Morgunblaðið - 14.02.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Unnið var að því í gær að leggja
lokahönd á kaup Lotnu hf., félags í
eigu Sigurðar Aðalsteinssonar og
Kristjáns Kristjánssonar, á eignum
úr þrotabúi fiskvinnslufyrirtækisins
Eyrarodda á Flateyri. Guðmundur
Björgvinsson, formaður íbúasam-
taka Önundarfjarðar, segir tíðindin
mjög jákvæð. „Nú verða menn bara
að koma og sanna sig. Ég vona að
hér séu menn ekki að tjalda til einn-
ar nætur heldur langrar framtíðar,“
segir hann. Engin fiskvinnsla hefur
verið á Flateyri síðan milli jóla og
nýárs. „Hér hafa menn bara beðið
með öndina í hálsinum. Hér er eng-
inn að pakka saman og fara, fólk hef-
ur vonast eftir því að með hækkandi
sól myndi greiðast úr þessum mál-
um,“ segir Guðmundur. „Það sem af
er ári hafa menn bara verið að þreyja
þorrann. Nú fer að styttast í góuna,
ég vona að Önfirðingar þurfi ekki að
þreyja hana líka. Ég veit ósköp lítið
um þessa aðila sem voru að kaupa,
fyrir hvað þeir standa og hvað þeir
hafa að baki sér en við reynum að
vera bjartsýn.“
Kristján Kristjánsson sagði í sam-
tali við mbl.is í gær að líklegt væri að
20-30 manns yrðu ráðnir til nýs fisk-
vinnslufyrirtækis á Flateyri. Fjöldi
starfsmanna færi þó eftir framboði
hráefnis til vinnslunnar. thg@mbl.is
„Enginn að pakka saman“
Eignir úr þrotabúi Eyrarodda á Flateyri við Önundarfjörð seldar til Lotnu
Fiskvinnsla á Flateyri
» Engin fiskvinnsla hefur verið
á Flateyri síðan milli jóla og ný-
árs.
» Lotna hf., félag í eigu Sig-
urðar Aðalsteinssonar og
Kristjáns Kristjánssonar, hefur
keypt eignir úr búi Eyrarodda.
» Formaður íbúasamtaka Ön-
undarfjarðar segir Flateyringa
hafa beðið með öndina í háls-
inum frá áramótum.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Flateyri Unnið hefur verið að sölu
eigna Eyrarodda til Lotnu hf.
Talið er að um 2.000 lítrar af svartolíu hafi lekið í sjó-
inn við Örfirisey í gær þegar mistök voru gerð við dæl-
ingu olíunnar úr tankbíl yfir í togarann Eldborgu.
Starfsmenn Olíudreifingar og Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins voru fram eftir degi við hreinsunarstörf.
Settar voru m.a. upp flotgirðingar og olíunni dælt upp.
Morgunblaðið/Júlíus
Mistök við dælingu um borð í Eldborgu
Olía lak í sjóinn við Örfirisey
Mikið var að
gera í sjúkra-
flutningum á höf-
uðborgarsvæð-
inu um helgina.
Þær upplýsingar
fengust hjá
slökkviliði höf-
uðborgarsvæð-
isins að helgin
hefði verið mjög
erilsöm, með 30
til 40 sjúkraflutninga hvorn daginn,
laugardag og sunnudag.
Slökkviliðið þurfti líka að sinna
olíulekanum í Reykjavíkurhöfn. Þá
varð eitt umferðarslys á Víkurvegi
í Grafarvogi seinnipartinn í gær
þar sem jeppi ók inn í hlið fólksbíls.
Þrír voru fluttir á slysadeild en
meiðsli þeirra eru ekki talin vera
alvarleg.
Mjög erilsöm helgi
hjá sjúkraflutn-
ingamönnum
Að störfum Helgin
var annasöm.
Kópavogsbær
hefur dregið til
baka uppsögn
Jónasar Ingi-
mundarsonar pí-
anóleikara sem
tónlistarráðu-
nautar bæjarins.
Hefur hann fall-
ist á að halda því
starfi áfram. Í til-
kynningu bæj-
arins kemur fram að uppsagn-
arbréf hafi verið sent fyrir mistök
og Jónas beðinn afsökunar á því.
Uppsögn Jónasar
dregin til baka
Jónas
Ingimundarson
Bílvelta varð á Fagradal um átta-
leytið í gærkvöldi. Þar valt fólksbíll
með fjórum farþegum. Enginn
þeirra slasaðist. Slysið má rekja til
hálku, að sögn lögreglunnar á Eg-
ilsstöðum, en sérstök viðvörun var
gefin út um hálku á veginum um
Fagradal og vegunum í kringum
Egilsstaði.
