Morgunblaðið - 24.03.2011, Page 19

Morgunblaðið - 24.03.2011, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 Vinsælir listviðburðir Tónlistarhúsið Harpa við höfnina í Reykjavík er að taka á sig endanlega mynd og aðeins sex vikur eru þar til húsið verður opnað. Um 20.000 manns hafa þegar tryggt sér miða á listviðburði í Hörpu og miðar á suma viðburði seldust upp á tæpri klukkustund. T.a.m. er uppselt á þrenna opnunartónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar undir stjórn Vladimirs Ashkenazys. RAX Félagi minn af Dagblaðinu sál- uga Bolli Héðinsson ritar grein í Fréttablaðið föstudaginn 18. mars þar sem hann lýsir stuðningi við Icesave-III-samning íslenskra stjórnvalda við Breta og Hollend- inga. Á Bolla er að skilja að flest hjól stöðvist ef þjóðin þurfi að bíða málaferla Breta og Hollend- inga fyrir íslenskum dómstólum. „[H]versu lengi viljum við vera í óvissu um hvort þeir muni gera það eða ekki?“ spyr minn gamli félagi. Þessar bollaleggingar Bolla eru satt best að segja alveg dæmalausar. Helst er á honum að skilja að þjóðin mæni í ofvæni á hurðarhún Hér- aðsdóms líkt og Ingvi Hrafni vinur minn starði á hurðarhúninn í Höfða forðum daga þegar Gor- batsjov og Reagan hittust og veröldin stóð á öndinni. Svona málflutningur er auðvitað ekki boðlegur. En bollaleggingar Bolla verða að bol- lafleipri þegar hann setur upp söguleg gleraugu og skrifar: „… allir íslenskir ráðherrar og embætt- ismenn sem að málinu hafa komið, allt frá hausti 2008, hafa lofað Bretum og Hollendingum að um málið yrði samið.“ Þessi staðhæfing stenst enga skoðun. Íslensk stjórnvöld stóðu í lappirnar hina örlagaríku daga þegar íslensku bankarnir hrundu og neyð- arlögin voru sett. Þetta má sjá glöggt af samtali Árna Mathiesen fjármálaráðherra við Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands. Alistair Darling: Skil ég það rétt að þið trygg- ið innistæður íslenskra sparifjáreigenda? Árni Mathiesen: Já, við tryggjum innistæður í bönkum og útibúum banka hér á Íslandi. AD: En ekki í útibúum utan Íslands? ÁM: Nei, ekki utan við það sem nú þegar hef- ur verið tekið fram í bréfinu sem við sendum. AD: En er það ekki í andstöðu við samning- inn um evrópska efnahagssvæðið? ÁM: Nei, það teljum við ekki og reyndar tel ég það vera í samræmi við það sem aðrar þjóðir hafa verið að gera undanfarna daga. Málið er ljóst. Í fyrsta lagi; íslensk stjórnvöld lýstu því skorinort yfir að þau tryggðu ekki inni- stæður í Bretlandi og Hollandi. Í öðru lagi; ís- lensk stjórnvöld kváðu enga lagaskyldu standa til að ábyrgjast innistæður í Bretlandi og Hol- landi. Gættu hagsmuna almennings á Íslandi, í Bretlandi og Hollandi Íslensk stjórnvöld stóðu vörð um almenning á Íslandi. Þau vörðu innistæður Íslendinga. Og ekki bara það. Íslensk stjórnvöld stóðu vörð um almenning í Bretlandi og Hollandi með neyð- arlögunum. Gerspilltir útlendir bankar voru látnir sitja í súpunni – lánardrottnar sem höfðu lánað óábyrgt til íslenskra banka. Það er mikilvægt að fólk skilji þetta. Darling var illa upplýstur, skildi ekki málið og beitti lúa- brögðum til þess að fella vinaþjóð. Mikil reiði reis í garð Íslendinga enda voru útlendir bankar að tapa þúsundum milljarða og hið al- þjóðlega fjármálakerfi á brauðfót- um. Evrópuþjóðirnar – með stuðningi Norðurlanda – beittu Ísland gífurlegum þrýstingi og þvinguðu til þess að skrifa undir Brussel-viðmiðin. Það var hreint og klárt