Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Vörumessa Ungra frumkvöðla verður opnuð í Smáralind kl. 16 á morgun, föstudag, og stendur hún fram á laugardag. Þar koma sam- an 25 fyrirtæki sem stofnuð voru í verkefni sem heitir Fyrirtækja- smiðjan og er fyrir framhalds- skólanemendur. Á vörumessunni kynna fyrirtækin vörur sínar og þjónustu og verkefnið í heild sinni. Verkefnið spannar 13 vikur og á þeim tíma stofna þátttakendur fyrirtæki, vinna viðskiptaáætlun og markaðskannanir, selja hlutafé, framleiða og selja vörur og þjónustu og loka síðan fyr- irtækinu að 13 vikum loknum með ígildi ársreiknings. Verkefnið í heild sinni er einnig keppni um besta fyrirtækið og sem mun fyrir Íslands hönd fara í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla í Noregi í sum- ar ásamt keppendum frá um 37 löndum í Evrópu. Morgunblaðið/Ernir Ungir frumkvöðlar halda Vörumessu Samtök hernaðarandstæðinga hafa sent frá sér ályktun þar sem varað er við að íslensk stjórnvöld lýsi yfir stuðningi við athæfi þeirra herskáu ríkja sem hafa misnotað samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um flugbann og notað sem átyllu til allsherjar loftárása á Líbíu. Reynsl- an af þess konar hernaði sýni að hann bitni óvenju harkalega á al- mennum borgurum þar sem mark- miðið sé að verja eigin hermenn frekar en almenning á jörðu niðri. Íslendingar eigi alls ekki að styðja aðgerðir sem leiða til aukinna þján- inga fyrir almenning í Mið- Austurlöndum. Á móti loftárásum Á morgun, föstu- dag, kl. 12-14 er boðað til mál- þings á Torginu í Neskirkju til að ræða stöðu og framtíð þjóð- kirkjunnar, í ljósi þess að traust til þjóðkirkjunnar mælist nú í sögulegu lágmarki sam- kvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Allir eru velkomnir. Frummælendur eru Hulda Guð- mundsdóttir, fv. kirkjuþings- fulltrúi, Guðmundur Andri Thors- son rithöfundur, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Ævar Kjartansson útvarpsmaður, og Jó- hann Páll Valdimarsson. Fund- arstjóri er séra Sigurður Árni Þórðarson. Málþing um stöðu þjóðkirkjunnar STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Opið hús verður í Menntaskólanum á Akureyri í dag kl. 16-17.30 fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla, foreldra og aðra áhugasama til að „kynna sér líf og nám í MA“ eins og segir í tilkynningu.    Forsalan er hafin á söngleikinn Hárið sem frumsýndur verður í Hofi 15. apríl. Miðinn er þúsundkalli ódýrari í forsölu á netinu en síðar.    Einvalalið söngvara er í sýning- unni; Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Matthías Matthíasson, Magni Ás- geirsson, Jana María Guðmunds- dóttir, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Ólöf Jara Skagfjörð, Pétur Örn Guð- mundsson og Ívar Helgason. Leik- stjóri er Jón Gunnar Þórðarson.    Full ástæða er til að vekja athygli á sýningu á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar, Þjóðin, landið og lýðveldið, sem opnuð verður í Minja- safninu á laugardaginn. Þar er marga gullmola að finna.    Hollvinir Húna II boða til opins umræðufundar um borð í bátnum í kvöld kl. 20. Rætt verður um strand- menningu og stofnun strandmenn- ingarfélags á Akureyri.    Hætt er við því að fjör verði á Græna hattinum um helgina. Í kvöld kemur fram Ragnheiður Gröndal og með í för eru Guðmundur Pétursson, Róbert Þórhallsson og Birgir Bald- ursson á trommur. Á morgun verður sú magnaða hljómsveit Ensími á sviðinu og á laugardag nýtt band; Hákarlarnir. Það skipa Bogomil Font, Pétur Ben og Óttar Sæmunds- son. Sérstakur gestur kvöldsins verður Kristjana Stefánsdóttir auk þess sem nokkrir leynigestir koma og taka lagið með hljómsveitinni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hárið Það var glatt á hjalla hjá þessum föngulega hópi leikara/söngvara á æfingu í Hofi í gær. Leikstjórinn, Jón Gunnar Þórðarson, er lengst til hægri. Hárið vex í Hofi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.