Morgunblaðið - 14.02.2011, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Miðbraut
11, Búðardal, mánudaginn 21. febrúar 2011 kl. 14:00,
á eftirfarandi eignum:
Drangar, 137475, Dalabyggð, þinglýstur eigandi Drangabyggð ehf.,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Íslandsbanki hf.
Ós, 137879, Dalabyggð, þinglýstur eigandi Breiðanes ehf., gerðar-
beiðendur Íslandsbanki hf. og Dalabyggð.
Skarðsá, 137837, Dalabyggð, þinglýstur eigandi Edda Unnsteinsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Dalabyggð og Vörður tryggingar
hf.
Skarðsá II, 176807, Dalabyggð, þinglýstur eigandi Edda Unnsteins-
dóttir, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf. og Dalabyggð.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
9. febrúar 2011.
Áslaug Þórarinsdóttir.
Félagslíf
MÍMIR 6011021419 I° H&V HEKLA 6011021419 VI
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Labrador Retriever svartir
Erum orðnir 6 mánaða og húsvanir.
Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir.
Örmerktir. Nótt á kr. 190 þús. og
Mökkur og Nóri á kr. 160 þús.
Uppl. í síma 695 9597 og 482 4010.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s. 897- 5300.
Þú átt skilið að komast í hvíld!
Í Minniborgum bjóðum við upp á
ódýra gistingu í notalegum frístunda-
húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2.
Fyrirtækjahópar, óvissuhópar,
ættarmót. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Tölvur
Tölvuviðgerðir
Tölvuviðgerðir, vírushreinsun, gagna-
björgun, kem í heimahús, sæki og
sendi. Tuttugu ára reynsla af tölvum
og netbúnaði. 20% afsláttur FEB &
ÖBÍ. Stefán, sími 821 6839.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
Bókhaldsstofan ehf., Reykja-
víkurv. 60, Hf. Færsla á bókhaldi,
launaútr., vsk-uppgjör, skattframtöl,
stofnun fyrirtækja. Magnús Waage,
viðurkenndur bókari, s. 863 2275,
www.bokhaldsstofan.is.
Þjónusta
ERFÐASKRÁR
Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara-
nemi í lögfræði, tek að mér
samningu erfðaskráa, þannig að
öllum lagaskilyrðum sé fullnægt.
Hóflegt verð — persónuleg
þjónusta. Sími: 696 8442,
netfang: hth56@hi.is
Glerjun og gluggaviðgerðir
Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum
smíðaverkefnum. Glugga- og hurða-
þjónustan, s. 895 5511, smidi.is.
Ýmislegt
Ódýr gæðablekhylki og tonerar
í prentarann þinn. Öll blekhylki
framleidd af ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517 0150
Náttföt - Sloppar
Náttkjólar - Undirkjólar
Sundföt - Nærföt
Vönduð vara - Gott verð
Teg. 1066-11
Litir: Rautt og svart. Stærðir: 37-41.
Verð: 17.500.-
K 36984
Litur: Svart. Stærðir: 37-41.
Verð: 18.650.-
Teg. 2710
Litur: Svart. Stærðir: 36-42.
Verð: 17.500.-
Teg. 5105
Litur: Svart. Stærðir: 37-42.
Verð: 17.500.-
Vetrarskór fyrir dömur.
Hlýir og þægilegir leðurskór, fóðraðir
með flís.
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18,
laugardaga 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
!
"
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Öruggur í vetraraksturinn.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar,
gler og gluggaskipti.
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Dýrahald
Viðgerðir
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Þjónustuauglýsingar
Tilboð á finnur.is
TEXTI + LOGO 6.500 KR.
Hægt er að senda pantanir á finnur@mbl.is
eða í síma 569 1107
✝ Ásgeir R.Helgason, múr-
ari, fæddist á Ísa-
firði 6. mars 1935.
Hann lést á gjör-
gæslunni í Fossvogi
3. febrúar 2011.
Foreldrar hans
voru Helga Ragn-
heiður Hjálm-
arsdóttir, f. 24.
ágúst 1904, d. 27.
apríl 1985, og Helgi
Hólm Halldórsson, múrari, f. 12.
júní 1897, d. 22. maí 1987. Þau
Helga og Helgi bjuggu lengst af
á Ísafirði. Systur Ásgeirs eru
Svandís, f. 1931, Filippía, f.
