Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
1 5 9 7 4 6
6 4 1 2
3 5
9
9 5 3
6 3 5 9
3 4 6 2
7 2
4 2 3 5
9 2
1 6
7 5 1 6 3
7
3 9 4
4 9 6
5 1
9 2
2 1
2 3 4 9
1
9
8 6
7 2 3
9 5 8 4
3 1 2 5 9
2 4 6
3 9 4 2 7 8 1 6 5
5 1 6 3 4 9 8 2 7
8 7 2 6 1 5 9 3 4
2 8 7 5 3 4 6 9 1
9 4 3 1 6 2 7 5 8
6 5 1 9 8 7 3 4 2
1 2 5 8 9 6 4 7 3
4 6 8 7 5 3 2 1 9
7 3 9 4 2 1 5 8 6
3 2 9 1 4 6 7 5 8
1 7 5 3 8 2 6 4 9
6 4 8 7 9 5 1 3 2
9 5 4 6 2 1 8 7 3
8 6 3 5 7 9 4 2 1
7 1 2 4 3 8 5 9 6
5 3 1 2 6 4 9 8 7
4 9 7 8 1 3 2 6 5
2 8 6 9 5 7 3 1 4
4 9 1 2 5 6 7 3 8
2 8 5 1 3 7 6 4 9
7 6 3 9 4 8 2 1 5
6 7 8 3 9 1 5 2 4
5 3 4 8 7 2 9 6 1
1 2 9 4 6 5 8 7 3
8 1 7 5 2 4 3 9 6
3 5 6 7 1 9 4 8 2
9 4 2 6 8 3 1 5 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 27. janúar,
27. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður
yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.
(Lúk. 12, 34.)
Bókin Svar við bréfi Helgu eftirBergsvein Birgisson hefur feng-
ið lofsamlegar umsagnir og Víkverji
var því fullur eftirvæntingar þegar
hann hóf lestur hugleiðinga bóndans
á Kolkustöðum um lífshlaup sitt. Svar
við bréfi Helgu er grípandi bók og
auðvelt að sökkva sér í lesturinn.
x x x
Það kann að hljóma eins og smá-smygli, en stundum þarf hins
vegar ekki nema eitt orð til að eyði-
leggja galdurinn. Víkverji hefur til
dæmis tekið eftir því að ekki þarf
nema eitt mismæli eða ambögu í út-
varpsfrétt til að athyglin beinist að
málfari fréttamanns og innihald frétt-
arinnar fari fyrir ofan garð og neðan.
Eins getur málvilla í blaðagrein orðið
til þess að einbeitingin fer út í veður
og vind. (Í þessum efnum er Víkverji
vitaskuld í glerhúsi, þótt hann eigi
bágt með að viðurkenna það, en getur
ekki látið það útiloka sig frá því að
opna munninn.)
x x x
Allt lék sem sagt í lyndi við lesturSvars við bréfi Helgu þar til
kom að setningunni: „Ef lífið gervallt
er skáldskapur, eins og þeir segja,
var þá ekki meiri gróandi og gæska í
túnunum, meira birtumagn og
frískari frelsistilfinning í andrúms-
loftinu hér?“ Vissulega dálítið skrúf-
að, en það var orðskrípið „birtu-
magn“, sem varð til þess að Víkverja
fannst hann ekki lengur vera að lesa
skrif bónda, heldur texta eftir rithöf-
und, sem var að reyna að skrifa eins
og hann væri bóndi. Birtumagn? Ís-
lenskur bóndi myndi aldrei nota orðið
„birtumagn“, hvað þá höfundur Svars
við bréfi Helgu, sem gerir sér far um
að skrifa kjarnyrta og meitlaða ís-
lensku, enda dugar fullkomlega að
segja „birta“, sem síðan getur veri
mikil eða lítil eftir atvikum.
x x x
Birtumagnið sat í Víkverja þaðsem eftir lifði bókar. Hann hélt
áfram að njóta lestrarins, en ekki
eins, einhver þráður var brostinn,
galdurinn hafði verið rofinn, falskur
tónn hafði laumað sér inn í heim sög-
unnar. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 frumkvöðull, 8
skips, 9 látna, 10 þreyta, 11
vagga í gangi, 13 lengjan, 15
þref, 18 tala, 21 hrós, 22 æð-
arfugl, 23 kærleikshót, 24
vanhugsuð athöfn.
