Póstmannablaðið - 01.05.1994, Síða 19
Fyrsta ritnefnd Póstmannablaðsins. Frá vinstri: Kjartan Sigurðsson, Sveinn G.
Björnssori og Tryggvi Magnússon.
finna og full þörf á að varðveita með
varanlegum hætti. Brautryðjendurnir
11, sent komu saman til fundar í
Pósthúsinu í Reykjavík vorið 1919,
svo og fjölmargir sporgöngumenn
þeirra á vettvangi félagsins, eiga
sannarlega skilið að þeirra minning
sé heiðruð með slíkunt hætti. Er
þessari hugmynd hér með komið á
framfæri.
Við skulum enda þessa samantekt á
orðum Matthíasar Guðmundssonar
fyrrum póstmeistara í Reykjavík er
hann lét falla í afmælisgrein um PFI
er félagið varð 50 ára. Þau eiga vel
við, enn þann dag í dag:
„Þegar litið er yfir 50 ára starfs-
tímabil Póstmannafélags Islands má
sjá að margt hefur áunnist fyrir stétt-
ina. Félagið hefur knúið fast á i rétt-
indabaráttunni og á stundum hefur
það unnið brautryðjendastaif qf
hálfu opinherra staifsmanna. / raiin-
inni hafa orðið miklar breytingar á
starfsskilyrðum póstmanna í höfuð-
borginni og víða út á landi. En lengi
má bœta um í þeim efnum. Ný verk-
efni blasa hvarvetna við, svo sem
vera ber í stofnun, sem háð er þróun
tímans og kröfum framsœkinnar
þjóðar. Er póstþjónustunni því mik-
ilsvert, að vel sé húið að henni og því
starfsliði sem hana skipar.
Formenn PF11919-1994
1919-1923 Þorleifur Jónsson 1960-1961 Ari Jóhannesson
1923-1929 Guðmundur Bergsson 1961-1962 Dýrmundur Olafsson
1929-1931 Egill Sandholt 1962-1964 Arni Þ. Jónsson
1931-1935 Jón H. Leós 1964-1965 Asgeir Kröyer
1935-1936 Sveinn G. Björnsson 1965-1966 Haraldur Sigurðsson
1936-1938 Tryggvi Magnússon 1966-1967 Tryggvi Haraldsson
1938-1939 Sæmundur Helgason 1967-1968 Björn Björnsson
1939-1941 Sveinn G. Björnsson 1968-1971 Asgeir Höskuldsson
1941-1945 Hannes Björnsson 1971-1976 Reynir Armannsson
1945-1950 Matthías Guðmundsson 1976-1984 Björn Björnsson
1950-1952 Karl Hjálmarsson 1984-1986 Þorgeir Ingvason
1952-1953 Sigurður Ingason 1986-1988 Kristín J. Jakobsdóttir
1953-1956 Matthías Guðmundsson 1988-1994 Lea Þórarinsdóttir
1956- 1957 1957- 1960 Skarphéðinn Pétursson Tryggvi Haraldsson 1994- Þuríður Einarsdóttir
Mataruppskrift
mánaðarins
Berta Guðmundsdóttir á ísafirði
tók áskorun Guðlaugar Pétursdótt-
ur í Grundarfirði og birtir hér upp-
skrift að fiskrétti:
Fiskkvintett
200 gr. skötuselur
200 gr. lúða
200 gr. hörpudiskur
200 gr. rækjur
300 gr. kræklingur (I dós)
/ stk laukur, saxaður
50 gr. smjörlíki
1 dós sýrður rjómi
100 gr. majones
Sqfi úr hálfri sítrónu
2 tsk. karrý
2 tsk. salt
I bolli hvítvín
Skerið skötuselinn og lúðuna í
litla bita. Bræðið smjörlíkið á
pönnu og kraumið laukinn smá-
stund. Bætið svo hvítvíninu,
sítrónusafanum og safanum af
kræklingunum út í. Þá er lúðubit-
unum og skötuselnum bætt út í á-
samt hörpudiskinum. Suðan látin
koma upp og fiskinum velt aðeins
í soðinu.
Takið fiskinn upp úr og setjið í
sigti svo ekkcrt af soðinu fari til
spillis. Sjóðið soðið niður þar til
það fer að þykkna. Kælið aðeins.
Blandið saman sýrða rjómanum
og majonesinu og kryddið með
karrý og salti. Blandið síðan fisk-
soðinu saman við.
Smyrjið eldfasta skál, setjið fisk-
inn í ásamt rækjunum og kræk-
lingnum. Dreifið sósunni yfir. Sett
í 200 gráðu heitan ofn og bakað í
25-30 mínútur. Borið fram með
soðnum hrísgrjónum og góðu
brauði.
Bcrki GuÖniuiulscióttir
skorar á Þórunni
Sncubjarnarclóttur í
Rcykjahlíó ac5 scncla
PóstmannablaÖinn
nccstu nppskrift í þcss-
um clálki.
19