Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.03.2011, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2011 ✝ Magnús ÞórHelgason fædd- ist í Reykjavík 15. ágúst 1918. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 17. mars 2011. Móðir hans var Sólborg Jensdóttir, fædd í Arnardal við Ísafjarðardjúp. Sex mánaða gam- all var hann gefinn hjónunum Helga Kristjánssyni járnsmið, f. 10. júlí 1890, d. 1. ágúst 1972, ættuðum af Snæfellsnesi, og Jórunni Einarsdóttur, f. 3. jan- úar 1891, d. 12. nóvember 1966, hún var Árnesingur að ætt. Bræður Magnúsar voru Einar, f. 1920, d. 1935, og Kristján, f. 1927, d. 1947. Magnús fluttist þrettán ára gamall með foreldrum sínum til Suðurnesja og bjó á Hrúð- urnesi í Leiru til 18 ára aldurs en þá fluttist hann til Keflavík- ur þar sem hann bjó alla tíð síðan. Magnús giftist Kristínu Stef- þeirra eru Borgþór, kvæntur Björk Baldvinsdóttur, þau eiga tvær dætur. Inga Rún og Grét- ar Atli. 3) Óskírður Magnússon, f. 25. desember 1948, d. 26. desember 1948. 4) Guðríður, tanntæknir og ökukennari, f. 17. apríl 1950, gift Magnúsi Pétri Karlssyni, f. 29. nóv- ember 1947. Þau búa í Kefla- vík. Synir þeirra eru Karl Daníel og Magnús Þór. Áður átti Guðríður Kristínu Stefaníu. Stjúpsonur Guðríðar er Ágúst Bjarki, sambýliskona hans er Sigurveig Stefánsdóttir, þau saman eiga fjögur börn. Magnús byrjaði ungur að vinna, í fyrstu var hann til sjós en árið 1942 fór hann að vinna við vörubílaakstur, í fyrstu fyr- ir aðra en síðar sjálfstætt. Árið 1962 réð hann sig sem verk- stjóra hjá Keflavíkurbæ og starfaði þar til 1978, þá hóf Magnús störf hjá Varnarliðinu og starfaði jafnframt sem öku- kennari til ársins 1987, eftir það starfaði hann eingöngu sem ökukennari þangað til hann hætti störfum árið 1992. Magnús var mikil félagsvera og tók þátt í starfi eldri borgara fram á síðasta dag. Útför Magnúsar Þórs fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 24. mars 2011, og hefst at- höfnin kl. 16. aníu Magnúsdóttur 2. október 1943. Foreldrar hennar voru Margrét Níelsdóttir, f. 24. febrúar 1885, d. 27. júní 1968, og Magnús Friðjón Björnsson, f. 23. ágúst 1885, d. 21. júlí 1953. Börn Magnúsar og Kristínar eru: 1) Einar tannlæknir, f. 9. maí 1943, kvæntur Ingibjörgu Bjarnadóttur, f. 8. nóvember 1941. Þau búa í Keflavík. Synir þeirra eru Magnús Þór, kvænt- ur Önnu Guðnýju Kristjáns- dóttur, þau eiga tvo syni, og Einar Ingi. Stjúpsynir Einars eru Bjarni Kristjánsson, kvænt- ur Sigríði Jónsdóttur, þau sam- an eiga fjögur börn. Hafliði Kristjánsson kvæntur Steinunni Sigurðardóttur, þau saman eiga sex börn. 2) Grétar raf- verktaki, f. 7. október 1945, kvæntur Margréti Borgþórs- dóttur, f. 15. nóvember 1953. Þau búa í Garðabæ. Börn Aðfaranótt 17. mars lagði faðir minn í sína hinstu för. Ég er viss um að ef hann hefði fengið að ráða hefði hann keyrt sjálfur á fund skapara síns í fína bílnum sínum, nýju Hond- unni sem hann eignaðist fyrir tæpu ári. En menn fá ekki öllu ráðið, samt fór hann nokkurn veginn eins og hann vildi sjálf- ur. Geta séð um sig sjálfur til æviloka ekki upp á neinn kom- inn, verið virkur, njóta þess að lifa, geta keyrt bílinn sinn, og sofnað svo í stólnum sínum á síðasta degi, þannig var það að mestu leyti. Hann var hress og sprækur fram á síðasta dag, teinréttur og kvikur. Hann hafði misst konuna sína, móður mína fyrir tæpum sex árum, bjó einn í fal- legu íbúðinni sinni í Horn- bjargi, Kirkjuvegi 1 í Keflavík. Þangað höfðu foreldrar mínir flutt fyrir um 15 árum og þar leið þeim vel. Hann var í nánu sambandi við börnin sín. Ég