Lóðrétt | 2 gera skarð í, 3
tyggja, 4 styrkir, 5 Gyðingum,
6 saklaus, 7 sigraði, 12 mergð,
14 kyn, 15 grastorfa, 16 fiskar,
17 kátínu, 18 þungbær reynsla,
19 lítils báts, 20 ferskt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 stuld, 4 hollt, 7 öngul, 8 ólykt, 9 dós, 11 görn, 13 átta,
14 æruna, 15 skær, 17 rófa, 20 odd, 22 falds, 23 uggur, 24
marrs, 25 synir.
Lórétt: 1 stöng, 2 ungur, 3 duld, 4 hrós, 5 leyst, 6 totta, 10
ólund, 12 nær, 13 áar, 15 sófum, 16 ætlar, 18 ólgan, 19 akrar, 20
osts, 21 dugs.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7.
De2 Rd5 8. Rd2 Bb7 9. Rf3 Db4+ 10.
Dd2 De4+ 11. Be2 Ba6 12. Kf1
Bxe2+ 13. Dxe2 Df5 14. c4 Rb4 15.
Bd2 Bc5 16. Bxb4 Bxb4 17. Hd1 0-0
18. Dd3 De6 19. Rg5 Dh6 20. h4
Had8 21. Hh3 d5 22. Df5 Hde8 23.
Hf3 Dxh4 24. Hh3 Dxc4+ 25. Kg1 g6
26. Df6 Be7
Staðan kom upp á sterku al-
þjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu
í Reggio Emilia á Ítalíu. Spænski
stórmeistarinn Francisco Vallejo
Pons (2.698) hafði hvítt gegn tékk-
neskum kollega sínum David Navara
(2.708). 27. Rxh7! Dg4 28. Dxe7! og
svartur gafst upp enda óverjandi mát
eða liðstap óumflýjanlegt eftir 28. …
Dxd1 29. Kh2 eða 28. … Dxh3 29.
Dxf8+ Hxf8 30. Rf6+.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Framsýni. S-Enginn.
Norður
♠G86
♥G6
♦9753
♣ÁKD7
Vestur Austur
♠1095 ♠7432
♥108542 ♥K973
♦2 ♦K864
♣10632 ♣8
Suður
♠ÁKD
♥ÁD
♦ÁDG10
♣G954
Suður spilar 6G.
Suður opnar á alkröfu, sýnir síðan
23-24 punkta og jafna hönd með 2G
við 2♦ biðsögn makkers. Norður lýk-
ur samtalinu með afgerandi stökki í
6G. Útspilið er ♠10.
Það telst ekki til stórafreka að
skrapa saman tólf slögum, en þrett-
ándi slagurinn er spennandi. Og mik-
ilvægur, ef keppnisformið er tvímenn-
ingur. Rauðu kóngarnir liggja báðir
rétt, en það þarf fjórar innkomur í
borð til að svína alla leið. Eru þær til
staðar?
Framsýnn sagnhafi spilar laufníu á
ásinn í öðrum slag og tekur vel eftir
falli áttunnar í austur. Svínar svo í
tígli og spilar ♣G að heiman. Þegar
vestur fylgir lit er óhætt að yfirdrepa
gosann. Þannig verður laufsjöan inn-
koma þrátt fyrir 4-1 leguna, því ♣D7
myndar gaffal yfir ♣106 vesturs.
27. janúar 1891
Verslunarmannafélag Reykja-
víkur, VR, var stofnað til að
efla samheldni innan stétt-
arinnar, auka menntun henn-
ar og „útvega dugandi versl-
unarmönnum atvinnu hjá
góðum húsbændum.“ eins og
það var orðað í Þjóðviljanum.
27. janúar 1907
Kvenréttindafélag Íslands var
stofnað í Reykjavík, fyrir for-
göngu Bríetar Bjarnhéð-
insdóttur, í þeim tilgangi „að
íslenskar konur fái fullt
stjórnmálajafnrétti á við karl-
menn“.
27. janúar 1960
Varðskipið Óðinn kom til
landsins. Því var beitt í þrem-
ur þorskastríðum og það tók
þátt í björgun um 370 skipa.
Skipið er nú hluti af Víkinni,
sjóminjasafninu í Reykjavík.
27. janúar 1960
Kardemommubærinn eftir
Torbjörn Egner var frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu. Í að-
alhlutverkum voru Róbert
Arnfinnsson, Emelía Jón-
asdóttir, Ævar Kvaran, Bald-
vin Halldórsson og Bessi
Bjarnason. Leikritið naut mik-
illa vinsælda.
27. janúar 2010
Seðlabankinn lækkaði stýri-
vexti í 9,5%, en þeir höfðu ekki
verið svo lágir í rúm fjögur ár.
