Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 12
Morgunblaðið/hag Á rauðum lista Landmannalaugar og Friðlandið að Fjallabaki er meðal viðkvæmra og vinsælla ferðamannastaða. Slíkum perlum í náttúru Ís- lands gæti hnignað með auknum fjölda ferðafólks ef ekkert verður að gert á næstu árum. BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Svarið er einfalt, við erum einfaldlega mjög illa í stakk búin til að taka á móti auknum fjölda ferðamanna á þau svæði sem eru á rauðum lista hjá okkur, hvað þá ef verið er að tala um milljón ferðamenn hingað til lands á ári,“ segir Ólafur A. Jónsson, deildarstjóri náttúruverndar hjá Um- hverfisstofnun. Á síðasta ári kom um hálf milljón ferðamanna hingað til lands, en í umræðunni undanfarið hefur komið fram að fjöldinn gæti farið í eina milljón árið 2020. „Miðað við það bolmagn sem við höfum í dag getum við ekki tekið á móti þessum fjölda og munum sjá fram á hnignun viðkvæmustu svæð- anna,“ segir Ólafur „Það er eðlilegt að fólk sæki á þessa staði, en það er okkar verkefni að gera svæðin tilbúin til að taka á móti þessum fjölda með byggingu innviða og dreifingu ferða- manna.“ Ólafur nefnir að síðastliðið haust tók Um- hverfisstofnun saman árlega skýrslu til ráðherra um ástand og framkvæmdir á friðlýstum svæð- um og verndarsvæðum, auk Geysissvæðisins. Þar kemur fram að brýnast er að grípa til að- gerða til að sporna gegn átroðningi við Gullfoss, Geysi, Teigarhorn og í Friðlandi að Fjallabaki. Þarf strax að bregðast við. Önnur svæði sem lenda á rauðum lista, þar sem tafarlausar aðgerðir eru taldar nauðsyn- legar, eru Dyrhólaey, Grábrókargígar, Helgu- staðanáma fyrir utan Eskifjörð, Hveravellir, Reykjanesfólkvangur, Surtarbrandsgil við Brjánslæk og Teigarhorn við Berufjörð. Á app- elsínugulum lista eru svæði undir töluverðu álagi sem Umhverfisstofnun telur að þurfi að fylgjast vel með og bregðast við aðstæðum á ýmsan hátt. Á þeim lista eru Dynjandi, Eldborg í Bláfjöllum, Fossvogsbakkar, Geitland, Hraunfossar, Kring- ilsárrani, Laugarás og Mývatn/Laxá. Takmörkuð fjárráð takmarka aðgerðir Aðspurður um aðgerðir segir Ólafur að að- gerðir hafi verið skipulagðar á sumum þessara svæða eins og hvað varðar friðland að Fjallabaki, en þar sé unnið að verndaráætlun. „Hins vegar er það þannig að Umhverfisstofnun hefur tak- mörkuð fjárráð. Stofnunin hefur þurft að skera niður landvörslu á nánast öllum sínum svæðum og ekki getað aukið hana eins og við höfðum von- ast til. Viðvörunarbjöllunum var hringt þegar þessi skýrsla var kynnt síðastliðið haust og þá hefði verið brýnt að geta hafist handa. Það hefur þó ekki orðið og enn er beðið eftir að frumvarp um gjald á erlenda ferðamenn verði samþykkt. Það gæti skilað um 40 milljónum króna síðar á þessu ári, sem vonandi skila sér til umbóta á þessum verndarsvæðum,“ segir Ólafur. Náttúruperlur á rauðum lista er eitt margra erinda sem flutt verða á ársfundi Umhverf- isstofnunar á föstudag. Á fundinum tala m.a. Rannveig Rist og Björgólfur Thorsteinsson um miðlun umhverfisupplýsinga út frá sjónarhóli at- vinnulífs og almennings. Búið að hringja viðvörunarbjöllum  Ekki í stakk búin til að taka við milljón ferðamönnum á ári  Mörg viðkvæm svæði á rauðum lista og ótti við hnignun þeirra  Gjald á ferðamenn gæti skilað 40 milljónum  Landvarsla skorin niður 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Á aðalfundi Umhverfisstofnunar verða flutt mörg stutt erindi um málaflokka sem tengj- ast starfseminni. Í einu þeirra verður fjallað um þörf aðgerða í fráveitu- og skólpmálum. Gísli Jónsson, sérfræðingur hjá Umhverf- isstofnun, segir að staðan í skólpmálum hér á landi sé í raun bæði góð og slæm. „Í fyrsta lagi þá er um 70% af skólpi frá íbúum hreinsað, en hins vegar eru of mörg þéttbýlissvæði ekki með neina hreinsun á skólpi,“ segir Gísli. „Þar er aðgerða þörf og samkvæmt reglugerð frá 1999 átti að vera búið að setja hreinsun á allt skólp fyrir lok árs 2005, en það hefur ekki gengið eftir. Stóru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standa sig að mestu leyti vel.