Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 12
Salurinn í gamla Sigtúni í Reykjavík var troðfullur og hátíðarsvipur yfir 75 ára afmæli Póstmannafélags Islands.
Glæsilegur
afmælls-
fagnaður PFÍ
að var glatt á hjalla í*75 ára af-
mælisfagnaði Póstmannafélags
Islands, en hann var haldinn í Sigtúni
við Austurvöll á afmælisdaginn, 26.
mars sl. Fjöldi póstmanna lagði leið
sína í Sigtún þennan dag auk þess
sem margir gestir komu til að heiðra
félagið á merkum tímamótum. Af
eðlilegum ástæðum settu póstmenn
af Reykjavíkursvæðinu svip á sam-
komuna en þess má geta að Póstur og
sími sendi starfsfólki allra pósthúsa á
landinu tertu af þessu tilefni.
Meðal þeirra sem sendu gjafir og
kveðjur til Póstmannafélagsins voru
BSRB, Póstur og sími, Starfsmanna-
félag ríkisstofnana, Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar, Landssamband
lögreglumanna, Landssamband
slökkviliðsmanna, Fósturfélag ís-
lands, Félag íslenskra símamanna og
stöðvarstjórar Pósts og síma auk þess
sem skeyti bárust úr ýmsum áttum.
Kunna póstmenn þessum aðilum
bestu þakkir fyrir.
Hátíðarbragur var á samkomunni í
Sigtúni og m.a. var þar uppi nýr og
glæsilegur félagsfáni sem hafði verið
saumaður í tilefni afmælisins. Við
skulum ekki hafa þessi orð fleiri að
sinni en látum myndirnar tala þess í
stað.
Inga Guðmundsdóttir, Ragnheiður
Jónsdóttir og Vilhelmína Magnúsdóttir.
Fyrrverandi formenn PFI voru heiðraðir með gullmerki félagsins. Myndin er tekin
við það tækifæri.
12