Morgunblaðið - 27.01.2011, Side 37

Morgunblaðið - 27.01.2011, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2011 Ég segi svona …en það er vel hugs- anlegt. Deerhoof, með sína ómæt- stæðilegu blöndu af sumarskotnu poppi og víraðri til- raunastarfsemi sem hreinlega leikur í höndunum á liðsmönnum. Greg Saunier, trymbillinn knái og nokk- urs konar hryggjarstykki sveit- arinnar, er klassískt menntaður en ævintýragjarn fram úr hófi og þessi blanda er lykillinn að velgengni Deerhoof. Allar tilraunir, allir út- úrdúrar frá því sem við skiljum sem „hefðbundnar“ lagamíðar, hvert ein- asta þrusk raunverulega þjónar til- gangi. Það er ekki vottur af stælum eða „Hei, sjáið hvað við getum!“ við- horfi, heldur er tónlistargyðjunni þjónað af sönnu æðruleysi og mynd- arskap. Tónlistin ein skiptir máli. Þetta er tíunda hljóðversplata sveit- arinnar og víða er um völl farið, jafn- vel víðar en á síðustu plötu (Offend Maggie, 2008) en allt gengur upp líkt og fyrri daginn. Ekki klikka á Deerhoof! Deerhoof - Deerhoof vs. Evil bbbbb Besta sveit í heimi? Arnar Eggert Thoroddsen Hún er undarleg, þessi þriðja plata Joan Wasser, sem kallar sig list- mannsnafninu Joan as a Police Woman. Wasser hafði lengi vel verið einn af best tengdu og eft- irsóttustu leiguspilurum New York- borgar en ákvað að ryðjast fram með sólóverk árið 2006, plötuna Real Life. Forkunnarfagrir dómar hrúguðust upp í öllum þeim miðlum sem máli skipta og ekki lækkaði í bunkanum er önnur platan, To Survive, kom út tveimur árum síðar. Hér má heyra ástríðufulla rödd Wasser, í bland við einhvers konar rokk, smá R og B, smá elektróník, smá þetta og smá hitt. Vandamálið er bara það að þessir ólíku þættir koma ekki saman, heldur rekast fremur óþægilega hver utan annan. Laga- smíðarnar fljóta því fram hjá manni og þrátt fyrir ítrekuð rennsli situr lít- ið sem ekkert eftir í manni. Já, ég veit, ég skil þetta ekki heldur. En svona getur nú tónlistin spilað með mann stundum. Að vaða á grynningum Joan as a Police Woman – The Deep Field bbnnn Arnar Eggert Thoroddsen Breska tónlist- arkonan Adele hefur sent frá sér sína aðra plötu, nefnist hún 21, fyrsta hét 19 og fá þær heiti eftir þeim aldri sem Adele er á þegar hún vinnur þær. Það hefur verið ljóst frá upphafi að Adele hefur röddina, hæfileikar hennar eru náttúrulegir, hún er frábær söng- og tónlistarkona með sérstaka rödd sem minnir stundum á Janis Joplin þó að röddin sé ekki nærri því eins sjúskuð. Platan byrjar á „Rolling in the Deep“ sem var jafnframt fyrsta smáskífan af plötunni, flestir sem hlusta á útvarp ættu að þekkja það. Þetta er nútíma sál tónlist sem má dilla sér við, afskaplega grípandi lag og viðeigandi að byrja plötuna á því. Næst kemur „Rumo- ur Has It“ sem er ekki síðra en öðruvísi, lag með rokki og sál. „Don’t You Remember“ er ballaða sem á eflaust eftir að verða vinsæl hjá fólki í ástarsorg. „Someone Like You“ er lokalagið, bara söng- ur og píanó, og afskaplega fallegt. Platan byrjar á stuði sem minnkar svo þegar á hana líður. Lögin ell- efu blandast í sál, rokk, ballöður, kántrí og fleira. Adele vann plöt- una með flottu liði og það verður að segjast að þetta er fagmannlegt fram í fingurgóma. 21 er kraftmikil og falleg plata sem mér fannst reyndar stundum verða heldur einsleit. Hún vex þó með hverri hlustun og er fullkomin fyrir þá sem eru í ástarsorg og vantar undirspil þegar þeir ríða berbakt á hvítum fáki meðfram strandlengjunni og rifja upp stundirnar með fyrrum ástvini. Kraftmikil og flott söngkona Adele – 21 bbbmn Ingveldur Geirsdóttir Adele Besta unga tónlistarkonan nú um mundir. Erlendar plötur „Hann átti mikið inni“ Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink, eða Sjonni Brink, féll frá þann 17. janúar síðastliðinn, aðeins 36 ára að aldri. Sigurjón hafði undanfarin ár verið á talsverðri siglingu í poppheimum og var orðinn þekkt- ur sem söngvari og lagahöfundur. Gaf hann út sólóplötu jólin 2009 og átti hið vinsæla lag „Waterslide“ í síðustu söngvakeppni Sjónvarps- ins. Staldrað við í sándtékki Í keppninni í ár ætlaði Sigurjón að syngja eigið lag, „Aftur heim“ og átti flutningurinn að fara fram nú á laugardaginn. Í stað þess að draga lagið úr keppni ákváðu vinir hans úr tónlistarheimum að flytja lagið en þeir eru Hreimur Örn Heimisson, Gunnar Ólason, Bene- dikt Brynleifsson, Vignir Snær Vigfússon, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson. „Við ákváðum þetta með Þór- unni (Ernu Clausen, eiginkonu Sjonna, en hún á textann),“ segir Benedikt. „Sjonni var búinn að leggja mik- ið í þetta lag og var hrikalega ánægður með það. Okkur fannst rétt að það fengi að njóta sín.