Þá valt bíll á Hellisheiði um miðj-
an dag í gær. Þeir fimm sem voru í
bílnum voru fluttir á slysadeild
Landspítalans en fjórir þeirra voru
útskrifaðir fljótlega. Sá fimmti var
ekki lífshættulega slasaður.
Bílveltur á Fagra-
dal og Hellisheiði
til að færa lánin niður, eða réttara
sagt afskrifa hluta þeirra. Síðan þá
hefur vinna verið í gangi í velferð-
arráðuneytinu til að sníða af þessa
agnúa og um helgina var búist við að
fjármálaráðuneytið lyki við kostnað-
armat, en ríkissjóður þarf að leggja
Íbúðalánasjóði til aukið fé vegna
þessa. Samkvæmt fjáraukalögum
höfðu stjórnvöld ákveðið að leggja til
33 milljarða króna en það mun ekki
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra hyggst á næstu dögum
koma með frumvarp inn á þingið sem
veitir Íbúðalánasjóði skýrari heimild
til að færa íbúðalán niður í 110% af
markaðsvirði, líkt og bankarnir hafa
verið að boða.
Þar sem þessa heimild hefur skort
hefur það einnig tafið afgreiðslu
bankanna á umsóknum fólks, því
margir eru með lán hjá fleiri en einni
fjármálastofnun. Hefur lántökum
verið leiðbeint að snúa sér fyrst til
þess lánveitanda sem er á aftasta
veðrétti en nauðsynlegt flæði gagna
á milli lánveitenda hefur ekki komist
á enn sem komið er. Hafa samráðs-
fundir átt sér stað milli bankanna og
Íbúðalánsjóðs vegna þessa.
Sjóðurinn þarf meira fé
Eftir að stjórnvöld og bankarnir
komust í janúar sl. að samkomulagi
um aðlögun íbúðalána kom í ljós að
Íbúðalánasjóður hefði ekki heimild
Beðið heimildar til niðurfærslu
Íbúðalánasjóð skorti heimild til niðurfærslu lána Hefur tafið afgreiðslu mála
hjá bönkunum Reiknað er með frumvarpi velferðarráðherra í þessari viku
Morgunblaðið/Sverrir
Íbúðalánasjóður Um 500 umsóknir hafa borist sjóðnum um niðurfærslu
íbúðalána í 110% af markaðsvirði eignar. Mun fleiri munu bætast við.
uppfylla ekki skilyrði um niður-
færslu. Sigurður segist ekki eiga von
á að tafir verði á afgreiðslu umsókna.
Lagabreytingin eigi vonandi að geta
farið hratt í gegnum þingið þar sem
um lagatæknilegt atriði sé að ræða,
til að leysa skuldavanda heimilanna.
„Við höfum tekið við öllum um-
sóknum og um leið og lagaheimildin
liggur fyrir þá fer þetta vonandi að
rúlla af stað,“ segir Sigurður.
duga til að mæta þörfum sjóðsins.
Sigurður Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir
þetta ekki hafa tafið umsóknir um
niðurfærslu lána að neinu leyti. Búið
er að taka við um 500 umsóknum og
býst Sigurður við að þær verði mun
fleiri, þær geti hlaupið á nokkrum
þúsundum.
Jafnframt hefur nokkrum um-
sóknum verið hafnað, þar sem þær
Skuldavandinn
» Eftir að stjórnvöld höfðu
komist að samkomulagi við
bankana um skuldaaðlögum og
niðurfærslu lána kom í ljós að
Íbúðalánasjóð skorti heimild til
að færa lánin niður.
» Bankarnir og Íbúðalánasjóð-
ur hafa tekið við umsóknum
um niðurfærslu en ekki getað
klárað málin af þessum sökum.
Undirskriftasöfn-
un undir yfir-
skriftinni „Kjós-
um!“ á vefsíðunni
kjosum.is hófst
sl. föstudags-
kvöld en hópur
sem kallar sig
Samstaða þjóðar
gegn Icesave
stendur fyrir henni. Undir miðnætti
í gærkvöldi höfðu um 10.000 skráð
nöfn sín undir yfirlýsingu á síðunni
svohljóðandi: „Ég skora á Alþingi að
hafna frumvarpi um ríkisábyrgð
vegna Icesave-reikninga Lands-
bankans. Ég heiti jafnframt á for-
seta Íslands, herra Ólaf Ragnar
Grímsson, að synja því laga-
frumvarpi staðfestingar verði það
samþykkt á Alþingi. Ég vil að þjóðin
fái að úrskurða um þetta mál.“
Stuðningsmenn Icesave opnuðu
svo í gærkvöldi vefsíðu, Icesave Já
takk, þar sem hægt er að lýsa yfir
stuðningi við frumvarpið. Fjöldi
undirskrifta kemur ekki fram þar.
Skorað á Al-
þingi og for-
seta Íslands
Um 10 þúsund
skráð sig á kjosum.is