Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Forysta VG hringsnerist og hentifrá sér veigamestu stefnuatrið- um og kosningaloforðum að kröfu Samfylkingar. Það gilti um ESB, AGS, Icesave, Magma og skjaldborg- ina, svo fátt eitt sé nefnt. Þá var enginn viðleitni til að standa í lappirnar og sýna staðfestu og styrk.    En þegar þarf aðsýna þing- mönnum í eigin flokki í tvo heimana þá er styrkurinn nægur og ekki beðið boðanna.    Þingmenn semekki segja sig úr flokknum, held- ur kjósa að víkja úr þingflokknum vegna samvisku sinnar og trúnaðar við stefnu og kosningaloforð, er sam- stundis hent út úr nefndum þingsins.    Og það er ekki látið nægja. AtliGíslason hefur upplýst að for- ysta flokksins hafi ýtt á stjórnir ein- stakra félaga í kjördæmi hans sem þingmanns svo þær ályktuðu gegn honum og reyndu að flæma hann úr því þingsæti sem kjósendur tryggðu honum.    Því miður hafa hinar talhlýðnustjórnir látið sig hafa að gera ályktanir sem ekki fá staðist, eins og að flokkar eigi þingsæti en ekki þeir sem hljóta kosningu í þau.    Stjórnarskráin gerir ráð fyrir aðþingmenn fari eftir samvisku sinni. Stjórnmálaflokkar eru ekki með skilgreinda samvisku eftir því sem best er vitað svo stjórnarskráin getur ekki átt við þá. VG hefur þess utan undirstrikað að flokkurinn sé örugglega og algjörlega sam- viskulaus eins og meðferð hans á heil- ögum stefnumálum og kosningalof- orðum hefur sýnt. Atli Gíslason Hreinsanir í gömlum stíl STAKSTEINAR Steingrímur J. Veður víða um heim 23.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 alskýjað Bolungarvík -5 skýjað Akureyri 0 skýjað Egilsstaðir 0 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 2 alskýjað Nuuk -10 heiðskírt Þórshöfn 7 þoka Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 heiðskírt Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 2 heiðskírt Lúxemborg 16 heiðskírt Brussel 16 heiðskírt Dublin 12 léttskýjað Glasgow 15 léttskýjað London 15 heiðskírt París 17 heiðskírt Amsterdam 12 heiðskírt Hamborg 10 heiðskírt Berlín 12 heiðskírt Vín 15 skýjað Moskva 0 snjókoma Algarve 20 léttskýjað Madríd 10 skúrir Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 13 léttskýjað Aþena 11 léttskýjað Winnipeg -8 heiðskírt Montreal -3 léttskýjað New York 2 slydda Chicago 5 alskýjað Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:15 19:54 ÍSAFJÖRÐUR 7:18 20:01 SIGLUFJÖRÐUR 7:01 19:44 DJÚPIVOGUR 6:44 19:24 Einn af frambjóðendunum við hinar ógiltu stjórnlagaþingskosningar hef- ur formlega krafist þess að kosningin verði endurtekin. Áskilur hann sér rétt til að krefjast skaðabóta úr rík- issjóði ef ekki verður fallist á kröfu um uppkosningu. „Það er mín bjargfasta trú að upp- kosning er eina lögmæta leiðin eftir að framkvæmd kosninganna var úr- skurðuð ógild,“ segir Sigurður Aðal- steinsson á Vaðbrekku á Jökuldal um kröfu sína til innanríkisráðuneytis- ins. Sigurður bendir á að í lögunum um stjórnlagaþing er vísað til almennra kosningalaga um þau atriði sem ekki er tekið á þar. Þar sé skýrt að kjósa skuli aftur, ef kosningar eru úr- skurðaðar ógild- ar, og á það hafi margsinnis reynt í sveitarstjórnar- kosningum. „Það er fá- dæma ósvífni