Morgunblaðið - 24.03.2011, Page 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011
Stjórnvöld í Japan skýrðu frá því í
gær að kranavatn í Tókýó innihéldi
geislavirkt joð, sem væri yfir þeim
mörkum sem teldust örugg fyrir
ungbörn, vegna geislunar frá kjarn-
orkuveri í Fukushima eftir jarð-
skjálftann mikla 11. mars.
Foreldrum í Tókýó hefur verið
ráðlagt að gefa börnum sínum ekki
vatn úr krana á meðan þetta varir
og verður 240.000 vatnsflöskum
dreift til fjölskyldna í höfuðborg-
inni.
Kranavatnið í Tókýó inniheldur
210 bekerel af geislavirkum efnum,
en ekki er ráðlagt að ungbörn fái
vatn sem er meira en 100 bekerel.
Bekerel er mælieining fyrir
geislavirkni. Eitt bekerel er sú
geislavirkni sem samsvarar einni
kjarnabreytingu á hverri sekúndu.
Aukin geislavirkni hefur einnig
greinst í kranavatni í borginni
Hitachi-ota, milli Tókýó og kjarn-
orkuversins í Fukushima.
Banna innflutning
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
skýrt frá því að þau hafi bannað
innflutning á mjólkurafurðum og
öðrum landbúnaðarvörum frá svæð-
um í grennd við kjarnorkuverið.
Yfirvöld í Hong Kong hafa sett
sams konar innflutningsbann.
bogi@mbl.is
Vara við
krana-
vatninu
Geislavirknin talin
hættuleg ungbörnum
Reuters
Geislavirkni mæld Starfsmaður heilsugæslu nálægt kjarnorkuverinu í
Fukushima í Japan kannar hvort barn hafi orðið fyrir geislavirkum efnum.
Greg Bagwell, yfirmaður breskra
herflugmanna, sem framfylgja flug-
banni öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna yfir Líbíu, sagði í gær að engin
hætta stafaði lengur af flugher
Líbíu.
Bagwell sagði að líbíska flug-
hernum hefði verið tortímt nær al-
gerlega. Loftvarnakerfi Líbíuhers
væri einnig orðið svo laskað eftir
loftárásirnar að engin hætta væri
lengur á árásum á herþotur sem
framfylgja flugbanninu.
Bagwell sagði að herþoturnar
gerðu einnig árásir á líbíska her-
menn ef hætta væri talin á að þeir
réðust á óbreytta borgara í Líbíu.
„Líbísku hersveitirnar eru undir
stöðugu eftirliti okkar og við ráð-
umst á þær hvenær sem þær ógna
óbreyttum borgurum eða ráðast á
byggðir.“
Vestrænar herþotur hafa farið í
meira en 300 ferðir yfir Líbíu á síð-
ustu dögum og meira en 162 stýri-
flaugum hefur verið skotið.
Flughernum nær
algerlega tortímt
Vestrænum herþotum stafar ekki
lengur hætta af loftvörnum Líbíuhers
„Við munum sigra“
» Gaddafi flutti ávarp í Trípolí í
fyrrakvöld þegar hann kom
fram opinberlega í fyrsta skipti
frá því að loftárásirnar hófust.
„Við munum sigra,“ sagði hann
og óskaði eftir stuðningi „allra
íslamskra herja“.
» Bandaríski herinn sagði í
gær að engar vísbendingar
væru um að óbreyttir borgarar
hefðu fallið í loftárásunum.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mótmælabylgjan, sem gengið hefur
yfir Túnis, Egyptaland, Líbíu, Jem-
en og fleiri arabalönd, hefur nú skoll-
ið á Sýrlandi þar sem Baath-flokkur-
inn hefur verið einráður og stjórnað
með harðri hendi frá því að hann
rændi völdunum árið 1963.
Mótmælin í Sýrlandi hófust í vik-
unni sem leið þegar fólk safnaðist
saman í Daraa, um 75.000 manna bæ
við landamærin að Jórdaníu. Fólkið
krafðist þess að yfirvöld slepptu
fimmtán skólabörnum sem höfðu
verið handtekin fyrir að skrifa vin-
sælt byltingarvígorð á vegg: „Fólkið
vill að ríkisstjórnin falli.“
Handtökurnar kyntu undir
óánægju almennings með kúgunina
og mótmælin hafa undið upp á sig.
Minnst fimmtán manns biðu bana í
árásum öryggissveita á mótmælend-
ur í gær, þeirra á meðal níu sem lágu
í valnum eftir árás nálægt mosku í
bænum.
Alræðið verði afnumið
„Stjórninni skjátlast ef hún heldur
að hún geti leyst þessi vandamál með
kúgun,“ hefur fréttastofan AFP eftir
Burhan Ghalyoun, prófessor í arab-
ískum fræðum við Sorbonne-háskóla
í París. „Beiti öryggissveitirnar
gömlu aðferðunum verður það eins
og að hella olíu á eldinn.“
Mótmæli hafa verið bönnuð sam-
kvæmt neyðarlögum sem sett voru
eftir valdarán Baath-flokksins árið
1963 og eru enn í gildi.
Mótmælunum hefur þegar verið
lýst sem mesta innanríkisvanda sem
Bashar al-Assad forseti hafi staðið
frammi fyrir frá því að hann tók við
völdunum árið 2000 þegar faðir hans
lést. Faðir Assads beitti hernum til
að bæla niður uppreisn sem hófst að
undirlagi Bræðralags múslíma
og náði hámarki í bænum
Hama í norðanverðu landinu
árið 1982. Þúsundir manna
lágu í valnum eftir að herinn
lagði bæinn í rúst.
Sýrlenskir andófs-
menn hafa m.a.
krafist þess að al-
ræði Baath-
flokksins og
neyðarlögin
verði afnumin.