“ Benedikt segir að um nokkurs konar samsöng verði að ræða, þeir vinirnir munu skipta erindum bróðurlega á milli sín og hjálpast að með raddirnar. „Ég kynntist Sjonna 2002 ef ég man rétt. Ég var þá að tromma með 200.000 naglbítum. Hann var þá í hljómsveitinni Flavors og við vorum að spila saman á Airwaves. Ég man að ég staldraði við þegar Sjonni og þeir voru að sándtékka, ég fann að það var eitthvað að ger- ast þarna. Þetta er í eina skiptið á ævinni sem ég hef stoppað svona. Við ræddum síðan saman drykk- langa stund eftir tónleikana. Seinna vantaði svo trommara í bandið, Sjonni hringdi í mig og ég tók boðinu með miklum þökkum. Ég spilaði með sveitinni í nokkur ár. Sjonni var í mjög góðum gír síðustu ár og hann átti mikið inni.“Vinir Sjonni og vinir hans syngja „Waterslide“ í keppninni í fyrra.  Vinir Sjonna Brink flytja lag hans „Aftur heim“ í söngvakeppninni „BREATHTAKING“ - THE PEOPLE HHHHH MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA FRANK OG CASPER MUNU FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FYNDNASTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Í BÍÓ LENGI ATH. NÚMERUÐ SÆTI Í KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA ATH. NÚMERUÐ SÆTI Í ÁLFABAKKA (VIP) HHHHH - POLITIKEN HHHHH - EKSTRA BLADET HHHH - H.S.S - MBL EIN MAGNAÐASTA ÞRÍVÍDDARMYND ALLRA TÍMA M A T T D A M O N HHHH „ÞETTA ER MYND FYRIR GÁFAÐ FÓLK SEM ER NÁTTÚRULEGA FOR- VITIÐ UM HVAÐ GERIST ÞEGAR YFIR MÓÐUNA MIKLU ER KOMIÐ.“ - ROGER EBERT HHHH -THE HOLLYWOOD REPORTER H E R E A F T E R NÝJASTA MEISTARVERK CLINT EASTWOOD SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA FBL. - F.B. HHHH MBL. - H.S. HHHH SÝND Í EGILSHÖLL ERU FRÁBÆRAR Í ÞESSARI BRÁÐFYNDNU GAMANMYND MARGT GETUR FARIÐ ÚRSKEIÐIS ÞEGAR GAMLAR ÓVINKONUR ÚR FRAMHALDSKÓLANUM HITTAST Á NÝ H.S. - MORGUNBLAÐIÐ HHHH Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN HHH SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI, SELFOSSI OG KEFLAVÍK Í 3D LÖGIN ERU BROTIN ÞEIM TIL BJARGAR SETH ROGEN JAY CHOU CHRISTOPH WALTZ AND CAMERON DIAZ SÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSIÍ LFABA KA, EGILSHÖLL, K INGLUNNI OG A UREYRI SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. HHHHH „SKEMMTILEG, FYNDINN OG SPENNANDI” - S.V BOXOFFICE MAGAZINE SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI „HIN FULLKOMNA STEFNUMÓTAMYND.“ - BONNIE LAUFER, TRIBUTE CANADA „SPRENGHLÆGILEG.“ - ALI GRAY, IVILLAGE.COM HARRY POTTER, HERMIONE GRANGER, RON WEASLEY OG VOLDEMORT ERU KOMIN AFTUR Í MAGNAÐASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA HHHH - BOXOFFICE MAGAZINE HHHH - Time Out New York „IT’S THE BEST FILM IN THE SERIES.“ - ORLANDO SENTINEL HHHH „ÞETTA ER KLASSÍK VORRA TÍMA.“ - Ó.H.T. – RÁS 2 HHHH MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 14 KLOVN - THE MOVIE kl. 8 - 10:20 VIP ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:50 ísl. tal L ROKLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 YOU AGAIN kl. 5:50 - 8 - 10:20 L HEREAFTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 12 HARRY POTTER kl. 8 10 LIFE AS WE KNOW IT kl. 10:40 L / ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / AKUREYRI / SELFOSSI ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:30 ísl. tal L THE GREEN HORNET 3D kl. 5:20 - 8 - 10:40 12 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:30 - 8 - 10:15 14 ROKLAND kl. 8 - 10:30 12 GULLIVER'S TRAVELS 3D kl. 5:30 L HEREAFTER kl. 8 12 TRON: LEGACY 3D kl. 10:40 10 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 9 - 10:10 14 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 6:20 ísl. tal L TANGLED 3D enskt tal kl. 8 L YOU AGAIN kl. 8 - 10:20 L MEGAMIND ísl. tal kl. 5:50 L ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI kl. 5:50 ísl. tal L YOU AGAIN kl. 8 L ROKLAND kl. 10:10 12 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:10 14 THE GREEN HORNET kl. 8 - 10:20 12 KLOVN - THE MOVIE kl. 8 14 ROKLAND kl. 10:10 12 THE TOURIST kl. 8 - 10:10 12 ROKLAND kl. 8 12 PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 10:20 16 / KEFLAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.