og valdníðsla, ef al- gerlega á að hunsa úrskurð Hæstaréttar,“ segir Sigurður um til- lögu þingmanna um að skipa 25 full- trúa stjórnlagaráð á grundvelli hinna ógiltu kosninga. „Það er svo sem ekki við öðru að búast af þessari ríkis- stjórn,“ bætir hann við. helgi@mbl.is Formlega krafist nýrra kosninga  Áskilur sér rétt til skaðabóta Sigurður Aðalsteinsson Kristján Jónsson kjon@mbl.is Lítil og meðalstór fyrirtæki skortir oft sérþekkingu og tíma til að nýta sér leiðir Beinu brautarinnar svo- nefndu sem kynnt var í desember og átti að leysa skuldavandann. Hefur starfið gengið hægar en áætlað var, að sögn Viðskiptaráðs. Gert var sam- komulag milli stjórnvalda, samtaka fyrirtækja og atvinnurekenda um þessa leið í fyrra. Upprunalega mark- miðið var að mál lítilla og meðalstórra fyrirtækja yrðu almennt í höfn í júní. Árni Páll Árnason viðskiptaráðherra segir ljóst að það væri bjartsýni að reikna með að það gangi eftir. „Hugmyndin er góð en það er auð- vitað flókið að afgreiða mörg mál á stuttum tíma,“ segir Árni Páll. „En bankarnir hafa líka þurft að tileinka sér nýtt verklag. Þeir þurfa að vera tilbúnir að afskrifa kröfur. Ég bað sérstaklega um samantekt á atriðum sem kynnu að hafa truflað þetta ferli og hvort við gætum gert eitthvað til að greiða fyrir málum. Ég hef lagt áherslu á að fyrirtækin hafi hvata til að semja, að þau glati ekki betri rétti þó svo að þau fari inn á þessa leið og semji. Ef t.d. gengislán þeirra verði dæmd ólögmæt njóti þau þess á síðari stigum. Í einhverjum til- vikum hafa þau hikað. Sama á við um bankana, þeir verða að flýta sér. Það er mjög mikilvægt að þeir hafi snör handtök við skulda- meðferðina af því að hún er sam- félagslega mjög mikilvæg. Fyrirtækin verða að geta farið að fjölga atvinnutækifærum en skulda- meðferðin er líka mikilvæg fyrir bankana sem eru auðvitað lasburða fyrirtæki meðan þeir eru með allt upp undir 40% af útlánum í vanskil- um.“ Ráðherra er spurður hvort bank- arnir séu ekki milli tveggja elda, þeir vilji vöxt í atvinnulífinu en jafnframt geta sýnt góða útlánastöðu út á við í ársreikningi. „Þetta er hinn klassíski vandi banka í kreppu,“ svarar Árni Páll. „Þeir vilja hanga á skuldunum og af- skrifa sem minnst og vona að þeir fái allt. En ef þeir gera of mikið af þessu eru líkur á að þeir fái ekkert af því að viðsnúningurinn í efnahagslífinu verður svo hægur.“ Kannað hvað valdi truflunum  Viðskiptaráðherra hvetur bankana til að hraða sér á Beinu brautinni  Endurskipulagning hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum klárast varla í júní Morgunblaðið/Kristján Störf Víða þrengir að fyrirtækjum. Nokkur skilyrði » Sett voru skilyrði fyrir því að fyrirtæki fengju fjárhagslega endurskipulagningu. » Þau verða að vera lífvænleg, skulda innan við milljarð. » Hagsmunir kröfuhafa séu best tryggðir með því að fyr- irtækið sé áfram í rekstri. » Í byrjun mars munu 363 fyr- irtæki hafa verið búin að fá til- boð um endurskipulagningu. Eftir verðlaunahönnuðinn Hörð Lárusson. Komin í verslanir. 1.999kr. Þjóðfáni Íslands - notkun, virðing og umgengni HönnunarMars DesignMarch 24.–27.03.2011

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.