Póstmannablaðið - 01.05.1994, Side 6

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Side 6
fólk en hitt fyrir bílstjóra, flokkunar- fólk og bréfbera. Hið síðamefnda er samtals rúmlega 150 kennslustundir sem dreifast á fimm vikur. Nám af- greiðslufólks er í þrem hlutum Póst- nám I, II og III. Hver hluti er rétt um tvöhundruð kennslustundir og tekur hver þeirra fimm vikur. A rneðan á námi stendur eru nemendur alveg frá störfum sínum og að fullu í náminu. Arlega sitja um 300 nemendur úr hópi starfsmanna Pósts og síma leng- ur og skemur á skólabekk við Sölv- hólsgötuna. Jón Armann skólastjóri sagði að heildarfjöldi nemenda frá upphafi væri einhversstaðar nærri þremur þúsundunum. Námið og námsefnið hefði auðvitað þróast í ár- anna rás. Megin breytingar frá því að fyrsta reglugerðin um skólann var sett væru þó einkum tvær. Nám í bréfaskóla er nú aflagt. Þá hefðu breytingar á iðnlöggjöfinni orðið til þess að símvirkjar og símsmiðir sæktu ekki lengur menntun sína í Póst- og símaskólanum. Símvirkjun og símsmíði væru nú löggiltar iðn- greinar og því kenndar við Iðnskól- ann. Jón Armann sagði þessa þróun vera eðlilega en hún hefði valdið ýmsum breytingum. Aður hefði nám sím- virkja og -smiða tengst stofnuninni nánar og námið verið byggt á kennslugögnum á ensku, sem tengdst hefðu starfinu allnáið. Eðlilega væri nám við iðnskóla fjær að ýmsu leyti sem væri bæði kostur og galli. Hann taldi að þessar breytingar hefðu með- al annars valdið því að ráðnir hefðum verið fleiri tæknifræðingar og verk- fræðingar til Pósts og síma. Sjálfur er Jón Ármann Jakobsson tæknifræðingur með mennt frá Dan- mörku og Englandi. Hann hóf störf hjá stofnuninni árið 1961 en hefur gegnt starfi skólastjóra síðan 1975. Guðlaug Olöf Olafsdóttir, yfirkennari er með BA próf í ensku og frönsku. Hún hefur starfað hjá Pósti og síma frá 1983 og þá á skrifstofu póst- og símamálastjóra. Hún varð yfirkennari árið 1988. Námsgreinar, sem farið er yfir í póst- náminu eru fjölmargar og engan veg- inn hægt að telja þær allar upp hér. Við lestur námsskrárinnar sjáum við þó að kennsla í frönsku er þriðjungur af kennslustundum póstnáms III eða einar 60 stundir. Þá kennslu annast Guðlaug yfirkennari. En hversvegna franska? Nemandi tekinn tali: Mjög gagnlegt nám Halla Garðarsdóttir R-2. „Tildrög þess að ég íor að vinna hjá Póstinum voru þau að rnóðir vin- konu minnar, senr sjálf vinnur hér, benti mér á að hér væri laust starf. Það varð síðan úr að ég sótti urn og fékk vinnu. Þetta var árið 1991 og hér hef ég verið síðan og alltaf við skráningu vegna tollafgreiðslu póst- sendinga. Þetta sagði Halla Garðarsdóttir hjá R-2 í samtali við Póstmannablaðið en hún stundar nú nám í Póst- og símaskólanum. „Fyrsta námskeiðið sem ég sótti á vegum Póst- og símskólans var sl. haust. Það stóð í viku og var einkum farið í atriði vegna nýrrar reglugerð- -segír Halla Garðarsdóttir á R-2 ar, en þjónusta póstsins vegna tollaf- greiðslna hef aukist mikið samfara henni. - Síðan tókstu þann hluta námsins hjá Póst- og símaskólans, sem nefndur er Póstnám l? „Já, það fór fratn í nóvember og desember sl. en Póstnám II hófst nú eftir páska og stendur fram í maí. - Hvernig líkar þér námið? „Námið í Póst- og símaskólanum er mjög gagnlegt og gott fyrir mig. Einkum finnst mér mikils virði að fá tækifæri til þess að kynnast fleiri sviðum í starfi Pósts og sírna heldur en ég hef unnið við til þessa. Sú hef- ur nefnilega orðið raunin á við tollsviðið, að sérhæfing hefur aukist þar verulega frá því að ég hóf störf og á líklega eftir að aukast áfram. - Hefur þút einhverja skoðun á því, hvers vegna konur eru orðnar í miklum meirihluta meðal starfs- manna Pósts og síma? „Það eru vafalaust launakjörin, sem fyrst og fremst valda því. Karlmaður sem ætlar að vera aðalfyrirvinna heimilis getur ekki staðið undir því með almennum launum póst- rnanna, sagði Halla Garðarsdóttir að lokunt. 6

x

Póstmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.