Morgunblaðið - 27.01.2011, Side 40
Gná segir að sér hafi gengið vel að
vinna með Líberíumönnum. „Líb-
eríumenn eru gott fólk. Þeir eru
bara öðruvísi en við og við
getum ekki metið þá út frá
okkar gildum og við-
miðum. Það eru bara
aðrir hlutir sem eru
eðlilegir í Líberíu en
ganga ekki hér,“ segir
hún. Í Líberíu sé t.d. ekki
óalgengt að menn geri út
um hlutina sín á milli
fremur en að kalla til
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 27. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Lítur 14 ára út fyrir að vera 24?
2. Skar bekkjarbróður sinn
3. Frekar handleggi en jeppa
4. 29 ára afi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Jón Þór Þorleifsson hefur tekið við
stöðu rokkstjóra tónlistarhátíð-
arinnar Aldrei fór ég suður. Þetta
þýðir að hátíðin verður haldin en
nokkurrar óvissu hefur gætt um
framtíð hennar. BB greinir frá.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Jón Þór er nýr
rokkstjóri
Vinir Sigurjóns
Brink, sem lést á
sviplegan hátt
hinn 17. janúar,
munu flytja lag
hans í söngva-
keppni sjónvarps-
ins nú á laugar-
daginn.
„Sjonni var bú-
inn að leggja mikið í þetta lag og var
hrikalega ánægður með það,“ segir
Benedikt Brynleifsson m.a., en hann
er einn sexmenninganna sem munu
flytja lagið. »37
„Var búinn að leggja
mikið í þetta lag“
Í kvöld munu Þórhallur Þórhallsson
(Fyndnasti maður Íslands 2007) og
Haukur Þorsteinsson (Furðulegasti
maður Kópavogs 2009) kitla hlát-
urtaugar fólks á Faktorý.
Frítt verður inn á þessa skemmtun
og hvetja þeir félagar alla til að koma,
„hlæja fyrir allan pening-
inn,“ og hætta
öllu skamm-
deg-
isþung-
lyndi.
Fávitar troða upp
á Faktorý
Á föstudag Vestan 10-15 m/s og slydduél eða él en hægari og bjart að mestu aust-
anlands. Frostlaust með ströndinni en vægt frost inn til landsins.
Á laugardag Vaxandi sunnan- og suðvestanátt. Rigning sunnan- og vestanlands, en
slydda til landsins. Annars úrkomulítið. Heldur hlýnandi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning með köflum, hvassast um landið norðvestanvert, en hæg-
ari og þurrt að mestu austanlands. Hægt minnkandi vindur og kólnar heldur í veðri.
VEÐUR
Við sem fylgjum íslenska
liðinu af heilum hug upp-
lifum nú vonbrigði. Ekki
vegna þess að 5.-6. sæti sé
ekki boðlegt heldur einfald-
lega vegna þess að mögu-
leikarnir á því að komast í
undanúrslit, að riðlakeppn-
inni lokinni, voru virkilega
góðir. Ekki er sjálfgefið að
liðið komi sér í slíka stöðu
þrátt fyrir framúrskarandi
árangur undanfarin
ár. »1
Upplifum nú von-
brigði á HM
Liverpool komst upp í sjöunda sætið í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöld þegar liðið bar
sigurorð af Fulham, 1:0, á
Anfield. Þetta var annar
sigurleikur liðsins í
röð undir stjórn
Kennys Dalglish
og liðið er
greinilega á
réttri leið
undir hans
stjórn. »3
Annar sigurleikurinn
hjá Liverpool í röð
Fram var ekki í vandræðum með að
tylla sér á topp N1-deildar kvenna í
handknattleik í gærkvöld. Framarar
tóku á móti Fylkiskonum og Árbæj-
arliðið var tekið í netta kennslustund
í Safamýrinni því Fram fagnaði 16
marka sigri í afar ójöfnum leik. Bik-
armeistarar Fram hafa 22 stig en á
hæla þeirra koma Íslandsmeistarar
Vals og Stjarnan með 20 stig. »2
Fram rótburstaði Fylki
og fór í toppsætið
ÍÞRÓTTIR
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Gná Guðjónsdóttir er nýkomin heim
eftir tveggja ára starf hjá Sameinuðu
þjóðunum í Líberíu á vegum Ís-
lensku friðargæslunnar, þar sem hún
vann við að byggja upp lögregluna í
landinu eftir áralangt borgarastríð.