ofbeldi, en Evrópuþjóðunum til máls- bóta verður að benda á að vestrænt fjár- málakerfi riðaði til falls og menn voru örvænt- ingarfullir. Síðan hefur hættan af hruni hins alþjóðlega fjármálakerfis dvínað og menn eru rólegri. Það var ekki fyrr en Steingrímur J. Sigfússon fékk lyklavöld í fjármálaráðuneytinu sem Bret- ar og Hollendingar fengu öllum sínum kröfum framgengt með vöxtum, vaxtabótum og vaxta- vöxtum með hinum alræmda Svavars-samningi. Ríkisstjórn Geirs Haarde neitaði að ábyrgj- ast skuldir óreiðumanna dagana fyrir hrun. Hún lofaði að vísu viðræðum þegar eldar loguðu í kjöllurum gerspilltra vestrænna banka gegn því að tekið yrði tillit til efnahagslegrar getu þjóðarinnar. Þessi atburðarás er að birtast. Þegar Geir forðaði þjóðargjaldþroti En það er fleira sem vert er að nefna í þessu samhengi. Nú er upplýst að Geir Haarde neitaði að skrifa undir yfirlýsingu um að íslensk stjórn- völd ábyrgðust skuldir íslenskra banka við út- lenda banka. Geir Haarde neitaði að breyta bankakreppu í skuldakreppu þjóðar. Slíkt plagg mun hafa verið lagt fyrir ráðherrann. Það er kaldhæðni örlaganna að maðurinn sem skrifaði undir þjóðhættulegan Icesave-samning skuli standa að landráðaákæru á hendur manninum sem forðaði þjóð sinni frá þjóðargjaldþroti. Á dögunum sat fréttamaður RÚV á læri elsku Darling í einu aumasta viðtali íslenskrar sjónvarpssögu. Þar voru engar gagnrýnar spurningar heldur réð heimsmynd elsku Dar- ling sem talaði niður til Íslendinga sem ekki höfðu „sýnt samstarfsvilja“. Hvers krafðist Darling? Krafðist hann írsku leiðarinnar sem hefði leitt til þjóðargjaldþrots Íslendinga? Sannleikurinn í þessu máli verður að koma fram í dagsljósið. Það verður að fara fram ítarleg rannsókn á öllu þessu óláns Icesave-máli. Eftir Hall Hallsson » Bollaleggingar Bolla verða að bollafleipri þegar hann setur upp söguleg gleraugu. Hallur Hallsson Höfundur er blaðamaður og rithöfundur. Af bollaleggingum Bolla og bollafleipri Margt er keimlíkt með Icesave- þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi 2011 og þjóðaratkvæðagreiðslunni í Svíþjóð um upptöku evru 2003. Þá voru allir stjórnmálaflokkar Sví- þjóðar að undanskildum Vinstri flokknum með á því að innleiða evru sem gjaldmiðil í Svíþjóð. Verkalýðs- hreyfingin tók undir sem og samtök atvinnurekenda. Allt leit út fyrir að Svíar myndu samþykkja að segja skilið við sænsku krónuna og taka upp evru í hennar stað. Áróður evrusinna var gegndarlaus, atvinnu- rekendasamtökin notuðu um 500 millj. sænskra króna til kynningarstarfsemi og evruáróðurs. Svíum var sagt að ef þeir segðu ekki já við evr- unni myndi Svíþjóð einangrast á hjara norðurs- ins og enginn vildi eiga viðskipti við landið. „Við erum bara 2% af íbúum Evrópu, enginn vill tala við okkur ef við segjum nei. Ef við segjum nei mun krónan hríðfalla og verða ónýt, vextir hækka og enginn vill lána okkur peninga. Sví- þjóð verður fátækt land fyrir utan alþjóða- samfélagið. Allar innfluttar vörur hækka í verði, atvinnuleysi aukast og launalækkun verða óhjákvæmileg.“ Þannig voru rök já-sinna gagnvart þeim, sem vildu viðhalda sænsku krónunni. Í vikunni fyrir kjördag var Anna Lind, utan- ríkisráðherra Svíþjóðar, myrt um hábjartan dag í búð í Stokkhólmi. Hún var einn ötulasti talsmaður evrunnar og margir töldu gefið að nú myndi þjóðin segja já við evrunni til að heiðra minningu hennar. Eftir morðið var kosninga- baráttan lögð niður fram að kosningadegi. Á kjördag mættu 83% Svía og greiddu atv- kæði um evruna. 