
sem alltaf skein úr augum föðurins.
Það er erfitt að minnast einhvers,
sem maður finnur svo sterkt fyrir, að
maður efast stundum um að sé dá-
inn. Orðið dáinn er svo endanlegt og
fær svo sterka merkingu þegar mað-
ur tengir það við ástvin. Á þessari
stundu dvelur hugur okkar með Þór-
unni og börnunum og við biðjum al-
góðan guð um að blessa hana og
megi hún öðlast styrk til þess að tak-
ast á við lífið og finna gleðina á ný.
Systkinum hans og öðrum ástvinum
vottum við djúpa samhyggð. Eyju,
móður Sigurjóns, og Gunna munum
við faðma það sem eftir er lífsins.
Kristján og Ásdís Rósa.
Ég kynntist Sjonna fyrst í kring-
um 1990 og urðum við strax góðir
vinir. Það var eitthvað svo auðvelt að
vera í kringum Sjonna, hann var
skemmtilegur, hafði sérstaklega
góða nærveru og mjög frjór tónlist-
armaður – í raun allt sem hann gerði,
gerði hann mjög vel. Fljótlega eftir
að við kynntumst stofnuðum við
hljómsveit sem síðar varð In Bloom.
Sjonni varð trommuleikari hljóm-
sveitarinnar þó svo síðar hafi hann
orðið einn af fremstu söngvurum
landsins. Einhverra hluta vegna,
þegar hljómsveitin var stofnuð, sett-
ist Sjonni við trommusettið á fyrstu
æfingu og byrjaði að tromma. Og
upp frá þessu varð hann trommari
hljómsveitarinnar án þess að hafa
nokkru sinni lært að spila á þær. Í
raun gat Sjonni spilað á hvaða hljóð-
færi sem var án þess að hafa fengið
nokkra kennslu eða snert hljóðfærið
áður.
In Bloom starfaði í nokkur ár en
hætti árið 1997 þegar meðlimir
hljómsveitarinnar sneru sér að öðr-
um málum. Það kom hins vegar ekki
á óvart þegar Sjonni hafði samband
við mig árið 2002 til að leyfa mér að
heyra ný „demo-lög“ sem hann hafði
verið að hljóðrita. Hans draumar
lágu alltaf í tónlistinni og á þessum
tímapunkti hafði hann ákveðið að
segja upp öruggu starfi til þess að
helga sig tónlistinni að fullu. Þannig
að hann gekk út í óvissuna sem þessu
fylgdi með gítarinn á bakinu og
röddina í fullkomnu lagi. Þannig
voru honum flestir vegir færir eins
og kom á daginn. Þessi fyrstu
„demo-lög“ voru svo gefin út undir
hljómsveitarheitinu Flavors þó svo
Sjonni hafi átt og samið öll lög hljóm-
sveitarinnar. Það má því segja að
þessi plata hafi verið upphafið að
glæstum sólóferli hans.
Það er skrýtið til þess að hugsa að
ég eigi aldrei eftir að hlæja eða
syngja með þér aftur. Þín verður
sárt saknað, meir en orð fá lýst, en
falleg minning um frábæra vináttu
mun ætíð lifa.
Mig langar að senda mínar dýpstu
samúðarkveðjur til Þórunnar, barna
og fjölskyldu á þessum erfiðu tímum.
Sigurgeir Þórðarson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
( Valdimar Briem.)
Elsku Róbert, Tóta, Eyja, Gunni
og fjölskyldur sendum ykkur inni-
legar samúðarkveðjur.
Megi Guð gefa ykkur styrk á þess-
um erfiða tíma. Blessuð sé minning
um góðan dreng
Bára og fjölskylda.
Hvernig síðustu orðin ráða hugsunum.
Hvernig tárin dynja á hjörtum
barnanna.
Hvernig raunveruleikinn hellist yfir
eiginkonuna.
Yfirgnæfandi sorg.
Hvernig lífið umturnast á einni nóttu.
Hvernig stingurinn sker við tilhugs-
unina.
Hvernig minning um mann fýkur með
storminum.
Óréttlæti.
Hvernig hinir almáttugu svíkja og
stela.
Hvernig guðirnir einir ei finna fyrir
sársauka.
Hvernig í skugganum eftir sitja ástvin-
ir án skýringa.
Hræðsla.
Hvernig lifa skal með slíkum harmleik.
Hvernig viðhalda skal brosi og gleði
mannsins.
Hvernig konan skal bera byrði ást-
arinnar í hjarta sér.
Engin orð.
Hvernig börnin svo feta í fótsporin.
Hvernig tíminn græðir sárin.
Hvernig friður og kærleikur færist yfir.
Hvernig hið svarta verður skyndilega
að hvítu.
Þakklát gleði.
Mín dýpsta samúð.
Ragnheiður Dísa Gunnarsdóttir.
Elsku Þórunn, Aron, Kristín
María, Haukur Örn og Róbert
Hrafn.
Til minningar um elsku Sjonna.
Í dimmum skugga af löngu liðnum
vetri
mitt ljóð til þín var árum saman
grafið.
Svo ungur varstu, er hvarfstu út á
hafið
hugljúfur, glæstur, öllum drengjum
betri.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn
þína
sem hefði klökkur gígjustrengur
brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi
lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast
ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar
nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum
lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki –
(Tómas Guðmundsson.)
Megi Sigurjón Brink hvíla í friði.
Ykkar vinir,
Vilborg Edda, Valgeir Matthías,
Stefanía Sól og Brynhildur Dís.
Góður félagi er fallinn frá. Það
voru hrein forréttindi að fá að kynn-
ast Sjonna og það sem fyrst kemur
upp í hugann þegar maður hugsar til
hans eru orð eins og lífsgleði, hress-
leiki, hæfileikar og tryggð. Sjonni
hefur verið iðinn við það í gegnum
tíðina að leggja sitt af mörkum inn í
starf Liverpool-klúbbsins á Íslandi.
Það er sama hvort um ræðir árshá-
tíðir eða aðra viðburði, hann hefur
fyrir eitt orð komið og troðið upp og
skapað mikla stemningu í hópnum.
Aldrei vildi hann taka krónu fyrir
það.
Það er stórt skarð höggvið í okkar
raðir og það verður ekki fyllt. Það
var ákaflega ánægjulegt að hann
skyldi ná að láta einn af draumum
sínum rætast fyrir ekki svo löngu og
fara með son sinn á Anfield til að
fylgjast með sínum mönnum spila.
Þeir feðgar fengu heldur betur leik-
inn og man ég að Sjonni brosti allan
hringinn þegar hann kom til baka.
Elsku vinur, þín verður sárt sakn-
að, en minningin um þig mun lifa í
hjörtum okkar að eilífu. Fjölskyldu
og vinum færi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur á þessum erfiðu
tímum.
Það er við hæfi að kveðja þig með
söngnum okkar sem þú hefur tekið
fyrir okkur ótal sinnum með þínum
einstaka hætti.
Er þú brýst fram gegn bylnum
berðu höfuðið hátt
óttastu ei myrkrið
né ógn þess og mátt
litríkur ljósheimur bíður
og lævirkja söngurinn þíður.
Áfram, stríðum stormi gegn
áfram, strítt þó falli regn
þótt drauma þína skilji ei neinn
þú áfram, áfram ferð aleinn.
Þó aldrei ertu einn
aldrei ertu einn.
Áfram, áfram, með hugprútt hjarta
hugsaðu um framtíð bjarta
þú arkar aldrei einn.
Sigursteinn Brynjólfsson
formaður Liverpool-klúbbsins
á Íslandi.