“ Varðandi minni sveitarfélög segir Gísli að aðstæður séu mjög mismunandi eftir íbúa- fjölda og staðsetningu. Oft vanti upp á hreinsun skólps, auk þess sé algengt að skólp- lagnir fari ekki nógu langt út í sjó. Það gæti aftur orsakað að gerlamengun færi yfir við- miðunarmörk í fjörum, en nákvæmar upplýs- ingar liggi ekki fyrir um það hjá Ust. Mest af skólpi er hreinsað 500.000 Í fyrra kom um hálf milljón erlendra ferðamanna til Íslands. 1.000.000 Fram hefur komið í umræðunni að fjöldi ferðamanna gæti orðið um ein milljón eftir tíu ár. ‹ AUKINN FJÖLDI › » Umhverfisstofnun opnar nýja heimasíðu á ársfundi stofnunarinnar á föstudag þar sem verða fjölmargar nýjungar. Má þar meðal annars nefna betri upplýsingar um friðlýst svæði og nýjar myndir, þar á meðal 360° myndir. Upplýsingarnar um svæðin, sem eru rúmlega 100, verða aðgengilegar í gegnum Íslandskort. Með sama hætti mun hver sem er geta kynnt sér eftirlit Umhverfisstofnunar með mengandi starfsemi. Einnig má nefna nýjar síður fyrir almenn- ing um heilsu og neytendamál, t.d. um hættuleg efni í vörum, s.s. hormónaraskandi og krabbameinsvaldandi efni í leikföngum og snyrtivörum, upplýsingar um hvað þarf að hafa í huga varðandi bílinn með heilsuna og umhverfið að leiðarljósi og grænt kynlíf svo eitthvað sé nefnt. Í texta á síðunni um grænt kynlíf segir meðal annars: Umhveis- fræðunum er ekkert óviðkomandi. Þú hefur e.t.v. staðið þig eins og hetja í að flokka sorpið, ganga og hjóla í stað þess að bruna um á einkabílnum, kaupa minna og þá bara umhverfismerkt! En umhverfismálin einskorðast ekki bara við þessar daglegu at- hafnir því það þarf líka að huga að ýmsu í svefnherberginu. Grænn og heilsusamlegur lífsstíll hjálpar til við að viðhalda lönguninni í amstri nú- tímans. Athöfnin sjálf er líka góð líkamsrækt! Auk þess hafa rannsóknir sýnt að kynlíf sé samofið vellíðan og hamingjuríku lífi. Veldu náttúrulega gúmmísmokka fram yfir þá sem ekki brotna niður í náttúrunni, ef slíkt býðst. Árlega eru notaðir í heiminum um 10 millj- arðar smokka sem enda í heimilissorpinu. Leikföngin eru misjöfn að gæðum og gerð- um. Því miður er meirihluti þeirra gerður úr PVC-plasti sem inniheldur þalöt sem eru hormónaraskandi og vinyl klóríð sem er krabbameinsvaldandi. Við framleiðslu og brennslu á PVC losnar eitt af skaðlegustu efnum sem til eru, díoxín. Ýmis leikföng eru fram- leidd úr gleri sem er mun umhverfisvænni kostur. GRÆNT KYNLÍF Á NÝRRI HEIMASÍÐU UMHVERFISSTOFNUNAR Að ýmsu að huga í svefnherberginu Morgunblaðinu hefur borist athugasemd frá tveimur bæjarfulltrúum í Kópavogi vegna fréttar í blaðinu sl. þriðjudag: Nokkrar rangfærslur voru í frétt Morgun- blaðsins í gær [á þriðjudag] um þá ákvörðun bæjarráðs Kópavogs að Kópavogsbær greiði málskostnað þriggja bæjarfulltrúa sem sýkn- aðir voru í meiðyrðamáli sem forsvarsmenn Frjálsrar miðlunar ehf. höfðuðu gegn þeim í kjölfar blaðaskrifa um viðskipti bæjarins við félagið. Í fyrstu ber að nefna að málið var afgreitt á fundi bæjarráðs Kópavogs í síðustu viku ágreiningslaust. Þá var í fréttinni vitnað í álit Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og því ranglega haldið fram að lögfræðingur sambandsins teldi að með greiðsluþátttöku bæjarins væri verið að skapa mikilvægt fordæmi. Hið rétta er að í álitinu segir