Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 7

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 7
„Franskan er alþjóðlegt póstmál. Öll formleg samskipti á milli landa fara ávallt frarn á frönsku eða þá frönsku og einhverju öðru máli jafnframt. Skylt er að öll póstorð séu á frönsku auk annars máls, segir Guðlaug. „A- stæða þessa er sú að skipulegt alþjóð- legt samstarf urn póstmál hófst mjög snemma eða í síðustu öld og þá var franska ríkjandi tungumál í alþjóða- samskiptum.“ Námið í skólanum er byggt á því að nemendur hafi lokið almennu grunn- skólanámi. Önnur menntun og kunn- átta er síðan rnetin hverju sinni. Jón Ármann sagði að rniðað væri við að nemendur hefði starfað í það minnsta þrjá mánuði hjá stofnuninni, þegar þeir settust á skólabekkinn. Auk hans og Guðlaugar eru tveir aðrir fastráðn- ir við skólann. Eru það Hrafnhildur Ólafsdóttir, fulltrúi og Harald G. Halldórsson, tæknifulltrúi, sem kenn- ir tengingar. Hann er símsmíðameist- ari og hefur starfað hjá Pósti og sírna frá 1945. Hrafnhildur er yngst í hópnum, hóf störf árið 1990. Aðrir kennarar koma víðsvegar að úr sín- um störfum hjá stofnuninni, allt sér- fræðingar á sínu sviði. Alls eru það 60 til 80 aðilar sem kenna við skól- ann á vetri hverjum. Tölvubúnaður skólans var endurnýjaður fyrir skömmu og þar er auk þess fullkom- in aðstaða til verklegrar kennslu við störf við nýju afgreiðslukerfin. Auðvelt að fá heildar- mynd - segir Eva Gunnarsdóttir, fulltrúi „Ég tel það alveg nauðsynlegt fyr- ir alla sem starfa hjá stofnuninni að fara í skólann því það er auð- veldasta og kannski eina leiðin til að fá heildarmynd af öllu því fjöl- marga sem gert er hjá Pósti og síma, segir Eva Gunnarsdóttir, sem nú er í þeirn hluta námsins hjá Póst- og símaskólanum sem nefndur er Póstnám II eftir að hafa lokið Póstnámi I í nóvember sl. Eva er nú fulltrúi á skrifstofu um- dæmisstjóra í Umdæmi 1. Var fastráðin fyrir rúmu einu ári en hóf fyrst störf hjá Póstinum árið 1989 jafnhliða námi m.a. í menntaskóla og iðnskóla auk sérstaks tölvu- náms. Eva Gunnarsdóttir,ful\trúi. „Mér finnst ekki síður ánægjulegt og gagnlegt við skólanámið, að fá tækifæri til að kynnast vinnufélög- unum víðsvegar að af landinu. segir Eva ennfremur. „Reyndar hef ég líka verið svo heppin að fá tækifæri til að fara til Sauðár- króks, Blönduóss og í ýmis póst- hús á Reykjavíkursvæðinu til að leiðbeina vegna uppsetningar á nýju afgreiðslukerfunum. Eftir það er ég sannfærð um gildi þess að við starfsmenn Pósts og síma kynnumst sem mest innbyrðis og þá bæði með hag stofnunarinnar og starfsfólks í huga. I nýjum störfum Þórða Berg Óskarsdóttir hefur verið skipuð stöðvar- stjóri hjá Pósti og síma á Stokkseyri frá 15. janúar 1994. Hún er fædd 3. des- ernber árið 1941. Þórða hóf störf hjá Pósti og síma í Vestmannaeyjum 1. októ- ber 1960 og starfaði þar með hléum til ársins 1973 að hún vann um tíma í Hafnarfirði en réðst til Pósts og síma á Selfossi 1. október 1973. Var hún þar talsímavörður og nú síðast gjaldkeri áður en hún tók við hinu nýja starfi. Margrét Vigfúsdóttir hefur verið skipuð stöðvarstjóri hjá Pósti og síma í Ólafsvík frá 1. janúar 1994. Hún er fædd 4. apríl 1949. Margrét kom til starfa hjá Pósti og síma í Ólafsvík 2. júní 1980 og starfaði sem bréfberi, tal- símavörður og síðast póstaf- greiðslumaður þar til hún tók við starfi stöðvarstjóra. 7

x

Póstmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.