Póstmannablaðið - 01.05.1994, Page 5

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Page 5
Nemendur í Póst- og símaskólanum hafa verið fjölmargir í gegnum tíðina og þegar okkur bar að garði voru 15 stöðvarstjórar og fulltrúar þeirra á 3ja vikna námskeiði. Heimsókn i Póst- og símaskólann: Um 300 nemendur á ári Rætt við Jón Ármann Jakobsson, skólastjóra og Guðlaugu Ó. Ólafsdóttur, yfirkennara Þannig hljóðaði fyrsta grein reglu- gerðar sem Ingólfur Jónsson, þáver- andi samgönguráðherra gaf út hinn 28. maí árið 1968. Við brugðum okk- ur í heimsókn í Póst- og símaskólann á dögunum en hann er til húsa í byggingu Pósts og sfma að Sölvhóls- götu 11 í Reykjavík. Þar urðu fyrir svörum þau Jón Armann Jakobsson, skólastjóri og Guðlaug Olöf Olafs- dóttir, yfirkennari. Þegar okkur bar að garði, voru 15 stöðvarstjórar og fulltrúar þeirra á hluta af þriggja vikna námskeiði. Þar var farið yfir ýmiskonar atriði svo sem stjórnun og annað það sem koma má þessum hópi yfirmanna að gagni. Námskeið fyrir ýmsa starfs- hópa stofnunarinnar eru viðamikill þáttur í starfi Póst- og símaskólans, að sögn þeirra Jóns Armanns og Guðlaugar. Meginverkefni skólans eru þó fólgin í mun lengra námi fyrir starfsmenn póstþjónustunnar. Námið skiptist í tvö svið. Annað er fyrir afgreiðslu- Stofnaður skal sérstakur skóli, Póst- og símaskóli, til að sjá um menntun starfsmanna Pósts og síma með tilliti til þatfa stofnunarinnar ttm sérhœft starfsfólk. Námið er verk- legt og bóklegt. Þegar verklegi hluti námsins ferfram á vinnustað er skól- anunt œtlað að hafa yfirumsjón með því og tilheyrandi prófi. Þegar lienta þykir, má bóklega námið að meira eða minna leyti fara fram í bréfa- skólaformi. Jóm Ármann Jakobsson, skólastjóri og Guðlaug Olöf Ölafsdóttir, yfirkennari.

x

Póstmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.