sem þetta rita og systir mín höfum unnið saman á tann- læknastofu í Keflavík, þangað hefur pabbi komið síðastliðin 20 ár nánast daglega, eftir að hann hætti almennri vinnu. Verið nokkurskonar húsvörður og séð um ýmis viðvik fyrir okkur og annað starfsfólk stofunnar af mikilli alhúð og samviskusemi, hans verður sárt saknað þar. Faðir minn var reyndar ekk- ert unglamb fæddur 1918 og var því tæplega 93 ára þegar hann lést. Hann var fæddur í Reykjavík af einstæðri móður Sólborgu Jensdóttur sem treysti sér ekki til að ala hann upp sjálf, gaf hann frá sér 6 mánaða gamlan til heiðurs- hjónanna Helga Kristjánssonar og Jórunnar Einarsdóttur sem þá voru barnlaus, þau bjuggu þá í Reykjavík. Þegar faðir minn er 13 ára flytja þau til Leiru á Suðurnesjum og fara að búa á bænum Hrúðurnesi. Þá höfðu þau Helgi og Jórunn eign- ast drengina Einar og Kristján, Einar deyr í Leiru af slysförum 15 ára gamall 1935. Árið 1947 deyr síðan Kristján vegna veik- inda, eftir stendur pabbi einn með kjörforeldrum sínum. Hann naut ekki langrar skólagöngu var í skóla frá 10-13 ára aldurs, þá fer hann að vinna, fyrst í fiskvinnslu og síðan til sjós. 1938 fer hann að vinna við bif- reiðaakstur sem verður meira og minna hans starfsvettvangur og áhugamennska það sem eftir er ævinnar. Hann verður vörubíl- stjóri árum saman á eigin bíl, verkstjóri hjá Keflavíkurbæ í nokkur ár síðan ökukennari til loka starfsævi sinnar. Hann kynnist móður minni og giftst 1943. Pabbi byggði fallegt hús á Sólvallagötu 9 í Keflavík, hann var smekkmaður og lagði í þetta hús mikinn metnað. Þetta hús varð framtíðarheimili þeirra og æskuheimili mitt. Okkur leið öll- um vel á Sólvallagötu 9 og minn- ingar mínar þaðan eru bjartar og góðar, okkur skorti aldrei neitt hvorki fé né ást og um- hyggju og þannig var það alla tíð allt til æviloka, alltaf gat hann gert það sem hann langaði til að gera. Hann var góður traustur umhyggjusamur faðir sem mér fannst alltaf sterkastur allra. Við vorum alltaf nánir, okkur varð sjaldan sundurorða. Að leiðarlokum hugsa ég af mik- illi hlýju til hans og sakna hans sárt. Ég og fjölskyldan mín kveðj- um þig, kæri pabbi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Einar Magnússon. Elsku pabbi minn, þú endaðir þitt líf eins og þú varst búinn að óska þér, að fara snöggt og vera engum háður. Þú gast búið í þinni fallegu íbúð, keyrt bíl og dansað fram á síðasta dag. Pabbi minn, þú varst auðvelt gamalmenni, ef þú varðst ein- hvern tímann gamall. Glaður og þakklátur fyrir allt sem var gert fyrir þig. Ég vil þig, pabbi, kveðja, þótt brostin sé þín brá og bleikt og fölt sé ennið, er kossi’ þrýsti ég á. Ég veit ógerla enn þá, hve mikið ég hef misst, en mér er ljóst, að fölt er ennið, sem ég hefi kysst. Þótt lát þitt góði faðir, nú leggist þungt á mig þá lengst af finn ég huggun við minninguna’ um þig. Hún stendur mér svo skýr, og hún er svo helg og heit og hreinni’ bæði og ástríkari’ en nokkur maður veit. Ég vil hér ekki ljóða neitt lof eða hól um þig, en lengst af þessi hugsun mun fróa og gleðja mig. Og lengi mun þín röddin lifa’ í minni sál til leiðbeiningar för minni’ um veraldarál. Og tár af mínum hrjóta hvörm- um og heit þau falla niður kinn, því vafinn dauðans er nú örmum hann elsku – hjartans pabbi minn. (Kristján Albertsson.) Elsku pabbi, þakka þér fyrir allar samverustundirnar okkar sem aldrei bar skugga á. Hvíl í friði. Þín dóttir, Guðríður. Afi minn, Magnús Þór Helgason, er lagður af stað í sinn lengsta bíltúr, alla leið til ömmu í himnaríki. Ef það var eitthvað sem hann hafði gaman af þá