Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 36

Morgunblaðið - 27.01.2011, Page 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Hin makalausa Lilja Sigurðardóttir Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Sjónvarps- þáttaröðin Maka- laus hefur göngu sína á Skjá ein- um í næsta mán- uði og er stefnt að því að sýna fyrsta þáttinn 17. febrúar. Þætt- irnir eru byggðir á samnefndri skáldsögu Tobbu Marinós. Æfingatökur á þáttunum eru hafnar en á morgun verður hul- unni svipt af því hvaða leikkona fer með aðalhlutverk þáttanna, hlut- verk Lilju Sigurðardóttur, ein- hleyprar stúlku sem býr í Reykja- vík, er nokkrum kílóum of þung og alltaf nokkrum mínútum of sein. Vinkonur hennar eru litríkar, létta henni lífið og Lilja leitar að ástinni. Í helstu hlutverkum eru Birgitta Birgisdóttir, Alexía Björg Jóhannesdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Helgi Björnsson, Guð- mundur Ingi Þorvaldsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson en í þáttunum bregður einnig fyrir þekktum Ís- lendingum, m.a. Þorgrími Þráins- syni, Karli Berndsen og Agli „Gillz“ Einarssyni. Um aðalleikkonuna má segja að hún er fædd 1982, stuð- bolti og með leiklistarmenntun. Leikstjóri þáttanna er Guðlaugur Maggi Einarsson. Hann á mikinn fjölda sjónvarpsauglýsinga að baki en hefur ekki leikstýrt leiknum sjónvarpsþáttum áður. Stutt er í sýningu fyrsta þáttar en Guðlaugur segir að þetta náist alveg. „Þetta er svipað og gert var með Hlemmaví- deó, gert jafnóðum,“ segir hann, þegar tökum hvers þáttar ljúki verði drifið í því að ganga frá hon- um. Blaðamaður tók eftir því í lýs- ingu á þáttunum að ein af persón- unum er „kynlífsgúrú“. Guðlaugur segir að í hugarheimi Lilju birtist ýmsar persónur, m.a. Karl Bernd- sen og kynlífsgúrúinn fyrrnefndi. Í bókinni sé gúrúinn Tracy Cox og reynt hafi verið að fá hana til að leika í þáttunum en ekki tekist. „Þetta er svolítið Sex and the City,“ segir Guðlaugur um þættina. Þætt- irnir verði töluvert frábrugðnir bókinni og Lilja þáttanna býsna ólík þeirri Lilju sem er í skáldsög- unni.  Þættirnir Makalaus, byggðir á bók Tobbu Marinós, sýndir á Skjá einum Ljósmynd/Heimir Sverrisson Æfing Skjámynd af einni af æfingatökunum fyrir Makalausa, aðalpersónan í mynd. Guðlaugur Maggi Einarsson Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hátíðin Reykjavík Shorts and Docs er haldin í tíunda sinn í ár og verða nú um helgina sýndar 40 stuttmyndir, heimildamyndir og teiknimyndir, „allt það nýjasta og ferskasta frá Ís- landi og Norðurlöndum“, eins og um- sjónarmaður hátíðarinnar, Hrafn- hildur Gunnarsdóttir, lýsir því en hún er jafnframt formaður félags kvik- myndagerðarmanna. Hátíðin hefst með boðssýningu í kvöld kl. 20, á heimildarmyndinni Roðlaust og bein- laust sem fjallað er um hér til hliðar. Hrafnhildur segir að hátíðin hafi upphaflega verið sett á laggirnar vegna þess hversu lítið var um sýn- ingar á heimildarmyndum og stutt- myndum í íslenskum kvikmynda- húsum. „Markmiðið var þá að koma heimildarmyndum og stuttmyndum í sýningar og það hefur bara tekist þokkalega,“ segir Hrafnhildur. „Á þessari hátíð núna erum við með nor- rænan fókus. Við erum náttúrlega hluti af þessum norræna heimi, þetta er okkar umhverfi og svona pólitískt séð er mjög athyglisvert, alla vega í þessum norrænu myndum, hvað rík- issjónvarpsstöðvarnar koma sterkt inn í framleiðslunni sem hefur al- gjörlega vantað hér,“ segir Hrafn- hildur um hátíðina í ár. Á hátíðinni verða m.a. sýndar stuttmyndir ungra og efnilegra leikstjóra sem eru að stíga sín fyrstu skref í kvikmynda- gerð og nefnir Hrafnhildur m.a. Frosta Jón Runólfsson og stuttmynd hans Enginn meðal Jón og Maríu Reyndal sem sýnir stuttmyndina Yes Yes. Blóðgemsar og transfólk Í heimildarmyndum hátíðarinnar má m.a. finna pólitísk umfjöllunarefni