Ekki veitir af því starfsaðstaða líb-
erískra lögreglumanna er vægast
sagt slæm. Þar að auki er kaupið lágt
eða um 100 dollarar á mánuði. „Lög-
reglumenn vinna alla daga vikunnar.
Þeir hafa nánast engin tæki eða bún-
að. Stundum hafa þeir varla penna og
blöð til að skrifa á. Á flestum lög-
reglustöðvum utan við höfuðborgina
Monróvíu er ekki einu sinni raf-
magn,“ segir Gná. Þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika gangi ágætlega að upplýsa
glæpi en reyndar sé glæpatíðni í Líb-
eríu ekki há.
Gná segir greinilegt að uppbygg-
ingarstarf SÞ í landinu á und-
anförnum árum hafi skilað árangri.
Mikil áhersla sé lögð á að styrkja lög-
regluna enda sé litið svo á að sterkt
lögreglulið sé grundvöllur stöð-
ugleika.
Fangar fluttir með leigubílum
Gná stjórnaði deild sem tók þátt í
að stýra fjárveitingum frá SÞ og að-
ildarríkjum þeirra til að kaupa hús-
næði og hvers kyns búnað fyrir lög-
regluna í Líberíu. Á þeim tíma sem
Gná var við störf í Líberíu luku SÞ
við að byggja 30-40 lögreglustöðvar,
afhentu yfir 100 lögreglubíla og alls
kyns búnað sem gagnast við að upp-
lýsa glæpi. Gná segir að húsakynni
lögreglunnar hafi verið æði misjöfn
þegar hún kom til starfa. Í mörgum
tilvikum hafi lögreglustöðin verið í
strákofa eða jafnvel í einu leigu-
herbergi. Þá hafi lögreglan víða ekki
átt bíla og því hafi hún þurft að flytja
fanga með leigubílum. Þetta horfi allt
saman til bóta.
Gná ætlaði að vera í eitt ár í Líb-
eríu en að beiðni yfirmanna sinna
ytra framlengdi hún starfstímann
tvívegis um hálft ár í senn.
Gná var ekki á launum hjá SÞ
heldur borgaði íslenska ríkið laun og
kostnað sem reiknast sem framlag til
þróunarstarfs. Alls hafa fimm ís-
lenskir lögreglumenn starfað í Líb-
eríu.
Gná segir að það sé mikil synd að
Íslenska friðargæslan hafi hætt þátt-
töku í uppbyggingarstarfi í Líberíu
því ytra hafi menn haft sérstaklega á
orði að Íslendingarnir hefðu staðið
sig vel. „Við erum vön því að redda
hlutunum og ganga í verkin,“ segir
Gná. Þetta sé að mörgu leyti sér-
íslenskur eiginleiki og helgist ekki
síst af því að Íslendingar séu svo fáir
að þeir venjist því að sinna mörgum
ólíkum verkum en séu síður sérhæfð-
ir á þröngu sviði. Oft sé það kostur.
Rannsakað án blaðs og penna
Íslensk lögreglu-
kona að störfum í
Líberíu í tvö ár
Samvinna Gná Guðjónsdóttir með Tompson Yawelka, yfirmanni fasteigna líberísku lögreglunnar, og Benettu
Holder Warner og Aaron Mulbah. Gná er snúin aftur til alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra.
lögreglu og menn oft fljótir að æsa
sig. Hugsanlega sé þetta afleiðing
af langvinnum ófriði.
Gná segir að Líb-
ería sé tiltölulega
öruggt land og sér
hafi aldrei fundist
sem sér væri hætta búin.
Líkt og á Íslandi eru almennir
lögreglumenn óvopnaðir. Sér-
sveitir bera þó vopn og
sérsveitarmennirnir sem
sjást á myndinni hér til
hliðar eru að æfa vopnaburð.
Líberumenn eru gott fólk
LÖGREGLUMENN FLESTIR VOPNLAUSIR