Póstmannablaðið - 01.05.1994, Page 2
Póstmenn standi saman!
Þuríður Einarsdóttir, formaður PFÍ skrifar
egar við skoðum 75 ára sögu Póstmannafélags íslands
og lesum um þá baráttu sem forverar okkar háðu fyrir
bættum kjörum og réttindum félaga sinna, þá er kannski
ástæða til að staldra við og skoða stöðuna. Til þess að ná
þeirn réttindum sem við nú höfum til launa í orlofi, veik-
indum og til lífeyris, þurfti að heyja mikla baráttu. Þessi
árangur náðist eingöngu með þrautseigju þeirra sem fyrir
launamönnum fóru en ekki síst með samstöðu allra fé-
lagsmanna sem að baki forystunni stóðu og voru tilbúnir
að færa fórnir til að ná frant því sem um var barist. Ef við
lítum á málin í dag sjáum við að við þurfum að hugsa
okkar gang.
Nú nýlega höfum við valið okkur nýtt fólk til forystu í
póstmannafélaginu. Fólk sent er reiðubúið til að vinna að
bættum kjörum félagsmanna og standa vörð um félagsleg
réttindi okkar.
Það má öllum vera Ijóst að póstmenn, sem eru með lægst-
launuðu starfsstéttum í landinu, verða að standa saman og
sýna mált samstöðunnar, næst þegar til kjarasamninga
kemur.
Við getum spurt okkur sjálf:
Ætlum við að halda áfram að dragast aftur úr í launum?
Ætlum við að samþykkja fleiri kjarasamninga sem hljóða
upp á 0%?
Ætlum við að láta taka frá okkur þau félagslegu réttindi
sem við höfum í dag?
Eða ætlum við að snúa vörn í sókn og krefjast bættra
kjara?
Gera þarf viðsemjendum okkar ljóst hversu bág kjör okk-
ar eru. Ráðamenn Pósts og sínta verða einnig að gera sér
ljósa nauðsyn þess að hafa á að skipa velmenntuðu, á-
nægðu starfsfólki. Þeir verða einnig að gera sér það ljóst
að þegar atvinnuástand þjóðarinnar lagast, mun stór hluti
þess vel þjálfaða fólks sem vinnur hjá póstinum, leita burt
þangað sem betri kjör bjóðast. Það væri miður og vonandi
verður ráðamönnum þetta ljóst áður en það er um seinan.
Þjónusta Pósts og síma byggir að svo stórum hluta á
þekkingu og þjálfun starfsmanna að óbætanlegt tjón yrði
ef sú þekking hyrfi frá fyrirtækinu. Þá er hætt við að sam-
keppnisstaða þess myndi versna til ntuna.
Hvernig bregðust við við þessum aðstæðum?
Ætlum við að sýna ráðamönnum Pósts og sírna fram á að
í aukinni samkeppni sé nauðsynlegt að hafa ánægt og
vel þjálfað starfsfólk?
Ætlum við að horfa á eftir störfum okkar til samkeppnis-
aðila?
Ætlum við að sýna fram á að við erum tilbúin til að leggja
okkar að mörkum til að hagur fyrirtækisins verði sem
bestur en viljum jafnframt að vinnuframlag okkar og
þekking verði metin að verðleikum?
Póstmenn stöndum saman, það er okkar eina leið til
bættra lífskjara og atvinnuöryggis.
2. tölublað 25. árgangur, maí 1994
Ritstjóri: Ragnheiður Björnsdóttir
Ritnefnd: Herborg Þorgeirsdóttir
Þórunn Snæbjörnsdóttir
Eyjólfur Guðmundsson
Herdís Skarphéðinsdóttir
Ábm: Þuríður Einarsdóttir
Ljósm: Guðrún Þorbergsdóttir og fl.
Umsjón: Athygli hf. sími 623277
Prentun: PÁV
Útgefandi:Póstmannafélag íslands
Skrifstofa Grettisgötu 89
er opin daglega kl. 9-17
Símar (91) 62 60 52 og 63 65 60.
2