Morgunblaðið - 24.03.2011, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Í dag, fimmtu-
dag, kl. 12-13,
stendur Stofnun
stjórnsýslufræða
og stjórnmála
fyrir hádegis-
fyrirlestri undir
yfirskriftinni „Í
kjölfar hrunsins:
Hvernig höldum
við yfirsýn í miðri atburðarásinni?“
Fyrirlesturinn fer fram Háskóla Ís-
lands í stofu 105 á Háskólatorgi.
Aðalfyrirlesari verður Mark
Blyth, prófessor í pólitískri hag-
fræði við Brown University. Í fyr-
irlestrinum verður staða Íslands
skoðuð í samhengi við fjár-
málahöggið sem landið varð fyrir
og efnahagsbatann auk þess sem
reynt verður að greina hver fram-
tíðarþróun efnahagsmála verður.
Hádegisfyrirlestur
um efnahagsbatann
Þórey S. Þórð-
ardóttir hæsta-
réttarlögmaður
hefur verið ráðin
framkvæmda-
stjóri Lands-
samtaka lífeyr-
issjóða í stað
Hrafns Magn-
ússonar, sem læt-
ur af störfum síð-
ar á árinu, en
Þórey tekur formlega við starfinu
1. ágúst. Alls sóttu 47 um starf
framkvæmdastjóra. Hagvangur að-
stoðaði stjórn Landssamtaka lífeyr-
issjóða við ráðningarferlið og hún
samþykkti ráðningu Þóreyjar á
fundi sínum í gær. Þórey fæddist í
Reykjavík 17. september 1967. Hún
lauk embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands árið 1995 og meist-
araprófi frá University of Wash-
ington í Bandaríkjunum árið 1997.
Hún tók próf í verðbréfaviðskiptum
árið 2007. Þórey öðlaðist héraðs-
dómslögmannsréttindi árið 1997 og
varð hæstaréttarlögmaður árið
2008.
Þórey starfaði um árabil sem for-
stöðumaður réttindamála hjá Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins
(LSR) og Lífeyrissjóði hjúkr-
unarfræðinga (LH). Hún er nú sjálf-
stætt starfandi lögmaður og rekur
lögmannsstofuna Lögsetrið sf. Þór-
ey er gift Ómari Þór Eyjólfssyni
lögfræðingi og eiga þau þrjú börn.
Þórey S. Þórðardóttir ráðin framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Þórey S.
Þórðardóttir
Nýjar vörur frá
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið: mán.-fös. kl. 11-18 | lau. 10-16
Str. 38-56
Malou
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Glæsileg
undirföt
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16
20% afsláttur
af bolum og buxum
Kjólar og dragtir
Laugavegi 84 • sími 551 0756
Laugavegi 63 • S: 551 4422
VORFRAKKARNIR
KOMNIR
Heilsársfrakkar með lausu fóðri
skoðið sýnishorn álaxdal.is