Morgunblaðið - 14.02.2011, Side 1
M Á N U D A G U R 1 4. F E B R Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 37. tölublað 99. árgangur
FAGURHYRND,
SKEMMTILEG OG
SPÖK SKEPNA
JARÐLESTIR GÆTU
SPARAÐ TUGI
MILLJARÐA KRÓNA
HERSKARI
LYMSKUFULLRA
ÍMYNDARSMIÐA
HAGKVÆMNI KÖNNUÐ 7 STJÖRNUÍMYNDIR 28ÍSLENSKA GEITIN 10
Líf er að fær-
ast í bílamark-
aðinn hér á landi
eftir mikinn sölu-
samdrátt á síð-
ustu þremur ár-
um, að sögn
Sverris Viðars
Haukssonar,
framkvæmda-
stjóra Heklu.
Þá hefur bíla-
leigan ALP samið við B&L og Ingv-
ar Helgason um kaup á 215 bílum.
B&L og Ingvar Helgason hafa nú
gert samninga um sölu á um 400
bílaleigubílum. Gert er ráð fyrir að
leigurnar kaupi alls um 2.000 bíla á
árinu. »12
Líf að færast í
bílamarkaðinn að
nýju eftir hrunið
Batamerki Bílasal-
an að glæðast.
Skuldabréf NBI
» Tvær nefndir Alþingis munu
í dag ræða hugsanlegt gjald-
eyrismisvægi NBI á næstu ár-
um. Skilanefndin hefur lýst yfir
áhyggjum af væntu gjaldeyris-
flæði bankans.
» Formaður fjárlaganefndar
segir vandamálið tengjast
gjaldeyrisflæði þjóðarbúsins.
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Fjárlaganefnd mun í dag taka til um-
fjöllunar álitaefni er tengjast skulda-
bréfi sem NBI gaf út til skilanefndar
Landsbankans. Fram kom í Morgun-
blaðinu á laugardag að skilanefndin
hefði sent NBI og Bankasýslu ríkis-
ins bréf, þar sem lýst er yfir áhyggj-
um af misræmi í gjaldeyrisflæði NBI.
Hefur skilanefndin af því áhyggjur að
NBI geti aðeins greitt um 229 millj-
arða af 282 í erlendum gjaldeyri af
þeim sökum, verði ekki gripið til ann-
arra ráðstafana. Oddný Harðardótt-
ir, formaður fjárlaganefndar, segir að
stjórnarformaður Bankasýslunnar
muni koma á fund nefndarinnar í dag,
auk fulltrúa fjármálaráðuneytisins og
Seðlabanka Íslands. Viðskiptanefnd
Alþings mun einnig taka sömu mál til
umræðu í dag. „Við ætlum að fara yfir
þau mál sem hafa verið til umfjöll-
unar í fjölmiðlum að undanförnu. Það
er að segja skuldabréf sem NBI gaf
út til skilanefndar Landsbankans og
varðar skiptingu eigna milli gamla og
nýja bankans, sem og gjaldeyrisflæði
til og frá landinu á næstu árum. Þessi
álitaefni eru auðvitað ekkert sem
kemur á óvart, en það er rétt að taka
þetta til sérstakrar skoðunar. Þetta
mál tengist náttúrlega ríkisábyrgð á
Icesave, þó það hafi ekkert með
samningana við Breta og Hollend-
inga að gera. Í rauninni er engin
óvissa um þessa ákveðnu eign.
Vandamálið tengist gjaldeyrisflæð-
inu,“ segir Oddný.
MSegir málum haldið frá »6
Rætt í nefndum Alþingis
Fjárlaganefnd og viðskiptanefnd Alþingis taka hugsanlegt gjaldeyrismisræmi
NBI til umfjöllunar í dag Erlent skuldabréf NBI á að ganga upp í Icesave
Umsóknir um úttekt
á séreignarsparnaði
eftir aldri
18-30
ára
31-40
ára
41-50
ára
51-60
ára
61 árs
og eldri
9.
83
6 1
5.
85
3
14
.8
79
10
.7
39
1.
0
94
Frá því í mars árið 2009 hafa ríf-
lega 52 þúsund manns nýtt sér
heimild til að taka út séreignar-
sparnað, eða viðbótarlífeyrissparn-
að, samkvæmt upplýsingum frá
embætti ríkisskattstjóra. Sótt hefur
verið um að taka út sparnað upp á
rúma 49 milljarða króna, brúttó.