1932, Geira, f. 1934, d. 1999 og
Arndís María, f. 1936.
Eftirlifandi kona Ásgeirs er
Guðrún Jóhannsdóttir, f. 18.
okt. 1938. Foreldrar hennar
Börn Margrétar Gróu eru
Hanna og Eyþór Ómar.
Ásgeir var mikill náttúruunn-
andi, fuglaskoðari, ljósmyndari,
grúskari. Hann hafði mikla
ánægju af garðyrkju og dundaði
löngum stundum í bílskúr sínum
við útskurð, enda handlaginn
með afbrigðum. Hann smíðaði
húsgögn og innréttingar til
heimilisins og fór það vel úr
hendi. Hann var listfengur í fagi
sínu, múrverki og hafði ánægju
af að búa til eitt og annað úr
ýmsu sem hann fann úti í nátt-
úrunni. Vinnusamur, heið-
arlegur og skilvís með af-
brigðum. Hann fór oftar en ekki
eigin leiðir í lífinu.
Ásgeir verður jarðsunginn
frá Garðakirkju í dag, 14. febr-
úar 2011, og hefst athöfnin kl.
13.
voru Unnur Ólafs-
dóttir, f. 13. júlí
1908, d. 6. sept.
1965, og Jóhann
Karlsson, forstjóri,
f. 16. nóvember
1904, d. 4. júní
1979. Þau Guðrún
og Ásgeir gengu í
hjónaband 24.
ágúst 1968. Fyrir
hjónaband átti Guð-
rún dótturina Þor-
björgu, f. 16.10. 1956. Faðir Þor-
bjargar var Jóhann Gunnar
Gíslason, vélstjóri. Þorbjörg ólst
upp með móður sinni og Ásgeiri
frá 10 ára aldri. Hennar synir
eru Ingi Bjarni, Stefán Geir og
Rannar Carl. Fyrir hjónaband
átti Ásgeir dótturina Margréti
Gróu, f. 23. mars 1961. Móðir
hennar er Hanna Jónsdóttir.
Hjartans, elsku karlinn minn.
Ég ráfa hér um húsið okkar og
sakna og minnist. Án þín er líf
mitt í rúst. Ég mun auðvitað gera
mitt besta til að safna saman
brotunum af lífi mínu og reyna að
eiga eitthvert líf – án þín – en það
verður ekki auðvelt, Geiri minn.
Ég treysti því að þú lítir til með
mér, reyndar veit ég að þú vilt að
ég hafi það sem best og munt sjá
til þess. Þú varst bara þannig
gerður.
Í öll þau skipti sem veikindi
bönkuðu upp á hjá mér varstu til
staðar fyrir mig. Við áttum svo
margt eftir að gera saman, ætl-
uðum að fara í margar ferðir með
hjólhýsið okkar, ætluðum að fara
helst árlega til Kanarí þess á
milli, ætluðum að fara á okkar
uppáhaldsstað, Tíról í Austurríki.
Við ætluðum að æfa okkur saman
í myndvinnslu í tölvu, þú varst að
kenna mér á „almennilegar“
myndavélar og ég var að kenna
þér á tölvu. Við undum okkur vel
saman við að dunda okkur í garð-
inum okkar, garði sem við hönn-
uðum sjálf í sameiningu, við að
grilla úti á veröndinni í góðu veðri
á sumrin, fá okkur öl og spjalla
um allt milli himins og jarðar.