42% sögðu já, 56% sögðu nei. Útkoma kosninganna varð reiðarslag fyrir evr- usinna, sem höfðu einokað fjölmiðla og vett- vang umræðunnar með já-hugmyndum sínum. Hvernig stóð á því að Svíar höfnuðu leiðinni, sem nær allir stjórnmálaflokkar höfðu á stefnu- skrá sinni ásamt samtökum atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar? Svíar eru í eðli sínu friðsamir og sam- vinnuþýðir. En í þetta skipti reis þjóðin upp og hafnaði stefnu yfirvalda og er stundum minnst á bændauppreisnina gegn Gústaf konungi Vasa á 16. öld til samanburðar. Svíar trúðu einfald- lega ekki á hræðsluáróðurinn og þjóðin vernd- aði krónuna sína. Í dag, átta árum seinna, er athyglisvert að bera saman ástandið við fullyrðingar evrusinna, að Svíþjóð myndi einangrast á alþjóðavettvangi ef evran yrði felld. Í dag hefur evran lækkað í verði og á eftir að falla enn meira við efnahagsógöngur Portúgals, Spánar og Ítalíu til viðbótar Grikklandi og Ír- landi. Þegar prentvélar eru settar í gang eins og nýverið hjá Írum, sem prentuðu 50 miljarða evru með vitund og samþykki Seðlabanka ESB og Seðlabanki ESB kaupir handónýt ríkisbréf gjaldfallinna meðlimaríkja ESB fara verðbólguhjólin í gang og áhætta á nýu falli fjár- málamarkaða stóreykst. Í dag er Svíþjóð eins og vin í eyðimörkinni. Hagvöxtur þriðja ársfjórðungs 2010 jókst um 6,9% samanborið við sama árs- fjórðung 2009. Fyrir evrulöndin varð aukningin aðeins 0,4% á sama tíma. Hagvöxtur Svíþjóð- ar árið 2010 var 5,5%, sem er það mesta sem gerist í Evrópu í dag. Sænska krónan hefur sjaldan verið sterkari, dollar, pund og evra hafa fallið um 10-35% gagnvart sænsku krónunni. Svíþjóð er nú í öðru sæti í heiminum á sviði samkeppni skv. World Econo- mic Forum og í fyrsta sæti í Evrópu. Svíar prísa sig sæla að hafa haldið krónunni. Margir af hörðustu stuðningsmönnum evru hafa alveg snúið við blaðinu þegar þeir hafa séð hvað sjálfstæð sænsk króna hefur þýtt fyrir landið. Ólíkt öðrum þjóðum hafa Svíar mætt fjár- hagskreppu umheimsins með lækkun launa- skatta og annarra skatta, lægri vöxtum og sjálf- stæðri krónu. Þessir þrír hlutir í sameiningu hafa gert það að verkum að fólk hefur haft meira fé milli handanna og keypt eins og fyrr. Þrátt fyrir að mörg fyrirtæki fóru um koll og atvinnuleysi jókst í október 2008 hafa Svíar náð sér á strik aftur og núna er byggingariðnaður- inn á fullu með mörg stór verkefni, t.d. bygg- ingu tveggja stórra íþróttaleikvanga í Stokk- hólmi. Reynsla Svía sýnir að fólki er alveg óhætt að fylgja hjartanu í stað hræðsluáróðurs elítunnar. Nei Svía við evru hefur ráðið úrslitum um að Svíþjóð stendur mun betur að vígi í dag en ella. Íslendingar ættu að læra af þessarri reynslu Svía og ekki vera feimnir við að ganga gegn þeim hræðsluáróðri sem elítan á Íslandi heldur uppi gagnvart neii við Icesave. Það er eitthvað sem vantar þegar menn þurfa að hræða aðra til fylgdar málstaðnum. Fellum Icesave, tíminn mun leiða í ljós á Íslandi eins og í Svíþjóð að hótanirnar eru hjómið eitt. Eftir Gústaf Adolf Skúlason »Margir af hörðustu stuðn- ingsmönnum evru hafa al- veg snúið við blaðinu þegar þeir hafa séð hvað sjálfstæð sænsk króna hefur þýtt fyrir landið. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fyrrverandi ritari Smáfyr- irtækjabandalags Evrópu. Lærum af reynslu Svía

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.