Morgunblaðið - 14.02.2011, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.02.2011, Qupperneq 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 2011 Sudoku Frumstig 4 5 1 9 2 7 8 4 5 3 8 9 2 8 4 3 7 4 2 9 2 1 7 5 5 9 3 9 1 2 8 5 7 1 7 2 3 6 8 5 3 7 1 9 1 9 5 8 8 7 2 9 3 1 9 3 7 2 2 9 8 6 7 3 5 9 2 3 6 1 8 9 6 2 7 7 2 6 5 8 9 4 7 2 1 3 3 7 2 8 1 6 5 9 4 9 4 1 5 2 3 7 6 8 8 9 4 6 5 2 3 7 1 7 1 3 4 8 9 6 5 2 5 2 6 7 3 1 8 4 9 2 3 5 1 6 4 9 8 7 1 8 7 3 9 5 4 2 6 4 6 9 2 7 8 1 3 5 4 6 8 7 9 3 5 2 1 7 5 9 8 2 1 3 6 4 2 1 3 5 4 6 9 7 8 9 3 5 4 1 2 6 8 7 8 7 1 6 5 9 2 4 3 6 4 2 3 7 8 1 9 5 3 9 6 1 8 4 7 5 2 1 8 7 2 6 5 4 3 9 5 2 4 9 3 7 8 1 6 3 5 9 6 8 2 1 4 7 7 1 8 9 4 3 5 2 6 4 6 2 7 5 1 9 3 8 6 3 7 5 1 9 4 8 2 1 9 4 2 6 8 7 5 3 8 2 5 3 7 4 6 9 1 2 4 6 8 9 7 3 1 5 5 8 1 4 3 6 2 7 9 9 7 3 1 2 5 8 6 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 14. febrúar, 45. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Því að augu Drottins eru yfir hinum réttlátu og eyru hans hneigjast að bænum þeirra. En auglit Drottins er gegn þeim, sem illt gjöra. (1Pt. 3, 12.) Í dag er hinn ameríski dagur elsk-enda, Valentínusardagurinn. Víkverji verður að játa það á sig að vera bæði íhaldssamur og gam- aldags þegar kemur að því að taka upp erlenda siði. Sérstaklega þegar þeir íslensku virðast fullboðlegir; bóndadagur og konudagur. x x x Fyrsti dagur þorrans, hinn þjóð-legi íslenski bóndadagur er að vísu að baki en dagurinn og til- gangur hans hefur að vísu breyst nokkuð í meðförum markaðsaflanna. Skv. þjóðsögum Jóns Árnasonar bar bændum (lesist karlmönnum) að fagna þorranum, þ.e. gleðja nátt- úruöflin. Skyldi það gert með því að hoppa berlæraðir og berfættir á öðr- um fæti í kringum bæinn en þó þannig í brókinni að þeir færu í aðra skálmina og drægju hana á eftir sér. Víkverji harmar þó að hafa ekki enn séð verknaðinn í framkvæmd. x x x Færri sögum virðist fara af konu-deginum, fyrsta degi góu sem var víst fyrst kallaður góudagur hér áður fyrr. Víkverji gerir ráð fyrir að konum hafi líka borið að fagna góu og fær það staðfest á vísindavef há- skólans. Konur skyldu „ganga út fyrir dyr kvöldið fyrir góukomu og bjóða henni inn sem góðum virðing- argesti með fögrum tilmælum um að hún væri sér og sínum létt og ekki skaðsöm.“ Það verður nú að teljast ólíkt þægilegra fyrir konur að hafa ekki þurft að hoppa berlæraðar og berfættar í kringum húsið til að tryggja sér velvild veðurguðanna. x x x Hugsunin á bak við Valentínus-ardaginn sem er kenndur við heilagan Valentínus er ósköp falleg viðurkennir Víkverji. Enda um að gera að nota hvert tækifæri sem gefst til að vera góður við ástina í lífi sínu. Víkverji ætlar því að leyfa sér sömu taktík og Ragnar Reykás og viðurkenna Valentínusardaginn upp að vissu marki. Hann frábiður sér þó Valentínusarkort! víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 greinilegt, 4 kroppur, 7 klifrast, 8 blóm- um, 9 miskunn, 11 sigaði, 13 vegur, 14 hefja, 15 stertur, 17 verkfæri, 20 gruna, 22 brúkum, 23 fól, 24 sár, 25 kvabb. Lóðrétt | 1 hrammur, 2 ósvipað, 3 spilið, 4 fjöl, 5 henda, 6 hæsi, 10 kjánar, 12 reið, 13 op, 15 áma, 16 pössum, 18 duglegur, 19 missa marks, 20 hljómar, 21 mjög. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gegndrepa, 8 buddu, 9 ylinn, 10 men, 11 tarfa, 13 af- ann, 15 fress, 18 hrafl, 21 tær, 22 liðni, 23 öxina, 24 kinnungur. Lóðrétt: 2 endar, 3 nauma, 4 reyna, 5 peisa, 6 ábót, 7 unun, 12 fas, 14 far, 15 fýla, 16 eyðni, 17 stinn, 18 hrönn, 19 atinu, 20 ló- an. