Póstmannablaðið - 01.05.1994, Qupperneq 9
Þurfum að efla samstöðuna
Rætt við Þuríði Einarsdóttur, nykjörinn formann Póstmannafélagsins
uríður Einarsdóttir hlaut afgerandi
kosningu sem formaður PFI til
næstu þriggja ára í nýafstöðnum
kosningum. Póstmannablaðið ræddi
við Þuríði um starf hennar hjá Pósti
og síma og um trúnaðarstörf hennar
hjá Póstmannafélaginu.
Hverjar voru ástæður þess að þú
gafst kost á þér íformannskjörið?
- Fyrst og fremst lét ég undan
þrýstingi fjölda áskorana um að gefa
kost á mér. Að fenginni 6 ára reynslu
af stjórnarstörfum freistaði það mín
vissulega að takast á við þau verkefni
sem starfi formanns fylgir því næg
eru verkefnin sem fyrir liggja.
Hvenœr hófst þú stöifhjá póstinum?
- Það var haustið 1984. Fjölskyldan
var nýflutt frá Danmörku og ég þurfti
að fá vinnu sem næst heimilinu þar
sem börnin voru enn ung og gátu
ekki séð um sig sjálf. Ég bar því fyrst
niður á pósthúsinu R-9 sem þá var
við Arnarbakka. Þar réð þá ríkjum
Þorgeir Ingvason. Hann tók mér vel
og skrifaði nafn og síma hjá sér.
Síðan skall á verkfall BSRB sem
stóð í mánuð og 15. nóvember
hringdi Þorgeir í mig og sagði að ég
gæti byrjað daginn eftir. Þegar ég
rnætti biðu mín staflar af bréfum sem
ég skyldi lesa sundur og bera síðan
út. Það verður að segjast eins og er
að mér féllust næstum hendur, en
með hjálp góðra manna komst ég í
gegnurn fyrsta daginn. Smám sarnan
lærði ég starfið og líkaði bara vel.
Hver hefur ferillinn verið innan þjón-
ustunnar?
- Ég var bréfberi í 4 ár og fór þá í
Póstskólann og réð mig svo sem
gjaldkeri á R-9. í því starfi var ég til
ársbyrjunar 1993 að ég fékk stöðu
fulltrúa í erlendum viðskiptum á
Póstgíró.
KYNNING A
PÓSTMANNI
Nafn: Þuríður Einarsdóttir.
Fædd: 15. nóvember 1949.
Vinnustaður: Póstgíró.
Launaflokkur: 441,8. þrep.
Félagsstörf: í stjórn PFÍ frá
1988, formaður frá 1994.
Þetta er um margt ólík störf er það
ekki?
- Þau hafa öll kosti og galla. Starf
bréfbera bíður upp á mikla útiveru og
hreyfingu þótt oft sé það erfitt vegna
póstmagns og færðar. Gjaldkera-
starfið er Ijölbreytt og býður upp á
mikil mannleg samskipti en er mjög
krefjandi og oft á tíðum fylgir því
mikið andlegt álag. Fulltrúastarfið er
andstæða við hin tvö störfin. Það er
eftirlitsstarf sem krefst einbeitingar
og samskipti við önnur pósthús og
viðskiptavini eru í síma og bréflega,
bæði á íslensku og erlendum tungum.
Hvað með störfþín í þágu félagsins?
- Ég var fyrst kosin varamaður í
félagsráð árið 1986 fyrir bréfadeild
og aðalmaðurl988 og fór þá inn í
stjórn PFÍ. Árið 1990 og aftur 1992
fór ég í stjóm fyrir póstafgreiðslu-
menn og 1992 var ég kosin ritari
stjómar. Árið 1994 er í fyrsta sinn
kosið samkvæmt nýjum lögum PFI
og formaður kosinn beinni kosningu
og ég náði kjöri. Auk þessa hef ég
verið formaður Styrktarsjóðs síðan
1993 og átt sæti í jafnréttisnefnd
BSRB.
Þín bíða mörg verkefni sem nýr for-
maður PFI. Hver eru mest aðkall-
andi?
- Launamál og félagsleg réttindi
verða alltaf aðalverkefni forystu
hvers verkalýðsfélags og ekki síst
fyrir PFI, sem hefur svo stóran hóp
félagsmanna, sem fá láglaunabætur.
Brýnt verkefni verður að gera við-
semjendum okkar ljóst hversu bág
staðan er. Einnig þarf að fá félags-
menn til að efla samstöðu innan
félagsins. Vekja þarf áhuga póst-
manna á því að þeir þurfi að fylgjast
mjög vel með og vera vakandi fyrir
nýjungum í þjónustunni. Þeir þurfa
einnig að hafa það hugfast að sofni
þeir á verðinum getur starfið verið
tekið frá þeim þegar minnst varir.
Póstmenn eru ekki vanir því að þurfa
að lokka til sín viðskiptavini. Hingað
til hafa þeir ekki átt annan kost en að
versla við póstinn en nú er öldin
önnur og styggð á viðskiptavini getur
kostað brotthvarf.
Að lokum eitthvað skemmtilegt sem
hefur hent þig?
- Ég get nú ekki tilgreint neitt sér-
stakt atvik sem er skemmtilegt þó oft
hafi ýmislegt spaugilegt hent. Störfin
hjá póstinum eru svo fjölbreytt og
lifandi. Maður kynnist mörgu fólki út
urn land allt, þó aðallega í gegnum
síma og það kemur oft skemmtilega á
óvart að hitta fólk sem maður hefur
áður verið búinn að mynda sér fyrir-
fram skoðun á.
9