Póstmannablaðið - 01.05.1994, Page 24
Krafan um aukin réttindi til handa atvinnulausum setti svip á 1. maí í ár.
Atvinnulausir félagsmenn PFÍ:
Njóta fullra félagsréttinda
W s
Anýafstöðnum aðalfundi PFI voru
gerðar mikilvægar breytingar á
lögum félagsins sem hafa í för með
sér full félagsréttindi fyrir atvinnu-
lausa félagsmenn. Fjölmenni var á
fundinum, um 100 manns og var
Ragnheiður Björnsdóttir fundarstjóri.
Lea Þórarinsdóttir, fyrrverandi for-
maður félagsins flutti skýrslu stjórnar
og Guðný Aradóttir, fyrrverandi gjald-
keri, gerði grein fyrir reikningunum.
Að loknum hefðbundnum dagskrár-
liðum lagði Jón Ingi Cæsarsson fram
breytingatillögur laganefndar við lög
PFI og voru þær allar samþykktar:
1. Ný málsgrein bætist við 3. gr. lag-
anna.: Félagsmenn, sem verða at-
vinnulausir skulu halda félagsað-
ild og þeim réttindum sem er á
færi félagsins að veita, á meðan
þeir eru atvinnulausir. Atvinnu-
lausir greiði félagsgjald, en stjórn
félagsins er heimilt að fella það
niður að hluta eða öllu leyti.
2. Fyrsta málsgrein 8. gr. verði
svohljóðandi: Félaginu stjórnar
trúnaðarráð, skipað formanni fé-
lagsins, framkvæmdastjórn og
kjörnum trúnaðarmönnum vinnu-
staða. Trúnaðarmenn vinnustaða
ásamt einum varamanni eru kosnir
samkvæmt eftirfarandi svæða-
skiptingu. Ráðið er kosið til
þriggja ára. Flytjist trúnaðarmaður
á milli svæða á tímabilinu, tekur
varamaður við.
3. I fyrstu málsgrein, 15. gr.. breytist
„til tveggja ára í „til þriggja ára .
Nýr liður, f) liður, bætist við 15.
Jón Ingi Cæsarsson, formaður PFÍ
sæmdi Leu gullmerkinu.
gr. svohljóðandi: Rauðabergsnefnd.
í henni skulu vera fimm menn og
þrír til vara.
4. Við 17. gr. e) lið bætist „til
tveggja ára .
5. í l'yrstu málsgrein 23. gr. breytist
„til tveggja ára í „til þriggja ára .
Þriðja málsgrein 23. gr., sem hefst
á orðunum: „Láti trúnaðarmaður
af störfum o.s.frv. fellur niður.
Lea sæmd gullmerki
Lea Þórarinsdóttir, fráfarandi for-
maður PFÍ, var heiðruð sérstaklega á
aðalfundinum með gullmerki félags-
ins. Jón Ingi Cæsarsson, varaformað-
ur, þakkaði Leu störf hennar í þágu
félagsins og óskaði henni farsældar.
Lea þakkaði Jóni Inga og óskaði
Póstmannafélagi Islands gæfu og
gengis. Þuríður Einarsdóttir tók síð-
an við formennsku við lófaklapp
fundarmanna.
Að vanda bauð félagið upp á kaffi og
rjómatertu og gerðu fundarmenn
veitingum góð skil.