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 O-O 6. Rge2 e5 7. h3 c6 8. a4 a5 9. O-O Ra6 10. Be3 Rb4 11. f4 Dc7 12. g4 b6 13. f5 Rd7 14. d5 Ba6 15. dxc6 Dxc6 16. g5 f6 17. h4 Rc5 18. Hf2 Had8 19. Rg3 De8 20. h5 Bc8 21. hxg6 hxg6 22. gxf6 Bxf6 23. Dg4 Bg7 24. Haf1 Df7 25. Dg5 Df6 26. fxg6 Dxg5 27. Bxg5 Hd7 28. Rf5 He8 29. Bh3 Re6 30. Rh6+ Kh8 Staðan kom upp í C-flokki Tata Steel skákhátíðarinnar sem lauk fyrir skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi. Hollenski alþjóðlegi meistarinn Ben- jamin Bok (2453) hafði hvítt gegn kanadíska stórmeistaranum Mark Bluvshtein (2590). 31. Bxe6! Hxe6 32. Hf8+! Bxf8 33. Hxf8+ Kg7 34. Hg8 mát. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Nýr siður. A-AV. Norður ♠ÁK1083 ♥ÁKD3 ♦42 ♣Á5 Vestur Austur ♠97652 ♠DG4 ♥G108 ♥72 ♦K98 ♦ÁD73 ♣D6 ♣K942 Suður ♠-- ♥9654 ♦G1065 ♣G10873 Suður spilar 4♥. Það er orðið alsiða í vissum hópi sér- fræðinga að yfirfæra í hálit eftir opnun á Standard-laufi. Afleiðingarnar eru margvíslegar og sumar ófyrirséðar. Lítum til norðurs. Austur opnar á 1♣ og vestur segir 1♥ í merkingunni „spaði“. Hvað á norður að gera? Í leik Gillis og Arons N. Þorfinns- sonar á Bridshátíð stóðu Björn Ey- steinsson og Boye Brogeland báðir frammi fyrir þessu viðfangsefni. Boye sagði pass og líka í næsta hring við 1♠ austurs. Uppskeran var 200-kall fyrir tvo niður. Björn valdi að dobla 1♥, sem hann og Guðmundur Hermannsson í suður höfðu sammælst um að nota til að sýna hjartalit. Guðmundur stökk í 3♥ í hindrunarskyni og Björn lyfti í fjögur. Sá samningur rann heim án mikillar fyrirhafnar: 420 í N-S og 6 stig til Arons, sem vann leikinn 20-10. 14. febrúar 1942 Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, var stofnað. Aðildarfélög þess eru 27 og fé- lagsmenn rúmlega tuttugu þúsund. 14. febrúar 1956 Hæsti reykháfur landsins var felldur. Hann var við Mjólk- urbú Flóamanna á Selfossi, var 25 metra hár og hafði sett „sinn sérstaka svip á búið og blasti við augum manna úr órafjarlægð,“ að sögn Morg- unblaðsins. 14. febrúar 1966 Íslenskur stórkaupmaður í Danmörku, Carl Sæmundsen, gaf íslenska ríkinu húseign sína að Östervoldgade 12 í Kaupmannahöfn, sem Jón Sig- urðsson forseti bjó í um langt skeið. Þar er nú Jónshús. 14. febrúar 1969 Landsprófsnemendur gengu um götur Reykjavíkur til að leggja áherslu á kröfur sínar um endurskoðun skólakerf- isins. 14. febrúar 1974 Loðnuskipið Bylgjan sökk út af Alviðruhömrum á Snæfells- nesi. Einn skipverji fórst en ellefu var bjargað. 14. febrúar 1994 Björk Guðmundsdóttir söng- kona var valin besta alþjóð- lega söngkonan og besti nýlið- inn á Brit-tónlistarverðlauna- hátíðinni í Bretlandi. Hún fékk aftur verðlaun fjórum árum síðar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Ingi Tryggvason, fyrrverandi þingmaður Fram- sóknarflokksins, bóndi og kennari, svo fátt eitt sé tínt til, er níræður í dag. Hann tekur ekki á móti gestum á afmælisdaginn sjálfan en býður þess í stað til veislu, sunnudaginn 27. febrúar næstkomandi, á gamla hótelinu í Hveragerði, kl. 15. „Svo á ég nátt- úrlega heima fyrir norðan og ætla því eitthvað að minna á afmælið mitt þar líka. En það verður ekki fyrr en seinast í apríl, eða þar um bil.