Morgunblaðið - 14.02.2011, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.02.2011, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011 aðra leiðina+990 kr. 14.–28. febrúar 2011 (flugvallarskattur) Þetta einstaka tilboðsfargjald gildir til allra áfangastaða Flugfélags Íslands innanlands er fyrir börn, 2 –11 ára, í fylgd með fullorðnum og í sömu bókun býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is ferðatímabil 14.– 28. febrúar 2011 1 króna fyrir barnið www.flugfelag.is | 570 3030 ÍS L E N SK A SI A. IS FL U 53 58 8 02 .2 01 1 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Kennarar og nemendur við verk- fræðideild Háskóla Íslands vinna nú að frumkönnun á gagnsemi jarð- lestakerfa fyrir almenningssam- göngur á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið, sem fengið hefur nafnið Metró, fékk nýverið framhalds- styrk úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar upp á 1,5 milljónir króna. Björn Krist- insson verkfræð- ingur fer fyrir hópnum. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að búið sé með styrkjum að fjár- magna um þriðj- ung verkefnisins en áætlaður kostnaður við hagkvæmniathugunina er um 15 milljónir króna. Að sögn Björns er verið að safna upplýsingum frá ýmsum aðilum en auk þátttöku kennara og og MS- nemenda verður einnig leitað til sérfræðinga utan skólans. Kanna þarf jarðlög, skipulag, orkuöflun og ýmsa aðra þætti, eins og tengikerfi með skutlum eða vögnum við bið- stöðvar jarðlestanna Gæti sparað 50 milljarða Björn telur að til lengri tíma litið geti jarðlestakerfi borgað sig, sé aðeins litið til kostnaðar af bílaflota landsmanna á ári hverju, sem áætl- aður er um 150 milljarðar króna að mati FÍB. Skjóta megi á að 10 km langt jarðlestakerfi kosti um 50 milljarða króna, en það sé þá ein- skiptiskostnaður. „Ef menn hætta að keyra bílnum í vinnuna og nota hann bara fyrir fjölskylduna um kvöld og helgar þá gæti akstur sparast um þriðjung. Þar eru þá komnir 50 milljarðar. Þó að jarðlestakerfi geti verið dýrt þá er það nú bara ódýrt í þessu sam- hengi miðað við bílaflotann. En verkið þarf að vinna vel,“ segir Björn. Hann segir jarðlestir hafa ýmsa kosti. Þær taki lítið pláss ofan jarðar, aðeins þjónustustöðvar. Lestarnar fari á miklum hraða og ekki háðar veðri. Í jafn dreifðu skipulagi, eins og er á höfuðborg- arsvæðinu, sé hægt að hafa þjón- ustustöð metró í hverjum bæjar- hluta og hanna skipulag íbúða og atvinnuhúsnæðis út frá því. Þannig verði hægt að ferðast á milli hverfa á miklum hraða og ferðatími fólks styttist því verulega, t.d. í saman- burði við fólksbíla og strætisvagna. Metró-hópinn skipa, auk Björns, verkfræðingarnir og háskólakenn- ararnir Birgir Jónsson, Sigurður Erlingsson og Þorsteinn Þorsteins- son. Einnig munu meistaranemar vinna við verkefnið og fleiri nem- endur, auk þess sem leitað verður til verkfræðistofa og verktaka, sveitarfélaganna og orkufyrirtækja. Kanna hagkvæmni jarðlestakerfis  Verkfræðideild HÍ aflar styrkja til að kanna hagkvæmni jarðlestakerfis á höfuðborgarsvæðinu  Tíu kílómetra jarðlestakerfi á 50 milljarða  Gæti lækkað kostnað af bílaflotanum um þriðjung Morgunblaðið/Golli Jarðlest Könnun á hagkvæmni jarðlestakerfis getur tekið nokkur ár. Þá er eftir að ákveða að ráðast í verkið og því spurning hvenær Reykvíkingar munu ferðast neðanjarðar eins og t.d. Lundúnabúar. Verkfræðingar við HÍ telja þetta hagkvæmt við fyrstu sýn og geti dregið verulega úr akstri. Björn Kristinsson Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra afhjúpaði um helgina minningarskjöld í Vilníus, höfuð- borg Litháens, um viðurkenningu Alþingis á sjálfstæði landsins. „Til Íslands, sem óttalaust viður- kenndi lýðveldið Litháen, fyrst allra ríkja hinn 11. febrúar 1991,“ segir á skildinum, sem utanríkis- ráðherra afhjúpaði ásamt Audr- onius Azubalis, utanríkisráðherra Litháen, í viðurvist Vytautas Landsbergis, fv. forseta litháíska þingsins, og margra annarra sem leiddu sjálfstæðisbaráttu Litháens í upphafi tíunda áratugarins. Afhjúpun Við minnisvarðann í Vilníus. Minnisvarði afhjúp- aður í Vilníus Lilja Dögg Jóns- dóttir er nýr for- maður Stúdenta- ráðs Háskóla Íslands í stað Jens Fjalars Skaptasonar. Lilja Dögg er oddviti Vöku, félags lýðræðis- sinnaðra stúd- enta, sem vann meirihluta í Stúdentaráði í kosn- ingum í byrjun febrúar sl. Hún mun ljúka grunnnámi í hag- fræði við Háskóla Íslands í vor. Lilja nýr formaður Stúdentaráðs Lilja Dögg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.