að fordæmisgildi yrði fremur takmarkað með hliðsjón af málsatvikum. Má í því sambandi vísa í afdráttarlausan sýknudóm Héraðsdóms Reykjaness þar sem segir m.a. að ummæli bæjarfulltrúanna hefðu varðað stjórnsýsluhætti hjá Kópavogsbæ og að með þeim hefðu þeir verið að sinna eftirlitshlut- verki sínu. Ekki er heldur rétt að úrskurðarnefnd í vá- tryggingamálum hafi verið andvíg þeirri hug- mynd að bærinn greiddi umræddan máls- kostnað. Úrskurðarnefndin tók aldrei afstöðu til þess. Að lokum ber að geta þess að ekki er um lán að ræða heldur greiðslu. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar geti sinnt eftirlitshlutverki sínu og lýðræðislegri skyldu á opinberum vettvangi án þess að þurfa að ótt- ast að hægt sé að draga þá fyrir dóm með til- heyrandi málskostnaði. Á þeim forsendum var ákveðið að bærinn greiddi málskostnaðinn. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs. Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs. Svar Kristjáns Jónssonar blaðamanns: Í frétt Morgunblaðsins er fyrst og fremst sagt frá því að bæjarráð Kópavogs hyggist greiða lögmannskostnað þriggja bæjarfull- trúa vegna meiðyrðamála, gagnrýni hóps bæj- arbúa á þá ákvörðun og loks skýrt frá áliti þriggja aðila sem Kópavogsbær leitaði til. Sagt er frá áliti lagastofnunar Háskóla Ís- lands sem sagði það almennt ekki vera skyldu bæjarfélaga að greiða kostnað vegna meið- yrðamála sem höfðuð eru gegn þeim persónu- lega. Stofnunin bendir einnig á erfið álitamál vegna jafnræðisreglna og fordæmis verði þessar greiðslur inntar af hendi, eins og sagt er frá í fréttinni. Hlýtur það að teljast eðlilegt fréttamat að leggja áherslu á niðurstöðu Lagastofnunar sem er ítarleg og vandlega rökstudd. En rétt er sem fram kemur í athugasemd bæjarfulltrúanna að úrskurðarnefnd í vá- tryggingamálum svaraði ekki þeirri spurn- ingu hvort bærinn ætti að veita umrædda fjárhagsaðstoð vegna meiðyrðamálsins. Nefndin segir aðeins að Hafsteinn Karlsson eigi ekki rétt á bótum úr málskostnaðartrygg- ingu heimatryggingar sinnar, enda hafi hann skrifað greinina sem meiðyrðamálið snýst um sem bæjarráðsmaður. Einnig er það ranghermi í fréttinni að sviðsstjóri lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga segi í áliti sínu að hann hafi bent á að með greiðslunum væri skapað mikilvægt fordæmi. Hann segir meðal annars: „Að áliti undirritaðs yrði fordæmisgildi samþykktar um greiðsluþátttöku af hálfu bæjarins vegna þessa tiltekna máls fremur takmarkað með hliðsjón af málsatvikum.“ Sagt er í athugasemd bæjarfulltrúanna að ekki sé um lán að ræða. Þar sem þremenning- arnir undirrita samkomulag um að þeir muni endurgreiða féð ef þeir verði dæmdir sekir í Hæstarétti er varla frágangssök að nota orðið lán í þessu sambandi. Athugasemd vegna fréttar Sjávarútvegsráðherra Skota segist hafa verið fullvissaður um að Evr- ópusambandið sé í þann mund að tilkynna að- gerðir gagnvart Íslandi og Færeyjum vegna makríldeilunnar. Breska ríkisútvarpið BBC hafði í gær eftir Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra Skota, að hann hefði rætt við Mariu Damanaki, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, og hún hefði sagt sér að tilkynningar væri að vænta á næstu dög- um. Damanaki tilkynnti á fundi í sameiginlegu EES-nefndinni í janúar að Evrópusambandið ætlaði að setja bann á löndun makríls frá Ís- landi í höfnum ESB-ríkja. Skoski Evrópuþingmaðurinn Struan Stev- enson hvetur til þess að neytendur og fyrirtæki innan Evrópusambandsins sniðgangi íslenskar og færeyskar vörur þar til löndin tvö láti sér segjast í makríldeilunni. Aðgerðir vegna makríldeilu væntanlegar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.