Spilling meðal
embættis-
manna, mis-
skipting og
mikið atvinnu-
leysi meðal ungs
fólks hafa kynt
undir óánægj-
unni.
Mótmælabylgjan
skellur á Sýrlandi
Öryggissveitir gera mannskæðar árásir á mótmælendur
4
1
3
2
1 2 3 4
90
95
100
105
110
115
120
1300
1325
1350
1375
1400
1425
1450
1,000 km
ÁTÖK OG MÓTMÆLI Í ARABALÖNDUM
Heimild: Reuters
Lönd þar sem átök eða mót-
mæli hafa verið síðan í janúar
Lönd þar sem komið hefur til átaka síðustu daga
ÓMAN
DJÍBÚTÍ
JEMEN
ALSÍR
TÚNIS
LÍBANON
LÍBÍA
NÍGER TSJAD SÚDAN
SÁDI-
ARABÍA
EGYPTA-
LAND
ÍRAK
JÓRDANÍA
SÝRLAND
MAROKKÓ ÍRAN
KÚVEIT
BAREIN
SÍÐUSTU ATBURÐIR
Í gær Loftárásum
haldið áfram og
ekkert lát á átökum
milli öryggissveita
Gaddafis og
uppreisnarmanna
Líbía
Í gær Mannfall varð
þegar öryggis-
sveitir skutu á
mótmælendur
nálægt mosku í
Daraa
Sýrland
Þriðjudag Skýrt frá
því að tveir mót-
mælendur hefðu
beðið bana í árás
öryggissveita.Alls
liggja 15 í valnum
Þriðjudag Þúsundir
manna tóku þátt í
mótmælum í Sanaa
og kröfðust þess að
forseti landsins segði
af sér tafarlaust
BareinJemen
* Í gærmorgun
HEIMSMARKAÐSVERÐ Á OLÍU
Brent-hráolía úr Norðursjó
Gullverð
JANÚARDESEMBER FEBRÚAR MARS
14. jan. Forseti
Túnis, Ben Ali,
segir af sér
18. des.
Mótmæli
í Túnis
11. febr. Mubarak
lætur af embætti
forseta í Egyptalandi
14. febrúar.
Mótmæli í
Barein og Íran
15. febrúar.
Mótmæli í
Líbíu
19. mars.
Loftárásir
gerðar á
Líbíu
25. janúar.
Mótmæli í
Egyptalandi
Verð í Bandaríkjadölum á fatið
Í Bandaríkjadölum á únsuna (28,35 g.)
1.428,8
116,40
23. mars*
7. mars - 1.444,4
24. febr. - 119,79
Olíuframleiðslan í Líbíu
minnkar um rúman fjórðung
Valdaklíka Bashars al-Assads,
forseta í Sýrlandi, er úr röðum
minnihlutahópsins alavíta sem
eru ein grein íslams. Alavítar
eru um það bil 10% lands-
manna og almennt fyrirlitnir
meðal annarra múslíma, eink-
um súnníta sem telja þá vera
nánast villutrúarmenn.
Bærinn Daraa og nálægir
bæir þar sem mótmæli hafa
blossað upp síðustu daga
eru aðallega byggðir
súnnítum. Ættbálkaleið-
togar hafa verið áhrifa-
miklir í bæjunum og snú-
ist þeir gegn einræðis-
stjórninni gætu mótmælin
breiðst út og jafnvel orðið
henni að falli.
Takist stjórninni hins
vegar að tryggja sér stuðn-
ing ættbálkaleiðtoganna
þykir líklegt að hún haldi
velli.
Geta ráðið
úrslitum
ÁHRIF ÆTTBÁLKA MIKIL
Bashar al-Assad
Yfirvöld í Japan sögðu í gær að alls
hefðu 9.487 lík fundist eftir jarð-
skjálftann og flóðbylgjuna 11.
mars. Þar að auki hafa 15.617 nöfn
verið skráð á opinberan lista yfir
þá sem er saknað eftir hamfar-
irnar.
Alls eru því 25.104 á listunum
yfir þá sem fórust eða er saknað.
Óttast er þó að tala látinna sé
miklu hærri þar sem á opinberu
listunum eru aðeins nöfn, sem til-
kynnt hafa verið til yfirvalda, og
ekki er vitað um afrif þúsunda
manna til viðbótar, að sögn jap-
anskra fjölmiðla.
Óttast að tala látinna hækki
MINNST 25.000 MANNS FÓRUST EÐA ERU TALIN AF
Skannaðu kóðann
til að lesa það nýj-
asta um átökin.
Að minnsta kosti einn farþegi
strætisvagns beið bana og yfir 30 til
viðbótar særðust þegar sprengja
sprakk við strætisvagnabiðstöð í
Jerúsalem í gær.
Nokkrum klukkustundum áður
höfðu palestínsku samtökin Íslamskt
jíhad hótað árásum í Ísrael til að
hefna tveggja árása Ísraelshers í
fyrradag á Gaza-svæðið. Átta íbúar
Gaza, þeirra á meðal tveir undir 18
ára aldri, biðu bana í árásunum.
Tveimur flugskeytum var einnig
skotið á borgina Beersheva í Ísrael í
gær. Vopnuð hreyfing í samtökunum
Íslamskt jíhad lýsti árásinni á hend-
ur sér.
Sprengjan sem sprakk í Jerúsal-
em hafði verið falin í poka við
strætisvagnastöðina. Hún sprakk
þegar strætisvagn nam staðar við
stöðina. Að minnsta kosti þrír far-
þeganna særðust lífshættulega, að
sögn yfirvalda í Ísrael.
Blóðsúthellingar í
Jerúsalem og á Gaza
Skannaðu kóðann
til að lesa það
nýjasta um Japan