Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Snjó hefur kyngt niður í höfuðborginni síðustu daga, sumum til gleði en öðrum armæðu. Færðin getur gert mörgum erfitt fyrir, ekki síst þeim sem fótfúnir eru og eins illa búnum bílum. Flug- vélarnar þurfa víst líka að komast leiðar sinnar og á Reykjavíkurflugvelli var snjórinn ekki fyrr svifinn til jarðar en honum var þeytt hátt í loft upp að nýju, enda er allt kapp lagt á að halda flugbrautunum auðum. Snjónum þeytt í allar áttir Morgunblaðið/RAX Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hús Íslensku óperunnar við Ingólfs- stræti er auglýst til langtímaleigu í Morgunblaðinu í dag. Að sögn Stef- áns Baldurssonar óperustjóra tók stjórn hennar ákvörðun um að leigja húsið út til nokkurra ára þar sem Íslenska óperan færir sig yfir í tónlistarhúsið Hörpu nú í vor. Eignamiðlun og Fasteignamark- aðurinn annast útleigu hússins. Hentar húsið vel til tónleikahalds og leiksýninga að sögn Stefáns en það er í friðunarferli. „Það þýðir að það hlýtur eiginlega að þurfa að nýtast sem samkomuhús. Það er vissulega hægt að gera á því ákveðnar breytingar en það verður allt að gerast í samráði við húsa- friðunarnefnd.“ Glæsilegasta samkomuhúsið Húsið var byggt sem kvikmynda- hús og opnað árið 1927. Þá þótti það glæsilegasta kvikmynda- og samkomuhús bæjarins. Voru þar sýndar kvikmyndir í yfir hálfa öld auk þess sem fjölmargir tónleikar voru haldnir þar. Íslenska óperan festi kaup á hús- inu fyrir þrjátíu árum og var það dánargjöf frá Sigurliða Kristjáns- syni, öðrum helmingi Silla og Valda, og eiginkonu hans Helgu Jónsdóttur sem gerði henni kleift að eignast húsnæðið. Stefán segir að það hljóti að verða söknuður að skilja við húsið. „Þetta er afskaplega sjarmerandi hús og fallegt. Það er margt í því upprunalegt, til dæmis er salurinn í aðalatriðum eins og hann var upp- haflega. Sömuleiðis eru forsalur og ytra anddyri meira og minna upp- runaleg.“ Hús Íslensku óperunnar auglýst til langtímaleigu Morgunblaðið/Árni Sæberg Gamla bíó Hús Íslensku óperunnar við Ingólfsstræti verður leigt út.  Verður líklegast leigt undir leik- eða tónlistarstarfsemi Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þingflokkur VG vildi halda þeim Atla Gíslasyni og Lilju Mósesdóttur fyrir utan allar þingnefndir og setja aðra VG-þingmenn í stað þeirra þegar kosið var í nefndasætin sem þau höfðu skipað í gær. Það tókst VG ekki því Ásmundur Einar Daðason ákvað að gefa eftir sitt sæti í sjávarútvegs- og landbún- aðarnefnd fyrir Atla Gíslason. Atli hefur verið formaður þeirrar nefnd- ar það sem af er þingi. Ásmundur Einar mun telja að Atli hafi staðið sig mjög vel í sjávarútvegs- og land- búnaðarnefnd og hann búi yfir yfir- gripsmikilli reynslu og þekkingu sem dýrmætt sé fyrir störf nefnd- arinnar. Það var Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sem hvatti til þess að Lilja yrði kosin í efnahags- og skattanefnd og því var Lilja kjörin á nýjan leik í þá nefnd og það varð niðurstaðan. Atli og Lilja í nefndir Ásmundur Einar Daðason Ásmundur Einar gaf eftir sæti fyrir Atla Margrét Tryggvadóttir Ríflega 10.000 manns höfðu skrifað undir áskorun á borgarstjórn Reykjavíkur um að falla frá fyrir- huguðum sameiningaráformum í skólum borgarinnar þegar Morgun- blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Alls voru undirskriftir á síðunni born.is orðnar 10.264 talsins. Söfn- unin hefur staðið síðan á sunnudag en henni lýkur í dag og verður list- inn afhentur í Ráðhúsinu kl. 16.30. Á 11. þúsund skrifað undir Handhægar umbúðir með tappa Barnsins stoð og stytta Nánari upplýsingar um Stoðmjólk á www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Fjárhagsleg hagræðing sem hlýst af fyrirhugaðri sameiningu leikskóla í Reykjavík er áætluð 105 milljónir króna á ári, eða sem samsvarar 4% af heildarútgjöldum leikskólanna sem sameina á. Alls hefur sameining fjórtán leikskóla verið lögð til, í tveimur tilvikum sameining þriggja leikskóla. Hver sameining skilar samkvæmt þessu að meðaltali tæp- um 7,5 milljónum í sparnað á ári. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í svari menntaráðs Reykja- víkur við fyrirspurn SAMFOK og Barnanna okkar, samtaka foreldra verði hagkvæmari sem aftur leiðir til lækkaðrar „innri“ húsaleigu. Endur- skipulagning í Hvassaleitisskóla gæti til að mynda sparað samtals 26 milljónir á þessu ári og því næsta. Á frístundaheimilum borgarinnar er ráðgert að þrjár rekstrarstjóra- stöður verði lagðar niður, sem skilaði 17,5 milljónum króna í sparnaði á ári. Þá verður leitast við að leggja niður 16% stöðugildi aðstoðarverkefnis- stjóra á 15 frístundaheimilum, sem áætlað er að skili 11 milljóna króna sparnaði. Þetta verður því aðeins framkvæmanlegt geti viðkomandi skóli fellt þau verkefni sem út af standa inn í starf sitt án þess að gjald komi fyrir. leikskólabarna í Reykjavík. Hvað grunnskóla varðar eru þrjár samein- ingar fyrirhugaðar. Í hverju tilviki næst fram sparnaður sem svarar til launakostnaðar stjórnenda, þó með þeim fyrirvara að viðkomandi geta átt rétt á biðlaunum í 6 til 12 mánuði. Sparnaðarupphæð óljós Af þessu má ráða að endanleg sparnaðartala verður ekki þekkt fyrr en fyrir liggur hverjir verða ráðnir og hversu margir fara á bið- laun. Gert er ráð fyrir fimm mánaða biðlaunakostnaði að meðaltali á þessu ári. Auk launakostnaðar stjórnenda er ráðgert að sameining- ar leiði til þess að bekkjarstærðir Sparnaður að meðaltali 4%  Fyrirhugaðar sameiningar leikskóla í Reykjavík skila að meðaltali 7,5 milljóna króna sparnaði á ári  Biðlaunaréttindi vega upp á móti sparnaði á launakostnaði Sameiningar » Verði af áformum Reykjavík- urborgar um sameiningu leik- skóla verða þrjátíu leikskólar sameinaðir í fjórtán einingar. » Hagræðing hvers og eins, sem hlutfall af útgjöldum, er áætluð á bilinu 2,3 til 6,4%. » Gert er ráð fyrir að tilfærsla bekkjardeilda milli skóla leiði til tæplega 30 milljóna króna sparnaðar á ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.