“ Ingi fæddist á Litlu-Laugum í Reykjadal. Hann kenndi í rúm tuttugu ár við Héraðsskólann á Laug- um og var bóndi á Kárhóli í rúm 30 ár, en við þann bæ var hann gjarnan kenndur. Ingi hefur haft vetursetu í Reykjavík síðustu árin, hvaðan sambýliskona hans, Unnur Kolbeinsdóttir, kemur. Sumrum ver Ingi í Reykjadal, en eftir að hann komst á eftirlaunaaldur eignaðist hann þar jörðina Narfastaði. Hann sneri sér þá að ferðaþjón- ustu og gerði sér lítið fyrir og breytti útihúsum í gistiaðstöðu fyrir ferðamenn. Sonur hans og tengdadóttir sjá um reksturinn í dag, með gistirými fyrir allt að 90 manns. Sjálfur hefur Ingi nú snúið sér að skóg- rækt á Narfastöðum. Þar er hann með afgirt skógræktarland upp á meira en 200 hektara sem hann græðir nú upp. einarorn@mbl.is Ingi Tryggvason er níræður í dag Býður til veislu í Hveragerði Flóðogfjara 14. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.57 3,0 9.30 1,4 15.34 2,9 21.47 1,3 9.27 17.58 Ísafjörður 5.18 1,6 11.49 0,6 17.52 1,5 9.43 17.52 Siglufjörður 1.07 0,6 7.30 1,1 14.01 0,4 20.31 1,0 9.26 17.34 Djúpivogur 6.34 0,7 12.34 1,3 18.43 0,5 8.59 17.24 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ættir að reyna að ná yfirsýn yfir fjármál þín í dag. Galdurinn er að vera stað- fastur og ekkert annað en hress. (20. apríl - 20. maí)  Naut Hættu að hafa áhyggjur af því hvað þú átt að gefa vinum og vandamönnum. Sem betur fer ertu kraftmikil/l, óhrædd/ur – jafnvel kát/ur. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú lendir í útistöðum við náinn vin og tilfinningar þínar eru í uppnámi. En mun þetta skipta nokkru máli þegar frá líður? (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert manneskja sem vilt láta hafa svolítið fyrir þér af og til. Til að halda áfram að lifa því þægindalífi sem þú hefur til- einkað þér undanfarin ár verður þú að leggja meira á þig. Finnst þér það eftirsókn- arvert? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Peningamálin hafa ekki gengið sem skyldi hjá þér upp á síðkastið. Ástvinur sér nýja hluti og lærir að hugsa á nýjan hátt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þér hefur tekist bærilega til á árinu og ert fullfær um að stjórna þínum málum áfram. Mikilvægt er að hreinsa loftið svo þú getir byrjað með hreint blað. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Reyndu allt hvað þú getur að víkka sjóndeildarhringinn. Einhver lætur gott af sér leiða. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Í dag standa hlutirnir ekki í stað – ekki nema þú viljir það endilega. Fjárhagurinn tekur kipp upp á við. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ágreiningur við vini eða hóp er líklegur á næstu vikum. Það er við ramman reip að draga í uppeldinu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Sýndu heiminum hvað þú getur gert. Sestu niður, farðu í gegnum þín mál og afgreiddu þau. Hugsaðu framtíðina upp á nýtt. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Öfundin er af hinu illa svo þú skalt varast að láta hana ná tökum á þér. Litlar eða lélegar rannsóknir geta reynst þér dýrkeyptar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur öll tök á því að læra sitt- hvað um sjálfa/n þig í samskiptum við þá sem standa þér næst, það er maka og nána vini. Taktu tíma frá bara fyrir þig. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.