Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 16

Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 16
„Til að bæta hag póstmanna og gæta hagsmuna þeirra... Stiklað á stóru í sögu Póstmannafélags íslands Hinn 26. mars 1919 héldu póst- mennirnir í Reykjavík fund með sér í pósthúsinu. Hinn 25. s.m. hafði verið haldinn almennur fundur lands- starfsmanna í Reykjavík. Á þeim fundi var kosin nefnd til að koma á allsherjarfélagsskap meðal allra starfsmanna landsins. Eftir tilhlutun þessarar nefndar var póstmannafund- urinn haldinn. Var þar samþykkl að stofna póstmannafélag, til þess að bæta hag póstmanna og gæta hags- muna þeirra.“ Þannig hljóðar upphaf fyrstu fundar- gerðar Póstmannafélags Islands, en hún er til varðveitt í handriti. Við skulum huga að tilurð þessa félags senr nú minnist 75 ára afmælis síns og stikla á stóru í þróun þess framan af. Fyrsti íslenski póstmaðurinn Sögu íslenskra póstmanna má rekja allt aftur til ársins 1776 þegar Krist- ján konungur VII gaf út tilskipun um að komið skuli á póstferðum innan- lands á Islandi. Fyrsta póstferðin var þó ekki farin fyrr enlO. febrúar 1782 þegar maður að nafni Ari Guð- mundsson fór með póst frá Reykjar- firði við Isafjarðardjúp suður um firði og kom 16. febrúar að Haga á Barðaströnd. Hlýtur sá ágæti maður að teljast fyrsti íslenski póstmaður- inn. Þeim fór tjölgandi næstu ár- hundruðin en það var ekki fyrr en á morgni 20. aldar sem menn fóru að huga að félagsstofnun. Það var engin tilviljun að póstmenn vildu efna til stofnunar félags einmitt á þessum tíma, þ.e. vorið 1919. Verkalýðshreyfingin var á bernsku- skeiði og í mikilli deiglu enda félög í hinum ýmsu starfsgreinum stofnuð út um land allt. Þá höfðu Islendingar nýlega öðlast fullveldi og töldu launamenn affarasælast að bindast samtökum til að geta samið um kaup og kjör við þau stjórnvöld sem voru 16

x

Póstmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póstmannablaðið
https://timarit.is/publication/802

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.