Póstmannablaðið - 01.05.1994, Qupperneq 15

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Qupperneq 15
formaður, Arni Þ. Jónsson gefi kost á sér til endurkjörs. Undir þetta skrifuðu síðan 62 póst- menn og þar á meðal margir, sem framarlega stóðu í félagsmálum. - Já ég mat þetta nokkurs og varð við á- skoruninni. Arni Þ. Jónsson er Þingeyingur að uppruna en fluttisl ungur til Seyðis- fjarðar þar sem hann hóf störf hjá Kaupfélagi Austfirðinga sem ungur maður. Undir lok stríðsins flutti hann svo til Reykjavíkur. „Á Seyðisfirði gerðust mikil stórtíð- indi strax í byrjun síðari heimsstyrj- aldar. Bretar settu þar strax við her- námið árið 1940 upp geysimikla flotastöð. Þjóðverjar flugu oft yfir bæinn á þessum árum og gerðu þar líka loftárás og þar slösuðust líka Is- lendingar af völdum þeirra. Viðskiptahættir í kaupfélaginu á Seyðisfirði breyttust auðvitað heil- mikið, þegar þessi fjöldi bresku sjóliða kom til skjalana. Eg minnist þess að í byrjun styrjaldarinnar áttum við heil ósköp af vaðmálsefni frá Gefjun á Akureyri, sem alls ekki gekk út. Efnið líkaði illa og þótti bæði gróft og Ijótt, þó slitsterkt væri. Þegar bretarnir komu snérist dæmið hinsvegar við. Vaðmálið frá Gefjun var rifið út og þegar allt var þrotið kom hvað eftir annað fyrir að breskir sjóliðar komu með efnisbúta með sér og vildu fá meira. En við því var ekki hægt að verða. Eftir að Árni Uuttist suður hóf hann störf í Pósthúsinu í Reykjavík árið 1946. Um þær breytingar, sem síðan hafa orðið á allra póststarfsemi mætti hafa mörg orð. Póstmenn í dag, sem ekki muna þessa tíma, skilja þær lík- lega best, þegar rifjað er upp að þá var Pósthúsið í gamla miðbænum eina pósthúsið í Reykjavík að því frá- töldu að Tollpóststofan var í Hafnar- húsinu. Við þökkum Árna kærlega fyrir spjallið. Þuríður Einarsdóttir, formaður. Kosnincjar til formanns og stjórnar: Ný forysta Eins og póstmönnum er kunnugt hafa farið fram kosningar til formanns og stjórnar Póstmanna- félagsins. Á kjörskrá voru 979 manns en atkvæði greiddu 800 eða 82%. Tóll' atkvæði voru auð og ógild. Atkvæði voru talin 28. mars og hlulu eftirfarandi gildandi kosn- ingu: Formaður var kjörin Þuríður Ein- arsdóttir og með henni í stjórn voru kosnir þessir: Anna Scheving, Akureyri og til vara Kristrún Kristjánsdóttir, R II. Jón Ingi Jón lngi Kristín V. Þorgeir A ðalsteinn Anna Margrét Cœsarsson, Akureyri og lil vara Herborg Þorgeirsdóttir, Garðabæ, Þorgeir Ingvarsson, Mosfellsbæ og til vara Erla Eyjólfsdóttir, Laugarvatni, Kristín V. Gísla- dóttir, Póstmáladeild og til vara Elísabet R. Friðriksdóttir, Póstgíró og Aðalsteinn P. Guðjónsson, Böggladeild og til vara Örn Helga- son, Bréfadeild. Trúnaðarráð valdi Margréti Ragnarsdóttur, Böggla- deild til setu í stjórn og til vara Gunnar Þór Sigurjónsson, Egils- stöðum. Kjörnefnd að störfum á skrifstofu PFI. 82% póstmanna tóku þátt kosningun- um.

x

Póstmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.