Í tilefni af þessu létu veit-
ingamennirnir Tómas Tóm-
asson og Úlfar Eysteinsson
raka skegg sitt sem þeir höfðu
safnað í átta mánuði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ætli ég baki ekki bara köku handa sjálfri mér og
fjölskyldunni,“ segir Þórdís Geirsdóttir viðskipta-
fræðingur hjá Íslandsbanka, spurð hvort hún ætli
að gera eitthvað í tilefni 35 ára afmælisins í dag.
Þótt henni finnist alltaf gaman að eiga afmæli seg-
ist Þórdís gera mismikið úr því og láti sér líklega
nægja í þetta skipti að gera vel við sig í mat í
kvöld. „Það er frekar að maður geri eitthvað úr
stórafmælunum, til dæmis var mjög skemmtilegt
þegar ég varð þrítug. Bæði komu vinnufélagarnir
mér á óvart með veislu og gjöfum og svo hélt ég
veislu nokkrum dögum síðar sem var bæði inn-
flutningspartí og afmæli.“ Þórdís segir að afmælisdagarnir hafi hins-
vegar breyst svolítið með sonum hennar tveimur, sem eru 6 og 3 ára.
„Þeim finnst þetta spennandi og eftir að þeir bættust í fjölskylduna
fór maður að hugsa afmælisdaginn meira fyrir þá en fyrir sjálfan sig.
Þeir hafa fengið að fara fram úr með pabba sínum og útbúa köku með
kertum áður en ég vakna og fannst það voða gaman. Núna eru þeir
greinilega búnir að kaupa afmælisgjöf því þeir eru voðalega laumu-
legir og eiga erfitt með að kjafta ekki frá,“ segir Þórdís sem fær
væntanlega að opna gjöfina frá sonum sínum í dag. una@mbl.is
Þórdís Geirsdóttir viðskiptafræðingur 35 ára
Synirnir bíða með gjöfina
Flóðogfjara
27. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 6.06 1,1 12.17 3,2 18.31 1,1 10.24 16.58
Ísafjörður 1.53 1,8 8.13 0,5 14.13 1,7 20.36 0,5 10.48 16.44
Siglufjörður 4.32 1,1 10.32 0,2 17.06 1,0 23.07 0,4 10.32 16.26
Djúpivogur 3.08 0,4 9.05 1,6 15.19 0,4 21.53 1,7 9.58 16.23
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Of miklar upplýsingar gætu flækt
málin og komið í veg fyrir að þú fyndir réttu
lausnina. Þú skilur loks að ekki þarf endi-
lega að leysa öll vandamál.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það þýðir ekki að láta Gróu á Leiti um
að skýra frá máli, sem þú ert viðriðin/n.
Ekki láta reka á reiðanum, heldur taktu þig
saman í andlitinu og láttu verkin tala.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekki þarft þú að hlaupa til þótt
fólkið í kringum þig sé með einhver látalæti.
Sýnið þolinmæði og sanngirni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Mundu að dramb er falli næst og að
ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Einhver ger-
ir þér kostaboð.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Skipuleggðu tíma þinn þannig að þú
getir skotist frá til þess að sinna erindum,
sem ekki verða rekin í síma. Samstarfs-
menn hafa gaman af félagsskap þínum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Kuldalegt augnaráð manneskju í
valdastöðu veldur þér ugg. Nýr kraftur og
endurnýjun færist í sambönd þín.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Eignirnar skilgreina mann ekki, en gera
þeim sem ekki þekkja til kleift að flokka
mann. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og
gættu heilsu þinnar.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Valdabarátta og ágreiningur við
fjölskyldumeðlimi eru ekki útilokuð. Þú ert
hamhleypa til verka þegar þú tekur þig til.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þó að niðurstöðurnar berist ekki
jafn skjótt og þú hefðir kosið þá er það allt í
lagi. Samband þitt við fjölskyldumeðlimi
batnar til muna á næstu vikum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það vantar ekki mikið upp á að
þér takist að klára það verkefni sem þér
hefur verið falið. Þegar þú gerir það verður
allt þetta leiðilega minnsta mál í heimi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þótt bjartsýnin sé til staðar
máttu ekki láta hana taka svo yfir að þú
gerir þér enga raunhæfa grein fyrir stöðu
þinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú kemst ekki hjá því að taka þátt í
samstarfi í dag svo gerðu þitt besta í stöð-
unni. Svo lengi sem svartsýnin tekur ekki
völdin í lífinu, má hlusta á hana af og til.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is