Póstmannablaðið - 01.05.1994, Page 8
ólfsson. Núverandi safnvörður er Jón
Agnar Skagfjörð.
Jón hel’ur verið safnvörður í Póst- og
símaminjasafninu í fimm ár. „Ætli ég
hafi ekki verið settur hingað sem
nokkurs konar sýnishorn af gömlum
póst- og símamanni, sagði hann í
spjalli við blaðamann Póstmanna-
blaðsins. Jón hóf störf í jarðsíma-
tengingum hjá Pósti og síma árið
1944 en hefur komið víða við innan
fyrirtækisins síðan þá. M.a. starfaði
hann um 13 ára skeið sem símstöðv-
arstjóri á Selfossi áður en hann tók
við vörslu safnsins.
„Hér er ágætlega búið að safngripum
en hitt er annað mál að húsnæðið er
orðið allt of lítið. Við erum með
geymslur víða og því miður er þess
ekki kostur að sýna sem vert væri
ýrnsa merkisgripi, sagði Jón Agnar
ennfremur. Hann sagði og að í safnið
kæmu unt 500 manns á ári hverju,
aðallega útlendingar.
Póst- og símasafnið er opið á sunnu-
dögum og þriðjudögum kl. 15-18.
Þeir sem vilja skoða safnið á öðrum
tímum hafi samband við safnvörð í
síma 54321. Aðgangur er ókeypis.
Það er margt sem minnir á gamla
tíma í Póst- og símaminjasafninu
sem er til húsa í gömlu símstöðinni
við Austurgötu 1 1 í Hafnarfirði. Þar
kennir margra grasa úr póst- og síma-
sögu okkar íslendinga og forvitnilegt
að sjá hvernig tækninni hefur fleygt
fram og allar aðstæður starfsmanna
breyst.
Safnið í Hafnarfirði var opnað í janú-
ar árið 1987 en langur aðdragandi var
að stofnun þess. Hölðu margir starfs-
menn Pósts og sínta haldið til haga
gömlum munum sem í dag eru uppi-
staða safnsins. Þá eru stöðugt að bæt-
ast nýir gripir í sal'nið. A enga er
hallað þótt nöfn þeirra Eyjólfs Þórð-
arsonar, efnisvarðar bæjarsímans í
Reykjavík og Matthíasar Guðmunds-
sonar, fyrrverandi póstmeistara í
Reykjavík séu nefnd í þessu sam-
bandi. Gunnar Bjarnason lciktjalda-
málari annaðist uppsetningu safnsins
en fyrsti safnvörður var Magnús Eyj-
Jón Agnar Slaigfjörð, safnvörður: „ætli ég sé ekki bara sýnishorn afgömlum póst~
og simamanm
i“i
Heimsókn í Póst- og símaminjasalnið:
Sagan við hvert fótmál
í safninu í Hafnarfirði er að finna marga gripi sem eru ómetanleg heimild um störf
póst- og símamanna fyrr á tíð.
8