Nú þegar er búið að greiða um 39
milljarða króna og afgangurinn
verður að mestu greiddur út á
þessu ári. Um tímabundna heimild
er að ræða, fyrir þá sem eru yngri
en 60 ára, en frestur til að sækja
um úttektirnar rennur út 1. apríl
nk. Hámarksúttekt er 5 milljónir
króna en fjármálastofnanir greiða
sparnaðinn út með jöfnum mán-
aðarlegum greiðslum, að frádregn-
um tekjuskatti og útsvari. Hægt er
að nýta persónuafsláttinn á móti en
nettógreiðslur liggja ekki fyrir hjá
ríkisskattstjóra. Ljóst má vera að
skatttekjur ríkissjóðs vegna þessa
nema á annan tug milljarða króna.
Miðað við sama tíma í fyrra hefur
umsækjendum meðal yngra fólks
fjölgað. Þannig hafa um 10 þúsund
manns á aldrinum 18-20 ára tekið
sparnaðinn út. bjb@mbl.is »14
52 þúsund hafa tekið út
Séreignarsparnaður upp á 49 milljarða króna tekinn út
Danshljómsveit Vilhjálms Guðjónssonar lék fyrir
dansi í gyllta salnum á Hótel Borg í gærkvöldi, á
gamaldags dansiballi. Það var danskennarinn
Heiðar Ástvaldsson sem veitti dönsurum aðstoð,
ef hennar reyndist þörf. Hljómsveitin lék undir
samkvæmisdönsum, gömlu dönsunum og rokki
og róli og hyggst endurvekja gömlu stemn-
inguna á Borginni. Ekki verður annað séð en að
það hafi tekist með ágætum og sveiflan góð.
Dansiball á Borginni að gömlum sið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ofbeldi er að aukast á Íslandi að
sögn Þóris Steingrímssonar, for-
manns Félags íslenskra rannsókn-
arlögreglumanna, og þá sér-
staklega kynferðisafbrot. „Eftir að
þessi sérstaka kynferðisafbrota-
deild var stofnuð opnuðust ýmsar
gáttir, það er eins og fólk leiti þá
frekar til lögreglu en til annarra
stjórnvalda,“ segir Þórir en FÍR
hélt námstefnu um helgina þar sem
fjallað var um ofbeldi á Íslandi. »9
Kynferðisafbrot að
aukast hér á landi
„Við erum sammála um að mark-
mið með hernaðarlegri nærveru
okkar á Íslandi eru að nýta sem
best þau áhrif sem vera herliðs okk-
ar á Íslandi þýða, um leið og við
leitum leiða til að minnka viðveru
okkar þar“.
Þetta kemur fram í bréfi sem
Colin Powell, fv. utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sendi Donald
Rumsfeld, fyrrverandi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, í júlí
2001 og birt er á vef Rumsfelds.
Bandarísk yfirvöld tilkynntu lok-
un herstöðvar varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli í mars 2003, að
áeggjan Rums-
felds, að því er
talið er. Varnar-
liðið fór alfarið í
lok september
árið 2006.
Bréfin á vef-
síðu Donalds
Rumsfelds verða
að teljast áhuga-
verð í ljósi þess
að hann neitaði
því í samtali við Morgunblaðið í
október 2006 að hann hefði í mörg
ár viljað flytja varnarliðið frá Ís-
landi. »13
Þegar gert ráð fyrir lokun
herstöðvarinnar árið 2001
Donald
Rumsfeld
Skólastjórnendur í Reykjavík eru
uggandi um störf sín og áhyggju-
fullir, að sögn Ingibjargar Jósefs-
dóttur, formanns Félags skóla-
stjórnenda í Reykjavík. Hætta er á
uppsögnum skólastjórnenda verði
af áformum borgaryfirvalda um
sameiningu og samrekstur grunn-
og leikskóla. Ingibjörg segir mögu-
legar uppsagnir fyrst og fremst
snerta stjórnendur, ekki kennara.
Hún segir skólastjóra vilja taka
þátt í umræðunni um sparnað en
þeim þyki ekki tímabært að ráðast í
sameiningu og samrekstur að svo
stöddu. Lítill ávinningur sé af upp-
sögnum á þessu ári vegna biðlauna
stjórnenda. »4
Skólastjórnendur
áhyggjufullir