voru það bílar og ferðalög. Bíltúrar jafnt heima sem erlendis voru hans uppáhald. Við afi vorum mjög líkir að mörgu leyti, bílar og bíltúrar hafa alltaf verið okkar hjartansmál og skipti ekki alltaf máli þó að ekki væri annar ferðalangur en bara bíllinn með í för. Við höfum báðir svo gam- an af akstri. Afi var fyrirmynd mín í sambandi við það hvernig maður gengur um sinn bíl og kemur fram við hann af virð- ingu. Hann var algjör prinsipp- maður varðandi að hafa bílinn alltaf 100%, og ég efa að nokk- ur maður hafi nokkurn tímann séð bíl með númerið Ö-50 og seinna M ÞÓR skítugan á göt- um Keflavíkur. Afi var nú samt ekki þessi týpa sem hafði gam- an af því að liggja skítugur undir bílum en hafði þeim mun meiri ánægju af að redda öllum hlutum, hann hafði nefnilega þetta reddaragen í sér. Erum við líkir að þessu leyti. Afi var vel þekktur í bænum. Hann starfaði lengi sem öku- kennari og kenndi nánast heilu árgöngunum á bíl. Síðan var hann líka frægur fyrir tryggð sína við Saab-bíla og átti senni- lega Íslandsmet í því hversu oft menn kaupa sömu tegund af bíl. Hann keypti 16 nýja Saaba í röð. Þeir gerast nú ekki miklu harðari en þetta þegar kemur að tegundahollustu þannig að það var mér mikið „áfall“ þegar hann ákvað að svikja lit og fara í aðra tegund fyrir nokkrum ár- um. Hann prófaði Subaru en stoppaði stutt á honum og færði sig yfir á Hondu. Hann átti þrjár eða fjórar Hondur síðustu árin og var alltaf að skipta um bíl kominn á tíræðisaldurinn. Afi var alveg ótrúlega heilsu- hraustur maður, sem náði því að verða hátt í 93 ára gamall og nánast aldrei veikur. Það var mér því mikið áfall þegar hann var tekinn svona skyndilega frá okkur. Eftir sitja minningar um eitt af mínum átrúnargoðum og þegar ég hugsa til baka þykir mér sérstaklega vænt um að hafa upplifað með honum þegar við keyrðum hvor á sínum bíln- um hringinn í kringum landið síðasta sumar. Hann keyrði síð- asta daginn frá Neskaupstað til Keflavíkur í einni lotu, þá 92 ára gamall. Ég ætla að vona að ég verði jafnflottur ökuþór og þú afi. Ég bið að heilsa ömmu og ég veit að þú ert kominn aftur á Saab, það þýðir ekkert að bjóða ömmu á rúntinn á einhverri Hondu. Þitt barnabarn, Einar Ingi Einarsson. Elsku afi minn, nú er komið að kveðjustund. Ég sit hér heima og rifja upp allar góðu stundirnar okkar saman. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er hvað mér fannst það mikið sport á yngri árum að fá að taka rútuna til Kefló og eyða deginum hjá ykkur ömmu. Það var æðislegt að sitja við eldhús- borðið og spjalla við ykkur á meðan amma bakaði pönnsur af sinni alkunnu snilld. Það var ekkert smá gaman að eiga þig sem afa, þú varst sko algjör töffari, alltaf flottast- ur í tauinu og fórst helst ekki í neitt nema Hugo Boss. Bílarnir þínir voru að sama skapi alltaf vel til hafðir og nýbónaðir, enda varstu algjör bíladellukall. En Magnús Þór Helgason HINSTA KVEÐJA Þú léttfættur á jörðu varst, vinahót og gleði barst í okkar allra hjörtu. Nú skilið við oss hefur þú en þökk sé þér við eigum trú og minningarnar björtu. Minningar um mætan mann Sem mikla ást oss allra vann og virðingu alla daga. Þú studdir ávallt börnin þín og þegar ég varð dóttir þín þá hófst mín gleðisaga. Gleði yfir návist þinni, þú vaktir yfir velferð minni og allra minna niðja. Elsku tengdafaðir minn, með þökk í huga og tár á kinn, þér velferðar vil biðja. Á slóðum sem nú bíða þín, þar brosmild bíður frúin þín og faðmlag ljúft þér veitir. Fingurkoss ég sendi þér og þakka allt sem liðið er, þín minning huggun veitir. (Í. Dungal) Margrét Borgþórsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát okkar ástkæru systur og frænku, ÖNNU ÞÓRKÖTLU PÁLSDÓTTUR, Sauðárkróki. Fyrir hönd systkina, frændsystkina og annarra aðstandenda, Sigurlaug Pálsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, HÁKONAR BJÖRNSSONAR rafvirkjameistara, Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða og Lionsklúbbs Akraness. Sigursteinn Hákonarson, Sesselja Hákonardóttir, Guðbjörg Hákonardóttir, Ásgeir H. Magnússon og afabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS BJÖRNSSONAR MALMQUIST, Skógarhlíð 29, Akureyri. Liesel Malmquist, Björg J. Malmquist, Gylfi Ægisson, Hilmar J. Malmquist, Helga Bogadóttir, Karen J. Malmquist, Gunnar Viðar Eiríksson, Finnur J. Malmquist, Kristjana Vigdís Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS SIGURÐSSONAR hornleikara. Sérstakar þakkir fá vinir, sem gerðu útför hans svo eftirminnilega með tónlist sinni. Guðrún Ó Jónsdóttir, Gunnar Tómasson, Sigrún I. Jónsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Sverrir G. Tómasson, Christine Tómasson, Guðrún G.T. Rubin, Josh Rubin, Rannveig Thoroddsen, Solveig Thoroddsen, Jón Thoroddsen, Fjóla Dísa Skúladóttir, Guðmundur Thoroddsen, Arna Óttarsdóttir, Stefán, Koby, Lóa, Jack, Zoe, Cassie, Solveig, Dagur, Sigrún, Emil, Kári. Unglingsárin eru mikill mót- unartími. Maður yfirgefur hreiðrið og heldur út í heiminn vongóður um að allt gangi stór- slysalaust. Við gerum stórar áætlanir, en ráðum oft litlu um hvað verður. Við vorum nokkrir félagarnir sem eyddum fríkvöldunum sam- an í Þingholtinu. Þar höfðum við samastað í íbúð sem pabbi Dóra átti og synir hans höfðu til afnota og þar kynntumst við Dóri. Hann skar sig úr hvað framkomu varð- aði. Það var eitthvað fornt við hann, bæði orðfærið og hláturinn. Dóri var satt að segja mikið fyrir glannalegan húmor og hláturinn hár og hömlulaus hreif mann með sér. Sjónarhornin og viðhorfin voru oft stórkostlega skemmtileg og umræðan aldrei leiðinleg, en best var þó að halda sig utan skerja og ekki segja neitt ljótt um Framsóknarflokkinn, því þá lok- aðist þverrifan á Dóra. Hann var Halldór Björnsson ✝ HalldórBjörnsson fæddist á Ytri- Löngumýri í Blöndudal í Aust- ur-Húnavatnssýslu 9. apríl 1953. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. mars 2011. Útför Halldórs fór fram frá Foss- vogskapellu 18. mars 2011. eðlisfróður maður og velviljaður en alger- lega lokaður hvað eigið sálarlíf varðaði. Ég veit ekkert um uppvöxt Dóra, hann trakteraði mann aldrei á neinum sög- um um þann kafla, en á unglingsárum brotnaði hann illa á fæti og það háði hon- um alla tíð síðan. Honum seinkaði í skóla vegna þess og leiddi það til þess að við vorum saman í fjórða bekk í MR og sátum þar saman aftast við þriðja mann. Ýmislegt var skraf- að en um miðjan vetur urðu breytingar á Dóra og hann gerð- ist hljóður og óræður á svip og svo hvolfdist yfir hann erfiður geðsjúkdómur, sem aldrei síðar sleppti krumlu sinni af honum. Hann var þó mismikið þjakaður af veikindunum og átti góða kafla inni á milli. Við héldum síðan hvor sína leið og sambandið varð slitrótt. Hann hringdi þó iðulega í mig og vildi vara mig við ýmsum hættum, fæstum þó raunverulegum, en samtölin voru stutt því að hann var að tala úr tíkallasíma. Hann bað þó alltaf fyrir kæra kveðju til konunnar minnar og barnanna, sem hann taldi upp. Hver er svo vinur manns? Vin- ur er sá, sem gott er að tala við og hlusta á og sýnir manni kvaða- lausan hlýhug, þannig var Dóri. Garðar Guðmundsson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.