Ég minnist þess þegar þú
komst að máli við mig þar sem ég
stóð við eldavélina í húsinu okkar
í Skipasundi og spurðir hvort
ekki gæti verið gaman að fara
með tjald og viðlegubúnað í svona
2ja mánaða ferð um Evrópu. Ég
góndi á þig og spurði hvort þú
værir orðinn galinn, ég færi sko
ekki að tjalda á einhverjum
skurðbörmum út og suður um
Evrópu. En þú hafðir þá komist
að því að þar væru alls staðar
skipulögð tjaldstæði. Mér leist
ekki illa á fyrst svo var og tjald-
reisurnar okkar út og suður um
Evrópu urðu margar, sú síðasta
árið 2003 og sú ferð stóð í 10 vik-
ur. Það var kveðjuferðin okkar í
tjaldreisunum. Svo ákváðum við
að kaupa okkur hjólhýsi og tók-
um til við að ferðast um landið
okkar og nutum okkar ekki síður
í þeim ferðum. Í síðustu hjólhýsa-
ferðinni við Mývatn á leið austur
á firði tókstu eftir stórri kúlu á
hálsi þínum. Þá var eitlakrabbinn
kominn af stað einu sinni enn og
ekki um annað að ræða en að
snúa við og halda heim. Meðferð-
in gekk svo prýðilega þótt þú
fyndir fyrir mikilli þreytu sem
var bara eðlilegt. Yfir jól og ára-
mót leið þér betur og við áttum
þá góðar stundir. Svo tók við há-
skammtalyfjagjöf og stofnfrumu-
meðferð og ekkert benti til ann-
ars en þú myndir fara í gegnum
það með stæl eins og þín var von
og vísa. En svo kom upp NORO-
sýking á sjúkrahúsinu og þú
smitaðist þar, inniliggjandi, og
eftir 3ja vikna erfið veikindi og al-
veg hrikalega vanlíðan gafst lík-
ami þinn loks upp. Þú ert sárt
syrgður, elsku Geiri minn.
Hvíldu í friði, ástin mín, og
takk fyrir að gera vart við þig
hérna hjá mér þegar ég er ein í
húsinu. Það yljar mér.
Þín
Guðrún.
Elsku stjúpi minn, nú ert þú
farinn og við sitjum hér með
söknuðinn og allar minningarnar,
bara góðar minningar því þú
varst þannig maður, alltaf ljúfur,
góður, staðfastur og æðrulaus-
asti maður sem við höfum kynnst
á lífsleiðinni.
Ég var bara barn þegar þú
komst inn í líf mitt. Þú hefur
kennt mér svo ótalmargt um lífið
og tilveruna, alltaf sem klettur,
æðrulaus og skynsamur og stóðst
alltaf við orð þín í öllum aðstæð-
um. Þú varst staðfasti punktur-
inn í lífi mínu, ég vissi að það væri
alltaf hægt að treysta á að þín ráð
væru rétt og skynsöm.
Þú varst mikið náttúrubarn,
virtir og unnir fjöllunum, gróðr-
inum, og dýralífinu af heilum
hug. Ef ég þurfti einhverja vitn-
eskju um heimshöfin, myndavél-
ar, gróður, dýralífið, flóð og fjöru,
eða bara hvað sem var, hringdi ég
í þig, þú varst fullur af fróðleik
um allt milli himins og jarðar sem
maður þurfti að vita.
Þegar maður er barn, finnst
manni sjálfsagt að trúa öllu góðu
um alla, þegar maður eldist skil-
ur maður hverjir voru besta fyr-
irmyndin og traustir og leiðandi í
manns eigin lífi, í mínu lífi varst
það þú, elsku Geiri minn.
Synir mínir þrír hafa alltaf
sagt að þú værir heimsins besti
afi, þið spiluðuð biljarð í bílskúrn-
um og þeir fengu að smíða það
sem þeir vildu með þinni aðstoð
og þau voru mörg ferðalögin sem
þið fóruð í saman. Það er oft glatt
á hjalla þegar þeir rifja upp allar
minningarnar með afa, já það er
leit að manni eins og þér, stjúpi
minn.
Mér þykir svo óendanlega
vænt um þig, elsku Geiri minn, ég
hef búið að því alla ævi að þú
gekkst mér í föður stað, takk,
elsku stjúpi minn, fyrir allt.
Þorbjörg.
Ásgeir Helgason HINSTA KVEÐJA
Takk fyrir að hafa
verið fullkomnasti afi
allra tíma. Þegar ég verð
afi ætla ég að verða jafn
flottur afi og þú, elsku
afi minn.
Ingi Bjarni.
Takk fyrir allar frábær-
ar stundir og minningar,
elsku afi minn. Þín verður
sárt saknað, besti afi í
heimi. Hvíldu í friði, afi
minn.
Stefán Geir.
Hvíldu í friði, elsku afi.
Takk fyrir allar góðu og
skemmtilegu stundirnar.
Þú varst alltaf svo flottur
kall. Sjáumst hinum megin,
afi minn.
Rannar Carl.