og siðferðisleg álitamál og nefnir Hrafnhildur sérstaklega mynd danska leikstjórans Franks Poulsen, Blood in the Mobile eða Blóð- gemsa sem vakið hefur mikla at- hygli á kvikmyndahátíðum víða. Myndin fjallar um málma frá Kongó sem notaðir eru í fram- leiðslu á farsímum. Síð- ustu 15 ár hafa fimm millj- ónir manna látist í borgarastyrjöld í landinu og hafa Sameinuðu þjóð- irnar staðfest að tengsl séu á milli hennar og málmiðn- aðarins. Poulsen verður viðstaddur sýningu á myndinni á laugardaginn kl. 20 og mun sitja fyrir svörum að henni lokinni. Þá nefnir Hrafnhildur einnig sænsku heimildarmyndina Ångrarna, eða Eftirsjá, sem hlaut í vikunni Sænsku kvikmyndaverðlaun- in sem besta heimildarmynd ársins 2010. „Hún fjallar um tvo sænska karla sem létu leiðrétta kyn sitt, gengust undir skurðaðgerð til að láta breyta sér í konur. Síðar á ævinni komast þeir að þeirri niðurstöðu að þetta hafi verið mistök og þetta er mjög athyglisvert samtal þeirra á milli,“ segir Hrafnhildur. Myndin verður sýnd á sunnudaginn, 30. jan- úar, kl. 16, og verða pallborðsum- ræður haldnar eftir sýningu myndar- innar en í þeim taka þátt Anna Jonna Ármannsdóttir frá félaginu Trans Ís- lands, Óttar Guðmundsson geðlækn- ir, Rannveig Traustadóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og Tora Victoría, listamaður og trans. Blóðgemsar Stilla úr heimildarmyndinni Blood in the Mobile, eða Blóðgemsum, eftir danska leikstjórann Frank Poulsen. Poulsen verður viðstaddur sýn- ingu á myndinni í Bíó Paradís á laugardaginn kl. 20 og mun svara spurningum bíógesta að henni lokinni og fjalla um myndina. Norrænt, nýtt og ferskt  Heimildar- og stuttmyndahátíðin Reykjavík Shorts and Docs hefst í kvöld í Bíó Paradís og lýkur 31. janúar  40 myndir verða sýndar á hátíðinni  Trúnó og Lessuvinafélagið standa fyrir næstum því allesbísku uppistandskvöldi á Trúnó, Lauga- vegi 22, fimmtudaginn 27. janúar. Fram koma nokkrar af fyndnustu hinsegin konum landsins ásamt heiðursuppistöðu kvöldsins, Sögu Garðarsdóttur, uppistandsstelpu og lesbíuáhugakonu. Meðal annarra sem koma fram eru Sigríður Eir Zophoníasardóttir, fyrrverandi brúðustýra, og Íris Ellenberger, uppistandsstelpa frá Uppistöðu- félaginu. Kynnir kvöldsins er Kviss Búmm Bang-liðinn Eva Björk Kaaber. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Dagskráin hefst upp úr kl. 21. (Næstum því) allesbískt uppistands- kvöld  Sindri Már Sigfússon, sá er leið- ir sveitina Seabear (sem lék á yfir 100 tónleikum erlendis í fyrra) er eins og sjá má orðinn langleiður á biðinni eftir næstu sólóplötu sinni, sem hann gefur út undir nafninu Sin Fang. Platan kallast Summer Echoes og kemur út í mars á veg- um Morr Music í Berlín. Fyrsta sólóplata Sindra kom út 2008, undir heitinu Sin Fang Bous og var lofuð mjög og mærð. Umslag nýju plötunnar er jafnvel enn vír- aðra en sú mynd sem hér gefur að líta, en þar prýðir forláta silki- blúnduskegg meistarann. Sjón er sögu ríkari! Sindri Már er orðinn grænn af því að bíða! Opnunarmynd hátíðarinnar er heimildarmyndin Roðlaust og beinlaust eftir Ingvar Þórisson, frá árinu 2009 en hann fram- leiðir myndina einnig ásamt Hugo Film. Í myndinni er fjallað um áhöfnina á Kleifaberginu ÓF 2 frá Ólafsfirði og er í henni sýnd óvænt hlið á lífi íslenskra sjómanna sem hafa fundið skemmtilega leið til þess að létta sér lífið; að spila og syngja saman í hljómsveit. Lífið á sjón- um er því ekki bara puð, það er rokk í því líka. Í kvöld verður haldin boðssýning á Roðlaust og beinlaust í Bíó Paradís kl. 20. Myndin verður svo sýnd þrjá næstu daga: 28. janúar kl. 22 og 29. og 30. janúar kl. 18. Spilað og sungið á sjó OPNUNARMYNDIN Dagskrá hátíðarinnar og umfjöllun um allar myndirnar má finna á vef Bíó Paradisar, bioparadis.is. Kleifarbergið ÓF 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.